Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018 ✝ Ingvar Stef-ánsson fæddist 19. mars 1958 í Reykjavík. Hann lést á Landspítal- anum við Hring- braut 2. janúar 2018. Foreldrar hans voru Stefán Jóns- son, f. 6.1. 1931, d. 8.8. 2011, og Eva Óskarsdóttir, f. 12.4. 1934, d. 22.1. 2015. Systkini Ingvars eru Mar- grét, f. 10.9. 1954, Ásta Edda, f. 4.1. 1962, og Ellert Kristján, f. 27.6. 1969. Eiginkona Ingvars er Ás- laug Hartmannsdóttir, f. 5.11. 1958. Börn Ingvars og Ás- laugar eru: 1) Kristín Ósk, f. 29.10. 1984. Maki hennar er Emil Hjörvar Petersen, f. 7.5. 1984. 2) Hart- mann, f. 15.3. 1989. Barnabörn Ingvars eru Ronja Áskatla Petersen, f. 20.9. 2015, og Þrándur Alvar Petersen, f. 8.7. 2017. Ingvar var lærður pípu- lagningameistari. Hann vann lengst af hjá Íslenskum að- alverktökum. Einnig vann hann hjá Frumherja og nú síð- ast hjá Félagsbústöðum Reykjavíkurborgar. Útför Ingvars fer fram frá Digraneskirkju í Kópavogi í dag, 12. janúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 15. Elsku pabbi okkar, það er sárt að þurfa að kveðja þig svona fljótt en við finnum huggun í því að þú þjáist ekki lengur og fáir að hvíla í friði. Þú varst okkur góður faðir, hlýr og þolinmóður, vildir allt fyrir okkur systkinin gera og settir okkur ávallt í fyrsta sæti. Einnig í veikindunum, enda varstu mjög ákveðinn í að við héldum áfram okkar daglega lífi. Þú sýndir hvernig við getum tamið okkur vinnusemi og heiðarleika og þú gafst okkur frelsi til að gera mis- tök og læra af þeim, sem er okkur verðmætt um ókomna tíð. Ótal margar minningar koma fram þegar við skrifum þessa grein, minningar sem við munum geyma í hjarta okkar. Við söknum þess að grínast með þér og að kalla fram bros þitt. Takk fyrir alla þá ást og hlýju sem þú gafst okkur, takk fyrir að vera elskulegi pabbi okkar. Kristín Ósk og Hartmann. Ingvar, tengdafaðir minn og afi barnanna okkar Kristínar, var yfirvegaður og góðhjartaður mað- ur sem verður sárt saknað. Skömmu eftir að við Kristín byrj- uðum saman komst ég að því hversu náin hún var pabba sínum og hversu mikið traust hún bar til hans. Og það var auðvelt að sjá hvers vegna. Ingvar hlustaði vel á alla þá sem hann talaði við, sá hið góða í fólki, hafði heilmikla og oft lúmska kímnigáfu og gat talað um hvað sem var. Æðruleysi hans og þýð- lyndi gerði það að verkum að hægt var að kynnast honum vel og eftir því sem á leið gat ég talað við tengdaföður minn um allt milli himins og jarðar. Handlagnari manni hef ég ekki áður kynnst. Bersýnilega naut hann þess að dytta að hverju sem var og oft þegar hann gekk til verks eða sýndi okkur hvernig ætti að laga eitthvað kviknaði áhugi á ýmsu sem maður hafði ekki hugmynd um að manni ætti eftir að finnast áhugavert. Ingvar var skýr og einbeittur og leið- beindi vel, hvort sem það varðaði verklag eða að ráðleggja börnun- um sínum. Hann fyllti mann vissu um að til væri lausn á öllum vandamálum. Ég þekkti Ingvar í rúm ellefu ár og hlakkaði til að kynnast hon- um enn betur, sérstaklega eftir að börnin okkar fæddust. Áður