Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Blaðsíða 40
LESBÓK Svanurinn, frumraun Ásu Helgu Hjörleifsdóttur, hefur vakið athygli.Rýnir Morgunblaðsins segir áhorfendur upplifa „umbrotasumar í lífi ungrar stúlku, þar sem hún lærir … hvað tilveran er skrítin“. Svanurinn í kvikmyndahúsum 40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018 Skúmaskot, nýtt barnaleikrit eftir SölkuGuðmundsdóttur, verður frumsýnt ídag, laugardag, kl. 13 á Litla sviði Borgarleikhússins en verkið skrifaði Salka þegar hún gegndi stöðu leikskálds leikhúss- ins. „Þetta hefur gengið rosalega vel,“ segir Salka um æfingar á verkinu og að hópurinn sem að upp- færslunni kemur sé „einhver sá kátasti í leikhúsinu“. Spurð hvort einhverjar breytingar hafi orðið á verk- inu í æfingaferlinu segir hún að þær hafi ekki verið svo miklar. „Það eru alltaf ein- hverjar styttingar og eitt- hvað sem hópurinn uppgötvar sem maður sjálfur hafði kannski ekki áttað sig á. Þá þarf að bregðast við því og það er það skemmti- lega við svona vinnu, ólíkt því að vera einn heima að skrifa,“ segir Salka. Mikið fyrir gátur – Þú hefur samið nokkur barnaleikrit áður … „Já, ég samdi barnaverk sem heitir Hættu- för í Huliðsdal sem var sett upp fyrir nokkr- um árum og svo samdi ég útvarpsleikrit fyrir krakka sem heitir Ljósberarnir. Ég hef mjög mikinn áhuga á þessu og fannst upplagt að nota minn tíma sem leikskáld Borgarleikhúss- ins í að skrifa barnaverk því það hefur ekki verið nein ofgnótt af þeim á síðustu árum.“ – Seturðu þig í aðrar stellingar þegar þú skrifar verk ætlað börnum? „Nei, maður er auðvitað með annan hóp í huga en verður samt að hafa sama áhugann á að segja söguna og það þarf að vera jafnmikið alvöru, maður getur ekki stytt sér leið eða skautað yfir tilfinningarnar eða dýptina. Mað- ur gefur engan afslátt af þeim en er auðvitað með annan hóp í huga hvað varðar skilning og upplifun.“ – Þarftu ekki að fara aftur í tímann og rifja upp hvernig var að vera barn? „Jú, algjörlega og ég á reyndar mjög auð- velt með það. Ég hef enn gaman af því að leika mér og af mörgu því sama og ég hafði gaman af þegar ég var krakki, einhverju sem er svolítið dularfullt og spennandi, skrítið og skemmtilegt,“ segir Salka kímin. „Ég var mikið fyrir alls konar ráðgátur sem krakki og eitthvað svona dularfullt. Ég á tvær bróður- dætur og þó svo umhverfið og samfélagið hafi breyst finn ég hjá þeim sömu löngun til að heyra og búa til sögur. Að ráða gátur er eitt af því sem mér finnst mjög skemmtilegt, þeg- ar ekki er allt sem sýnist.“ – Hefurðu prófað það sem þú ert að skrifa á frænkum þínum? „Við erum aðallega að búa til sögur saman. Það er gaman að vera ekki í vinnunni þegar maður er með þeim og maður lærir hvað ímyndunaraflið getur verið óheft þegar maður býr til sögur með krökkum.“ Nægilega klikkuð Leikstjóri verksins, Gréta Kristín Ómars- dóttir, leikstýrði verki eftir Sölku, Eftir ljós, í Útvarpsleikhúsinu árið 2016 og segist Salka hafa verið svo ánægð með leikstjórnina að hún hafi óskað sérstaklega eftir að Gréta leik- stýrði Skúmaskotum. „Hún er með mjög sterka listræna sýn og ég ímyndaði mér að hún væri nægilega klikkuð til að takast á við þessa sögu,“ segir Salka um Grétu en leikarar í verkinu eru Vala Kristín Eiríksdóttir, Þór- unn Arna Kristjánsdóttir, Halldór Gylfason og Maríanna Clara Lúthersdóttir. – Sér hún þá einhverja möguleika í svið- setningunni sem þú áttaðir þig ekki á? „Já, klárlega, því maður býr til heim á blaði og svo kemur fólk eins og Gréta leikstjóri og Eva Signý Berger, sem hannar leikmynd og búninga, og býr til heiminn, raungerir hann og þá kemur manni ótrúlega margt á óvart því það sem verður til í kollinum á einni manneskju endurspeglast ekki endilega í koll- inum á annarri.