Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 27
MINNINGAR 27
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
✝ Ásgeir Lárus-son fæddist á
Norðfirði 10. jan-
úar 1924. Hann
lést á Fjórðungs-
sjúkrahúsinu í
Neskaupstað 4.
janúar 2018.
Foreldrar Ás-
geirs voru Lárus
Ásmundsson, f. 19.
september 1885, d.
15. september
1971, og Dagbjört Sigurðar-
dóttir, f. 16. apríl 1885, d. 7.
september 1977. Ásgeir var ní-
undi í röð 12 systkina en þau
eru Sigríður, Óskar, Fanney,
Þórunn, Halldór, Sigurður, Ár-
sæll, Hermann, Garðar, Aðal-
heiður og Svavar. Öll eru látin
nema Svavar.
Ásgeir kvæntist 25. desem-
ber 1954 Unni Bjarnadóttur, f.
29. maí 1933 á Norðfirði. For-
eldrar hennar voru Bjarni
Sveinsson, f. 5. ágúst 1894, d.
Th. Brynjólfsdóttur, f. 1964.
Börn þeirra eru a) Ingibjörg
Lára, f. 1989, sambýlismaður
Gunnar Marteinsson, f. 1983.
Þau eiga soninn Tinna Brynjar,
f. 2016, og fyrir á Gunnar son-
inn Martein Daða, f. 2009. b)
Unnur Rún, f. 1993, unnusti
Ryan Weisner, f. 1995. c) Bjarni
Sævar, f. 1998, unnusta Andrea
Torfadóttir, f. 1996. d) Theo-
dóra Brynja, f. 2004.
Ásgeir starfaði sem fulltrúi
hjá bæjarfógeta og síðar sýslu-
manni í Neskaupstað í fjörutíu
ár. Jafnframt sinnti hann starfi
tollvarðar lengi vel ásamt því
að vera fréttaritari Morgun-
blaðsins um árabil. Áður sinnti
hann ýmsum störfum, svo sem
vertíðarstörfum, akstri vöru-
bifreiða og olíubíls, ökukennslu
og verslunarstörfum.
Áhugamál hans voru af ýms-
um toga. Hann hafði mikla un-
un af garðrækt, leiklist, var í
ýmsum kórum og meðlimur í
Lions-hreyfingunni.
Útför Ásgeirs fer fram frá
Norðfjarðarkirkju í dag, 12.
janúar 2018, klukkan 14.
24. febrúar 1978,
og Guðrún Frið-
björnsdóttir, f. 11.
maí 1893, d. 9. júní
1989.
Unnur og Geiri,
eins og þau voru
ávallt kölluð, eign-
uðust fjögur börn:
1) Dóttir, f. 22.
september 1951, d.
22. september
1951. 2) Heimir, f.
1. júní 1955, kvæntur Freyju
Theresu Ásgeirsson, f. 1952.
Börn þeirra eru a) Sara, f.
1982, sambýlismaður Teitur
Símonarson, f. 1985. Sara átti
fyrir soninn Heimi Tristan, f.
2004, og með Teiti á hún Símon
Örn, f. 2010, Úlf Snæ, f. 2011,
og Eldeyju Mist, f. 2016. b)
Matthías James, f. 1985, c) Ás-
geir Friðrik, f. 1989. 3) Sævar
Lárus, f. 4. desember 1959, d.
26. mars 1978. 4) Sveinn, f. 18.
ágúst 1964, kvæntur Hólmfríði
Elsku pabbi.
Það fer margt í gegnum hug-
ann á kveðjustund. Það er
margs að minnast, bæði frá
æskuárum mínum og seinni tím-
um. Til dæmis hafðir þú mjög
gaman af því að ferðast.
Þið mamma fóruð í margar
ferðir saman og svo ferðuðust
þið oft með mér og minni fjöl-
skyldu. Við ókum um Evrópu.
Þið heimsóttuð okkur til Dan-
merkur þegar við bjuggum þar.
