Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 28
28 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
✝ Haraldur Ragn-arsson fæddist
á Landspítalanum í
Reykjavík 18. maí
1962. Hann varð
bráðkvaddur á
heimili sínu 3. jan-
úar 2018.
Foreldrar hans
eru Ragnar Hjálm-
arsson, f. 3. mars
1931, d. 10. janúar
1998, og Bjarney
Gréta Sigurðardóttir, f. 17. októ-
ber 1938.
Bræður Haraldar eru: Sig-
urður Hjálmar, f. 12. september
1960, Höskuldur, f. 20. janúar
1964, Hörður, f. 19. desember
1965, og Ragnar Reyr, f. 10. des-
ember 1972.
Hinn 31. desember 1984
kvæntist Haraldur Kristínu Þóru
Sigurðardóttur, f. 2. júlí 1963.
Embla og Haraldur Bragi. 3) Sig-
urður Ragnar, f. 1987, maki Mar-
grét Eva Einarsdóttir, f. 1988.
Börn þeirra eru Kristín Emelía
og Hlynur Dór. 4) Arnór Gauti, f.
1998, maki Vífill Harðarson, f.
1998. 5) Salóme Kristín, f. 2004.
Haraldur ólst upp í Hafnar-
firði og gekk í skóla þar. Hann
spilaði handbolta og lék yfir 200
leiki með meistaraflokki FH, en
einnig lék hann með unglinga-
landsliðinu og A-landsliði Ís-
lands.
Hann lauk sveinsprófi í húsa-
smíði frá Iðnskólanum í Hafnar-
firði og fékk meistararéttindi ár-
ið 2001.
Haraldur og Kristín hófu sinn
búskap í Lækjarkinn 30 árið
1981 og keyptu þau sína fyrstu
íbúð í Fögrukinn 17 árið 1984.
Haraldur byggði hús í Reyni-
bergi 5 sem þau fluttu í árið 1989
og bjuggu þau þar í 13 ár þar til
þau fluttu í Gauksás 49, en það
hús byggði hann einnig.
Haraldur verður jarðsunginn
frá Víðistaðakirkju í Hafnarfirði
í dag, 12. janúar 2018, og hefst
athöfnin klukkan 13.
Foreldrar hennar
voru Sigurður Art-
húr Gestsson, f. 19.
maí 1932, d. 10.
mars 2013, og Dóra
Magga Arin-
bjarnardóttir, f. 29.
ágúst 1940, d. 9.
júní 2011. Haraldur
og Kristín Þóra
eignuðust fimm
börn: 1) Árni Mar, f.
1979, maki Ágústa
Sigurlaug Guðjónsdóttir, f. 1976.
Synir Árna Mars og Rebekku
Guðleifsdóttur eru Bjarki Freyr
og Haukur Smári. Synir Árna
Mars og Ragnheiðar Arngríms-
dóttur eru Kristinn Logi og Alex-
ander Hrafn. Dætur Ágústu Sig-
urlaugar eru Emma Ósk og
Sunna Karen. 2) Ívar Örn, f.
1985, maki Lára Björk Braga-
dóttir, f. 1988. Börn þeirra eru
Elsku hjartans ástin mín.
Hvað á ég …? Hvernig á ég að
lifa án þín? Hjartað mitt er al-
gjörlega brostið. Við erum búin
að vera saman síðan við vorum 13
og 14 ára gömul og ætluðum að
verða gömul saman.
Mér þykir svo vænt um síðasta
kvöldið okkar saman. Við höfðum
það kósí og horfðum á þátt um
fólk sem var búið að vera gift í 50-
60 ár, eins og við ætluðum líka að
gera.
Svo áður en við fórum að sofa
vorum við að segja hvort öðru
hvað það var sem við heilluðumst
af í fari hvort annars þegar við
byrjuðum saman.
