Morgunblaðið - 22.12.2017, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 22.12.2017, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2017 Björn Bjarnason gerir málfrelsiað umræðuefni á vef sínum og nefnir dæmi um hvernig veist hafi verið að honum fyrir skoðanir hans.    Þá bendir hann áað Þorgerður Katrín Gunnars- dóttir, formaður Viðreisnar, vilji að „ríkisendurskoðun (!) verði gerð að rit- skoðanda vegna efn- is sem birt er á net- inu fyrir kosningar“.    Ennfremur nefnirhann að nú sé gerð „aðför að Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni prófessor í Háskóla Ís- lands og þess krafist að málfrelsi hans séu settar skorður“.    Sú aðför fámennrar vinstriklíkuúr Háskóla Íslands er raunar einstök og sýnir vel hve hættulegt væri ef slík sjónarmið fengju að ráða í háskóla í stað þess að þar fari fram opin málefnaleg umræða þar sem ólík sjónarmið séu viðruð og mismunandi hugmyndir ræddar.    En tilraun til skoðanakúgunareinskorðast ekki við æðri menntastofnanir. Björn segir frá áhyggjum sem sagnfræðingurinn Niall Ferguson hafi sett fram.    Ferguson segi að bandarískiríhaldsmenn „sýni með fáeinum undantekningum stjórnarskrá lands síns virðingu. Nútíma banda- rískir vinstrisinnar þrái hins vegar að afnema mikilvægustu grundvall- arréttindin sem stjórnarskráin verndi: málfrelsið“.    Umræðan hér á landi sýnir aðekki er síður ástæða til að hafa áhyggjur af auknum þögg- unartilburðum íslenskra vinstri- manna. Björn Bjarnason Þöggunartilburðir vinstrimanna STAKSTEINAR Niall Ferguson Leikskólar og grunnskólar í Reykjavík eiga ekki að þurfa að biðja um söltun á bílastæðum við skólana og að hliðum. Þegar mikil hálka er, eins og undanfarna daga, er ástandið metið á milli kl. 3 og 4 á morgnana með tilliti til gatna og gönguleiða og mannskapur og tæki ræst út eftir þörfum, samkvæmt upplýsingum frá Reykjavíkurborg. „Við leik- og grunnskóla, bílaplön og að hliði leikskóla, er byggt á mati rekstr- arstjóra og fulltrúa hverfastöðv- anna deginum áður hvort ræst er út til hálkuvarna á plönin,“ segir í svari frá borginni við fyrirspurn Morgunblaðsins um hvaða reglur gilda í sambandi við hálkuvarnir í Reykjavík. Skólar eiga ekki að þurfa að biðja um söltun en allir leikskólar og grunnskólar hafa fengið salt og sand til að grípa til yfir veturinn. Síðastliðinn mánudagsmorgun, þegar fljúgandi hálka mætti borg- arbúum, var byrjað að sanda kl. 7.30 um morguninn og búið að fara fyrstu umferð á alla staði um há- degi. Eftir hádegi var síðan farin önn- ur umferð þar sem þurfti og brugð- ist við ábendingu, samkvæmt upp- lýsingum frá borginni. Þörf fyrir varnir metin að morgni  Skólar í Reykjavík eiga ekki að þurfa að biðja um salt eða sand vegna hálku Morgunblaðið/Golli Hálka Vissara að vara sig á götum borgarinnar þegar hlánar í veðri. Vörður – Fulltrúaráð Sjálfstæðis- félaganna í Reykjavík hefur auglýst hvernig staðið verður að leiðtoga- prófkjöri hinn 27. janúar næstkom- andi um val oddvita á lista Sjálfstæð- isflokksins fyrir borgar- stjórnarkosningarnar vorið 2018. Í auglýsingunni kemur fram að tillögur um frambjóðendur þurfi samkvæmt prófkjörsreglum flokks- ins að uppfylla eftirfarandi skilyrði: Frambjóðandinn þarf að hafa gefið skriflegt samþykki fyrir framboð- inu; vera félagi í Sjálfstæðis- flokknum; og vera kjörgengur í borgarstjórnarkosningunum. Viðbót frá yfirkjörstjórn heimil Jafnframt að tillaga um leiðtoga skuli borin fram af 20 flokks- mönnum búsettum í kjördæminu og að hver flokksmaður megi aðeins til- nefna einn frambjóðanda. Yfirkjörstjórn sé heimilt að til- nefna prófkjörsframbjóðendur til viðbótar innsendum framboðum. Tillögum að framboðum beri að skila, ásamt mynd af frambjóðanda og stuttu æviágripi á tölvutæku formi, á skrifstofu Sjálfstæðis- flokksins í Valhöll eigi síðar en kl. 16.00, miðvikudaginn 10. janúar 2018. Skriflegt samþykki  Leiðtogaprófkjör hefur verið auglýst Kringlunni 4c – Sími 568 4900 AKKI 9.990,- t. S-XXL – Fleiri litir BUXUR 6.995,- St. S-XXL – Fleiri litir TOPPUR 6.995;- St. S-XXL – Fleiri litir J S lgihlutumÚrval af fy Jólagjöfin HENNAR Veður víða um heim 21.12., kl. 18.00 Reykjavík 2 rigning Bolungarvík -1 alskýjað Akureyri 3 skýjað Nuuk -6 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló 2 heiðskírt Kaupmannahöfn 5 skýjað Stokkhólmur -1 heiðskírt Helsinki 0 skýjað Lúxemborg 6 þoka Brussel 9 þoka Dublin 11 skýjað Glasgow 4 þoka London 11 alskýjað París 10 súld Amsterdam 7 þoka Hamborg 6 skýjað Berlín 6 skýjað Vín 2 rigning Moskva -2 þoka Algarve 16 heiðskírt Madríd 12 heiðskírt Barcelona 7 léttskýjað Mallorca 12 léttskýjað Róm 7 heiðskírt Aþena 6 alskýjað Winnipeg -19 léttskýjað Montreal -12 léttskýjað New York 2 heiðskírt Chicago 1 alskýjað Orlando 23 þoka Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 11:23 15:31 ÍSAFJÖRÐUR 12:10 14:54 SIGLUFJÖRÐUR 11:55 14:34 DJÚPIVOGUR 11:02 14:51

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.