Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Blaðsíða 2
Um helgina fer fram nýstárleg afl- raunakeppni. Hvers konar keppni er þetta? Wow stronger heitir hún og er skemmtileg liðakeppni en um leið „show“ þar sem við blöndum sam- an crossfit við svokallaða strong- man-keppni. Þetta passar svo vel fyrir Ísland, við erum þekkt fyrir keppnir á borð við strongman og auðvitað mjög þekkt fyrir crossfit. Þetta er fullkomin blanda og verður svaka sýning. Eru fyrirmyndir að svona keppn- um annars staðar í veröldinni? Já, þú gætir í raun sagt að þetta væri svipað og crossfit, en samt er ekki verið að prófa allt saman því við erum líka með strongman-æfingar. Við erum að fara að draga bíla og leika okkur með þyngri hluti. Ég er ekki vön að draga bíla, það er aðeins fyrir utan minn þægindaramma! Við blöndum þessu öllu saman þannig að þetta er aðeins öðruvísi, ég myndi segja að það væri engin keppni eins og þessi. Er þetta haldið í fyrsta sinn? Nei, í annað sinn, þetta var haldið í fyrra en þá var þetta aðeins minna en það gekk ótrúlega vel og mið- arnir seldust upp um leið. Við ákváðum að taka þetta aðeins lengra í ár, og höldum þetta í Samskipahöllinni, reiðhöllinni í Kórahverfinu. Hvernig gengur þetta fyrir sig? Það eru þrír í hverju liði, tveir strákar og ein stelpa. Við erum með fá lið en þetta verður stöðug „aksjón“. Á laugardag er undankeppni og eitt lið kemst yfir á sunnudag og keppir þá við lið sem við buðum hingað. Við höfum boðið hingað fullt af stórum crossfit- nöfnum, fólki sem er líka þekkt fyrir að vera sterkt. Það verða sex lið sem keppa á sunnudaginn. Við hverju býstu? Ég býst við að þetta verði mjög flott sýning. Ef þú hefur einhvern áhuga á sporti yfirhöfuð muntu hafa áhuga á að horfa á þetta. Það verður eitthvað nýtt þarna sem ekki hefur sést áður, ég ætla ekki að segja hvað! ANNIE MIST ÞÓRISDÓTTIR SITUR FYRIR SVÖRUM Í FÓKUS 2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018 Ritstjórn Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Í janúarbyrjun leiða margir hugann að mataræði. Maturinn er stór hluti aflífi okkar og því ekki skrýtið að við tímamót, eins og áramót eru, viljum viðskoða hegðun okkar í tengslum við mat uppá nýtt og jafnvel gera breyt- ingar eða bæta okkur að einhverju leyti. Hvaða mataræði svo sem fólk velur þá fer það að verða okkur sífellt mikil- vægara að vita hvaðan maturinn sem við látum ofan í okkur kemur. Upp- runinn skiptir máli. Sem neytendur ættum við að láta heyrast hærra í okkur og krefjast þess að vita ná- kæmlega hvað er í matnum sem við borðum og gefum börnunum okkar að borða. Við viljum ekki bara vita sirka hvað hann heitir heldur ná- kvæmlega hvað hann inniheldur og hvaðan innihaldsefnin koma. Það er mikilvægt. Eftir því sem fleiri kjósa að kaupa sér mat gegnum netið verður mikil- vægi þessa enn ljósara. Það er ekki nóg að vita að eitthvað sem ég smelli á í símanum heiti jarðarber eða nautahakk. Ég þarf að vita nákvæmlega hvaðan þessar vörur koma, í hvaða landi þær eiga uppruna sinn, hvenær þeim var pakkað og hvaða aukaefni þær innihalda. Við eigum ekki að þurfa að handleika allar vörur til að vita að þær eru í lagi. Það þurfa að fylgja myndir og afar nákvæmar lýsingar á öllu sem matvaran sem við ætlum að kaupa inniheldur. Í framtíðinni verður þetta vonandi þannig að matvæli verði svona eins og kettir, með örmerkingu sem segir allt sem segja þarf um upprunann. Nema að örmerkingin er ekki flaga sem þarf að skjóta undir húð heldur bara einhvers konar rafrænn kóði sem hægt er að nota til að sækja allar upplýsingar, hvort sem við verslum á netinu eða í verslun sem hægt er að standa í. Ekki ætla ég að fara í tæknilega útfærslu, en það hlýtur að vera þannig að með auknum fram- förum í tækni geti neytendur gert kröfu um auknar upplýsingar. Við eigum að fá að vita allt um það sem við látum ofan í okkur, ekki bara sumt. Það skiptir máli að við vitum hvaðan maturinn kemur. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Maturinn og kettirnir Pistill Eyrún Magnúsdóttir eyrun@mbl.is ’ Það er ekki nóg aðvita að eitthvað semég smelli á í símanumheiti jarðarber eða nauta- hakk. Ég þarf að vita ná- kvæmlega hvaðan þessar vörur koma… Erna Margrét Einarsdóttir Nei. En maður reynir að borða að- eins hollara og minna kjöt. SPURNING DAGSINS Ætlar þú að taka þátt í veganúar? Arnór Ingimar Þorsteinsson Nei, en ég mun prófa það einhvern tímann. Morgunblaðið/Ásdís Helga Kristín Gunnlaugsdóttir Nei. Ég ætla ekki að gera það. Ég held mig við mitt venjulega. Ari Páll Ísberg Nei. Ég ætla ekki að breyta neinu. Ritstjóri Davíð Oddsson Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal Umsjón Eyrún Magnúsdóttir, eyrun@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Útgáfufélag Árvakur hf., Reykjavík. Forsíðumyndina tók Haraldur Jónasson WOW Stronger er crossfit/strongman keppni og er haldin dagana 6.-7. janúar í Samskipahöllinni í Kópavogi. Keppt er í þriggja manna liðum. Von er á mörgum erlendum keppendum. Hægt er að kaupa miða á tix.is. Ekki vön að draga bíla Morgunblaðið/Hari

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.