hafði ég séð hversu vel hann ræktaði sambandið við börnin sín, hversu góður faðir hann var, og þegar hann tók barnabörnin, Ronju og Þránd, í fangið í fyrsta skipti var augljóst að þau voru í öruggum höndum; vandvirkni hans og vin- semd skilaði sér í nærgætni og hlýju. Ég vildi óska þess að ung börnin okkar hefðu fengið meiri tíma með afa sínum, en í staðinn munum við halda minningum um hann lifandi og leyfa þeim þannig að kynnast honum betur. Með þakklæti fyrir allt sem þú færðir okkur – hvíldu í friði, afi Ingvar. Emil Hjörvar Petersen. Ingvar, ég skal reyna að vera ekki væmin, ég veit þú þoldir það ekki. Þú varst alltaf svo hógvær og spar á að láta ljós þitt skína. En þegar þú hrökkst í gang með brandarana og sögurnar þá lágum við í hlátri. Fyndnasti og skemmtilegasti maður í heimi í mínum augum. Ég man í gamla daga þegar þú varst að svæfa Ella litla bróður, að þá laumuðumst við mamma oft inn í herbergi til að hlusta líka á sög- urnar, sem þú skáldaðir upp á staðnum. Elli sofnaði að sjálf- sögðu ekkert því það var svo gam- an og við mamma skríktum af hlátri. Þú varst mér fyrirmynd í einu og öllu og ótrúlegt hvað þú nenntir að hafa litlu systur í eftirdragi. Stundum fékkstu samt alveg nóg og sagðir að ég væri leiðinleg, en þá sagði ég bara „nei, ég er ekkert leiðinleg“ og þá var það búið. Þú kenndir mér að lesa, spila, stríða, slást, hlusta á almennilega tónlist og í raun ólstu mig mest upp. Pabbi var alltaf að vinna fram á nótt á þessum árum og mamma var jú alltaf að spila á orgelið. Kannski aðeins ýkt en ég er bara að reyna að vera fyndin fyrir þig. Við vorum stundum saman í herbergi og þá var alltaf allt full- komið á þínum helmingi, en eins og sprengja mín megin. Þú vildir alltaf hafa snyrtilegt í kringum þig og allt á sínum stað. Dótið þitt voru gersemar, sem þú passaðir svo vel. Allt heilt og vel um gengið. Þannig maður varstu, „heill og sannur“. Allir sem þig þekktu báru virð- ingu fyrir þér. Þú varst alltaf að hjálpa en það mátti aldrei hjálpa þér. Þú varst alltaf að dunda eitt- hvað og leiddist að hvíla þig. Því var það erfitt að horfa á þig berj- ast við ofureflið og missa líkam- lega styrkinn, en andinn var alltaf sterkur og aldrei gafstu upp. Takk fyrir alla hjálpina og ævintýrin í gegnum ævina, elsku hjartans brósi, og megi Guð og all- ir englar sitja um kring hjá Ás- laugu þinni, Hartmanni og Krist- ínu Ósk. Missir þeirra er gríðarlega mikill því betri eigin- mann, föður og afa er ekki hægt að hugsa sér. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Þín systir, Ásta. Ingvar stóri bróðir minn er dá- inn allt of snemma. Hvaða rugl er nú það? Eini maðurinn í heiminum sem ég gat sagt við „hei brósi“. Ingvar var annar af þeim tveim mönnum sem ég hef litið mest upp til um ævina. Hinn var pabbi okk- ar. Þvílíkur meistari sem Ingvar var. Alltaf svo rólegur og yfirveg- aður. Alltaf svo pottþéttur og vandvirkur. Lét ekki auðveldlega koma sér úr jafnvægi og var með óskaplega mikla kímnigáfu, sem hann fór reyndar sparlega með. En vá, þvílík veisla