Svo vöknuðum við bæði um
sexleytið til að fara á salernið og
knúsuðum og föðmuðum hvort
annað og ætluðum að taka kort-
ers lúr eins og við grínuðumst oft
með, en þú ert ennþá að lúra.
Við erum búin að eiga svo fal-
legt líf saman. Eignuðumst
fyrsta barnið okkar 15 og 16 ára
og við höfum alltaf staðið á eigin
fótum síðan við byrjuðum að búa
17 og 18 ára gömul.
Misstum einu sinni leiguhús-
næði og vorum í viku hjá foreldr-
um okkar. Þá hést þú því að þetta
kæmi aldrei aftur fyrir fjölskyld-
una þína og það stóðst.
Þú byggðir okkur tvö falleg
hús, Reyniberg og Gauksásinn
sem við búum í núna. Fimm
yndisleg börn, yndisleg tengda-
börn og átta falleg barnabörn
sem voru svo mikil afabörn. Ef ég
ætti ekki allt fólkið okkar hérna
hjá mér myndi ég lúra með þér.
Mig dreymdi draum. Ég var
erlendis með einhverju af fólkinu
okkar og ég villtist og rataði ekki
heim, en ég reyndi og ég vissi af
símanum í vasanum, sem veitti
mér öryggi. Ég ætla að reyna að
rata heim án þín, barnanna okkar
vegna en það verður erfitt.
Ég sakna þín svo mikið og
faðmsins þíns.
Þú varst besti eiginmaður, fað-
ir, tengdafaðir, afi, bróðir, sonur
og vinur í heimi.
Sumir hverfa fljótt úr heimi hér
skrítið stundum hvernig lífið er,
eftir sitja margar minningar.
Þakklæti og trú.
Þegar eitthvað virðist þjaka mig
þarf ég bara að sitja og hugsa um þig,
þá er eins og losni úr læðingi
lausnir öllu við.
Þó ég fái ekki að snerta þig
veit ég samt að þú ert hér,
og ég veit að þú munt elska mig
geyma mig og gæta hjá þér.
Og þó ég fengi ekki að þekkja þig
þú virðist alltaf getað huggað mig
það er eins og þú sért hér hjá mér
og leiðir mig um veg.
Og þegar tíminn minn á jörðu hér,
liðinn er þá er ég burtu fer,
þá ég veit að þú munt vísa veg
og taka á móti mér.
(Ingibjörg Gunnarsdóttir)
Þar til við sjáumst næst, ástin mín.
Þín
Kristín.
Mér er orða vant, elsku Halli.
Þú varst tekinn frá okkur allt-
of snemma. Sárin eru djúp og
munu taka langan tíma að gróa.
Ég er svo þakklát fyrir að hafa
fengið að kynnast þér og þinni
fjölskyldu. Samheldin, einlæg,
húmoristar og gleðigjafar eruð
þið, öll sem eitt.
Það er bara svo hrikalega sárt
að hafa ekki fengið lengri tíma
með þér.
Þú varst í miklu uppáhaldi hjá
Emblu sem finnst fátt betra en
að fá risastór afaknús og fá að
kúra í afaholu þegar hún gisti í
ömmu- og afahúsi. Það var ein-
staklega gaman að fylgjast með
ykkur saman. Teboðin þar sem
hún tróð þér inn í pínulítinn kof-
ann, ótalmörgu pottaferðirnar
ykkar þar sem hún hló yfirleitt
þar til hún varð máttlaus, því þú
leyfðir henni að skvetta enda-
laust á þig og hún var orðin svo
spennt því afi ætlaði að byggja
nýtt hús fyrir hana og sagði hún
frá því með stolti.
Svo er það nafni þinn, hann
Haraldur Bragi, sem horfði ein-
ungis á þig aðdáunaraugum ef þú
varst í herberginu. Það var
greinilega mikil og falleg tenging
á milli ykkar nafnanna.
Sjálf á ég margar fallegar
minningar um þig sem ég ætla að
geyma á góðum stað.
