Morgunblaðið - 12.12.2017, Síða 27
Jóhann Friðgeir hefur sungið
mörg aðalhlutverk óperubók-
menntanna ásamt miklum fjölda
sálumessa bæði hér heima, víða í
Evrópu og Bandaríkjunum sem og
haldið fjölda einsöngstónleika á
meginlandi Evrópu og Íslandi og
gefnir hafa verið út fjórir hljóm-
diskar með söng hans. Helsta sér-
svið Jóhanns Friðgeirs í gegnum
tíðina hefur verið stóru ítölsku
óperubókmenntirnar, eins og
Verdi og Puccini.
Í dag starfar Jóhann Friðgeir
einnig hér heima á Íslandi við fast-
eignasölu í Reykjavík. „Ég ákvað
að minnka þessi ferðalög út um
allan heim, en með söngnum fór
uppeldi barnanna að nokkru leyti
fram hjá mér. Ég fer ennþá oft út
og syng, en þá í verkefni þar sem
er ekki of löng viðvera. Mér stend-
ur til dæmis núna til boða tveggja
ára samningur í einu stærsta
óperuhúsi í Þýskalandi sem hæfist
næsta haust, en ég hef ekki enn
ákveðið hvort ég tek boðinu.“
Upp á síðkastið hefur Jóhann
Friðgeir sungið mikið á tónleikum
í Evrópu, en síðasta stóra tímabil-
ið söng hann „Canio“ í Pagliacci
t.a.m., en hann söng þetta hlut-
verk trúðsins í samnefndri óperu
Leoncavalli úti um allt Holland frá
óperuhúsinu í Maastricht. „Svo hef
ég líka mikið verið að stökkva inn í
og syngja við forföll og veikindi
víða um heim.
Hér heima er mín aðalatvinna
að syngja við jarðarfarir, oft eru
það þrjár jarðarfarir á dag þótt
það sé auðvitað upp og ofan hvað
ég syng mikið, en einnig hef ég
líka mikið að gera við að selja
fasteignir.
Fyrir utan tónlistina þá hef ég
gaman af að ferðast og reyni að
eyða eins miklum tíma í sól og ég
get. Ítalía er mitt land og ég segi
oft að ég sé að fara heim þegar ég
fer þangað. Fjölskyldan hefur eytt
ófáum stundunum þar, til dæmis
við vesturströndina, í Pódalnum og
alveg til Mílanó. Þetta eru okkar
heimaslóðir.“
Fjölskylda
Eiginkona Jóhanns er Íris Björk
Viðarsdóttir, f. 8.12. 1968, skrif-
stofustjóri. Foreldrar hennar:
hjónin Viðar Gestsson, 14.11. 1933,
d. 13.4. 2010, pípulagningameistari
í Reykjavík, og Halldóra Jóna
Karlsdóttir, f. 11.12.1940, hús-
móðir og skrifstofustjóri í Reykja-
vík.
Börn Jóhanns Friðgeirs og
Írisar eru: 1) Valdimar Viktor Jó-
hannsson, f. 6.7. 1987, viðskipta-
fræðingur í Reykjavík. Sambýlis-
kona hans er Ragnhildur Hauks-
dóttir, læknir í Reykjavík; 2) Viðar
Snær Jóhannsson, f. 6.4. 1997,
nemi í Reykjavík; 3) Gígja Björk
Jóhannsdóttir, f. 17.4. 2007, grunn-
skólanemi í Reykjavík.
Foreldrar Jóhanns eru hjónin
Valdimar Ólafsson, f. 18.10. 1933,
löggiltur endurskoðandi í Reykja-
vík, og Gígja Jóhannsdóttir, f.
15.11.1932, fiðluleikari í Reykjavík.