Við fórum til Svíþjóðar og Nor-
egs, dvöldum í sumarhúsinu
hans frænda í Noregi.
Þú hafðir gaman af þeirri
ferð. Við fórum til Kanada og við
fórum til Krítar. Eitt kvöldið á
Krít tókst þú mig afsíðis og
sagðir við mig að þetta yrði síð-
asta ferðin þín til útlanda. Þá
varst þú níræður.
Þar lékst þú á als oddi en þú
hefur fundið að heilsunni væri
eitthvað farið að hraka. Þú
reyndist sannspár því þetta varð
sú síðasta til útlanda. Þú varst
samt alltaf að spá í ferðalög. Nú
síðast í spjalli skömmu fyrir jól
varstu að minnast á að það væri
nú gaman að fara eitthvað.
Garðurinn ykkar, pabbi.
Stoltið þitt og mömmu. Þú eydd-
ir ófáum stundum í garðinum.
Hann var líka fallegur. Þið unn-
uð ykkur ekki hvíldar þar á
sumrin. Þegar gesti bar að garði
sá maður hvað þér fannst gaman
að sýna garðinn ykkar.
Garðurinn hefur verið ykkur
erfiður síðustu árin, en engu að
síður hefur ykkur tekist að
halda honum þannig að eftir
hefur verið tekið.
Elsku pabbi. Nú ertu lagður
af stað í allra síðustu ferðina
þína. Vonandi er jafn fallegt á
nýjum áfangastað og alltaf hef-
ur verið í garðinum ykkar
mömmu.
Þinn sonur,
Sveinn.
Kær vinur, Ásgeir Lárusson,
er látinn og ég minnist ljúfrar
vináttu sem aldrei bar skugga á.
Kynni okkar Ásgeirs hófust fyr-
ir tveimur áratugum þegar ég
fór tímabundið til starfa á Norð-
firði. Ég hafði þá hvorki búið né
starfað á landsbyggðinni áður
og var því ekki laust við að ég
hefði áhyggjur af því hvernig til
tækist. Ásgeir, sem ég hafði þá
einungis hitt stuttlega einu
sinni, tók mig hins vegar strax í
byrjun undir sinn verndarvæng
og umhyggja hans í minn garð
kom strax fram í upphafi kynna
okkar. Ég fór akandi frá
Reykjavík og austur til Norð-
fjarðar. Ég hafði þá aldrei ekið
svo langa leið áður í einum
áfanga en ferðin tók nærri ellefu
klukkustundir. Alla leiðina
fylgdist Ásgeir með ferðum
mínum. Hann hringdi á nokk-
urra klukkustunda fresti bæði
til þess að inna mig eftir því
hvernig ferðin gengi og hvetja
mig áfram. Þegar ég loks kom
til Neskaupstaðar beið mín svo
veisluborð á fallegu heimili hans
og Unnar Bjarnadóttur, hinnar
góðu eiginkonu hans. Og Ásgeir
sleppti ekki af mér hendinni
fyrr en ég var komin í náttstað
seint um kvöldið. Þessari um-
hyggju hans í minn garð við
upphaf kynna okkar gleymi ég
aldrei og naut ég hennar æ síðan
bæði í leik og starfi.
Þegar ég kom til starfa á
Norðfirði hafði Ásgeir starfað á
skrifstofu bæjarfógeta og síðar
sýslumanns í áratugi og þekkti
því til hlítar alla starfsemi skrif-
stofunnar. Honum hefði því ver-
ið í lófa lagið að láta að sér
kveða í samskiptum við nýliðann
frá Reykjavík. En sú varð svo
sannarlega ekki raunin. Hann
lagði sig allan fram við að að-
stoða mig og leiðbeina mér og
stóð síðan sem klettur við hlið
mér þegar á þurfti að halda.
