Morgunblaðið - 22.12.2017, Qupperneq 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2017
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Ifor Williams vélavagn
3500 kg. heildarburður, pallur 3,03 x 1,84 m
Verð 685.484 kr. +/vsk
Ármúla 17, 108 Reykjavík, sími 552 8636, mbr.is
Allt fyrir raftækni
Hljómtæki
Cambridge Audio Air 100 - Bluetooth hátalari
Verð
59.900 kr.
Svanhildur Eiríksdóttir
svei@simnet.is
Góðgerðarsamtök og styrkt-arsjóðir hafa á undan-förnum vikum viljað höfðatil kærleiks landsmanna
með auglýsingum á Sönnum gjöfum,
mömmupökkum, sæmdarsettum og
söfnunum sem allar hafa það að
markmiði að styrkja og styðja við þá
sem búa við erfiðar aðstæður eða eru
í mikilli neyð. Söfnunarátakið hefur
ekki síður náð til barna sem verða
fúsari til að sleppa smágjöfum og
gefa heldur til hjálparsamtaka eða
einstaklinga í neyð. Hér gerir margt
smátt eitt stórt.
Blaðamaður tók stöðuna í
grunnskólunum í Reykjanesbæ. Í
sumum skólum voru nemendur að
styrkja samnemendur sem eru að
glíma við veikindi, einhverjir ætluðu
að byrja að huga að kærleiksgjöfum
fyrir næstu jól vegna allrar umræð-
unnar í samfélaginu og aðrir höfðu
styrkt um nokkurt skeið, ýmist með
því að sleppa gjöfum á litlu jólum eða
gera hvort tveggja. Tveir skólar voru
heimsóttir, Njarðvíkurskóli og Akur-
skóli, þar sem börn niður í 1. bekk
tóku þátt í góðgerðarsöfnun fyrir jól-
in.
Áttu ekki marga peninga
Fyrsti bekkur í Akurskóla safn-
aði rúmlega 15.000 krónum í gegnum
jóladagatal SOS Barnaþorpa. Þau
horfðu á tíu myndbrot á jafnmörgum
dögum þar sem þau fengu innsýn í
aðstæður barna í öðrum löndum.
Framlag þeirra var í formi aðstoðar
heimafyrir sem þau fengu greitt fyrir
og söfnuðu í sjóð.
Hvað var það sem vakti athygli
nemenda eftir að hafa horft á mynd-
brotin? „Að þau áttu ekki marga pen-
inga,“ var eitt svarið. „Stelpan frá
Kósóvó var með slæmar tennur,“ var
líka sagt. Þau sem voru öll með svo
skínandi fínar tennur. Það þurfti því
ekki að telja þessi börn á að leggja
söfnuninni lið, en þau ætluðu líka að
gefa hvert öðru lítinn pakka. Nem-
endur í 1. – 4 bekk í Akurskóla og
útibúi hans í Dalshverfi styrktu SOS
Barnaþorpin að þessu sinni.
Hjá SOS Barnaþorpum fengust
þær upplýsingar að yfir 2000 íslensk-
ir nemendur hefðu tekið þátt í verk-
efninu sem er aukning frá því í fyrra
þegar verkefnið „Öðruvísi jóladaga-
tal“ hófst. Framlögin í ár renna öll til
fjölskyldueflingar SOS í Kósóvó.
„Þetta verkefni var meðal annars
sett á laggirnar vegna mikils áhuga
fólks á að gefa af sér fyrir jólin. Á
þessum tíma ársins er þakklæti og
kærleikur fólki hugleikinn og algengt
að fólk gefi af sér til þeirra sem
minna mega sín,“ segir Sunna Stef-
ánsdóttir, verkefnisstjóri hjá SOS
Barnaþorpum. Hún tekur jafnframt
fram að hér séu börn og unglingar
ekki undanskilin. „Persónulega finnst
mér að yngri kynslóðin sé ótrúlega
meðvituð um heimsmálin og hafi al-
mennt séð mikinn áhuga á þróun-
armálum og því að gefa af sér.“
Vatnsdæla getur nýst mörgum
Nokkrar stúlkur í 10. bekk í
Njarðvíkurskóla ákváðu að vera stór-
tækari í ár og safna meira en í fyrra,
þegar bekkur þeirra ákvað að sleppa
smágjöfum og gefa kærleiksgjöf í
formi sæmdarsetta til kvenna á
flótta. Nú var markmiðið að fá alla
Smágjafir víkja fyrir
kærleiksgjöfum
Færst hefur í vöxt að grunnskólabörn sleppi að gefa hvort öðru smágjafir á litlu
jólum í skólunum og láti góðgerðarsamtök og styrktarsjóði njóta góðs af. Börn
allt niður í 1. bekk hafa verið að láta gott af sér leiða bæði til nærsamfélagsins og
til samtaka og styrktarsjóða á borð við SOS Barnaþorpa, UN Women, UNICEF
á Íslandi og Velferðarsjóðs Suðurnesja.
