Ægir - 01.02.2017, Blaðsíða 27
27
króki. Fjórða skipið, sem er í
eigu Samherja hf. er síðan áætl-
að í heimahöfn fyrir árslok.
Þetta eru samskonar skip, 63,5
metra löng og 13,5 metra breið.
Skipin voru hönnuð af
Skiptatækni ehf.
Breki og Páll Pálsson í Kína
Í Huanghai skipasmíðastöðinni
í Shidao í Kína eru tveir sams-
konar ísfisktogarar í smíðum
sem reiknað er með að komi til
landsins í sumar. Um er að ræða
Breka VE fyrir Vinnslustöðina í
Vestmannaeyjum og hins vegar
Pál Pálsson ÍS fyrir Hraðfrysti-
húsið Gunnvöru í Hnífsdal.
Þetta eru 50 metra löng skip og
13 metra breið, hönnuð með
óvenju stórri skrúfu miðað við
skrokkstærðina. Togararnir
verða búnir þremur rafdrifnum
togvindum og geta dregið tvær
botnvörpur samtímis. Heimsigl-
ing skipanna mun taka yfir 40
sólarhringa og eftir að heim
kemur bíður þeirra lokaáfangi
smíðanna, sem er niðursetning
vinnslubúnaðar.
Skipin eru hönnuð af Skipa-
sýn ehf.
Frystitogarinn Sólberg stærstur
Tíunda skipið, það stærsta og
mest búna, er frystitogarinn
Sólberg ÓF 1. Skipið er í eigu
Ramma hf. í Fjallabyggð og er
smíðað í Tyrklandi. Áformað er
að það komi til landsins nú í
vor. Sólberg er 80 metra langt,
15,4 metra breitt og hefur
frystigetu upp á 90 tonn á sól-
arhring. Í lest skipsins komast
1200 tonn af afurðum en í því
verður einnig mjölvinnsla. Þetta
verður í fyrsta sinn svo vitað sé
að frystitogari verður búinn
vatnsskurðarvél, auk flaka-
vinnslulínu og annars búnaðar
sem fullbúið vinnsluskip á borð
við þetta krefst.
Sólberg ÓF 1 er hannað af
Skipsteknisk AS í Noregi.
Frystitogarinn Sólberg ÓF 1 er stærsta skipið sem nú er í smíðum fyrir íslenskar útgerðir. Mynd: skoger123.is
Fyrirséð er að framhald verður á endurnýjun íslenska togaraflot-
ans en stjórn HB Granda hefur ákveðið að setja í útboð smíði
nýs frystitogara fyrir félagið. Togarinn er hannaður af Rolls Ro-
yce í Noregi og er 81 m langur, 17 m breiður og hefur lestarrými
fyrir um 1.000 tonn af frystum afurðum á brettum. Gert er ráð
fyrir að ákvörðun um smíðina liggi fyrir í byrjun maí og smíðinni
ljúki í árslok 2019. Skipið er svipuð hönnun og tveir frystitogarar
fyrir DFFU, dótturfélag Samherja en Rolls Royce hannaði þau
skip einnig. Skrokkar skipanna voru smíðaðir í Póllandi en síðari
áfanga smíðinnar er í Noregi.
Samkvæmt upplýsingum frá HB Granda eru ekki fyrirhugað-
ar frekari nýsmíðar af hálfu félagsins að svo stöddu en það gerir
nú út 3 frystitogara sem eru byggðir á árunum 1988-1992, 4 ís-
fisktogara og 2 uppsjávarveiðiskip.
HB Grandi lætur smíða
frystitogara
Frystitogari HB Granda verður 81 metri að lengd og 17 metra
breiður.