þegar hann sleppti af sér beislinu og henti í grín og hlátur, þá fengu allir ma- gapínu af hlátrasköllum. Ég átti dásamlega æsku með systkinum mínum og foreldrum og brósi átti stóran þátt í að gera mér hana minnisverða og kær- leiksríka. Kvöldsögurnar standa upp úr, þvílíkur sagnameistari og of lítið rými hér til að segja al- mennilega frá. Ég man ófá skiptin þegar brósi var í herbergi sínu að reyna að læra og ég gjörsamlega gat ekki látið hann í friði. Hann henti mér iðulega út og læsti. Þá djöflaðist ég á hurðinni eða fór út í garð og hamaðist á glugganum. Ingvar gat jú eðlilega orðið pirraður en aldrei var hann vondur. Já, ég gat ekki látið brósa í friði, hann var svo óskaplega skemmtilegur. Já, ég elskaði að vera í kringum Ingv- ar. Hann var alltaf svo fjandi fynd- inn og skemmtilegur. Svo kenndi mér hann bara lexíur ef ég átti það skilið og margar hittu beint í mark og ég fer enn eftir þeim. Síðan þegar hann var ekki heima grams- aði ég í herberginu hans og komst í allt góssið og skoðaði með mikilli virðingu. Það voru plötur, kass- ettur og spennandi tímarit. Þvílík veisla. Ég var heldur ekki gamall þeg- ar Ingvar var kominn með kær- ustu, kannski 6-7 ára, það var hún Áslaug okkar. Svakalega steinlá þetta hjá þeim og hefur gert alla tíð síðan. Ég ólst því upp og þekki lítið annað en þau tvö saman. Ás- laug reyndist yndisleg viðbót við brósa og alla tíð hefur verið ákaf- lega gott að heimsækja þau og leita til þeirra. Það er orðið löng og góð saga og of langt mál að telja upp hér allar góðu stundirn- ar með þeim. Kristín og Hart- mann komu til sögunnar og eru fyrir löngu orðin fullorðið fólk. Já, það kom mér á óvart þegar ég settist niður og skrifaði til þín, brósi minn. Ég bjóst við að sorgin yfirtæki mig og ég kæmi engu nið- ur á blað. En það lýsir þér bara best, elsku brósinn minn, hvernig ég minnist þín og hvað þú varst flottur. Endalaust fyndinn og fal- legur og ég mun sakna þín um ald- ur og ævi og kveð þig hér í síðasta sinn. Elsku Áslaug, Kristín, Hart- mann, Emil, Ronja og Þrándur. Mikið ofboðslega var hann Ingvar stoltur af ykkur. Þið fjölskyldan voruð lífið hans og það er mér erf- iðast að horfa upp á hann hverfa frá ykkur akkúrat núna þegar hann var hvað spenntastur fyrir nýjasta kafla lífsins með ykkur. „Afi“. Litlu molarnir Ronja og Þrándur voru það sem hjarta hans var hvað spenntast fyrir. Og þetta hlutverk að vera afi. Hann elskaði það og því er þetta svo sárt. Hann var ekki tilbúinn, hann átti eftir að gera helling með ykkur. Guð geymi ykkur, elskurnar mínar, og verndi og hjálpi ykkur í söknuði ykkar. Elska ykkur öll. Ellert Kristján Stefánsson. Ég er orðlaus, hvað getur mað- ur sagt, að missa besta vin sinn er verra en orð fá lýst. Er þú greindist með krabba- mein í apríl var ég að vona að þetta væri eitthvað sem þú mundir sigr- ast á en það kom í ljós að meinið hafði dreift sér og baráttan yrði erfið. Þú tókst þessum veikindum með þvílíku æðruleysi, og fullviss um að senn væri allt á batavegi. Leiðir okkar lágu saman þegar ég var að kynnast