Morgunblaðið - 22.12.2017, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 22. DESEMBER 2017
✝ Magnús Snæ-dal, prófessor
við íslensku- og
menningardeild á
hugvísindasviði Há-
skóla Íslands,
fæddist á Akureyri
17. apríl 1952.
Hann lést 3. desem-
ber 2017 á sjúkra-
húsi í Barcelona á
Spáni.
Foreldrar Magn-
úsar voru hjónin Rósberg G.
Snædal, rithöfundur og kennari,
og Hólmfríður Magnúsdóttir
saumakona. Rósberg var fædd-
ur 1919 í Kárahlíð í Laxárdal í
Austur-Húnavatnssýslu og lést
1982. Hólmfríður var fædd 1918
á Syðra-Hóli í Austur-Húna-
vatnssýslu. Hún lést 2013.
Systkini Magnúsar eru Húnn,
f. 1944, Hólmsteinn, f. 1945, d.
2015, Gígja, f. 1947, Þórgunnur,
f. 1948, og Bragi, f. 1954.
Magnús var í sambúð með
Auði Guðjónsdóttur á árunum
1976 til 1984. Sonur þeirra er
stöðu í almennum málvísindum
við heimspekideild 1989, varð
lektor í sömu grein 1994 og dós-
ent sama ár. Hann varð prófess-
or 2005 og gegndi því starfi til
dánardags.
Eftir Magnús liggja fjölmarg-
ar greinar um íslensku, íðorða-
fræði, frumgermönsku og forn-
ar rúnaristur, auk þess sem
hann ritaði greinar um íslenskt
mál, málsögu og færeysku og
sinnti þýðingarstörfum. Hann
var einn helsti sérfræðingur á
alþjóðlegum vettvangi í saman-
burðarmálfræði og gotnesku og
samdi m.a. orðstöðulykil að got-
neska biblíutextanum (e. A Con-
cordance to Biblical Gothic).
Hann kom að skipulagningu
margra ráðstefna um færeysk-
íslensk fræði og ritstýrði ráð-
stefnuritum undir nafninu
Frændafundur.
Magnús gegndi enn fremur
ýmsum trúnaðarstörfum. Hann
sat í stjórn Málvísindastofnunar
Háskóla Íslands frá 1996 og var
forstöðumaður hennar 1997 til
2001 og var varaformaður og
formaður bókmenntafræði- og
málvísindaskorar á árunum
1996 til 2001.
Útför Magnúsar fer fram frá
Neskirkju í dag, 22. desember
2017, og hefst klukkan 13.
Kári, f. 1978, forrit-
ari.
Magnús lauk
stúdentsprófi frá
Menntaskólanum á
Akureyri 1973, BA-
prófi í íslensku,
heimspeki og upp-
eldisfræði frá Há-
skóla Íslands 1978
og cand.mag. prófi
í íslensku frá sama
skóla 1982 og auk
þess nam hann, grísku, fær-
eysku og íðorðafræði.
Magnús starfaði á Lands-
bókasafni Íslands og Þjóð-
skjalasafni Íslands á árunum
1977 til 1981, á Orðabók Háskól-
ans 1982 til 1983, var stunda-
kennari í íslensku við Kennara-
háskóla Íslands, málfræðilegur
ráðunautur Orðabókar lækna-
félaganna og ritstjóri Íðorða-
safns lækna 1984 til 1996, auk
þess sem hann var stundakenn-
ari við heimspekideild Háskóla
Íslands 1983 til 1984. Hann var
ráðinn í tímabundna lektors-
Í einni af mörgum samúðar-
kveðjum sem mér bárust eftir frá-
fall Magnúsar bróður míns var
honum lýst sem „mjög prúðum
manni“, það eru orð að sönnu.
Magnús kom alltaf fram af ein-
stakri prúðmennsku, rólegur og
yfirvegaður maður, af sumum tal-
inn fáskiptinn og þögull. En allir
sem kynntust honum vel vissu að
hann var bæði skrafhreifinn og
skemmtilegur, einstaklega vel að
sér um margt og deildi gjarnan
með sér af kunnáttu sinni og
ágætri dómgreind.
