Morgunblaðið - 22.12.2017, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 22.12.2017, Blaðsíða 13
nemendur á efsta stigi til að sleppa gjöfum og safna fyrir vatnsdælu í gegnum UNICEF, sem kostar rúm- lega 50.000 krónur. Kennurum í skól- anum var einnig boðið að taka þátt í söfnuninni. Á síðasta skóladegi fyrir jól var ljóst að markmiðið hafði náðst, alls 60.858 krónur söfnuðust og voru stúlkurnar að vonum himin- lifandi. Afgangurinn fer í smærri kærleiksgjafir og öllu á að ráðstafa fyrir jól. En af hverju vatnsdælu, var stefnt á dýrustu kærleiksgjöfina? „Nei, heldur vegna þess að það eru svo margir sem njóta góðs af vatn- dælu, kannski alveg heilt þorp,“ svör- uðu þær. Steinunn Jakobsdóttir, kynn- ingarstjóri og upplýsingafulltrúi UNICEF á Íslandi, segir að í hverj- um mánuði komi börn sem hafa stað- ið fyrir tombólu á sínum eigin vegum og bekkir í grunnskólum sem vilja safna fyrir börn sem þurfa á hjálp þeirra að halda. Þá hafi góðgerðar- félög menntaskólanna einnig verið virk í baráttunni fyrir réttindum barna og tónlistarfólk og skemmti- kraftar, m.a. í tengslum við „Dag rauða nefsins“. „Nú eins og síðustu jól eru „Sannar gjafir“ UNICEF vinsælar í jólapakka landsmanna en einnig er algengt að fólk óski eftir sönnum gjöfum í tilefni stórafmælis, brúð- kaups eða fermingar.“ Steinunn seg- ir Íslendinga mjög duglega að styðja neyðarsafnanir samtakanna en nú er í gangi neyðarsöfnun fyrir börn Róhingja, sem hafa flúið mikið of- beldi í heimalandi sínu Mjanmar yfir til Bangladess. Framlög í Velferðarsjóð Suður- nesja fara í að styrkja efnaminni fjöl- skyldur á Suðurnesjum. Honum var komið á laggirnar í kjölfar efnahags- hrunsins árið 2008 og er starfræktur undir stjórn starfsfólks í Keflavíkur- kirkju. Þórunn Íris Þórisdóttir rekstrarstjóri segir ekki algengt að bekkir komi til að gefa í sjóðinn, þó það komi vissulega fyrir. „Börn og unglingar á Suðurnesjum finna gjarnan einhvern í sínu nærumhverfi og styðja þannig við fólk í erfið- leikum,“ segir Þórunn. Slík var reyndin í tveimur skólum í Reykja- nesbæ þar sem nemendur styrktu samnemendur sem glíma við erfið veikindi. Það er fallegur stuðningur. Hún er lífseig sagan um þjófnað á gjöfum Enn eru að berast blaðamanni til eyrna sögusagnir um að óvíst sé að þessar gjafir skili sér, peningagjöfum sé gjarnan stolið af þeim sem komast í þær og því séu safnanir sem þessar til einskis. Sú sögusögn ætlar að verða ansi lífseig og tóku Sunna og Steinunn báðar undir það. Sögðu hana þó vera á undanhaldi og engan fót fyrir. „Það er best að sjá hvernig gjafirnar skila sér í þeim gífurlega árangri sem UNICEF og samstarfs- aðilar hafa náð í að bæta stöðu barna í heiminum. Við sjáum á hverjum ein- asta degi hvernig starf okkar snertir líf barna. Barnadauði hefur minnkað, nánast búið að útrýma mænusótt í heiminum og aldrei hafa fleiri börn gengið í skóla. Tengslin milli gjafa og árangurs eru því raunveruleg og áþreifanleg hjá UNICEF,“ segir Steinunn. „Við hvetjum fólk til að kynna sér málin, því ef það er gert sést vel að peningarnir sem safnast hér á landi nýtast til góðra verkefna. Framlög SOS barnaþorpanna eru flest eyrnamerkt, þ.e. sá sem gefur sem styrktarforeldri er að styrkja ákveðið barn, barnaþorpsvinur styrkir ákveðið þorp og svo fram- vegis. Við höfum lagt okkur fram við að gera starf okkar gegnsætt svo ein- mitt sé hægt að svara slíkum fullyrð- ingum á góðan máta,“ segir Sunna. Þakkarskeyti Frá UN Women sem barst í landssöfnun samtakanna í vetur fyrir konur í Zaat- ari flóttamanna- búðunum. ljósmynd/UNICEF Þakklæti UNICEF á Íslandi vakti í byrjun árs athygli á því hversu þakklát samtökin voru fyrir allan stuðninginn í desember 2016. