Morgunblaðið - 22.12.2017, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2017
Við komum því til skila
Opnunartími pósthúsanna á
höfuðborgarsvæðinu og Akureyri
9:00-20:00
11:00–17:00
9:00–12:00
föstudagur
laugardagur
sunnudagur
22. desember
23. desember
24. desember
Þú getur póstlagt jólakortin og jólapakkana
þegar þér hentar. Allar nánari upplýsingar
um opnunartíma pósthúsanna er að finna
á postur.is/jol.
Umhverfisstofnun telur að fyrir-
tæki sem hyggst koma upp baðlóni
og hóteli á landi Skíðaskálans í
Hveradölum hafi ekki sýnt fram á
með óyggjandi hætti að loftgæði á
svæðinu verði í samræmi við lög og
reglugerðir. Horft er til áhrifa af
Hellisheiðarvirkjun sem er hinum
megin fjallsins. Forsvarsmaður fyr-
irtækisins segir enga ástæðu til að
hafa af þessu áhyggjur.
„Umhverfisstofnun er á nokkrum
villigötum í þessari umræðu,“ segir
Þórir Garðarsson, stjórnarformaður
Gray line og framkvæmdastjóri
Hveradala ehf. „Athugasemdir
hennar og Heilbrigðiseftirlits Suð-
urlands snéru að fyrri mælingum á
brennisteinsvetnismengun frá
Hellisheiðarvirkjun. Árið 2016 var
hreinsun brennisteinsvetnis tvöföld-
uð, Orka náttúrunnar fór að hreinsa
60% í stað 30%, og sýndu mælingar
töluverða lækkun á útblæstri við
það. Orka náttúrunnar áformar að
hreinsa útblásturinn enn frekar og
að hann verði hreinsaður úr öllum
aflvélum virkjunarinnar. Þar með
eru allar forsendur gjörbreyttar.
Það er eins og stofnanirnar vilji
ekki horfa til þess,“ segir Þórir.
„Berja höfðinu við steininn“
Skipulagsstofnun er að meta
hvort fyrirhuguð uppbygging í
Stóradal, inn af Skíðaskálanum í
Hveradölum, þurfi að fara í mat á
umhverfisáhrifum. Umhverfisstofn-
un og fleiri stofnanir gerðu athuga-
semdir sem Hveradalir ehf. hafa
svarað og nýlega svaraði Umhverf-
isstofnun með nýrri athugasemd og
ítrekun á fyrri viðhorfum. Stofnunin
telur mikilvægt að mælingar á loft-
gæðum á fyrirhuguðu fram-
kvæmdasvæði séu þannig að for-
svaranlegt sé að hefja framkvæmdir
við mannvirki sem fjöldi fólks muni
nýta sér.
Þórir segir að þegar hafi verið
ákveðið að hefja loftgæðamælingar í
Hveradölum. Á næsta ári verði sett-
ir upp svipaðir mælar og eru nú í
Norðlingaholti og Lækjarbotnum.
Hann segir að gas hafi mælst á
þessum stöðum á kyrrum vetrar-
dögum þegar áttin hefur staðið frá
Hellisheiðarvirkjun. Nánast útilok-
að sé að brennisteinsvetni mælist að
einhverju magni í Hveradölum.
Sjaldgæft sé að áttin standi þangað
og fjall sé á milli. Gasið myndi þynn-
ast verulega með fjallshlíðinni.
„Umsagnaraðilar hafa allar þess-
ar upplýsingar undir höndum en
halda samt áfram að berja höfðinu
við steininn,“ segir Þórir.
helgi@mbl.is
Vilja láta mæla loftgæði
Fyrirtæki sem hyggst koma upp baðlóni og hóteli í Hveradölum telur áhyggjur
Umhverfisstofnunar af brennisteinsvetnismengun á svæðinu vera óþarfar
Morgunblaðið/Þorkell Þorkels
Granni Skíðaskálinn er í Hveradölum, ekki langt frá Hellisheiðarvirkjun.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
Magnús Heimir Jónasson
Stefán Jónsson, fagstjóri á leikara-
braut sviðslistadeildar Listaháskóla
Íslands (LHÍ), hefur stigið til hliðar
við leikstjórn lokaverkefnis útskrift-
arnema við skólann. Þetta staðfesti
Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor
LHÍ, í samtali við mbl.is í gær. Sömu-
leiðis staðfesti hún að Stefán Hallur
Stefánsson leikari hefði sagt sig frá
verkefni sem hann átti að sinna við
skólann á komandi vorönn. Hún játar
því að málið tengist #Metoo-bylting-
unni. „Við erum búin að vera að vinna
í alls konar viðbrögðum og aðgerða-
áætlun um breytta kennsluhætti í
leiklist í lengri tíma og áður en
#Metoo-byltingin kom fram,“ segir
hún og vísar meðal annars í yfirlýs-
ingu Steinunnar Knútsdóttur, forseta
sviðslistadeildar, sem birtist í byrjun
mánaðarins.
Í máli Fríðu Bjarkar kemur einnig
fram að aðeins hafi verið um eitt verk-
efni að ræða sem Stefán Hallur átti að
sinna sem hann hafi sagt sig úr. „Ég
var ekki þátttakandi í samtalinu við
Stefán Hall, en ég geri fastlega ráð
fyrir því að honum hafi þótt þetta eðli-
legast og hafi haft samráð við ein-
hverja um það.
Eitt verkefni af mörgum
Varðandi Stefán Jónsson þá er
þetta bara eitt af hans fjölmörgu
verkefnum. Hann ákvað sjálfur að
stíga til hliðar til að skapa sátt og frið
um frekari uppbyggingu innan deild-
arinnar. Hann er áfram í fullri vinnu
hjá okkur og tekur þátt í því með okk-
ur að móta nýja hugsun og nýja
stefnu í kennslu í leiklist,“ segir Fríða
Björk.