Magnús var rúmum þremur ár-
um yngri en ég, fallegur og ákaf-
lega viðkvæmur drengur, sem
smám saman, eins og fleiri við-
kvæmir, lærði að hylja viðkvæmn-
ina með húmor og hlédrægni.
Eftir stúdentspróf 1973 frá
Menntaskólanum á Akureyri, sem
á 8. áratugnum var, eins og flestir
framhaldsskólar á landinu, þétt-
setinn róttækum stúdentum lét
Magnús ekki sitt eftir liggja í
pólitískum róstum.
Með tímanum lagði hann, góðu
heilli, pólitíkina á hilluna og sneri
sér að vísindum. Hann lagði m.a.
stund á samanburðarmálfræði og
frumgermönsk málvísindi og varð
með tímanum einn af fremstu sér-
fræðingum heimsins í gotnesku.
Hann sýndi mér einu sinni þykkan
doðrant: Who’s Who in the World,
þar sem hann var nefndur meðal
þeirra 2000 manna og kvenna sem
á einhvern hátt voru framúrskar-
andi á sínu sviði. Hann var svolítið
stoltur af því.
Þar sem ég einnig lagði stund á
forngermönsk og norræn fræði
áttum við sameiginleg áhugamál á
því sviði og deildum einnig áhuga
á þjóðlegri íslenskri fræði-
mennsku eins og við eigum ættir
til.
Ég bar gæfu til að geta verið
hjá honum nokkra daga undir
langri og erfiðri banalegu hans á
sjúkrahúsi í Barcelona. Þá stytti
ég okkur stundir við að lesa fyrir
hann úr bókum afa okkar og
pabba og raula gamlar vísur.
Hann hélt fast í höndina á mér
uns morfínið svæfði hann þar til
yfir lauk.
Þórgunnur Harpa Snædal.
Árið var 1970. Við vorum að
byrja annan vetur skólasetu í
virðulegri en steinrunninni
menntastofnun, Menntaskólanum
á Akureyri. Námsfólk hafði látið
til sín taka í Evrópu, mótmælt
arðráni og kúgun almennt og
stríðsrekstri í Víetnam alveg sér-
staklega. Ungt fólk hafði fengið
tilgang. Þetta haust bættist
Magnús Snædal í hóp fjórðubekk-
inga. Hann hafði útlit Che Guev-
ara, með sítt dökkt hár, mikið
skegg, alpahúfu, á skósíðum
svörtum frakka. Það sópaði að
honum þar sem hann fór um götur
og ganga. Hann kenndi okkur að
hlusta á framúrstefnulegan jazz/
blús John Mayalls, og áður en
nokkur vissi var Dunhill-píputób-
ak komið í pípuna. Magnús var
áhrifavaldur, alveg án þess að
ætla sér það. Hann varð fljótlega í
fararbroddi í samfélagi nemenda
sem vildu breyttan og bættan
skóla, breytt og bætt þjóðfélag.
Dræmar viðtökur skólayfir-
valda við hugmyndum okkar juku
okkur róttækni og byltingarþrótt,
við tókum meira að segja þátt í að
stofna stjórnmálasamtök sem
settu byltingu í forgang. En það
kom fljótt í ljós að Magnús myndi
ekki leiða þjóðina til byltingará-
taka, til þess var hann of víðsýnn
og greindur og sáttfús. En alla
ævi sló hjarta hans með hinum
undirokuðu, fyrir réttlátara þjóð-
félagi og gegn auðvaldi og órétt-
látri skiptingu auðs. „Svoddan er
kapitalismen“ sagði hann oft þeg-
ar óréttlæti bar á góma og var það
hans Stóridómur um það skipulag.
Magnús lauk cand.mag. prófi í
íslensku frá HÍ 1982 og starfaði
við háskólastofnanir og við skól-
ann alla starfsævi sína, síðustu ár-
in sem prófessor í málvísindum.
Hann tókst á við uppruna og þró-
un tungunnar, íslenskaði læknis-
fræðihugtök fyrir Læknafélag Ís-
lands, fjallaði um þróun færeysku
og hann átti stóran sess í fræða-
samfélagi þeirra sem unnu að
rannsóknum á gotnesku. Það var
einmitt á ráðstefnu í þeim hópi í
Barcelóna á Spáni í september sl.