Hrafnhildi syst- ur Áslaugar sem þú varst nýbúin að kynnast. Það myndaðist strax vinasamband okkar á milli. Við höfðum sömu áhugamál sem við dembdum okkur í. Við fengum okkur eins golfsett og fórum að æfa golf, við vorum að gutla við þetta ef við vorum ekki uppteknir á húsbílunum upp um fjöll og firn- indi eða eitthvað annað sem við tókum okkur fyrir hendur. Við áttum gæðastundir á gæsa- veiðum þegar við biðum í gæsa- byrginu hálfan eða heilan dag, þá var spjallað um alla heima og geima. Einnig eru hreindýraveið- arnar okkar eftirminnilegar, það voru yfirleitt þriggja daga ferðir austur sem gengu alltaf vel í góð- um félagsskap. Einnig fórum við og makar okkar oft saman í sumarbústað til að gera vel við okkur og oft fórum við í viðgerðarferðir í sumarbú- staðina, því það var auðsótt mál að fá þig í reddingar ef þurfti að laga pípulagnir strax. Það var aðdáunarvert hvað þú vannst öll þín verk af mikilli fag- mennsku og rökvísi, það þurfti að vera rök fyrir öllu. Það voru oft miklar pælingar um það hvernig verkið hafði verið unnið og hvaða leið hafði verið farin og hvernig þetta væri svona og hinsegin og svo var farin faglega leiðin til að laga. Það var alltaf hægt að treysta á þig, hvort sem það var vinnutengt, í áhugamálunum eða á heimilinu. Takk fyrir allt. Elsku vinur, þín verður sárt saknað og megi minningin lifa. Innilegar samúðarkveðjur til Áslaugar, Hartmanns, Kristínu, Emils og barnabarnanna Ronju Áskötlu og Þrándar Alvars. Þorkell Svarfdal Hilmarsson og Hrafnhildur Hartmanns- dóttir. „Hvert er tilefnið?“ spurðu vinnufélagarnir þegar ég kom með köku í vinnuna. „Nú, Ingvar á afmæli,“ sagði ég. Svo kom Ingvar með köku og þeir spurðu „Hver á afmæli?“ „Nú, Hallgrímur,“ svar- aði hann. Við Ingvar áttum nefni- lega sama afmælisdag. Fallinn er frá einstakur ljúf- lingur langt um aldur fram. Við Ingvar unnum saman í nokkur ár hjá Frumherja. Það var gott að vinna með Ingvari, hann var úr- ræðagóður, samviskusamur og traustur, góður vinnufélagi. Og ekki voru nú hávaðinn og lætin í kringum hann. Hann var líka afi og hann ljómaði allur þegar hann talaði um litlu Ronju, afabarnið sitt. Við Helga sendum innilegar samúðarkveðjur til Áslaugar og fjölskyldunnar. Minningin lifir um góðan mann. Guð veri með ykkur. Hallgrímur. Við kveðjum í dag góðan sam- starfsfélaga okkar, Ingvar Stef- ánsson, sem hóf störf fyrir Fé- lagsbústaði fyrri hluta ársins 2016. Hjá félaginu hafði hann um- sjón með standsetningu íbúða ásamt því að sinna störfum er tengdust pípulögnum og hitakerf- um, en á því sviði hafði Ingvar mikla þekkingu og reynslu. Hann var fljótur að komast inn í starfsemina hjá Félagsbústöðum og var vel liðinn af samstarfsfólki og viðskiptavinum félagsins. Þó að hann væri ekki frekur á orðið og léti lítið fyrir sér fara var eftir því tekið hversu faglega og samvisku- samlega hann vann öll sín störf. Fyrri hluta ársins 2017 gerðu vart við sig veikindi hjá Ingvari og hann greindist í kjölfarið með al- varlegan sjúkdóm. Hann tók þess- um slæmu tíðindum af mikilli yf- irvegun