Fréttablaðið


Fréttablaðið - 24.05.2018, Qupperneq 15

Fréttablaðið - 24.05.2018, Qupperneq 15
Þess vegna sló norska þingið eign þjóðarinnar á olíu- lindirnar frá byrjun frekar en að sleppa þeim í hendur einkavina líkt og Rússar og ýmsar aðrar olíuþjóðir hafa gert. Alþingi fór rússnesku leiðina í fiskveiðistjórnar- málinu. Það hefur reynzt afdrifaríkt. Gúglaðu „bófa- flokkur“ og nafn Sjálfstæðis- flokksins kemur upp strax í fimmtu línu. Þannig fer ævinlega fyrir þeim sem fara í útreiðartúr á tígrisdýri. Hagkvæmt húsnæði Leit að samstarfsaðilum Reykjavíkurborg leitar að samstarfsaðilum um uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði á völdum reitum í borginni. Í vetur auglýsti Reykjavíkurborg eftir hugmyndum til að auka framboð á hagkvæmu húsnæði fyrir meðal annars ungt fólk og fyrstu kaupendur. 68 aðilar sendu inn hugmyndir og voru þær meðal annars kynntar á málþingi í Ráðhúsi Reykjavíkur. Nú er komið að öðrum fasa verkefnisins þar sem umsóknir um reiti sem lýsa uppbyggingu á tilteknum svæðum verða metnar á grundvelli matslíkans. Reitirnir sem um ræðir eru í Úlfarsárdal, á Kjalarnesi, í Gufunesi, í Bryggjuhverfi við Elliðaárvog, við Stýrimannaskólann, á Veðurstofureit og í Skerjafirði. Skipulag þessara svæða er mislangt á veg komið. Gert er ráð fyrir því að samstarfsaðilar komi inn í þróunar- og deiliskipulagsvinnu og geti þannig haft áhrif á endanlegt deiliskipulag. Umsóknir skal senda í síðasta lagi 20. júní 2018. Nánari upplýsingar um verkefnið ásamt matsblaði má finna á heimasíðu Reykjavíkurborgar www.reykjavik.is/hagkvaemt-husnaedi Jens Evensen hét maður. Hann má kalla höfuðarkitekt þeirrar auðlindastjórnar sem hefur gert Noreg að fyrirmynd ann- arra olíuríkja. Evensen varð síðar hafréttarráðherra Noregs, en hann var embættismaður í fjármála- ráðuneytinu í Ósló þegar olían fannst í norskri lögsögu fyrir 1970. Hann taldi sér skylt að koma stjórnmálamönnum í skilning um að olíuauðinn skyldi skoða sem sameign norsku þjóðarinnar. Þannig tókst Norðmönnum að girða fyrir rentusókn. Nú, hálfri öld síðar, eru „olíufurstar“ nær óþekktir í Noregi. Orðið kemur varla fyrir í máli manna. Öðru máli gegnir því um Noreg en Ísland þar sem „kvótakóngar“ og „sægreifar“ hafa lengi verið meðal algengustu orða í þjóðmálaumræðunni líkt og fáráðar (e. oligarchs) í Rússlandi. Gildasti auðlindasjóður heims Stjórn Norðmanna á olíuauði sínum markast af því að olía og gas innan norskrar lögsögu voru frá öndverðu skilgreind í lögum sem sameignarauðlindir. Lögin innsigluðu rétt norsku þjóðar- innar til auðlindarentunnar, þ.e. til teknanna af olíulindunum. Á grundvelli þessara laga hefur norska ríkið með árunum leyst til sín um 80% af auðlindarentunni fyrir hönd skattgreiðenda og lagt mestan hluta fjárins í olíusjóð sem heitir nú lífeyrissjóður. Í honum er nú meira en ein trilljón Banda- ríkjadala eða 800.000 dalir (80 m.kr.) á hverja fjögurra manna fjöl- skyldu í Noregi. Engin önnur þjóð heimsins á gildari auðlindasjóð en þennan. Norska þingið setti sjálfu sér og sjóðnum siðareglur („boðorð“) til að tryggja að ráðstöfun sjóðsins gagnaðist núlifandi og óbornum kynslóðum Norðmanna í senn. Eftir að Seðlabanka Noregs var tryggt aukið sjálfstæði 2001 var bankanum falin stjórn olíusjóðsins fyrir hönd fjármálaráðuneytisins. Þetta var gert til að halda stjórn- málamönnum í hæfilegri fjar- lægð frá sjóðnum. Þannig hefur Norðmönnum tekizt að komast hjá rentusókn og tengdum vanda- málum sem hafa hrjáð fjölmörg önnur olíuríki um allan heim. Jöfn skipting Skipting þjóðarauðsins í Noregi er ívið jafnari en í Svíþjóð og mun jafnari en á