þar sem hann flutti fyrirlestur,
sem hann veiktist alvarlega af
lungnabólgu og lá á spænsku
sjúkrahúsi í rúma tvo mánuði þar
til hann lést 2. desember.
Magnús bjó um árabil með
Auði Guðjónsdóttur íslenskufræð-
ingi og átti með henni einn son,
Kára, sem var honum afar kær.
Þau Auður skildu. Magnús ræddi
oft um son sinn, fylgdist vel með
lífi hans og var stoltur af honum;
ekki síst af löngum ferðalögum
hans til fjarlægra heimsálfa. Sú
víðsýni og skilningur á öðrum
þjóðum sem Kári öðlaðist olli
Magnúsi mikilli ánægju.
Magnús greindist með parkin-
sons-veikina um miðjan aldur og
dró sig að verulegu leyti í hlé frá
skarkala heimsins eftir það;
kannski nokkuð umfram það sem
veikindin kölluðu á. Veikindin
tóku smám saman sinn toll og
daglega lífið varð honum erfiðara
af þeim sökum án þess að hann
heyrðist kvarta.
Hann var alla tíð trúr uppruna
sínum og vinum. Hann var Akur-
eyringur og hann var Skagfirðing-
ur og Húnvetningur. Hann sótti
samkomur skólafélaga frá GA og
MA, þeir voru honum hugstæðir,
hann mundi allt, vissi flest og tal-
aði um alla af skilningi og góðvild.
Það er með mikilli eftirsjá sem
við kveðjum Magnús Snædal.
Haukur Arnþórsson,
Þórólfur Matthíasson.
Nú þegar leiðir skiljast vil ég
minnast vinar míns Magnúsar
Snædal. Magnúsi kynntist ég í 5.
bekk Menntaskólans á Akureyri
og höfðum við mikil samskipti síð-
ustu tvo vetur okkar í skólanum.
Ekki veit ég hvernig þau kynni
hófust en venjulega voru sam-
skipti utanbæjarnemenda við
nemendur frá Akureyri heldur lít-
il. Hugsanlega var tengingin ræt-
ur beggja í íslenskri sveitamenn-
ingu, ég fæddur og uppalinn í
húnvetnskri sveit en hann að vísu
fæddur og uppalinn á Akureyri en
hafði dvalið öllum stundum hjá
móðurfólki sínu á Syðra-Hóli í
Vindhælishreppi. Það var þó ekki
svo að við dreifbýlisnemendur
værum ekki opnir fyrir öðru. Þeg-
ar ferskir straumar kenndir við
’68 bárust til Akureyrar fóru þeir
síður en svo fram hjá okkur. Þess-
ir straumar voru af ýmsum toga
og ekki eingöngu samfélagslegir
og minnist ég í því sambandi nota-
legra stunda heima hjá Magnúsi,
móður hans og bróður hlustandi á
plötur með John Mayall and the
Bluesbreakers. Þegar mennta-
skóla lauk komu níu ár sem tengsl
okkar voru nánast engin en við
vissum þó hvor af öðrum. Sjálfur
dvaldi ég á þessum árum að mestu
erlendis en Magnús var fyrst við
sveitastörf og síðan við nám og
störf í Reykjavík.
Árið 1982 flyt ég alfarið til
landsins en er þá þegar búinn að
vera með hestatengda ferðaþjón-
ustu í Húnavatnssýslunni í nokkur
sumur en hafði dvalið erlendis á
vetrum. Eftir heimkomuna tökum
við Magnús upp samskipti að
nýju. Upp úr því fer hann að venja
komur sínar til mín í sveitina á
sumrin til að hjálpa mér við hin
ýmsu störf eftir því sem því sem
varð við komið hjá honum. Á tí-
unda áratugnum álít ég að hann
hafi notað allar stundir sem hann
gat til að aðstoða okkur. Í fyrstu
aðallega við járningar og annað
sýsl við hross. Á tímabili vorum
við með ferðir þar sem gist var í
tjöldum. Þá sá Magnús um að
keyra á undan á áfangastaðinn og
tjalda og sjá um matseldina. Á
þessum tíma eru þeir Kári, sonur
Magnúsar, og Sindri, sonur minn,
oft með Magnúsi í þessu amstri og
fór afskaplega vel á með þeim fé-
lögum. Seinna þegar við fórum að
gista á Svarfhóli í Dölum, sem þá
var í eigu hestamannafélags Dala-
manna, var Magnús þar að segja
má ráðsmaður. Hann sagði seinna
sjálfur að þar hefði hann komist
næst því að vera bóndi. Um það
leyti sem Magnús fór að venja
komur sínar í sveitina á sumrin
fær hann sér hesta og er með
hesta á húsi í Reykjavík á vetrum
og heldur því svo lengi sem heils-
an leyfði.