Ef það skyldi hafa farið fram hjá
einhverjum þá mun íslenska karla-
landsliðið í knattspyrnu taka þátt í
lokakeppni heimsmeistaramótsins í
knattspyrnu sem fram fer í Rúss-
landi næsta sumar.
Ekki er við öðru að búast en að
Íslendingar muni flykkjast til Rúss-
lands eins og um þjóðflutningana
miklu sé að ræða enda hafa þeir
sýnt að það og sannað að þótt
þjóðin sé fámenn látum við okkur
ekki vanta á völlinn.
Við hverju má búast í Rússlandi?
Örugglega einhverju ævintýralegu
en af hverju ekki að venja sig strax
á hvers konar siði, svona til að vera
örlítið inni í menningunni þegar út
er komið. Á síðunni www.russian-
food.com er að finna margvíslegar
uppskriftir bæði vinsælar og óvin-
sælar hjá rússnesku þjóðinni. Æv-
intýragjarnir geta mögulega fundið
hugmyndir í jólaréttinn eða skellt í
eina rússneska veislu milli jóla og
nýja ársins. Þá má líka bara skrolla
niður síðuna til að sjá hvað er það
helsta á matarborði rússneskra
fjölskyldna. Eitt er alveg víst að
þarna er að finna fjölda góðra upp-
skrifta.
Vefsíðan www.russianfood.com
Matur Rússnesk matarmenning er heillandi og býður upp á margt spennandi.
Langar þig að prófa rússneska
rétti um hátíðarnar?
Í Þýskalandi er rík borðspilahefð en ár-
lega velja þýskir spilaunnendur bestu
spil ársins. Verðlaunin sem nefnast á
þýsku „Spiel des Jahres“ eða Spil árs-
ins eru ein þau virtustu í borð-
spilaheiminum. Að þessu sinni stóði
spilið Kingdomino uppi sem sigurveg-
ari en í öðru sæti kemur spilið Magic
Maze og þar á eftir El Dorado. Í flokkn-
um spil ársins fyrir reynda spilara
hlaut spilið Exit fyrsta sætið, Raiders
of the North Sea annað sætið og
Terraforming Mars það þriðja. Barna-
spil ársins að mati þýskra spilara er
Ice Cool en þar á eftir koma Captain
Silver í öðru sæti og Mysterious Forest
í því þriðja.
Sigurvegarar síðustu ára eru spil á
borð við Settlers of Catan, Ticket to
Ride, Codenames, Dixit, Carcassonne
og Dominion.
Flest þessi spil fást í íslenskum
borðspilabúðum á borð við Nexus og
Spilavini en það er tilvalið að gefa gott
spil í jólagjöf, hvort sem gjöfin er til
þín sjálfs eða ástvinar eða ættingja.
Bestu borðspilin árið 2017
Borðspil ársins 2017 fást
í öllum betri spilabúðum
Spil Kingdomino er besta spil ársins 2017 að mati þýskra borðspilaunnenda.
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Núna í aðdrag-
anda jólanna er
tilvalið að kúpla
sig út úr jóla-
stressinu og
gleyma sér yfir
einni bíómynd
eða tveimur. Úr-
val jólamynda
eru í kvikmynda-
húsum þessa
stundina en þar
ber helst að nefna Star Wars: The
Last Jedi en þó myndin fjalli ekki
um sjálf jólin er fátt jólalegra en
að horfa á Star Wars. Daddy’s
Home 2 er einnig í sýningu en þar
er um ekta jólamynd að ræða. Síð-
an má ekki gleyma frumsýningum
annan í jólum en fyrir löngu er
komin á sú hefð að frumsýna
myndir annan í jólum.
Þeir sem vilja afsökun frá jóla-
boðum eða bara njóta frídagsins
ættu að kynna sér þær myndir
sem verða frumsýndar yfir jólin.
Ein þeirra er Pitch Perfect 3 en
þar segir frá stúlknasveit sem
bræðir hjörtu fólks með söng og
kitlar hláturtaugarnar, þ.e. ef
þessi þriðja mynd í Pitch Perfect-
röðinni verður eitthvað í líkingu
við fyrstu tvær myndirnar sem
báðar slógu rækilega í gegn hjá
kvikmyndahúsgestum um allan
heim.
Hver er jólamyndin þín í ár?
Áhugaverðar
jólamyndir
Daisy Ridley úr
Star Wars.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Gleði Nemendur í 1. bekk í Akurskóla voru ánægðir með að hafa lagt fjöl-
skyldum í Kósóvó lið, sem jóladagatal SOS barnaþorpa gekk út á þetta árið.