Hann var einstaklega góður
samstarfsmaður. En hann hafði
marga aðra góða eiginleika til að
bera. Hann var mikill fagurkeri
og gleðimaður í bestu merkingu
þess orðs. Hann var ávallt
reiðubúinn til að taka þátt í
hverju því sem lífgað gat upp á
lífið og tilveruna, bæði í dagsins
önn og við hátíðlegri tækifæri.
Ég á því fjölmargar minningar
um skemmtilegar samveru-
stundir með honum og Unni, þar
sem hann fór oft á kostum.
Það var með trega sem ég
kvaddi Norðfjörð. Eftir að veru
minni þar lauk varð vík á milli
vina en við Ásgeir og Unnur
héldum sambandi og hittumst
þegar tækifæri gáfust og alltaf
var jafn yndislegt að hitta þau.
Mér er minnisstæð heimsókn
mín til Norðfjarðar að sumar-
lagi fyrir nokkrum árum í ein-
staklega hlýju og fallegu veðri.
Enn og aftur naut ég samveru
og góðs viðurgernings á heimili
þeirra hjóna. Síðla kvölds stóð-
um við Ásgeir við gluggann í fal-
legu stofunni þeirra Unnar og
horfðum yfir byggðina og fjörð-
inn. Það var algjört logn og
dökkblátt fjallið með grænni
gróðurslikju speglaðist í kyrr-
um haffletinum. Fegurðin í firð-
inum var töfrum líkust og vor-
um við Ásgeir sammála um að
meiri fegurð væri varla hægt að
finna. Með þessari minningu um
vináttu og fegurð kveð ég minn
góða vin og þakka honum sam-
fylgdina. Veri hann kært kvadd-
ur.
Innilegar samúðarkveðjur
sendi ég Unni og fjölskyldunni
allri.
Áslaug Þórarinsdóttir.
Þó að árin séu orðin nokkuð
mörg eru þau samt einhvern
veginn aðeins augnablik í minn-
ingunni. Við sitjum í eldhúsinu á
Sjávarborg, ég smár polli og
þeir Lárusarbræður sem koma
saman næstum hvern laugar-
dagsmorgun heima hjá afa og
ömmu. Umræðuefnið er pólitík,
menn og málefni. Ásgeir er
hrókur alls fagnaðar, glettinn,
stríðinn og gamansamur. Radd-
sterkur og fylginn sér og liggur
ekki á skoðunum sínum. Oft var
tekist hressilega á, en aldrei
þannig að einhver sæti sár eftir.
Þegar kemur að pólitík hafði
hann vissulega ákveðna sér-
stöðu í Neskaupstað á þessum
tíma. Yfirlýstur sjálfstæðismað-
ur og stoltur af því alla tíð.
Ásgeir var um margt fyrir-
mynd ungra manna. Auðvitað
var hann breyskur eins og við öll
og lífið fór ekki alltaf mildum
höndum um hann. Hann ólst
upp í stórum systkinahópi, ní-
undi í röð 12 systkina. Lífsvið-
horf hans réðust og mótuðust að
mestu í uppvextinum. Þau ein-
kenndust af ráðdeild, trú-
mennsku og virðingu fyrir vinnu
og verðmætum. Sem ungur
maður stundaði Ásgeir sjóinn.
Eftir að í land var komið var
hann framkvæmdastjóri PaN
(Pöntunarfélags alþýðu í Nes-
kaupstað). Árið 1959 varð hann
fulltrúi hjá bæjarfógetanum í
Neskaupstað og starfaði þar
næstum í fjörutíu ár samfleytt.
Ósjaldan var hann settur bæj-
arfógeti í fjarveru skipaðs bæj-
arfógeta. Það er líklega einstakt
að ólöglærður maður gegni slíku
embætti. Það lýsir best því
mikla trausti sem yfirvöld báru
til Ásgeirs.