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Jóhanna Friðrika Friðbjörnsdóttir
húsmóðir á Siglunesi við Siglufjörð
Jóhann Oddsson
bóndi á Siglunesi og
Grænhóli í Borgarsveit
í Skagafirði
Sigríður Guðbjörg Jóhannsdóttir
húsmóðir á Akureyri
Jóhann Friðgeir Steinsson
trésmíðameistari á Akureyri
Gígja Jóhannsdóttir
fiðluleikari í Rvík Soffía Jórunn Þorkelsdóttir
húsmóðir víða
Steinn Jóhannsson
bóndi í Ólafsfirði, Svarfaðardal, á
Árskógsströnd og í Þorvaldsdal
Agata Dagfinnsdóttir húsfreyja í RvíkAgnar Kristjánsson forstjóri Kassagerðarinnar
Helga Ólafsdóttir
hjúkrunarritari í
Garðabæ og Rvík
Unnur Gunnarsdóttir
forstjóri Fjármálaeftirlitsins
Elías Dagfinnsson bryti í RvíkAlfreð Elíasson stofnandi Loftleiða
Helga Pálsdóttir
húsmóðir á Sóleyjarbakka
Valdimar Brynjólfsson
bóndi á Sóleyjarbakka í
Hrunamannahreppi
Þórlaug Valdimarsdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Ólafur Sigurjón Dagfinnsson
iðnverkamaður í Reykjavík
Halldóra Elíasdóttir
húsmóðir í Reykjavík
Dagfinnur Björn Jónsson
sjómaður í Reykjavík
Úr frændgarði Jóhanns Friðgeirs Valdimarssonar
Valdimar Ólafsson
lögg. endurskoðandi í Rvík
Jóhann Valtýsson
læknir í Rvík
Valtýr Valtýsson
sveitarstjóri hjá
Bláskógabyggð
Sigríður Þórdís Valtýsdóttir
læknir í Rvík
Sigríður
Jóhanna
Jóhannsdóttir
hjúkrunarfr. og
fv. skólastjóri
Hjúkrunar-
skólans
Bjarni Valtýsson
læknir í Rvík
Söngvarinn Jóhann Friðgeir.
ÍSLENDINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. DESEMBER 2017
slönguhjól
LSR15M - loft
WSR40M - vatn
WSR20PRO - vatn
EKR15M - rafmagn
Gildistími tilboðs frá 01.10
• með veggfestingu og
sveifluarmi
• stýring fyrir upprúllun
• 15+2m gúmmí slanga,
Ø 9,5mm
• sjálfvirk innhölun með pedala
• stýring fyrir upprúllun
• 40+2m gúmmí slanga, Ø 12mm
• með veggfestingu og
sveifluarmi
• 10+1 m PVC slanga,
Ø 9,5 mm
• með veggfestingu og sveifluarmi
• stýring fyrir upprúllun, LED gaumljós
• 15+1 m snúra, 230V
rafmagnstalíur ESZ 250D/
ESZ 500D/ESZ 1000D
• öflugar 230V rafmagnstalíur, hentugar til að
lyfta og færa til þyngri hluti
• langur kapall á stjórnborði
• pólíhúðaðar hlífar
• mótor- og gírhús úr hertu áli
• fáanlegir aukahlutir:
• rafmagns krabbi LK4ESZ
• snúningsarmur SA3001100 / SA600750
Kynntu þér öll hausttilboðin á idnvelar.is
• stiglaus hraði - mikið vinnslusvið
• spindils- og eftirgangsborun 10mm
• lengd milli odda 460 mm
• stafrænn hraðaálestur
• hæð í miðju 153 mm
trérennibekkur D460FXL
kynningarverð frá kr.
11.100,-
19.900,-
19.900,- 55.841,-
14.723,-
14.872,-
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
. . .
H
-31 12 20
Ð
A U S T
Ingvi Sigurður Ingvarssonfæddist 12. desember 1924 íReykjavík. Foreldrar hans
voru Ingvar Ingvarsson, f. 1895, d.
1963, bóndi í Hallgeirseyjar-
hjáleigu í Austur-Landeyjum, síðar
á Gamla-Hrauni á Eyrarbakka,
síðast á Selfossi, og k. hans Guðrún
Jónasdóttir, f. 1896, d. 1981, hús-
freyja.
Ingvi lauk stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á Akureyri árið
1945 og stundaði nám við við-
skiptadeild Háskóla Íslands. Hann
lauk MA-prófi í hagfræði frá Há-
skólanum í Glasgow 1949 og fram-
haldsnámi frá London School of
Economics.
Ingvi starfaði hjá Skattstofunni í
Reykjavík, sendiráði Bandaríkj-
anna og hjá Skipaútgerð ríkisins
áður en hann var ráðinn fulltrúi í
utanríkisráðuneytinu árið 1956. Þá
hófst ferill hans í utanríkisþjónust-
unni og gegndi Ingvi mörgum
trúnaðarstörfum í henni. Hann var
m.a. sendiráðsritari í Moskvu,
sendiráðunautur í Washington
D.C., varafastafulltrúi NATO í
París og í Brussel og skrifstofu-
stjóri í utanríkisráðuneytinu.
Ingvi var sendiherra og fasta-
fulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum
og sendiherra í Svíþjóð, Danmörku
og Bandaríkjunum og hjá þjóðum
sem undir sendiráðin heyra. Þá var
hann ráðuneytisstjóri utanríkis-
ráðuneytisins 1982-1986.
Ingvi var um tíma formaður Fé-
lags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.