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2017  Velferðarsjóður Suðurnesja er í umsjón starfsfólks Keflavíkur- kirkju. Úr sjóðnum njóta efna- minni íbúar á Suðurnesjum góðs af og fara úthlutanir fram á að- ventu.  Meðal Sannra gjafa UNICEF á Íslandi má nefna vatnshreinsi- töflur, bólusetningargjöf, hlý teppi fyrir börn, jólapakka með næringu fyrir vannærð börn og vatnsdælu. Hjá UNICEF er hægt að gerast heimsforeldri.  Un Women hefur lagt mikla áherslu á mömmupakkann „Elsku mamma“ núna fyrir jólin. Hann er fyrir nýbakaðar mæður í flóttamannabúðum í Jórdaníu. Hægt er að styrkja samtökin með frjálsum framlögum.  SOS barnaþorpin fjármagna starfsemi sína m.a. með jóla- kortasölu fyrir hver jól. Hægt er að gerast styrktarforeldri, barnaþorps- eða fjölskylduvinur, ásamt því að gefa frjáls framlög. Góðar gjafir mörgum til nota HJÁLPARSTARF Í félagsskap jólasveina Stúlkurnar í 10 bekk í Njarðvíkurskóla sem áttu frumkvæði að söfnun fyrir vatnsdælu meðal nemenda á efsta stigi skólans. F.v. Valbjörg, Þórunn, jólasveinn, Inga Jódís, annar jólasveinn, Katrín Dögg, Salvör Björk og Elva Rún. Þær geta verið sáttar við framtakið. Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Jólarauður jakki Kr. 8.900 Str. S-XXL Peysuúrval, blússuúrval, skinnkragar, hanskar o.m.fl. Skoðið laxdal.is Skipholti 29b • S. 551 4422 Opið laugardag 10-20 Vísindamenn hjá bandarísku geim- ferðastofnuninni NASA vilja senda geimfar til Proxima Centauri, næstu nágrannastjörnu Jarðarinnar, innan næstu fimmtíu ára. Þeir kynntu rit- gerð þess efnis í haust og ræddu það sem hugsanlegt framtíðarverkefni, en til þess þyrfti geimfar sem getur ferðast á einum tíunda af ljóshraða. Stofnunin vinnur að því að þróa slíkt geimfar fyrir árið 2069. Rauður dvergur í Mannfáknum Stjarnan Proxima Centauri er rauð- ur dvergur í um fjögurra ljósára fjar- lægð frá Jörðinni, í stjörnumerkinu Mannfáknum (e. Centaurus). Hún sést ekki með berum augum, jafnvel þó hún sé næsta stjarna við Sólina. Proxima Centauri er lítil og dauf sam- anborið við aðrar stjörnur og er að- eins 8% af massa Sólar. Proxima Centauri er minnsta stjarnan í kerfi þriggja stjarna. Hinar stjörnurnar tvær í sama stjörnu- merki, Alfa Centauri A og B, eru mun bjartari. Verkefni geimfarsins yrði skipt í sex stig og það fyrsta yrði að komast út fyrir sólkerfið okkar, en það hefur geimfarinu Voyager 1 nú þegar tekist. Hin fimm stigin væru að ferðast til Proxima Centauri í heilu lagi, lækka hraðann þegar farið nálgast áfanga- stað, aðlaga braut sína frekari nálgun áfangastaðarins og safna gögnum og miðla upplýsingum til jarðar. Öll stig- in nema það fyrsta þarfnist tækni- framfara sem enn hafa ekki orðið. Er líf að finna á Proxima b? Í stjörnumerkinu Mannfáknum er einnig plánetan Proxima b, sem er á stærð við jörðina og uppgötvaðist í fyrra. Þar gætu verið skilyrði fyrir líf, þrátt fyrir nálægð hennar við stjörn- una Proxima Centauri sem hún hverf- ist um. Geimfar sem ferðast nálægt plánetunni ætti að geta kannað hvort hún sé lífvænleg. Árið 2069 er hundr- að ára afmæli ódauðlegra ummæla Neil Armstrong: „Þetta er stutt skref fyrir mann, en stórt stökk fyrir mann- kynið“ sem hann sagði þegar hann steig fyrstur manna á Tunglið árið 1969. ernayr@mbl.is Vísindamenn vilja kanna hvort lífvænlegt sé á Proxima b Mynd/NASA Bleikt sólsetur Svona gæti það litið út séð frá plánetunni Proxima b. Vilja senda könnunargeimfar til næsta sólkerfis fyrir árið 2069

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.