Áföll sem riðu yfir fjölskyldu
hans láta engan ósnortinn. En
þrátt fyrir þau hélt hann reisn
sinni, sínum góða húmor og
þeim mikla lífskrafti sem ætíð
einkenndi nærveru hans. Áhugi
hans á landsmálum, vakandi
umhyggja fyrir byggðinni sem
fóstraði hann og fjölskyldu
hans, framlag hans til leiklistar,
tónlistar og félagslífs í Nes-
kaupstað er vitnisburður um
mannkosti hans. Svo ekki sé tal-
að um metnað hans fyrir við-
haldi og allri aðkomu að heimili
hans og Unnar, hinni reisulegu
Tungu. Húsið er umlukið trjá-
gróðri og blómum sem þau hjón
hafa í sameiningu ræktað og
annast af mikilli natni. Ég sé
Ásgeir fyrir mér þar sem hann
stendur beinn í baki, virðulegur
og vel til hafður á tröppunum
heima. Gleðst yfir og fagnar
gestakomu. Síðar óskar hann
okkur góðrar ferðar og biður um
að farið sé varlega. Heilsar og
kveður með glettni í augum,
hlýju brosi og föstu handabandi.
Þess verður saknað. En „enginn
stöðvar tímans þunga nið“.
Fjölskyldan í Tungu er órjúf-
anlegur hluti af uppvaxtarárun-
um mínum í Neskaupstað og
seinna fullorðinsárum. Ég, Jó-
hanna og fjölskylda okkar verð-
um ævinlega þakklát fyrir það.
Ásgeir var einn af þessum föru-
nautum í lífinu sem fæstir fá að
vera samferða, en flestir óska
sér. Takk fyrir allar stundirnar,
frændi.
Hermann Ottósson.
Víða til þess vott ég fann,
þótt venjist oftar hinu,
að guð á margan gimstein þann,
sem glóir í mannsorpinu.
(Bólu-Hjálmar)
Mér kom þetta vísukorn í hug
þegar ég heyrði af andláti Ás-
geirs vinar míns. Hann Geiri
kom úr stórum systkinahópi
sem lengi setti svip sinn á mann-
lífið á Norðfirði. Þessi systkini
voru öll söng- og tónelsk og ein-
mitt á þeim nótum lágu leiðir
Geira og Lalla, eiginmanns
míns, saman. Þeir áttu margar
góðar stundir saman með hljóð-
færin sín, harmonikku og man-
dólín. Þeir félagar fóru víða um
og skemmtu fólki og voru alls
staðar aufúsugestir og gleði-
gjafar þar sem þeir komu fram.
Vinátta þeirra var sönn og ein-
læg og mátu þeir hvor annan
mikils. Geiri var líka vinur allrar
fjölskyldunnar okkar. Hann var
kærkominn gestur á heimili
okkar á Skorrastað. Hann kom
alltaf á þriðjudagsmorgnum, þá
æfðu þeir vinirnir lagalistann
sinn og síðan áttum við öll spjall
yfir kaffibolla. Þetta voru góðar
stundir, sem gott er að minnast.
Ég get ekki látið hjá líða að
minnast þess að þegar sjúkdóm-
ur Lalla míns hafði leikið hann
grátt hvað hann Geiri sýndi hon-
um mikla alúð og virðingu.
Ég og fjölskylda mín biðjum
góðan Guð að blessa minningu
góðs vinar.
Unni og fjölskyldu sendum
við okkar innilegustu samúðar-
kveðjur.
Jóhanna Ármann.
Ásgeir Lárusson
Foreldar mínir
Halla og Guðjón
voru meðal frum-
byggja á Flötunum í
Garðahreppi.
Í þá daga var lítið um að vera
og hittumst við unglingarnir í
sjoppunni. Fljótlega kynntist ég
tvíburunum Bödda og Guðna sem
bjuggu í Ásgarði 5.
Ég var alltaf velkomin til for-
Ólafía Jónsdóttir
✝ Ólafía Jóns-dóttir fæddist
22. júní 1925. Hún
lést 15. desember
2017.