„Ég tók þessa ákvörðun í ljósi þess-
arar miklu bylgju sem ríður yfir, hef-
ur haft áhrif á okkur og leitt í ljós
ýmsa vankanta sem við erum í óðaönn
að reyna að ráða bót á,“ segir Stefán
Jónsson. „Við höfum þurft að hlusta á
sársaukafullar frásagnir af upplifun
nemenda, sem kom okkur á margan
hátt í opna skjöldu því við höfum
reynt að bæta kennsluhætti og laga
allt sem laga þarf. Við töldum okkur
vera með farveg fyrir nemendur að
koma fram með það sem á bjátaði. Í
ljósi þess að við viljum gera betur og
ég persónulega, hafandi verið fag-
stjóri í öll þessi ár, þá fannst mér það
bara tilhlýðilegt að axla móralska
ábyrgð mína í þessu starfi. Og ein-
hvern veginn bara taka á móti þess-
um nýja tíma í auðmýkt sem hvítur
miðaldra karlmaður,“ segir Stefán.
#Metoo skekur leiklistina
Leikaranum Atla Rafni Sigurðar-
syni var vikið frá störfum hjá Borg-
arleikhúsinu vega ásakana tengdra
#Metoo-byltingunni. Haft var eftir
Kristínu Eysteinsdóttur borgarleik-
hússtjóra á RÚV að tilkynningarnar
hefðu meðal annars borist frá starfs-
fólki leikhússins. Morgunblaðið hafði
samband við Birnu Hafstein, formann
Félags íslenskra leikara (FÍL). Hún
vildi ekki tjá sig um mál Stefáns Halls
og Stefáns Jónssonar en staðfesti að
mál Atla Rafns væri á borði félagsins
enda félagsmaður í FÍL. Þá var jafn-
framt greint frá því fyrr í þessum
mánuði að Þóri Sæmundssyni leikara
hefði verið vikið frá störfum í Þjóð-
leikhúsinu í síðasta mánuði. Hefur
hann m.a. í viðtali við DV gengist við
því að hafa sent samstarfskonu sinni í
leikhúsinu á menntaskólaaldri ljós-
mynd af getnaðarlim sínum.
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Leikhús Einum af aðalleikurum leiksýningarinnar Medeu var sagt upp störfum hjá Borgarleikhúsinu í vikunni. Fag-
stjóri á leikarabraut sviðslistadeildar Listaháskóla Íslands steig til hliðar í gær ásamt leikara í verkefnum hjá LHÍ.
Starfsmenn LHÍ stíga til
hliðar í kjölfar #Metoo
„Ég tók þessa ákvörðun í ljósi þessarar miklu bylgju“
Lárus Welding, fyrrverandi banka-
stjóri Glitnis, var dæmdur í fimm ára
fangelsi í Stím-málinu svokallaða
fyrir umboðssvik, en dómsuppsaga í
málinu var í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær. Lárus var ákærður fyrir
umboðssvik með því að hafa farið út
fyrir heimildir sínar til lánveitinga
hjá Glitni banka þegar hann beitti
sér fyrir því að félagið FS37, sem
síðar varð Stím, fengi um 20 millj-
arða króna lán frá bankanum með
veði í öllu hlutafé félagsins og bréf-
um í FL Group, sem lánsféð var not-
að til að kaupa.
Þetta er í annað skiptið sem málið
er flutt í héraðsdómi en Hæstiréttur
Íslands ómerkti niðurstöðu fyrra
málsins og vísaði á ný í hérað.
Jóhannes Baldursson, sem var
framkvæmdastjóri markaðsvið-
skipta Glitnis, var dæmdur í tveggja
ára fangelsi í málinu, einnig fyrir
umboðssvik.
Bókaði strax áfrýjun
Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson,
fyrrverandi bankastjóri Saga Capi-
tal, var dæmdur í 18 mánaða fangelsi
fyrir hlutdeild að umboðssvikum.
Þetta er sama niðurstaða og í fyrri
meðferð málsins, en annar meðdóm-
ara málsins, Ingimundur Einarsson,
vildi þó að þeir Jóhannes og Þorvald-
ur yrðu sýknaðir. Þorvaldur var við-
staddur dómsuppkvaðninguna og lét
strax bóka að hann ætlaði að áfrýja
málinu.
Glitnismenn dæmdir
í fangelsi að nýju
„Afstaða Íslands
hefur verið mjög
skýr: Við styðjum
þessa tveggja
ríkja lausn þar
sem staða Jerú-
salem verður á
endanum leyst
með samningum
á milli Ísraela og
Palestínu-
manna,“ segir
Guðlaugur Þór Þórðarson við Morg-
unblaðið um þá ákvörðun Íslands að
styðja ályktun Sameinuðu þjóðanna
þar sem ákvörðun Donalds Trumps
Bandaríkjaforseta um að viður-
kenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísr-
aels er fordæmd.
Ályktunin var tekin fyrir á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna í
gær. „Við höfum áhyggjur af því,
eins og þær þjóðir sem við berum
okkur hvað mest saman við og höf-
um átt í samtali og samræðum við,
að þetta gæti veikt friðarferlið,“
segir Guðrlaugur Þór ennfremur.
Ályktunin var samþykkt með at-
kvæðum 128 þjóða. Átta þjóðir, auk
Bandaríkjanna, greiddu atkvæði
gegn henni og 35 ákváðu að sitja hjá
við atkvæðagreiðsluna. mhj@mbl.is
Afstaða Íslands er
mjög skýr í mál-
efnum Jerúsalem
Guðlaugur Þór
Þórðarson