Morgunblaðið - 12.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. JANÚAR 2018
Katrín Jakobsdóttir var ráð-herra í vinstri stjórn Stein-
gríms og Jóhönnu. Sem ráðherra í
þeirri ríkisstjórn studdi hún á ann-
að hundrað skatta-
breytingar stjórn-
arinnar án þess að
gera nokkurn tím-
ann um þær ágrein-
ing eða lýsa efa-
semdum.
Þessar skatta-breytingar voru nánast allar
til hækkunar skatta, enda hafa
skattar aldrei í sögu þjóðarinnar
hækkað jafn gegndarlaust og í tíð
fyrrnefndrar vinstri stjórnar.
Síðan hafa skattar lítið lækkaðog sumir hækkað, meðal ann-
ars fjármagnstekjuskatturinn í tíð
núverandi ríkisstjórnar.
Niðurstaðan af skattabreyt-ingum síðustu ár er því veru-
leg hækkun skatta á almenning og
fyrirtæki í landinu.
Þetta skýrir án efa þá afstöðusem Katrín lýsir í viðtali við
Viðskiptamoggann í gær. Þar segir
hún að koma þurfi á meiri festu í
skattamálum því að breytingar hafi
verið of miklar.
Ná þurfi sem mestri sátt umskattabreytingar og „opna
skattaumræðuna meira gagnvart
almenningi og atvinnulífinu“.
Í tíð vinstri stjórnarinnar þurftienga sátt og ekkert samráð um
skattabreytingar; þær voru keyrð-
ar í gegn með offorsi. Nú, þegar at-
vinnulíf og almenningur eru að
sligast undan skattahækkunum
vinstri stjórnarinnar, er ekki hægt
að lækka skatta. En nú þarf að
ræða málin til að sleppa við að gera
nokkuð.
Katrín
Jakobsdóttir
Skattaumræðu,
ekki skattalækkun
STAKSTEINAR
Íslenskir stjórnmálamenn gera of
lítið til að takmarka losun gróður-
húsalofttegunda. Þetta telur meiri-
hluti þeirra sem svöruðu umhverfis-
könnun Gallup sem kynnt var á
ráðstefnu í gær.
60% svarenda sögðust hafa
áhyggjur af þeim afleiðingum sem
loftslagsbreytingar gætu haft á þá
og fjölskyldur þeirra og 63% sögðust
vera þeirrar skoðunar að aukin
áhersla á umhverfis- og náttúru-
vernd mætti ekki bitna á þeim
vatnsaflsvirkjunum sem væru starf-
ræktar í dag.
Nýir orkugjafar nauðsyn
Samkvæmt niðurstöðum könn-
unarinnar voru skiptar skoðanir um
hvort skattleggja ætti jarðefnaelds-
neyti mun meira en endurnýjanlega
orkugjafa.
Rúmlega helmingur svarenda
taldi Ísland fjárfesta of lítið í þróun á
endurnýjanlegum orkugjöfum og
áþekkt hlutfall taldi Ísland gera of
lítið til að aðlagast loftslagsbreyt-
ingum.
Þrír af hverjum fjórum sögðust
þeirrar skoðunar að nauðsynlegt
væri að taka í notkun nýja orkugjafa
ef skapa ætti sjálfbært samfélag hér
á landi og sama hlutfall taldi að í því
skyni þyrfti að rannsaka betur
hvernig hægt væri að aðlagast lofts-
lagsbreytingum.
Áhyggjur
af loftslags-
breytingum
Íslendingar vilja
áherslu á umhverfið
Mengun Skv. könnuninni þyrfti að
taka nýja orkugjafa í notkun.
- áhrif nýrrar löggjafar
Íslenskur heilbrigðisgeiri og persónuvernd
Málþingið er hluti af fundaröð Persónuverndar um hið breytta regluverk og fer fram
í Hringsal Landspítala, við Hringbraut, föstudaginn 12. janúar 2018 kl. 14:00-16:00.
Málþingið er aðallega ætlað starfsmönnum í íslenskri heilbrigðisþjónustu.
Málþinginu verður streymt á vefsíðu Persónuverndar.
Vinsamlegast skráið þátttöku á skraning@personuvernd.is.
Persónuvernd og Landspítali, boða til málþings fyrir íslenskan heilbrigðisgeira um nýja Evrópu-
reglugerð um persónuvernd sem mun taka gildi á þessu ári. Hið nýja regluverk markar tímamót
í sögu persónuverndarlöggjafar í Evrópu. Eftirfarandi er meðal þess sem verður rætt:
• Áhrif nýrrar Evrópulöggjafar um persónuvernd á íslenskan heilbrigðisgeira
• Vinnsla persónuupplýsinga í vísinda- og rannsóknarstarfi á heilbrigðissviði
• Hvernig eiga heilbrigðisstofnanir að vinna eftir nýrri löggjöf?
Föstudaginn 12. janúar 2018 í Hringsal Landspítala, við Hringbraut, kl. 14:00-16:00
Dagskrá:
Áhrif nýrrar persónuverndarlöggjafar á heilbrigðisgeirann
Vigdís Eva Líndal, skrifstofustjóri upplýsingaöryggis hjá Persónuvernd
Söfnun persónuupplýsinga í þágu vísindarannsókna á heilbrigðissviði
Þórður Sveinsson, skrifstofustjóri lögfræðisviðs hjá Persónuvernd
Raunhæf ráð um innleiðingu nýrrar persónuverndarreglugerðar
Hörður Helgi Helgason, lögmaður hjá Landslögum
Fundarstjórn og inngangserindi
Helga Þórisdóttir, forstjóri Persónuverndar
Tilgangur skráningar er að áætla fjölda þátttakenda
Veður víða um heim 11.1., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 4 rigning
Akureyri 3 alskýjað
Nuuk -8 snjóél
Þórshöfn 6 heiðskírt
Ósló -2 skýjað
Kaupmannahöfn 2 alskýjað
Stokkhólmur 0 þoka
Helsinki -3 skýjað
Lúxemborg 7 skýjað
Brussel 6 þoka
Dublin 3 þoka
Glasgow 3 alskýjað
London 6 þoka
París 6 þoka
Amsterdam 6 þoka
Hamborg 3 rigning
Berlín 3 rigning
Vín 4 skýjað
Moskva -4 snjókoma
Algarve 16 léttskýjað
Madríd 8 léttskýjað
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 12 skýjað
Róm 9 rigning
Aþena 13 rigning
Winnipeg -24 skýjað
Montreal 1 þoka
New York 6 alskýjað
Chicago 13 rigning
Orlando 22 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 11:02 16:12
ÍSAFJÖRÐUR 11:36 15:47
SIGLUFJÖRÐUR 11:20 15:29
DJÚPIVOGUR 10:38 15:34