Fréttablaðið - 24.05.2018, Blaðsíða 32
Óhætt er að segja að líf Arnars snúist um maraþonhlaup. Í fyrra tók hann þátt í Reykja-
víkurmaraþoni Íslandsbanka og
varð fyrstur í mark í þriðja skipti.
Á seinasta ári varð hann jafnframt
nífaldur Íslandsmeistari í frjálsum
íþróttum, fyrstur Íslendinga.
„Markmiðið er að ná lágmarkinu
fyrir Ólympíuleikana í Tókýó
sumarið 2020. Ég ætla að að taka
þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í
sumar, auk þess að hlaupa maraþon
í Berlín eða Köln,“ segir Arnar sem er
nýlega kominn heim frá Hamborg.
Þar í borg hljóp hann maraþon á
þriðja besta tíma sem Íslendingur
hefur hlaupið frá upphafi.
Vill ná góðum árangri
Arnar æfði fótbolta og körfubolta
á sínum yngri árum og hampaði
Íslandsmeistaratitli í báðum
greinum. Síðustu sex árin hefur
hann einbeitt sér að maraþoni með
frábærum árangri. „Ég æfi mikið
og vil ná eins góðum árangri og ég
mögulega get. Það skiptir miklu máli
að vera með allt á hreinu varðandi
æfingar, það er ekki nóg að æfa
mikið heldur þarf líka að hugsa um
næringu, bætiefni, teygjur, nudd
og að allt utanumhald sé pottþétt,“
segir Arnar.
Hann hefur verið svo lánsamur
á sínum ferli að hafa ekki þurft að
glíma við íþróttameiðsli. „Það er
ekkert einfaldara en að meiðast eða
æfa of mikið. Þess vegna er mikil-
vægt að vera vakandi fyrir því hvern-
ig líkaminn bregst við þjálfun,“ segir
Arnar og bætir við að það sé mikið
nákvæmnisverk. „Til að ná hámarks-
árangri þarf að dansa á þeirri línu að
vera á milli þess að vera í ofþjálfun
og ná hámarksárangri. Það má ekki
fara yfir þessa línu.“
Arnar er með BA-gráðu í hagfræði
og lýkur senn þremur masters-
gráðum á þremur árum. „Undan-
farin ár hef ég verið í 120 prósent
námi og unnið meðfram því en ég
lýk mastersnámi í endurskoðun og
reikningsskilum, fjármálum fyrir-
tækja og kennsluréttindum núna í
sumar. Þetta hefur gengið vel með
góðu skipulagi en ég hef varla gert
annað en að æfa, læra og ferðast. Á
þessum þremur árum hef ég verið í
útlöndum í um 14 mánuði samtals.
Fyrst sem skiptinemi í Þýskalandi og
svo í æfingabúðum um allan heim.
Það er bara gott að geta tekið námið
og æfingarnar með sér hvert sem
maður fer,“ segir Arnar brosandi.
Arnar er á Instagram undir
notendanafninu @arnarpetur þar
sem hann leyfir fólki að fylgjast náið
með hvað þarf til að ná betri árangri
í hlaupum.
B12-vítamín daglega
Arnar byrjar daginn á að taka B12
Ultra en miklar æfingar spæna
upp B-vítamín í skrokknum. B12
er nauðsynlegt við myndun nýrra
rauðra blóðkorna og skortur á því
getur valdið blóðleysi, þrekleysi og
síþreytu. B-12-vítamín finnst ekki
grænmetisfæði og grænmetisætum
því hætt við skorti. NOW Ultra B12
liquid inniheldur einnig hin B-víta-
mínin: 1, 2, 3, 5 og 6.
Amino Power fyrir æfingar
Fyrir æfingar tekur Arnar Amino
Power sem er hreinn Pre Workout
drykkur sem inniheldur engin
óæskileg aukaefni, er
sættur með stevíu og
xylitoli og litaður
með rauðrófudufti.