Hann hlaut stórriddarakross fálka-
orðunnar með stjörnu 1982 og
stórkrossa frá þjóðhöfðingjum sex
erlendra ríkja.
Eiginkona Ingva er Hólmfríður
Guðlaug Jónsdóttir húsmóðir, f.
13.3. 1922, d. 28.11. 2010. For-
eldrar hennar voru Jón Sigurðs-
son, litunarmeistari á Akureyri,
síðar verslunarmaður í Reykjavík,
og k.h. Magnúsína Kristinsdóttir
húsfreyja. Dóttir Ingva og Hólm-
fríðar er Bergljót Kristín, f. 1956.
Ingvi lést 26. ágúst 2009.
Merkir Íslendingar
Ingvi S.
Ingvarsson
85 ára
Erna Sveindís
Gunnarsdóttir
Jón Helgason
Kristinn Jónsson
Sigurlaug Þórisdóttir
Skjöldur Jónsson
Svana Ásgrímsdóttir
80 ára
Páll Kristjánsson
Skúli Bjarnason
75 ára
Baldur Hermannsson
Epimaco Dadol Ycot
Guðmundur Sigurfinnsson
Inga Ragna Holdö
Kristín M. Hafsteinsdóttir
Sveinn Björnsson
70 ára
Hjörleifur Stefánsson
Hörður Hilmisson
Sigjón R.G. Þórhallsson
Sigurður Árnason
Sólveig Guðrún
Kristjánsdóttir
60 ára
Agnes Hansdóttir
Andri Árnason
Arnlaugur Kristján
Samúelsson
Guðmundur Kristinsson
Guðný Lárusdóttir
Hannes Óskarsson
Renate E. Steingrímsdóttir
Róland Ríkharður Assier
Steinunn Ásta Helgadóttir
50 ára
Aleksandra Pitak
Arndís Kjartansdóttir
Guðni Kristinn
Guðmundsson
Hafdís Hafsteinsdóttir
Hanna Guðrún
Styrmisdóttir
Jóhann Friðgeir
Valdimarsson
Jón Kornelíus Magnússon
Katrín Steindórsdóttir
Lucyna Bozena Kwandrans
40 ára
Alda Jónsdóttir
Sigrún Gísladóttir
Sonja Bent Þórisdóttir
Víkingur Þórir Víkingsson
30 ára
Alexander Elfarsson
Amina Adan
Andrew Michael Sparkes
Dagbjört Torfadóttir
Hjörtur Atli Guðmundsson
Geirdal
Jón Guðmundsson
Kári Jónsson
Klara Soffía Baldursd.
Briem
Kolbrún Þrá Þórarinsdóttir
Lára Guðmundsdóttir
Malwina Jablonska
Sandra Björk Halldórsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Dagbjört fæddist
á Ísafirði, ólst upp í
Reykjavík en býr í Njarð-
vík og er húsmóðir þar.
Maki: Hlífar Ólafsson, f.
1987, flugvallarstarfs-
maður.
Börn: Elín Eva, f. 2013, og
Erla Lillý, f. 2014.
Foreldrar: Torfi Guð-
mundsson, f. 1957, sjó-
maður í Bolungarvík, og
Elín Marrow Theodórs-
dóttir, f. 1965, búsett í
Reykjavík.
Dagbjört
Torfadóttir
30 ára Hjörtur fæddist í
Grímsey og ólst þar upp
og á Akureyri. Hann býr í
Kópavogi og er fram-
kvæmdastjóri hugbún-
aðarfyrirtækisins Tour-
Desk.
Sonur: Birkir Leó, f. 2013.
Foreldrar: Guðmundur
Gísli Geirdal, f. 1965, sjó-
maður og bæjarfulltrúi í
Kópavogi, og Bára Sæ-
valdsdóttir, f. 1969,
grunnskólakennari á
Flúðum.
Hjörtur Atli
Guðmundsson
40 ára Alda er frá Kefla-
vík, býr í Reykjavík og er
lögfræðingur og hópstjóri
hjá ríkisskattstjóra.
Maki: Arnþór Jónsson, f.
1973, ráðgjafi hjá Motus.
Börn: Jón Óli, f. 2011, Ari
Jóhann, f. 2015, og stjúp-
dóttir er Ólöf Ásta, f.
1999.
Foreldrar: Jón B. Olsen,
f. 1956, skrúðgarðyrkju-
meistari, og Jóhanna
Gunnarsdóttir, f. 1956,
garðyrkjufræðingur.
Alda
Jónsdóttir
Þjónustuauglýsingar
Fáðu tilboð hjá söluráðgjafa í síma 569 1100 eða á augl@mbl.is