“ Alltaf langhlaup Skúmaskot fjallar um tvær systur, Völu 16 ára og Rúnu 10 ára. „Þær hefja mjög furðu- legan dag á því að vafra inn í búð sem selur lífrænar baunir, hafa verið að veðja og veð- málið fer þannig að Vala á að fara í beljubún- ingi inn í verslun og baula á afgreiðslumann- inn. Þar sinnast þeim systrum og upphefst þá spennandi og furðuleg atburðarás þar sem yngri systirin hleypur í burtu, finnur undar- legan heim sem er neðanjarðar og þar er ekki allt sem sýnist,“ segir Salka frá. Hún segir að ef litið sé til þema verksins sé það annars vegar „ekki er allt sem sýnist“ og hins vegar mannleg samskipti. „Hvernig við leysum úr deilum, hvernig við hlustum hvert á annað og stundum ekki og mikilvægi þess að hlusta,“ útskýrir Salka. Vala og Þórunn fara með hlutverk systr- anna og Maríanna með hlutverk „dularfullrar konu í svörtum leðurfrakka sem kemur svíf- andi niður úr loftinu“, eins og Salka lýsir því og Halldór leikur svo „tvo mjög sérstaka menn“. „Þetta er allt frekar sérstakt fólk sem hegðar sér ekki endilega á mjög rökréttan hátt,“ segir Salka um persónurnar sem spruttu úr höfði hennar. – Hvernig gekk þér að skrifa verkið? „Það gengur alltaf upp og ofan að skrifa leikverk og er alltaf langhlaup, sama hver áhorfendahópurinn er. En maður fær sem betur fer góða hjálp, t.d. frá dramatúrgnum í húsinu og viðbrögð frá leikstjóranum og fleir- um. Þannig að ég skrifaði þetta í rauninni í nokkrum lotum,“ útskýrir Salka. Hún hafi haft gaman af því að skrifa verkið enda per- sónurnar skemmtilegar og gaman að vera með þeim. Gott að stoppa af og til „Jú, það er um lítið annað að velja í þessum bransa,“ svarar Salka þegar hún er spurð hvort hún sé iðulega að vinna að nokkrum verkefnum í einu en auk þess að skrifa verk fyrir leiksvið og útvarp hefur hún þýtt marg- ar skáldsögur og leikrit og verk hennar hafa verið valin á hátíðir í fjölmörgum löndum og unnið til verðlauna. Salka hefur einnig í tví- gang verið tilnefnd til Grímuverðlaunanna og rekur leikhópinn Soðið svið með leikkonunni Aðalbjörgu Árnadóttur. – Finnst þér léttir að geta hvílt þig á einu verkefni með því að snúa þér að öðru? „Já, mér finnst það fínt því maður fer alveg 100% inn í verkefni um tíma og svo er gott að draga sig aðeins út úr því og gera eitthvað annað því þá kemur maður miklu ferskari að verkinu aftur. Það er einmitt þetta með lang- hlaupið; maður stoppar aðeins á milli og svo heldur maður áfram því maður afgreiðir þetta ekkert með einu pennastriki.“ Ekki er allt sem sýnist í barna- leikritinu Skúmaskotum eftir Sölku Guðmundsdóttur. Ljósmynd/Grímur Bjarnason Hef enn gaman af því að leika mér Sölku Guðmundsdóttur þótti upplagt að nota tíma sinn sem leikskáld Borgarleikhússins í að skrifa barnaverkið Skúmaskot. Verkið verður frumsýnt á Litla sviði leikhússins í dag en í því fara áhorfendur í ferðalag um undarlegan neðanjarðarheim. Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is ’Þetta er allt frekar sérstaktfólk sem hegðar sér ekki endi-lega á mjög rökréttan hátt,“ segirSalka um persónur verksins. Salka Guð- mundsdóttir

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.