og hélt áfram störfum sínum af ótrúlegri þrautseigju, þrátt fyrir að líkaminn bæri veik- indum hans skýr merki. Minningar um dugnað, lítillæti og fagmennsku vakna þegar við hugsum til Ingvars og um hann á einkar vel við hið fornkveðna úr Hávamálum: Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. Við vottum Áslaugu, eftirlifandi eiginkonu Ingvars, börnum þeirra og barnabörnum samúð okkar. Fyrir hönd starfsfólks Félags- bústaða, Auðun Freyr Ingvarsson. Ingvar Stefánsson ✝ Pálmi Þor-steinsson fæddist á Akur- eyri 2. febrúar 1947. Hann lést á heimili sínu á Akureyri 3. jan- úar 2018. Foreldrar hans eru Guð- finna Óskars- dóttir, f. 1928, og Þorsteinn Pálmason, f. 1924, d. 1992. Systkini Pálma eru Magnús, f. 1950. Óskar, f. 1954. Auðunn, f. 1960, og Auður, f. 1965. Eig- inkona Pálma er María Ax- fjörð, f. 1953. Börn þeirra eru 1) Arnhildur, f. 1972, sambýlis- maður hennar er Skarphéðinn Ívarsson, f. 1966. Börn þeirra eru a) Björg, f. 1989. b) Arnar, f. 1998. 2) Þorsteinn Pálmason Axfjörð, f. 1975, eiginkona hans er Elísa Heimisdóttir, f. 1980. Börn þeirra eru a) Krist- ófer Daði Axfjörð, f. 2005. b) Signý María Axfjörð, f. 2009. Að loknu undirbúningsnámi á Akureyri fór Pálmi í nám til Álasunds í Noregi þar sem hann lærði bygginga- tæknifræði við Möre og Roms- dal Tekniske skole. Að námi loknu 1971 hóf hann störf við tæknideild Húsavíkurbæjar þar sem hann síðar starfaði sem byggingarfulltrúi og bæj- artæknifræðingur en hann starfaði samfleytt í 30 ár hjá Húsavíkurbæ. Árið 1998 hóf Pálmi störf hjá Vegagerðinni fyrst á Húsavík en frá árinu 2001 sem þjónustu- stjóri Vegagerðar- innar á Akureyri, en það ár fluttu hann og eiginkona hans aftur til Akureyrar. Pálmi var mjög virkur í fé- lagsstörfum og hafði mörg áhugamál. Til dæmis var hann einn af forsvarsmönnum rallkeppna sem haldnar voru árlega á Húsavík á níunda áratugnum. Hann var einn af stofnendum Flugklúbbs Húsavíkur en Pálmi lærði til einkaflugmanns og átti um tíma hlut í lítilli flugvél, ásamt félögum sínum. Hann var virkur félagi í Golf- klúbbi Húsavíkur, sat þar í stjórn og tók þátt í uppbygg- ingu hans, og var félagi í Rót- arýklúbbi Húsavíkur um tíma. Eftir að hann flutti til Ak- ureyrar æfði hann krullu ásamt samstarfsmönnum sín- um hjá Vegagerðinni. Þeir tóku þátt í krullumótum innan- lands og utan, og liðið hans, Kústarnir, varð Íslandsmeist- ari árið 2007. Pálmi hafði áhuga á listum, menningu og heimspeki og sótti ýmsa við- burði. Hann lét af störfum hjá Vegagerðinni vegna aldurs haustið 2016. Útför Pálma fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 12. janúar 2018, klukkan 13.30. Okkur Axfjörð-systkinin langar að skrifa örfá orð um mág okkar Pálma Þorsteinsson. Við vorum á ýmsum aldri þegar hann giftist systur okkar Maríu, en fljótlega fundum við öll að þarna var kominn góður vinur og félagi sem ekki var svo bundinn við kynslóðir. Stundum vorum við jafnaldr- ar en stundum var hann fullorð- inn maður sem hægt var að leita til sem slíks. Pálmi var næmur á að lesa hvenær hann átti að vera