Elsku Halli minn, ég vona að
þér líði vel. Takk fyrir allar góðu
stundirnar, hlýjuna, þolinmæðina
og knúsin, þau voru svo innileg
og góð.
Ég mun gera mitt besta í að
hugsa um allt fólkið okkar og ég
hlakka til að segja krökkunum
sögur af afa Halla, þær eru jú
nokkrar.
Hvíl í friði, þín tengdadóttir
Lára.
Okkur að langar að minnast
þín, elsku mágur, með nokkrum
orðum.
Það er ótrúlegt að hugsa til
þess að þú hafir verið tekinn frá
okkur svona snemma í blóma lífs-
ins og er fráfall þitt okkur óbæri-
legt. Ég var 12 ára þegar þið
Kristín systir byrjuðuð saman og
ég man það eins og það hafi gerst
í gær. Þið voruð bæði svo ung og
falleg og allt lífið framundan.
Þegar ég var 16 ára fór ég
vestur að vinna og kynnist þar
Gumma sem var þá búinn að taka
við sveitinni okkar, Svarthamri.
Þangað komu elskulegu strák-
arnir ykkar á sumrin og hjálpuðu
okkur við hin ýmsu sveitastörf og
finnst okkur Gumma við eiga
mikið í þeim. Þið voruð mjög
þakklát fyrir það að strákarnir
hefðu kost á því að upplifa það að
vera í sveit og í þakklætisskyni
vilduð þið bjóða okkur í okkar
fyrstu utanlandsferð saman. Þið
kynntuð okkur fyrir hinum æð-
islegu Kanaríeyjum enda fórum
við í nokkrar slíkar ferðir saman
og var alltaf mjög gaman.
Mér fannst það mjög mikill
heiður þegar þú hringdir í mig og
baðst mig að prjóna fyrir þig
lopapeysur, ekki eina heldur
nokkrar. Svo þegar ég var búin
með þrjár þá hringdir þú og
sagðir að ég mætti stoppa. Síðast
þegar ég sá þig varst þú í lopa-
peysu, ullarsokkum og náttbux-
um og er óhætt að segja að það
hafi verið þitt uppáhald og sagði
ég við þig að þú værir eins og
ekta bóndi.
Þið voruð alltaf dugleg að
koma vestur og hjálpa til og þeg-
ar okkur datt í hug að byggja við
húsið þá varst þú, Halli okkar,
alltaf fyrstur á vettvang. Þú
fékkst vini þína og fjölskyldu með
þér í lið og voru verkfundirnir,
sem ævinlega voru haldnir um
fimmleytið í hjólhýsinu ykkar
Kristínar, sérstaklega eftir-
minnilegir og skemmtilegir.
Síðasta ferðin ykkar vestur var
síðastliðið haust til að hjálpa okk-
ur að smala og viljum við þakka
þér fyrir allt það sem þú hefur
gert fyrir okkur, elsku mágur.
Þú varst alltaf stoltur af fjöl-
skyldunni þinni, fallegu konunni
þinni, börnunum og barnabörn-
unum ykkar.
Elsku Kristín systir, Árni
Mar, Ívar Örn, Sigurður Ragnar,
Arnór Gauti, Salóme Kristín og
fjölskyldur, okkar innilegustu
samúðarkveðjur til ykkar. Minn-
ingin um góðan dreng lifir með
okkur.
Salbjörg og Guðmundur.