Magnús var ljómandi góður
hestamaður af gamla skólanum og
var til þess tekið hvað reiðhestar
hans voru þjálir og honum fylgi-
spakir. Á þessum tíma er ferða-
þjónustan í landinu í mikilli mótun
og fátt um fyrirmyndir. Það sem
við vildum bjóða upp á skyldi vera
íslensk ferðaþjónusta byggð á ís-
lenskum hefðum og menningu
skrýdd íslenskri náttúru en ekki
einhver erlendur afþreyingariðn-
aður. Í þessum hugleiðingum var
ekki ónýtt að hafa Magnús sér við
hlið.
Magnús var ágætur hagyrð-
ingur. Þess má finna dæmi í gesta-
bókum í ýmsum sæluhúsum.
Um nám og fræðistörf Magn-
úsar veit ég lítið, var sjaldan um-
ræðuefni.
Gestir okkar voru flestir þýsku-
mælandi en Magnús alltaf stirð-
mæltur á þýsku en skilningur
hans á þýsku, einkum lesskilning-
ur, mjög góður og kom alltaf á
óvart.
Nú er Magnús búinn að spretta
af í hinsta sinn og klárarnir komn-
ir í haga og því kveð ég hér minn
góða vin og ferðafélaga til margra
ára.
Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég Kára og öðrum aðstand-
endum.
Meira: mbl.is/minningar
Arinbjörn Jóhannsson.
Hávaxinn, skarpholda, dökkur
yfirlitum, síðhærður, með alpa-
húfu. Þannig birtist Magnús okk-
ur íslenskunemum snemma á átt-
unda áratugnum. Ég komst að því
að þarna fór maður ákveðinna
skoðana, fastur fyrir og skoðunum
sínum trúr. Það varð mér enn bet-
ur ljóst þegar við kynntumst, best
þó þegar við sátum saman í tímum
hjá Hreini og Jóni. Það var á þess-
um árum sem framtíð okkar mót-
aðist. Þetta voru góðir tímar.
Snemma heillaðist Magnús af
gotnesku, því löngu útdauða máli
Gota sem segir okkur svo margt,
m.a. um tungu okkar. Málið er
einkum varðveitt í biblíuþýðing-
um úr grísku frá 4. öld. Og til að ná
enn betri tökum á viðfangsefninu
lærði Magnús forngrísku. Hann
helgaði sig rannsóknum á got-
nesku og aflaði sér alþjóðlegrar
viðurkenningar á því sviði með
verkum sínum og fyrirlestrum.
Hann fann jafnvel villur hjá sjálf-
um Streitberg. Það telst ekki lítið
afrek. Magnús var á heimleið af
ráðstefnu þar sem hann hafði
haldið boðsfyrirlestur um rann-
sóknir sínar þegar hann veiktist
og náði ekki heim. Á myndum sem
teknar voru í ráðstefnulok var
bjart yfir Magnúsi. Hann brosir
sínu hógværa en um leið glettn-
islega brosi. Hann hafði lokið góðu
verki og honum leið vel meðal
vina. Hvað gerðist næst vitum við
ekki.
Magnús Snædal var maður
glöggur á menn og málefni. Hon-
um hlotnaðist sú gæfa að fá að
starfa við það sem honum var
kært. Hann vann af alúð og ná-
kvæmni en hreykti sér aldrei af
verkum sínum. Hann gekk hljótt
um dyr, fámáll um eigið líf og hlut-
aðist ekki til um líf annarra. Samt
lét hann sig aðra varða enda ávallt
reiðubúinn til hjálpar væri eftir
því leitað. Og honum þótti vænt
um fólkið sitt. Æðrulaus tókst
hann á við mótlæti sitt, sem var
ekki lítið.