Útför Ólafíu fór
fram 28. desember
2017.
eldra þeirra, Ólu og
Bjössa. Stundum
fórum við í Vík í
Mýrdal þar sem Óla
var fædd og uppalin.
Hjá þeim heyrði
ég fyrst í Jim Ree-
ves sem þótti ekki
beint inni en í dag á
ég á alla CD og
DVD með honum.
Seinna hittumst við
konan mín heitin
Anna hjá Guðna í New Bedford,
útgerðabæ þar sem Guðni bjó og
starfaði, þegar ég var að flytja
inn bíla. Takk Óla mín og inni-
legar samúðarkveðjur til ætt-
ingja og vina.
Heimir Guðjónsson.
Yndislega móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
ÁGÚSTÍNA BERG ÞORSTEINSDÓTTIR,
Gússý,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
lést 30. desember á hjúkrunarheimilinu
Sólvangi. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði
mánudaginn 15. janúar klukkan 15.
Heiðdís Sigursteinsdóttir Vilhjálmur Þórðarson
Hafdís Sigursteinsddóttir Jón Tryggvi Kristjánsson
ömmubörn og langömmubörn
Móðir okkar,
SIGRÍÐUR THEODÓRA
SÆMUNDSDÓTTIR
húsfreyja í Skarði,
Landsveit,
sem lést laugardaginn 6. janúar, verður
jarðsungin frá Skarðskirkju laugardaginn 13. janúar klukkan 14.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Minningarsjóð
Skarðskirkjugarðs (0308-13-700275 kt. 700704-3190).
Fyrir hönd fjölskyldunnar,
Kristinn Guðnason
Helga Fjóla Guðnadóttir
Ástkær móðir okkar, systir, amma og
langamma,
ÞÓRUNN KARVELSDÓTTIR,
fv. íþróttakennari,
Dalbraut 18,
Reykjavík,
lést á hjartadeild Landspítalans 4. janúar.
Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 17. janúar
klukkan 13.
Guðrún Valsdóttir
Hermann Valsson
Ögmundur Karvelsson Lína Björgvinsdóttir
Eggert Karvelsson Snædís Hlöðversdóttir
barnabörn, barnabarnabörn
og aðrir aðstandendur
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi,
JÓHANNES GUNNARSSON,
fyrrverandi formaður
Neytendasamtakanna,
lést á heimili sínu 6. janúar.
Útför hans fer fram frá Hallgrímskirkju
þriðjudaginn 16. janúar klukkan 13.
Sigrún Jóhannesdóttir Einar Benediktsson
Lilja Guðný Jóhannesdóttir Eysteinn Þór Kristinsson
Erla Helga Sveinbjörnsdóttir
Gunnar Jóhannesson Védís Árnadóttir
Elín Eir Jóhannesdóttir Brynjar Örn Áskelsson
og barnabörn
PÁLL THEODÓRSSON
eðlisfræðingur,
Bræðratungu 25,
Kópavogi,
lést á Landspítalanum í Fossvogi
mánudaginn 8. janúar. Útför hans verður
gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 17. janúar klukkan 15.
Svandís Skúladóttir
Flóki Pálsson Sigríður Benný Björnsdóttir
Sigrún Pálsdóttir
Skúli Pálsson
Bera Pálsdóttir Gunnar Gunnarsson Flóvenz
barnabörn og barnabarnabörn
Morgunblaðið birtir minn-
ingargreinar endurgjalds-
laust alla útgáfudaga.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir
birtingu á útfarardegi verður
greinin að hafa borist eigi síðar
en á hádegi tveimur virkum dög-
um fyrr (á föstudegi ef útför er á
mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað get-
ur birting dregist, enda þótt
grein berist áður en skilafrestur
rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem
birtast í Morgunblaðinu séu ekki
lengri en 3.000 slög. Ekki er unnt
að senda lengri grein. Lengri
greinar eru eingöngu birtar á
vefnum.
Minningargreinar