jafningi, hvenær hann þurfti að vera fullorðni maðurinn og hvenær vinur og félagi. Hann náði góðum tengslum við aðra og skipti þá ekki miklu máli á hvaða aldri þeir voru – á sinn hæverska og hreinskiptna hátt. Við systkinin kynntumst Pálma í mörgum hlutverkum en hann var fyrst og fremst mágur okkar. Óaðskiljanlegur og ómissandi helmingur tvíeykisins yndislega, Maju-og-Pálma, en hann var líka yfirmaður sumra okkar á tímabili, vinur, ráðgjafi, leigusali, gestur og ekki síst gestgjafi nú seinni árin ásamt Maríu. Pálmi átti sinn þátt í stemm- ingunni sem varð til í Sólbrekk- unni. Stemmingu sem allir sem þangað komu fundu og öllum er svo dýrmæt en enginn getur samt lýst nákvæmlega. Þarna var áhyggjuleysi ungdómsár- anna í algleymi og Pálmi og Maja urðu einhvern veginn sjálfkrafa höfuð systkinahópsins og þangað gátum við alltaf leit- að með gleði okkar og sorgir. Margt var nú spjallað við eld- húsborðið í Sólbrekkunni á Húsavíkurárunum og þar var Pálmi ómissandi með sinn góða húmor og hlýju. Þá gat umræðan snúist um bókstaflega allt milli himins og jarðar. Við gátum rennt í gegnum undirbyggingu vega í mýrlendi, bókmenntir, limrur, mótorhjól, trúmál og dægurmálin eða bara galsast eitthvað og verið glöð. Oft höfum við systkinin nefnt það okkar á milli seinni árin hve mikla þolinmæði og skilning Pálmi sýndi okkur Axfjörðunum á þessum tíma þegar við á köfl- um nánast tókum yfir heimili þeirra Maríu í Sólbrekkunni á Húsavík. Fyrir það erum við honum þakklát þótt við höfum ef til vill ekki verið nógu dugleg að segja honum það nú á fullorðinsárun- um. Öllum til mikillar gleði fylgdi þessi stemming þeim heiðurs- hjónum Maríu og Pálma í Klettaborgina þegar þau fluttu til Akureyrar og sannaðist þar að hlýjan fólst ekki í húsinu sjálfu heldur manneskjunum sem þar bjuggu og fluttu hana svo með sér til Akureyrar. Þau náðu því að eiga 45 ára brúðkaupsafmæli aðeins fjórum dögum áður en Pálmi kvaddi. Meira að segja á dánarbeð- inum þegar honum var fullljóst hvert stefndi hélt hann sínum gamla góða húmor, tók hjarta- laga piparkökurnar, sneri þeim á hvolf og kallaði þær rassa. „Eigum við ekki að fá okkur rass núna?“ spurði hann og lét kökuna setjast aðeins í kaffið. „Þær eru betri á bragðið svona rassblautar,“ sagði hann og gaf þumal upp. Kjarkur hans þegar hann horfðist í augu við dauðann var aðdáunarverður. Það tóm sem brotthvarf Pálma skilur eftir í fjölskyld- unni verður ekki fyllt en við eigum minningarnar og þær eru svo óendanlega dýrmætar. Sem betur fer hafa börn þeirra Pálma og Maríu erft mannkosti foreldra sinna og þannig lifir Pálmi Þorsteinsson í þeim á einhvern hátt. Því má segja að hann hafi bæði skilað góðu dagsverki og góðum genum áfram til afkom- enda sinna. Við vottum öllum aðstand- endum okkar dýpstu samúð um leið og við kveðjum Pálma Þor- steinsson með miklum söknuði og umfram allt þakklæti. Meira: mbl.is/minningar Friðjón, Steinunn, Friðgeir, Arnaldur, Jónas Reynir, Hildigunnur, Alma og Ingileif. Pálmi Þorsteinsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.