Ég er Magnúsi Snædal þakklát
fyrir allt það sem hann gerði fyrir
mig og þann sem næst mér stóð.
En nú er 40 ára samfylgd lokið,
samfylgd sem hefði átt verða
miklu lengri. Það var gott að eiga
Magnús að vini.
Kára og öllum ástvinum votta
ég samúð mína.
Margrét Jónsdóttir.
Magnús Snædal, prófessor í
málvísindum við Háskóla Íslands,
er kvaddur með söknuði þeirra er
voru honum nánir sem vinir, sam-
starfsmenn og nemendur fyrr og
síðar.
Það er sammæli margra er til
þekktu á fagsviði hans að hann
hafi verið með lærðustu og
fremstu mönnum á heimsmæli-
kvarða á tilteknum sviðum málvís-
inda, svo sem í fornmálinu got-
nesku, sem var hans líf og yndi og
þar sem hann tók virkan og gef-
andi þátt í fjölþjóðlegu samstarfi
málvísindamanna. Jafnframt var
hann vel að sér í grísku og latínu,
svo að dæmi séu nefnd, auk mik-
illar færni í fjölmörgum grunnat-
riðum þessara vísinda. Magnús
var alla tíð fremur hlédrægur og
fjarri fór því að hann stærði sig af
yfirburðakunnáttu sinni.
Góðvild og hjálpsemi ásamt
hlýhug til samferðarmanna voru
honum í blóð borin og aldrei lá
honum, mér vitanlega, misjafnt
orð til nokkurs manns eða um
aðra menn fjarstadda. Hann hafði
stundum yfir þennan minnisstæða
og sígilda vísupart, ef hann taldi á
einhvern hallað í samræðum við
matar- eða kaffiborð eða annars
staðar:
Holl sú regla öllum er
og þess verð að temja sér
að hafa ei önnur orð um mann
en þú getur sagt við hann.
Magnús var einlægur við vini
sína og góðkunningja og miðlaði
þeim á sinn hógværa hátt af fróð-
leiksbrunni sínum. Er þá ekki
endilega átt við fagsvið hans held-
ur fyrst og fremst margvíslegan
sagnafróðleik af mönnum og at-
burðum fyrri tíðar og þó ekki síð-
ur kveðskap, gjarna hnyttnar og
vel kveðnar lausvísur eftir fjöl-
mörg skáld og hagyrðinga, lífs og
liðna. Var það sannarlega góð
skemmtun þeim er á hlýddu.
Sjálfur var hann hagmæltur og
launfyndinn með allri hófsemd og
smekkvísi.
Margar voru þær stundirnar
sem ég átti einn með Magnúsi,
einkum sem farþegi í bifreið hans
eða þá ásamt ýmsum afbragðs-
mönnum við matarborð í hádeg-
inu í Hámu, matstofu Háskólans.
Þar bar gjarna margt á góma, oft
með brosi og hlátrum eftir atvik-
um. Var þá vissulega vel tekið eft-
ir því sem Magnús lagði til mála
með sínum hætti.
Eru þessar samvistir við
matarborðið, er stundum teygðist
vel úr, mér og ýmsum öðrum afar
minnisstæðar, og þá ekki síður
samvera með Magnúsi yfir kaffi-
bolla í Norræna húsinu um
margra ára skeið. Við bárum gæfu
til að vera samtímis félagar í
litlum og óformlegum kaffiklúbbi,
sem þar hefur komið saman til
glaðværrar samveru einu sinni í
viku hverri (nákvæmlega kl. 14.00
á laugardögum) alls í 49 ár, eða
síðan kaffistofa hússins var opnuð
árið 1968. Góðir félagar úr þeim
hópi hafa að vísu fallið frá eins og
gengur en aðrir komið í staðinn
smám saman, eins og á við um
Magnús, sem þó var þar í mörg ár,
allt til dauðadags. Í þessum fé-
lagsskap verður hans vissulega
sárlega saknað, og veit ég að þar
tala ég einnig fyrir hönd annarra
borðfélaga okkar í Norræna hús-
inu.
Páll Sigurðsson,
prófessor emeritus.