Elsku Halli, við trúum því ekki
ennþá að þú sért farinn frá okkur
öllum. Í huga okkar ert þú svo
mikill fjölskyldufaðir, afi og vinur
vina þinna. Það eru komin 30 ár
síðan ég kom fyrst heim til ykkar
í Fögrukinn og kynntist þér og
Kristínu. Við Linda nutum þess
að vera hjá ykkur öll árin, kynn-
ast öllum börnunum og barna-
börnunum og sjá þau dafna. Þið
eruð ótrúlega rík af þessum fjöl-
skyldumeðlimum og getið verið
stolt. Á svona stundu rifjast upp
allar gleðistundirnar á ferðalög-
um hér heima og erlendis, grill og
gisting í bústaðnum, veiðiferðir
og svo ekki sé talað um gamlárs-
kvöldin ófáu. Prakkari og gleði-
pinni kemur ofarlega í hugann
þegar við hugsum til baka, allar
sögurnar og brandarar á færi-
bandi. Þú og ég tókum það að
okkur að fara með stelpurnar
okkar á sunnudögum í messu þar
sem þær eru að undirbúa sig fyr-
ir fermingu í vor. Það kom þá
strax uppástunga hjá þér að skil-
greina okkur sem fermingar-
bræður. Traustari vin er vart
hægt að hugsa sér enda áttum við
margt sameiginlegt og gátum
hlegið mikið saman.
Yndislegur svili og mágur, við
kveðjum þig með miklum sökn-
uði, takk fyrir að fá að kynnast
þér, elsku Halli okkar. Guð blessi
Kristínu og öll börnin.
Kveðja,
Páll Aðalsteinsson,
Linda Sigurðardóttir.
Lífið er hverfult, svo ótrúlega
stutt á milli gleði og sorgar. Halli,
hinn helmingurinn af elskulegu
Kristínu vinkonu minni, er dáinn
langt fyrir aldur fram. Halli sem
var svo duglegur og vinnusamur
og setti ávallt velferð fjölskyldu
sinnar í fyrsta sæti, Halli sem var
svo hress og skemmtilegur og
Halli sem elskaði að segja gam-
ansögur og brandara, Halli sem
var alltaf til í allt.
Ótal minningar fara um huga
minn, öll ferðalög okkar fjöl-
skyldnanna um landið, ferðin að
Ljósavatni þar sem hitinn fór í 30
stig og allir skaðbrenndir á heim-
leiðinni. Öll matarboðin í Reyni-
berginu, þar sem „Hallagæsir“
voru á boðstólum sem hann var
svo stoltur af að hafa skotið, ófá-
ar sumarbústaðaferðirnar okkar
saman, þar sem það var spilað,
borðað og sprellað fram á nótt og
allir í stuði og sérstaklega þú með
þinn smitandi hlátur.
Elsku Kristín mín, Salóme,
Gauti, Siggi Raggi, Ívar, Árni og
fjölskyldur ykkar. Megi sorgin
mildast og sólin koma upp að
nýju.
Ég kveð þig með fallega laginu
hans Bubba Morthens, Kveðja:
Þar sem englarnir syngja sefur þú
sefur í djúpinu væra.
Við hin sem lifum, lifum í trú
að ljósið bjarta skæra
veki þig með sól að morgni.
Drottinn minn faðir lífsins ljós
lát náð þína skína svo blíða.
Minn styrkur þú ert mín lífsins rós
tak burt minn myrka kvíða.
Þú vekur hann með sól að morgni.
Faðir minn láttu lífsins sól
lýsa upp sorgmætt hjarta.
Hjá þér ég finn frið og skjól.
Láttu svo ljósið þitt bjarta
vekja hann með sól að morgni.
Drottinn minn réttu sorgmæddri sál
svala líknarhönd
og slökk þú hjartans harmabál
slít sundur dauðans bönd.
Svo vaknar hann með sól að morgni.
Farðu í friði vinur minn kær
faðirinn mun þig geyma.
Um aldur og ævi þú verður mér nær
aldrei ég skal þér gleyma.
Svo vöknum við með sól að morgni.
(Bubbi Morthens)
Birna.
Fallinn er frá kær vinur og fé-
lagi til 40 ára.
Við Halli hittumst fyrst á
handboltaæfingu 14 ára gamlir
og höfum verið bestu vinir síðan.
