Morgunblaðið - 12.12.2017, Qupperneq 2
Dorgað í gegnum ís á Leirvogsvatni
Ekki er á vísan að róa hjá veiðimönnunum sem verið hafa að
dorga í gegnum ís á Leirvogsvatni að undanförnu. Umskipti
eru að verða í veðri. Mjög hefur dregið úr frosti en í staðinn
hefur þykknað upp og í dag er búist við rigningu frekar en élj-
um. Á morgun snýst til norðaustanáttar og aftur kólnar í
veðri. Frostið harðnar fram að helgi. Á laugardag skiptir til
suðaustanáttar með heldur hlýnandi veðri, samkvæmt spá
Veðurstofunnar, og rigningu eða slyddu við suðvesturströnd-
ina. Bjartviðri víðast hvar norðan- og austantil og áfram frost.
Aftur kólnar í veðri næstu daga
Morgunblaðið/RAX
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2017
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
Konur í þremur starfsstéttum til við-
bótar hafa nú sent frá sér tilkynn-
ingar og frásagnir í framhaldi af
#metoo-umræðunni sem tröllríður
samfélaginu þessa dagana, en það
eru kvenlæknar, konur í flugi og fjöl-
miðlakonur.
Í yfirlýsingu kvenna í læknastétt
segir m.a.: „Í Siðareglum lækna seg-
ir í 22. grein: „Læknar skulu hafa
góða samvinnu sín á milli og sýna
hver öðrum fulla virðingu.““ Konur í
læknastétt hafi deilt reynslusögum
úr starfi í lokuðum hópi á samfélags-
miðlum sem beri þó vitni um kyn-
bundna áreitni, mismunun og kyn-
ferðislegt ofbeldi í starfinu. Undir
yfirlýsinguna rita 354 konur.
Í áskorun frá konum í flugi sem
tæplega 600 undirrita segir m.a. að
kynferðisofbeldi, áreitni og kyn-
bundin mismunun eigi sér stað í flug-
stéttinni, kynjamisrétti, stéttaskipt-
ing og hlutgerving flugfreyja sé enn
til staðar sem óprúttnir aðilar not-
færi sér til að lítillækka, misnota og
áreita konur innan stéttarinnar.
Í yfirlýsingu frá konum í fjölmiðl-
um segjast þær hafa þagað allt of
lengi, þær vinni beinlínis við að koma
upp um spillingu, segja frá ofbeldi og
kúgun, ljóstra upp um leyndarmál
sem skipta máli fyrir þjóðfélagið og
borgara þess, því sé ekki nema eðli-
legt að þær taki þátt í #metoo. Und-
ir þetta rita 238 fjölmiðlakonur.
Þrjár starfsstéttir
bætast við #metoo
Kvenlæknar, konur í flugi og fjölmiðlakonur segja frá
Getty Images/ThinkStock
#metoo Umræða um áreitni og mismunun í ýmsum störfum skekur þjóðina.
„Ég var 4. árs læknanemi að fara
heim nálægt miðnætti eftir vakt. Á
þessum tíma voru læknar og lækna-
nemar saman í búningsklefa en ekki
kynjaskipt. Inn kemur sérfræðingur
sem kallaður hafði verið inn akút og
fer handan við hornið í sinn búnings-
klefa. Þar sem ég stend fáklædd
kemur hann allt í einu aftan að mér
og reynir að nauðga mér. Ég náði að
mótmæla og ýta honum frá mér
(hann hélt áfram að reyna) og komst
út og heim. Sagði góðri vinkonu
minni og kollega frá þessu og hún
studdi mig í þessu trauma, en aldrei
hefði manni dottið í hug að kæra
manninn. Fyllist enn hrolli við til-
hugsunina í dag.“
Reyndi að nauðga
mér í búningsklefa „Ég var á þessum tíma 24 ára og
flugstjórinn ca. 30 árum eldri.