Góður vinur og kær, Magnús
Snædal prófessor í málfræði, hef-
ur nú kvatt, óvænt og langt fyrir
aldur fram. Hann lést á sjúkra-
húsi í Barcelona á Spáni (eða
Katalóníu) þar sem hann hafði
verið á vísindaráðstefnu. Magnús
bjó við talsvert heilsuleysi síðustu
árin, Parkinson-veiki, sem háði
honum sífellt meira, og var mikil
raun að sjá hvernig sá hörmulegi
sjúkdómur lék hann að lokum. En
æðruorð mælti hann aldrei. Það
var þó áhrifamikil stund þegar
Magnús sagði mér einslega frá
sjúkdómsgreiningunni þegar hún
lá fyrir. Þau fáu orð og sú langa
þögn sem fylgdi sagði mikið.
Leiðir okkar Magnúsar Snæ-
dals lágu saman í háskóla, og þó
ekki fyrr en í framhaldsnámi. Ég
man hann þó vel frá fyrstu há-
skólaárum hans því að hann skar
sig nokkuð úr, hár og myndarleg-
ur, svipsterkur og yfirvegaður,
með góðlegt en alvarlegt augna-
ráð, hægur í fasi; þá oft með pípu í
munni. Hann var mjög róttækur í
skoðunum, og nokkra dulúð og
spenning vakti að Magnús hafði
farið í heimsókn til Albaníu.
Lengra varð þá varla komist inn í
launhelgar kommúnismans. Ég
varð þess ekki var að hann gæfi
upp þá trú, en vissi samt aldrei
fyrir víst hvar alvaran í því máli lá.
Hann var venjufastur í dagfari og
nokkur íhaldsmaður í viðhorfum.
Við sátum við fótskör Hreins
Benediktssonar prófessors og
fleiri kennara og drukkum í okkur
germanska samanburðarmál-
fræði, með öðru góðu. Magnús
skrifaði merka kandídatsritgerð
um u-stofna en gotneska og
austurgermanskar málleifar urðu
sérgrein hans og meginviðfangs-
efni í fræðunum. Ég leyfi mér að
fullyrða að á seinni árum hafi
hann verið fremstur vísinda-
manna á því afmarkaða sviði og al-
þjóðlega þekktur og virtur sem
slíkur þótt ekki sé það fjölmenn
sveit sem þau fræði iðkar. Orð-
stöðulykill hans yfir gotnesku og
yfirburðaþekking hans á mál-
heimildum, samanburður við
gríska og latneska texta sem birt-
ast í greinum hans og útgáfum,
munu verða öðrum málfræðingum
að miklu gagni um alla framtíð.
Drýgstan hluta starfsævi sinn-
ar var Magnús þó við kennslu í al-
mennum málvísindum og þekkti
sig þar vel um bekki; ekki vorum
við í sama trúarflokki þar fremur
en í öðru en samræður um kenn-
ingar í málfræði við hann voru
alltaf jafnskemmtilegar. Á seinni
árum vöndum við okkur á að hitt-
ast um helgar í sundlauginni og
skröfuðum þá mikið saman um
málfræði.
Við Magnús bundumst traust-
um vináttuböndum ungir að árum
og það gekk yfir fjölskyldur okkar
framan af. Við fórum stundum í
ferðalög um landið. Magnús var
afar fróður um land og sögu. Eft-
irminnilegust er ferð okkar um
Jökulfirði, en Laxárdalurinn í
Húnaþingi var þó okkar sérstaka
áhugamál. Þar þekkti hann nærri
hverja þúfu enda Rósberg, faðir
hans, þar fæddur og fóstraður.
Mér var eilíft undrunarefni hvílík-
ur vísnasjóður hann var; þar
kenndi aldrei botns. Og sjálfur var
hann prýðilegur hagyrðingur sem
ég fékk að njóta í jólakortum, oft
um ferðalög okkar, bras og þras.
Með miklum söknuði kveð ég
Magnús Snædal
Rósbergsson
Útfararþjónusta
Vönduð og persónuleg þjónusta
athofn@athofn.is - www.athofn.is
ATHÖFN ÚTFARAÞJÓNUSTA - s: 551 7080 & 691 0919
Inger Steinsson