Fyrstu ár þessarar vináttu var
lífið handbolti og jafnan haldnir
langir símafundir eftir hverja æf-
ingu. Nokkrum árum síðar kom
svo í ljós að lífið er ekki bara
handbolti. Greiningarfundir um
handbolta breyttust í greiningu á
lífinu sjálfu, tilgangi þess og hvað
það væri sem skipti máli.
Halli fæddist með hæfileika til
að spila handbolta og þurfti ekki
að æfa mikið til að verða einn
okkar allra besti markmaður til
margra ára.
Hann mætti stundum beint úr
steypuvinnu í leik, en smíðar
voru hans ævistarf og þar naut
hann sín vel. Ég var „handlang-
ari“ hjá Halla þegar hann byggði
fyrir mig núverandi heimili fjöl-
skyldu minnar. Ég verð að við-
urkenna að sjálfum fannst mér
þetta erfitt starf á dimmum vetr-
arkvöldum þegar við vorum að
vinna úti í kuldanum, en þarna
var Halli í essinu sínu og hrein
unun að fá að upplifa þann dugn-
að, ósérhlífni og fagmennsku sem
smiðurinn, vinur minn, hafði til
að bera. Það átti vel við hann að
vera úti við, hvort sem var við
störf eða í leik, einkum þá við
veiðar, í sveitinni eða sumarbú-
staðnum.
Það vafðist ekki fyrir Halla
hvað það er sem gefur lífinu gildi
og fyllingu. Hjá honum var fjöl-
skyldan í öndvegi. Halli var einn
af fimm bræðrum og eignaðist
sjálfur fimm börn. Frumburðinn,
Árna Mar, eignaðist hann 16 ára
og fórum við félagar í strætó upp
á fæðingardeild til að heimsækja
Stínu og Árna Mar nýfæddan.
Síðar bættust fjögur börn í hóp-
inn hjá Halla og Stínu, allt heill-
andi og heilsteyptar persónur
eins og þau eiga kyn til. Stína var
konan í hans lífi, æskuvinkona og
besti vinur.
Þau voru samferða frá ung-
lingsaldri og samstiga í öllu sem
þau gerðu. Ógleymanlegt er
þegar við héldum hrekkjavöku-
veislur þar sem hart var barist
um besta búninginn, Halli og
Stína tóku „Óskarinn“ ár eftir ár.
Enginn sem þar var getur gleymt
Halla í munkakuflinum, rökuðum
á hvirflinum, sem Steinríkur með
eldrautt skeggið eða sem hinum
fagurgræna Shrek – allt búning-
ar og gervi sem Stína útfærði.
Halli og Stína voru einfaldlega lið
sem enginn átti möguleika á að
vinna; þannig var þeirra sam-
vinna, líka í lífinu sjálfu.
Halli hafði áhuga á fólki, var
næmur á blæbrigði mannlegrar
tilveru, kunni að segja skemmti-
lega frá og hló jafnan innilega ef
honum þótti sagan góð. Hann
kunni þá list líka, sem fáum er
gefið, að gera grín að sjálfum sér
ef svo bar undir. Hann var hreinn
og beinn og kom beint að hlut-
unum
Síðustu misseri leyndi sér ekki
hvað Halli var ánægður með lífið
og tilveruna. Hann var búinn að
koma sér vel fyrir á fallegu heim-
ili, fjölskyldan ánægð og umræð-
an okkar á milli frekar á heim-
spekilegum nótum; halda áfram
að njóta lífsins sem er núna,
ferðast, fara í veiði, í bústaðinn
og koma meira inn í golfið. Sviðs-
myndin nánast fullkomin – en allt
í einu án fyrirvara fellur tjaldið.
Elsku Stína og fjölskylda,
Lilja, ég og strákarnir biðjum
Guð um að styrkja ykkur í ykkar
sorg.
Ég þakka þér, vinur, sam-
fylgdina.
Michael.
