Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 9
Skil á upplýsingum vegna skattframtals Skila skal eftirtöldum upp ýs gu eg a á s s 0 á rafrænu formi á þjónustusíðunni skattur.is Skilafrestur er til 20. janúar Launa- og verktakaupplýsingar Skilaskyldir eru allir þeir sem innt hafa af hendi launagreiðslur, hlunnindi (þ.m.t. kaup- og söluréttarsamningar), lífeyri, bætur, styrki, greiðslur til verktaka fyrir þjónustu (efni og vinnu) eða aðrar greiðslur (þ.m.t. umsýslu- eða umboðsgreiðslur, s.s. í ferðaþjónustu o.fl.). Einnig allir þeir sem í rekstri sínum eða annarri starfsemi hafa látið launamönnum eða öðrum vélknúin ökutæki í té til afnota. Hlutafjárupplýsingar Skilaskyld eru öll hlutafélög, einkahlutafélög, samlagshlutafélög og sparisjóðir. Stofnsjóðsupplýsingar Skilaskyld eru öll samlagsfélög, sameignarfélög og samvinnufélög, þ.m.t. kaupfélög. Viðskipti með hlutabréf/afleiður og önnur verðbréf Skilaskyldir eru bankar, verðbréfafyrirtæki og aðrir þeir aðilar sem annast kaup og sölu, umboðsviðskipti og aðra umsýslu með hlutabréf/afleiður og öll önnur verðbréf. Innstæður Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir og aðrir aðilar sem taka við fjármunum til ávöxtunar, eða hafa milligöngu um ávöxtun eða aðra ráðstöfun fjármuna. Hlutabréfakaup skv. kaupréttarsamningi Skilaskyld eru öll hlutafélög sem gert hafa kaupréttarsamninga við starfsmenn sína samkvæmt staðfestri kaupréttaráætlun. Sama á við um söluréttarsamninga. Takmörkuð skattskylda - greiðsluyfirlit Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur til erlendra aðila og annarra, sem bera takmarkaða skattskyldu hér á landi. Lánaupplýsingar Bankalán, fasteignaveðlán, bílalán og önnur lán. Skilaskyldar eru allar fjármálastofnanir (bankar, sparisjóðir, lífeyrissjóðir, tryggingafélög, fjármögnunarleigur o.s.frv.) sem hafa lánað fé til einstaklinga og lögaðila. Greiðslur fyrir leigu eða afnot Skilaskyldir eru þeir sem innt hafa af hendi hvers konar greiðslur fyrir leigu eða afnot af lausafé, fasteignum og fasteignaréttindum eða öðrum réttindum. Einnig þeir sem hafa í atvinnuskyni milligöngu um útleigu. Fjármagnstekjur Þeir aðilar sem innheimt hafa vexti skulu skila upplýsingum um slíkar fjármagnstekjur og tilgreina sundurliðun á móttakendur og þá staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts sem haldið hefur verið eftir. Hér er einkum um að ræða innheimtuaðila, t.d. lögmannsstofur. Staðfesting á tilteknum hlutabréfakaupum (listi yfir þátttakendur) Skilaskyld eru öll hlutafélög og einkahlutafélög sem fengið hafa staðfestingu ríkisskattstjóra á að þau uppfylli skilyrði fyrir því að kaup einstaklinga á hlutum í hlutafjáraukningu félagsins geti veitt rétt til skattfrádráttar sbr. B-lið 1. mgr. 30. gr. laga nr. 90/2003. l in m v n r in 2 17 2018 Nánari upplýsingar á rsk.is 442 1000 Þjónustuver opið: Mán.-fim. 9:00-15:30 Fös. 9:00-14:00 rsk@rsk.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.