Drykkurinn inni-
heldur mátulegt
magn af koffeini
(50 mg í skammti)
sem eykur orku og
einbeitingu, BCAA-
amínósýrur sem
hraða endurheimt
og auka vöðvavöxt,
beta-alanín og
karn itín til að draga
úr þreytu og arginín
til að auka blóðflæði.
Ofurblanda af grænni fæðu
Á milli mála fær Arnar sér Green
Phyto Foods, ofurblöndu af grænni
fæðu og jurtum, bætt með víta-
mínum og steinefnum, trefjum,
ensímum og chlorophyll (blað-
grænu). Ein besta leiðin til að borða
grænmeti er að drekka það.
Nauðsynlegt
að taka bólgueyðandi
Arnar tekur daglega inn Curcufresh.
Kúrkúmin er virka efnið í túrmeriki
og er það talið hafa mjög bólgu-
eyðandi eiginleika. Curcufresh og
Curcubrain blöndurnar frá NOW
eru sérhannaðar til að hámarka
upptöku og nýtast þær sérstaklega
vel í endurheimt eftir hlaup.
Góðgerlar
fyrir þarmaflóruna
Til að halda meltingunni í lagi tekur
Arnar Probiotic 10 25 billion. Góð-
gerlar eru ekki bara fyrir þá sem
þjást af einhvers konar meltingar-
kvillum heldur fyrir alla sem vilja
lifa heilbrigðu lífi. Íþróttafólk undir
miklu álagi getur verið sérstaklega
viðkvæmt fyrir pestum og öðrum
veikindum, en góð þarmaflóra og
inntaka góðgerla getur dregið úr
þessum neikvæðu áhrifum.
Steinefnablanda
fyrir eða eftir æfingar
Arnar tekur daglega Full spectrum
minerals, steinefnablöndu með
öllum helstu steinefnunum sem
við þurfum til að líkaminn starfi
eðlilega. Við erfiðar æfingar
töpum við steinefnum og því er
sérstaklega mikilvægt að fylla á
forðann bæði fyrir, eftir og jafnvel
á meðan æfingu stendur. Stein-
efnablandan frá NOW inniheldur
m.a. steinefnin magnesíum, kalk,
joð, mangan, sínk, króm, kalíum
og fleira.
Bætiefni Arnars
maraþonhlaupara
Arnar Pétursson er einn fremsti maraþonhlaupari landsins. Hann hefur sett stefnuna á
Ólympíuleikana árið 2020 og æfir því af miklum krafti. Arnar notar bætiefni frá NOW.
Á milli mála fær Arnar sér Green
Phyto Foods, sem er ofurblanda af
grænni fæðu og jurtum.
Arnar segir nauðsynlegt fyrir sig að
taka daglega Full spectrum minerals,
sem er steinefnablanda með öllum
helstu steinefnum sem við þurfum
til að líkaminn starfi eðlilega.
Arnar tekur bætiefni frá NOW til að fá öll steinefni, vítamín og bætiefni sem hann þarf á að halda.
Arnar byrjar daginn á að taka B12
Ultra en miklar æfingar spæna
upp B-vítamín í skrokknum.
Curcufresh og Curcubrain blöndurnar
frá NOW eru sérhannaðar til að
hámarka upptöku og nýtast þær sér-
staklega vel í endurheimt eftir hlaup.
Arnar tekur Probiotic-10 25 billion til
að halda meltingunn í lagi. Góðgerlar
eru ekki bara fyrir þá sem þjást af
einhvers konar meltingarkvillum
heldur fyrir alla sem vilja lifa heil-
brigðu lífi.
Fyrir æfingar tekur Arnar Amino
Power sem er hreinn Pre Workout
drykkur sem inniheldur engin
óæskileg aukaefni.
4 KYNNINGARBLAÐ 2 4 . M A Í 2 0 1 8 F I M MT U DAG U RÚT AÐ HLAUPA
2
4
-0
5
-2
0
1
8
0
4
:3
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
E
3
-3
6
1
0
1
F
E
3
-3
4
D
4
1
F
E
3
-3
3
9
8
1
F
E
3
-3
2
5
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
6
4
s
_
2
3
_
5
_
2
0
1
8
C
M
Y
K