Þegar ég kem þangað inn [í flug-
stjórnarklefann] þá stendur flug-
stjórinn fyrir aftan sæti flug-
mannsins og án þess að hika eða
segja eitt einasta orð þá gengur
hann alveg upp að mér, tekur ut-
an um mig, beygir sig yfir mig og
sleikir á mér eyrað. Á meðan á
þessu stóð sat flugmaðurinn og
horfði glottandi á í sætinu sínu.
Svo hlógu þeir bara. Ég get ekki
munað hver flugmaðurinn var en
man bara hvað ég varð hissa og
hversu misboðið mér var. Það eru
þó nokkuð mörg ár síðan þetta
gerðist og ég velti stundum fyrir
mér hvað ætli myndi gerast ef
þetta gerðist á flugi í dag.“
Sleikti á mér eyrað
Ekkert nýtt kom fram á fundi samn-
inganefnda Flugvirkjafélags Íslands
og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd
Icelandair að sögn Gunnars R. Jóns-
sonar, formanns samninganefndar
flugvirkja, en fundurinn fór fram í
gær. Nýr sáttafundur hefur verið
boðaður í dag klukkan 15.30.
Flugvirkjar hafa verið með lausa
samninga frá því í sumar og samn-
ingaviðræður hafa ekki leitt til nýrra
samninga. Félagsmenn samþykktu í
atkvæðagreiðslu í síðustu viku að
efna til ótímabundins verkfalls hjá
Icelandair að morgni 17. desember,
hafi samningar ekki náðst fyrir þann
tíma. Spurður hvort hann sé bjart-
sýnn á að samningar náist í tæka tíð
segir Gunnar erfitt að segja til um
það. „Hvorugur aðili vill að það komi
til verkfalls, þannig að þetta verður
bara að ráðast.“ freyr@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Karphúsið Samningamenn flugvirkja búa sig undir sáttafund.
Fundað enn með
flugvirkjum í dag
„„Hann er búinn að vinna hér svo
lengi.“ Við [vorum] með jafnlanga
reynslu af vinnu við fjölmiðla, ég er
með stúdentspróf ekki hann auk þess
sem fyrirtækið borgaði MBA-námið
hans. Þau ætla að hugsa málið og ég
fæ nýjan fundartíma, á afmælinu
mínu. Þegar ég kem á hann er dag-
skrárstjórinn hvergi sjáanlegur,
hann gleymdi fundinum. Fulltrúi
hans segir að það sé bara alls ekki
hægt að hækka launin mín og spyr
svo: „Veistu hvað eru margar stelpur
sem myndu vilja vera í þessari
vinnu?“ Ég sagði þá bara að það yrði
þá lítið mál að finna einhverja í minn
stað og tilkynni að ég ætli að vinna út
mánuðinn og sé svo farin.“
Margar stelpur vildu
vera í þessari vinnu
Bygging Urriðaholtsskóla er
stærsta einstaka framkvæmdin á
vegum Garðabæjar á næsta ári,
samkvæmt fjárhagsáætlun sem
samþykkt hefur verið. Alls verð-
ur varið 1.875 milljónum til fram-
kvæmda á árinu.
Urriðaholtsskóli tekur til starfa
í byrjun næsta árs, fyrst leik-
skóladeild en skólinn tekur til
starfa í áföngum. Einnig verður
hafist handa við stækkun Álfta-
nesskóla. Þá verður 300 millj-
ónum varið til að hefja undirbún-
ing við byggingu fjölnota
íþróttahúss í Vetrarmýri.
Álagningarhlutfall útsvars
verður óbreytt á næsta ári,
13,7%. Hins vegar verður álagn-
ingarhlutfall fasteignaskatts af
íbúðarhúsnæði lækkað úr 0,23 í
0,20% og einnig verður lækkun á
álagningu vatnsgjalds og hol-
ræsagjalds.
Nefnt er í fréttatilkynningu að
hvatapeningar fyrir íþrótta- og
tómstundaiðkun barna og ung-
menna hækki úr 32 í 50 þúsund
kr. og auknu fjármagni verður
varið í innra starf leikskóla.
Fjölnota íþróttahús
byggt í Garðabæ