Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Kristín Heiða Kristinsdóttir
khk@mbl.is
Ég set mig ekki í sér-stakar stellingar þegarég sem tónlist fyrir börn,tónlist á alltaf að vera
fyrir fólk, óháð aldri. Gott barnaefni
þarf að vera þannig að allir geti not-
ið þess, rétt eins og gott fullorðins-
efni. En auðvitað þarf það að vera
aðgengilegt og má ekki vera of
langt,“ segir Hildigunnur Rúnars-
dóttir tónskáld þegar hún er spurð
að því hvernig tónskáld nálgist það
verkefni að semja barnaóperu, en
Hildigunnur er höfundur nýrrar
barnaóperu um Gilitrutt, sem frum-
flutt verður á Myrkum músíkdögum
nú í lok janúar sem tónleikar, en
verður sett á svið á Barnamenning-
arhátíð í vor.
„Pamela De Sensi hjá Töfra-
hurð leitaði til mín með að semja
tónlistina í þessari óperu og ég fékk
að velja söngvarana, sem er mjög
gaman. Hlutverkin eru aðeins þrjú,
bóndinn og húsfreyjan og svo tröll-
skessan sjálf, Gilitrutt. Söngfólkið
er á mjög mismunandi stigi á sínum
tónlistarferil og á ólíkum aldri. Hall-
veig Rúnarsdóttir sem syngur hlut-
verk Gilitruttar er á toppnum, ein af
þekktustu og virtustu söngkonum
landsins. Þorkell Helgi sem syngur
hlutverk húsbóndans, útskrifaðist
úr Listaháskólanum fyrir örfáum
árum, og María Sól sem syngur
hlutverk húsfreyjunnar, er í námi í
Listaháskólanum. Mér finnst gam-
an að geta gefið ungu fólki tæki-
færi,“ segir Hildigunnur og bætir
við að hún notist einvörðungu við
Gilitrutt snýr
aftur í barnaóperu
Flestir á Íslandi þekkja þjóðsöguna um skessuna Gilitrutt sem tók að sér störf fyrir
húsfreyju í mannheimum, en vildi að launum fá hana til að geta upp á nafni sínu.
Ekki gerði hún ráð fyrir að konan gæti það og yrði hún þá hennar. Nú er Gilitrutt
komin í barnaóperu þar sem snapchat og aðrir samskiptamiðlar verða til þess að
húsfreyja hefur lítinn tíma fyrir bústörfin og þiggur því hjálp skessunnar.
Stilla úr kvikmyndinni Gilitrutt var frumsýnd 1957 í Bæjarbíói. Hér eru
Ágústa Guðmundsdóttir og Martha Ingimarsdóttir í hlutverkum sínum.
Að verða betri í því að taka ljós-
myndir er eftirsóknarvert á tímum
þar sem myndmiðlar ráða ríkjum.
Fyrir krakka á aldrinum 12-16 ára fer
af stað nú í janúar 10 vikna námskeið
í ljósmyndun hjá Ljósmyndaskól-
anum í Reykjavík. Vert er að taka
fram að hægt er að nota Frístunda-
kort borgarinnar til greiðslu á nám-
skeiðsgjöldum eða upp í hluta þeirra.
Ljósmyndaskólinn stendur fyrir
ýmsum námskeiðum og vinnustofum
em ætluð eru fyrir almenning sem og
þá sem vilja bæta við þekkingu sína á
ljósmyndun. Byrjendanámskeið undir
heitinu Ljósmyndun 1, er fastur liður
og ýmislegt fleira verður boðið upp á
árið 2018 hjá Ljósmyndaskólanum. Í
janúar verður stutt námskeið í því að
nota forritið Lightroom, þar sem far-
ið verður í undirstöðuatriði skipulags
við stafrænt myndasafn, framköllun
og helstu grunnþætti við stafræna
myndvinnslu. Nánar um námskeiðin
og skólann á ljosmyndaskolinn.is
Vefsíðan www.ljosmyndaskolinn.is
Morgunblaðið/Eggert
Unglingar Þeir eru skapandi og skemmtilegir og fljótir að læra nýja hluti.
