Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 20.01.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. JANÚAR 2018 Ljósavélar varðskipsins Óðins, þrjár talsins, voru ræstar í fyrra- dag og gekk það að mestu vand- ræðalaust. Ein þeirra hafði ekki verið gangsett í að minnsta kosti tólf ár og fór hún ekki í gang fyrr en eftir nokkrar tilraunir og þá með hiksti og hóstum. Þrír eldri vélstjórar höfðu dyttað að vélunum fyrir gangsetninguna í sjálfboða- vinnu og á lokasprettinum nutu þeir aðstoðar Caterpillar-sér- fræðinga frá umboðsfyrirtækinu Kletti, sem lagði fram krafta þeirra án kostnaðar fyrir Hollvini Óðins. Að verkinu loknu nutu þeir há- degisverðar í matsal skipsins, sem liggur neðan við Sjóminjasafnið á Grandagarði. Stefnt er að því að Óðinn verði tekinn í slipp síðar á árinu, en Hollvinasamtök Óðins eiga skipið. Óðinn kom til landsins 27. janúar 1960, en hann var smíð- aður í Danmörku 1959. aij@mbl.is Morgunblaðið/Árni Sæberg Fór í gang með hiksti og hóstum Ljósavélar varðskipsins Óðins gangsettar á nýjan leik Í vélarrúminu Vel gekk að ræsa ljósavélarnar enda vanir menn að verki. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingimundur Jónsson, Leifur Ólafsson, Búi Steinn Jóhannsson og Jón Kr. Friðgeirsson, bryti, í fremri röð: Ingólfur Kristmunds- son, Halldór Friðrik Olesen, Birgir Vigfússon og Guðmundur Hallvarðsson, formaður Hollvina Óðins. Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Stefnt er að því að Breiðafjarðarferjan Baldur sigli samkvæmt áætlun á mánudag eftir tveggja mánaða frátafir vegna alvarlegra bilana í aðalvél. Gunnlaugur Grettisson, framkvæmdastjóri Sæ- ferða, segist fagna því að þessi erfiði tími fyrir fyrirtækið og viðskiptavini þess virðist vera að baki. Hann segir að kostnaður vegna viðgerða nemi tugum milljóna króna. Í dag á að ræsa aðalvél Baldurs, á morgun á að ljúka stillingum á vélinni og fara í reynslusiglingu um Breiðafjörðinn. Skipið hefur legið í Stykkis- hólmi síðan bilun kom í ljós í aðalvél að lokinni ferð sunnudaginn 19. nóvember. Meðal annars gáfu legur sig í vélinni og við frekari athugun kom í ljós að sveifarásinn var ónýtur, en nýr sveifarás fékkst í Danmörku þangað sem flogið hafði verið með þann gamla til viðgerðar. Að sögn Gunnlaugs hefur allsherjar vélarupp- tekt farið fram í Baldri, en tíminn jafnframt verið notaður til að mála, dúkleggja og skipta um hrein- lætistæki á salernum skipsins. Særún fór í 20 ferðir Í fjarveru Baldurs hefur farþegabáturinn Sæ- rún farið 20 ferðir til Flateyjar og í sjö þeirra alla leið upp á Brjánslæk. Bilun varð í Særúnu og var farþegabáturinn Íris SH leigður í eina ferð. Ef allt hefði verið með felldu hefði Baldur siglt sex daga í viku þessa tvo mánuði. Á þessum árstíma er minna en ella um flutninga á fólki og bílum með Baldri, en fiskútflytjendur reiða sig á siglingar skipsins þegar heiðar og háls- ar lokast. Gunnlaugur segir að sem betur fer hafi ekki oft verið ófært þennan tíma, en þó hafi komið dagar þar sem hafi verið krosslokað með tilheyr- andi erfiðleikum. Baldur á ný um Breiðafjörð  Siglt eftir áætlun á mánudag  Kostnaður vegna viðgerðar