Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 12
Er fátækt eðlilegt ástand? Ástæða þess að svona margir lifa í sárri fátækt hlýtur að vera vankunnátta þeirra fátæku á eigin réttindum. Sumt fólk er svo heppið að eiga eigin húsnæði en það þarf samt mat og föt. Lágmarksframfærsla einstaklings er 159.000 kr á mánuði en það er einungis til framfærslu. Fátækt fólk þarf líka þjónustu tann lækna, sem og aðra læknisþjónustu. Björgvin Ómar Ólafsson, Frumskógum 6, 810 Hveragerði. 8.395 3.995 Verð áður: 13.995 Verð áður: 7.990 KENWOOD ÖRBYLGJUOFN K20MSS10E REMINGTON PS PLUS HERRARAKVÉL PR1250 AÐEINS 40 STK. -40% -50% AÐEINS 40 STK. Í STÆRÐ 21.995 Verð áður: 33.995 VIVOSPORT SLATE HEILSUÚR S/M & L 0100178902 0100178900 -35% 87.995 11.995 Verð áður: 98.995 Verð áður: 19.995 ACER SWIFT 3 SIGNATURE FARTÖLVA ACNXGNUED008 RADIONETTE SOLIST ÚTVARP RNSHDB15E heia norge! tilboðsdagar 14 – 27 maí VIÐ FöGNUM 20 ÁRA SAM- STARFI VIÐ ELKJøP Í NOREGI með tveggja vikna norskri veislu og masse fine priser! 11.995 Verð áður: 19.995 PIONEER ÞRÁÐLAUS HEYRNARTÓL SEMS7BTBK SEMS7BTBR SEMS7BTSI -40% AÐEINS 100 STK. -12% -40% AÐEINS 30 STK. AÐEINS 70 STK. AÐEINS 50 STK. „Reksturinn hefur verið þungur síðustu fimmtán mánuði og þegar við bætist að tveir stjórnendur félagsins fá stöðu sakbornings og að félagið á mögulega yfir höfði sér sektargreiðslu er ekki nema von að fjárfestar séu skelkaðir,“ segir Snorri Jakobsson, hlutabréfagreinandi hjá Capacent, um mikla gengislækkun hlutabréfa í Eimskip undanfarna daga. Bréfin hafa fallið um 5,4 prósent í verði eftir að félagið greindi frá því síðastliðið mánudagskvöld að Gylfi Sigfússon forstjóri og Bragi Þór Marinósson, framkvæmdastjóri alþjóðasviðs, hefðu fengið stöðu sakbornings í rannsókn héraðssak- sóknara á meintu samráði Eimskips og Samskipa. Gengi bréfanna stóð í 192,5 krónum á hlut eftir lokun markaða í gær og hefur það ekki verið lægra frá skráningu félagsins í Kauphöll í nóvember árið 2012. Útboðsgengið var 208 krónur á hlut en lægst fór gengið í 207 krónur í júnímánuði 2015. „Þetta lítur ekki allt of vel út,“ bætir Snorri við. Ef Samkeppniseftirlitið kemst að þeirri niðurstöðu að Eimskip hafi gerst brotlegt við samkeppnislög gæti skipafélagið átt yfir höfði sér sekt upp á nokkur hundruð millj- óna króna, að sögn viðmælenda Fréttablaðsins. Þeir benda á að þrjú félög hafi þurft að greiða samtals 1,5 milljarða króna í sektir í olíusam- ráðsmálinu og þá hafi 500 milljóna króna sekt verið lögð á kortafyrir- tækið Valitor vegna misnotkunar á markaðsráðandi stöðu. Snorri segir að stjórnendur Eim- skips hafi átt að upplýsa fjárfesta betur um stöðu meinta samráðs- málsins. Ekki hafi borið mikið á upplýsingum um málið og hugsan- lega sektargreiðslu í afkomukynn- ingum. „Þeir áttu að mínu mati að standa betur að málum. Betri upp- lýsingagjöf til markaðarins hefði verið til bóta,“ segir Snorri. Auk þeirra Gylfa og Braga Þórs hafa þeir Pálmar Óli Magnússon, forstjóri Samskipa á Íslandi, og Ásbjörn Gíslason, forstjóri Sam- skipa Logistics, stöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara. Sam- kvæmt samkeppnislögum getur sá sem framkvæmir, hvetur til eða lætur framkvæma ólögmætt sam- ráð átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsisdóm. Til viðbótar við rannsókn sak- sóknara rannsakar Samkeppnis- eftirlitið möguleg samkeppnisbrot skipafélaganna. Eggert B. Ólafsson, lögfræðingur hjá Samkeppnisráðgjöf, segir að ýmsir þættir hafi áhrif á fjárhæð sekta í samráðsmálum. Til dæmis hvort brot hafi komist til fram- kvæmda, hvort um ásetning, en ekki bara hreint gáleysi, hafi verið að ræða, hve lengi brotin hafi staðið yfir, hve umfangsmikil þau hafi verið og eins hvort fyrirtæki hafi átt frumkvæði að sáttaumleitunum og viðurkennt brot. „Tilhneigingin hefur verið sú að sektir lækki nokkuð í meðförum áfrýjunarnefndar samkeppnismála og dómstóla, án þess að það sé sér- staklega rökstutt, en þó eru til und- antekningar frá því,“ segir Eggert. Jóhann Viðar Ívarsson, grein- andi hjá IFS, bendir á að sé litið til sektarfjárhæða í samkeppnisbrota- málum hafi