Vinur okkar og félagi, Harald-
ur Ragnarsson, er fallinn frá
langt fyrir aldur fram.
Halli, eins og við kölluðum
hann, var í hópi okkar FH-inga
sem höfum gengið undir nafninu
„drengirnir hans Geira Hall-
steins“. Geir tók við okkur ung-
um og reynslulitlum handbolta-
strákum og hélt vel utan um
þennan hóp í mörg ár. Daglegar
æfingar, spennandi leikir og
skemmtilegar samverustundir
lifa í minningunni. Þarna skap-
aðist sterk liðsheild og eftir að
keppnisferli lauk sátu eftir traust
vinabönd.
Þegar við hugsum um Halla
kemur orðið dugnaðarforkur
fyrst upp í hugann. Hann stofn-
aði ungur fjölskyldu með Stínu
sinni og var mjög ábyrgur í því
hlutverki. Halli byrjaði snemma
að vinna við húsbyggingar.
Honum leið vel í vinnu og vildi
helst alltaf vera í vinnugallanum
við að byggja hús.
Iðulega kom hann beint úr
vinnu á æfingar og átti eftir að
vinna aðeins eftir að æfingu lauk.
Ef veður gafst til steypuvinnu þá
var lítill tími til æfinga, en það
kom ekki að sök því Geir hafði á
orði að Halli væri hreinlega nátt-
úrutalent og markmaður af Guðs
náð. Fjarvera okkar hinna á æf-
ingum mætti ekki sama skilningi.
Þegar Halli mætti til leiks gaf
hann sig allan í leikinn og eins og
allir þekkja sem fylgdust með
ferlinum þá lokaði hann markinu
oft á tíðum, ekki síst þegar mest
lá við. Halli spilaði á þriðja
hundrað leiki með meistaraflokki
FH, þar af 14 Evrópuleiki. Hann
varð Íslandsmeistari með meist-
araflokki FH árin 1984 og 1985
og árið 1992 varð liðið þrefaldur
meistari, en þá hafði Halli í raun
lagt skóna á hilluna en fékk neyð-
arkall um að koma og verja
markið og var ómetanlegur fyrir
liðið. Þá spilaði Halli einnig með
unglingalandsliðum.
Halli var umfram allt góður fé-
lagi og traustur vinur. Hann var
hógvær, en alltaf skemmtilegur
og hress og hafði þann kost að
koma ávallt til dyranna eins og
hann var klæddur. Á þessum
tímamótum er hugur okkar hjá
Kristínu, börnum þeirra og fjöl-
skyldu. Við sendum þeim hug-
heilar samúðarkveðjur og biðjum
góðan Guð að styrkja þau í sorg-
inni.
Fyrir hönd vina úr FH,
Þorgils Óttar Mathiesen.
Haraldur
Ragnarsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar,
tengdaföður og afa,
BENEDIKTS GUÐMUNDAR
BJÖRNSSONAR
bónda,
Neðri-Torfustöðum.
Heiðrún Brynja Guðmundsdóttir
Bjarney Alda Benediktsd. Pétur Hafsteinn Sigurvaldas.
Bogey Erna Benediktsdóttir Axel Rúnar Guðmundsson
Björn Eyþór Benediktsson Katrín Ósk Guðmannsdóttir
og barnabörn
Okkar ástkæri
EINAR TJÖRVI ELÍASSON
verkfræðingur,
Kópavogstúni 5
Kópavogi,
lést þriðjudaginn 9. janúar á
Landspítalanum í Fossvogi.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju mánudaginn 15. janúar
klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á líknarstofnanir.
Inger Johanne Elíasson
Ingólfur Tjörvi Einarsson Jennifer E. Einarsson
Þórr Tjörvi Einarsson Arna E. Karlsdóttir
Rán J. Einarsdóttir Henry John Robert Henry
Halldór Tjörvi Einarsson Amalía R. Þorgrímsdóttir
barnabörn og langafabörn