skiptir tugum milljóna Morgunblaðið/Ómar Baldur Viðgerð á skipinu tók tvo mánuði. Umhverfisstofnun telur að vegna umfangs fyrirhugaðrar skógræktar á Hafnarsandi við Þorlákshöfn sé þörf á að framkvæmdin fari í mat á umhverfisáhrifum. Á sandinum hyggjast sveitarfélagið Ölfus, Land- græðslan og Skógræktin standa fyr- ir skógrækt, svokölluðum Þorláks- skógi, og er landsvæðið í eigu sveitarfélagsins og Landgræðsl- unnar. Skipulagsstofnun sendi erindi fyrrgreindra aðila til umsagnar Um- hverfisstofnunar. Í svari stofnunar- innar kemur fram að skipulags- svæðið sé norðan byggðar ofan við Suðurstrandarveg og að mestu skil- greint sem óbyggt svæði í aðalskipu- lagi. Í heild sé svæðið, sem fyrir- hugað er að leggja undir verkefnið, 4.620 hektarar að stærð. Gætt verði að mark- miðum um verndun Að mati Umhverfisstofnunar er ekki talið að framkvæmdir muni raska svæði á náttúruminjaskrá eða svæði sem fellur undir 61. grein náttúruverndarlaga. Hins vegar segi í lögum um mat á umhverfisáhrifum að nýræktun skóga á 200 hektara svæði eða stærra skuli vera háð mati á umhverfisáhrifum. Stofnunin telur ákjósanlegt að græða þann hluta svæðisins þar sem mest hreyfing er á sandinum, vestari hlutann. Mikilvægt sé að gæta að verndarmarkmiðum um landslag í lögum um náttúruvernd og er bent á ákvæði um sérstaka vernd þar sem um er að ræða nútímahraun í og við yfirborð, einkum á eystri hluta svæðisins. Í umsögninni segir að við fram- kvæmdir beri að forðast allt rask á Árnahelli norðan Hlíðarendavegar, en hraunhellirinn er friðlýstur sem náttúruvætti. Að lokum segir í um- sögninni að Umhverfisstofnun telji að fjalla eigi um það hvort ógrónir sandar hafi gildi sem hluti landslags í stað þess að líta einungis á sanda sem svæði sem bíði þess að verða grædd upp. aij@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Uppgræðsla Svartir sandar geta orðið að grænum skógum. Skógur við Þorlákshöfn fari í umhverfismat  Alls á 4.620 hekturum lands Fimm heiðagæsir fengu senditæki á Vesturöræfum í júlí 2017 og komust allar til vetrarstöðvanna á Bret- landseyjum sl. haust. Allt voru þetta kvenfuglar sem fengu nöfnin Krist- ín, Rán, Áslaug, Guðrún og Erlín/ Elín, að því er segir á vef Náttúru- stofu Austurlands. Ekki var vitað annað en að gæs- irnar yndu hag sínum vel í Skotlandi þar til nú í ársbyrjun að þær fréttir bárust að gæsin Áslaug væri öll, en hún varð fyrir því óláni að fljúga á raflínu í Skotlandi. Senditækið slapp við skemmdir og verður notað á aðra gæs á Vesturöræfum sumarið 2018. Hægt að fylgjast með ferðum gæsanna Það var í lok júlí sl. sem náttúru- stofan í samvinnu við Verkís og WWT (Wildfowl and Wet-land Trust) setti GPS-senditæki á fimm heiðagæsir í sárum á Vesturöræfum. Megintilgangurinn var að skrásetja ferðir og landnýtingu gæsanna með nákvæmari hætti en áður hefur ver- ið gert. Hægt er að fylgjast með ferðum gæsanna á heimasíðu Náttúrustofu Austurlands, na.is aij@mbl.is Ljósmynd/Náttúrustofa Austurlands Á Vesturöræfum Frá merkingu gæsanna síðasta sumar. Heiðagæsir senda merki frá Skotlandi  Áslaug flaug á raflínu og drapst

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.