þær gjarnan hlaupið á einhverjum hundruðum milljóna króna í tilfelli stórra fyrirtækja. Sem dæmi hafi Héraðsdómur Reykja- víkur nýverið dæmt Byko til þess að greiða 400 milljónir króna í sekt vegna ólögmæts samráðs sem sé sögulega séð há sekt. Upphæðir í þeim dúr séu hins vegar ekki háar séu þær settar í samhengi við rekst- ur og markaðsvirði Eimskips. Lítill áhugi á kaupum Jóhann Viðar segir markaðinn hafa brugðist harkalega við tveimur slæmum fregnum af Eimskip. „Annars vegar var fyrsti fjórðungur ársins vonbrigði, aðallega vegna vandræða í Afríku, og hins vegar hafa ný tíðindi borist af rannsókn á meintum samráðsbrotum félags- ins. Þessar fregnir bárust hvor ofan í aðra sem skýrir kannski hve mikil viðbrögðin voru.“ Vissulega hafi tíðindin verið nei- kvæð en gengislækkunin sé engu að síður mikil. Einhverjir kunni að sjá kauptækifæri í Eimskip núna. Greinendur IFS mátu gengi bréfa skipafélagsins á ríflega 300 krónur í síðasta verðmati, hagfræðideild Landsbankans á 295 krónur og sér- fræðingar Capacent á 280 krónur. Bréf félagsins fóru hvað hæst í 339 krónur í maí í fyrra en hafa fallið um 43 prósent síðan þá. Snorri segir töluverðan mótvind vera í rekstri félagsins, svo sem vegna hækkandi olíuverðs, styrk- ingar krónunnar gagnvart Banda- ríkjadal og óróa á vinnumarkaði. „Við erum að sjá sömu þróun bæði hjá Eimskip og Icelandair þar sem til viðbótar við almenna óvissu- þætti hjálpar það félögunum ekki að eiga við íslenskan vinnumarkað og íslenska krónu,“ nefnir hann. Sem kunnugt er tilkynnti banda- ríska fjárfestingarfélagið Yucaipa, stærsti hluthafi Eimskips, í nóvem- ber að það skoðaði möguleika á að selja fjórðungshlut sinn í skipa- félaginu. Ráðgjafar félagsins hafa á undanförnum mánuðum fundað með fjárfestum og kannað áhuga þeirra á kaupum en samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hefur áhuginn reynst lítill. Hefur mikið borið á milli hvað verðhugmyndir varðar. Gengi hlutabréfa Eimskips aldrei lægra Hlutabréfaverð Eimskips hefur ekki verið lægra frá því að félagið var skráð í Kauphöll Íslands í nóvember 2012. Greinandi segir ekki nema von að fjárfestar séu skelkaðir. Skipafélagið gæti átt yfir höfði sér sekt upp á hundruð milljóna króna verði það fundið brotlegt. Skipafélagið Eimskip hefur hafnað ásökunum um að hafa gerst brotlegt gegn ákvæðum samkeppnislaga. Er það von félagsins að rannsókninni fari senn að ljúka en í tilkynningu til Kauphallarinnar fagnar félagið því að nú, fimm árum eftir að rannsókn málsins hófst, virðist sem loksins sé kominn skriður á rannsóknina. FréttabLaðið/anton brinK Eimskip upplýsti fjárfesta ekki strax Tíu dagar liðu frá því að forstjóri og framkvæmdastjóri alþjóðasviðs Eimskips fengu réttarstöðu sakbornings í rannsókn héraðssaksóknara á meintu samráðsbroti félagsins og Samskipa þar til skipafélagið upplýsti fjár- festa um tíðindin. Samkvæmt lögum um verðbréfaviðskipti ber að birta eins fljótt og auðið er upplýsingar sem eru lík- legar til þess að hafa marktæk áhrif á markaðsverð. Viðmælendur Fréttablaðsins furða sig á upplýsinga- gjöf Eimskips og segja ljóst að um verðmótandi upp- lýsingar hafi verið að ræða. Þannig hafi bréf félagsins fallið um tæplega fimm prósent í verði á þriðjudag, daginn eftir að félagið upplýsti um fregnirnar. Við- skipti með bréf í félaginu hafi numið hátt í hálfum milljarði frá því að stjórnendurnir hafi fengið réttar- stöðu sakbornings þann 11. maí. Fjármálaeftirlitið og Kauphöll Íslands sögðust ekki geta tjáð sig um einstök mál. Kristinn Ingi Jónsson kristinningi@frettabladid.is 43% er gengislækkun bréfa í Eim- skip frá því gengið var hvað hæst í maí á síðasta ári. markaðurinn 2 4 . m a í 2 0 1 8 F I m m T U D a G U R12 F R é T T I R ∙ F R é T T a B L a ð I ð 2 4 -0 5 -2 0 1 8 0 4 :3 1 F B 0 6 4 s _ P 0 6 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 5 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F E 3 -5 3 B 0 1 F E 3 -5 2 7 4 1 F E 3 -5 1 3 8 1 F E 3 -4 F F C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 6 4 s _ 2 3 _ 5 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.