Um að gera fyrir unglinga að
skella sér á ljósmyndanámskeið
Í skammdeginu er fátt skemmtilegra
en að hlusta á góðar draugasögur. Og
nú er lag, því Geir Konráð ætlar að
segja dimmar draugasögur í rjóðrinu í
skógræktinni að Bjargi í Borgarnesi
kl. 17 í dag, föstudag. Viðburðurinn er
öllum opinn og ókeypis. Best er að
komast að rjóðrinu ef gengið er frá
Garðavík í átt að túninu sem kennt er
við Bjarg, við endann á trjálundinum
er beygt til vinstri og gengið upp með
trjám að rjóðri. Fólk er hvatt til að
taka með sér vasaljós, hlý föt og líka
gesti eða nágranna í næsta húsi.
Teppi og púði undir rassa ættu líka að
vera með í för og mælt er með að fólk
fari í vasaljósagöngu um skóginn á
eftir. Gaman saman í myrkrinu.
Endilega …
… hlustið á
draugasögu
Morgunblaðið/Ómar
Skannaðu kóðann
til að fara inn á
vefsíðuna.
Litla fjölskyldan“, eins ogbloggarar og skvísur kallaþriggja manna fjölskyldur,breytti út af vananum um
jólin. Í stað þess að halda þau í
myrkri og kulda var ákveðið að halda
suður á bóginn. Þegar klukkan sló
sex á aðfangadag á Íslandi lágum við
á ströndinni á elliheimili Bandaríkj-
anna; Flórída.
Fríið var frábært í sól og blíðu en
heimferðin tók aðeins lengri tíma en
áætlað hafði verið. Vegna þess sem
við Íslendingar köllum veður var allt
flug frá Flórída til New York fellt nið-
ur en við áttum tengiflug þangað
áleiðis heim. Jæja, þetta þýddi þá
aukanótt á fínu hóteli. Eini gallinn
þar var, að mati erfingjans, að engar
teiknimyndir voru í sjónvarpinu.
Degi síðar áttum við flug frá Flór-
ída til New York og þaðan heim. Eng-
inn tími var fyrir slökun í borginni
sem aldrei sefur og ljóst
að ekki mátti mikið út af
bregða til að við mynd-
um hreinlega missa af
fluginu heim.
Þegar við héldum að
ætti að kalla okkur upp í
vél, birtist tilkynning um
að fluginu hefði verið
frestað um rúmlega klukku-
stund. Ástæðan var sú að það
vantaði flugmann. Það lá við
að betri helmingurinn gubb-
aði af stressi við þessar fréttir
og beindi hún einnig reiði
sinni að mér, ég var að hennar
mati ekki nógu stressaður.
Eftir hræðilega lendingu í
New York, þar sem í það minnsta ein
kona kastaði upp, hófst ferlið við að
koma töskum rétta leið í átt heim.
Einhverra hluta vegna notar fólk í
New York ekki nýjustu tækni og því
þurftu allir að fara í röð og skrá sig
inn á gamla mátann.
Röðin hreyfðist ekki hratt og ekki
hjálpaði þegar fólki sem var á síðustu
stundu í sitt flug var hleypt fram fyrir
aðra. Það má því segja að fólk hafi
verið verðlaunað fyrir að haga sér
eins og fífl. Karlmaður á besta aldri
missti að lokum þolinmæðina og
spurði hlunk sem var að verða of
seinn hvort honum þætti í lagi að
fara fram fyrir röð. Sá þétti yppti
öxlum og sagðist ekkert geta
gert. „You fu***** dip-
shit,“ sagði þá sá reiði.
Það síðasta sem ég sá af
þeim svera var hann
að endurpakka í allt
of þunga tösku sína.
Hann minnti mig
óþægilega mikið á New-
man, erkióvin Seinfeld.
Pirringur minn út í hann
var því ekki ástæðulaus.
»Eftir hræðilega lend-ingu í New York, þar
sem í það minnsta ein
kona kastaði upp, hófst
ferlið við að koma töskum
rétta leið í átt heim.
Heimur Jóhanns
Jóhann Ólafsson
johann@mbl.is
U
Opið virka daga kl. 11-18, laugardaga kl. 11-15
Útsalan
er hafin
10-50%
Listhúsinu við Engjateig, 105 Reykjavík,
sími 551 2050
Samvinna Salka textahöfundur og Hildigunnur skópu óperuna saman.