Íslandi svo sem fram kemur t.d. í bók Stefáns Ólafssonar og Arnalds Sölva Kristjánssonar, Ójöfnuður á Íslandi (2017, bls. 385). Norðmönnum hefur tekizt að komast hjá skaðlegum átökum um skiptingu olíurentunnar eða a.m.k. girða fyrir að slík átök leiddu til teljandi misskiptingar. Noregur var fullþroska lýðræðisríki löngu áður en olían fannst. Það skiptir máli. Lýðræðisríki eru ólíklegri en einræðisríki til að láta menn komast upp með að sölsa undir sig eigur annarra, þ.m.t. auðlindir, til að tryggja völd sín. Vitlaust gefið Ólíkt olíustjórn Norðmanna er fiskveiðistjórnin hér heima reist á innbyrðis þversögn. Kvótakerfið er reist á upphaflegri úthlutun veiðiheimilda sem mismunaði mönnum og braut þar með gegn stjórnarskránni eins og mannrétt- indanefnd Sameinuðu þjóðanna Forsaga kvótans: Taka tvö staðfesti 2007 og Hæstiréttur Íslands hafði áður staðfest 1998. Frjálst framsal kvóta var æskilegt af hagkvæmnisástæðum en slíkt framsalsfrelsi útheimti upphaf- lega úthlutun án mismununar. Vandinn liggur því ekki í kvót- anum sjálfum og viðskiptum með hann heldur í mismununinni við upphaflega úthlutun sem var reist á veiðireynslu áranna 1980-1983. Vandinn hefur undið upp á sig. Alþingi gafst loksins upp fyrir kröfunni um veiðigjald 2002, en þá aðeins til málamynda. Skv. útreikningum Indriða Þorláks- sonar fv. ríkisskattstjóra duga veiðigjöldin aðeins til að beina 10% fiskveiðirentunnar til rétts eiganda, fólksins í landinu, meðan 90% renna áfram til útvegsmanna. Þetta fyrirkomulag er eins langt frá norskri olíustjórn og hugsazt getur. Norska fyrirmyndin um auðlindir í þjóðareigu gat varla nærtækari verið en hún var ekki rædd á Alþingi. Fyrstu lögin um fiskveiði- stjórnina voru samin á skrifstofum LÍÚ eins og Halldór Jónsson rekur í ritgerð sinni „Ákvarðanataka í sjávarútvegi og stjórnun fisk- veiða“ (Samfélagstíðindi 1990, bls. 99-141). Frekar en að taka norska olíu- stjórn sér til fyrirmyndar kaus Alþingi í reyndinni að fylgja for- dæmi norskrar fiskveiðistjórnar þar sem veiðileyfum er úthlutað til skipa án endurgjalds líkt og tíðkast annars staðar í Evrópu þótt fiskstofnar séu þar sumir á hverfanda hveli. Noregur og önnur Evrópulönd telja sig hafa efni á slíku ráðslagi þar eð sjávarút- vegur skiptir þar ekki miklu máli. Það á ekki við um Ísland þar sem sjávarútvegur gegnir mikilvægu hlutverki í þjóðarbúskapnum og ekki bara í einstökum fámennum byggðarlögum líkt og í Noregi og úti í Evrópu. Þar liggur mikilvægur munur. Gúglaðu „bófaflokkur“ Norðmenn ákváðu fyrir löngu að niðurgreiða sjávarútveg myndar- lega líkt og landbúnað einkum til að styrkja Norður-Noreg. Þar eð sjávarútvegur skiptir litlu máli í norskum þjóðarbúskap á heildina litið hafa menn ekki sett kostnað- inn fyrir sig. Snemma varð ljóst að olía myndi skipta norskan þjóðar- búskap miklu máli. Þess vegna m.a. kom ekki til álita að sóa olíurentunni líkt og fiskirentunni. Þess vegna sló norska þingið eign þjóðarinnar á olíulindirnar frá byrjun frekar en að sleppa þeim í hendur einkavina líkt og Rússar og ýmsar aðrar olíuþjóðir hafa gert. Alþingi fór rússnesku leiðina í fiskveiðistjórnarmálinu. Það hefur reynzt afdrifaríkt. Gúglaðu „bófaflokkur“ og nafn Sjálf- stæðisflokksins kemur upp strax í fimmtu línu. Þannig fer ævinlega fyrir þeim sem fara í útreiðartúr á tígrisdýri. Þorvaldur Gylfason Í DAG S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 15F I M M T U D A G U R 2 4 . M A Í 2 0 1 8 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F E 3 -3 1 2 0 1 F E 3 -2 F E 4 1 F E 3 -2 E A 8 1 F E 3 -2 D 6 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.