Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Síða 20

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Síða 20
ið má þó finna á flestum topplistum vestanhafs og er því óhætt að mæla með því, hvað sem per- sónulegum tengslum líður. Markmannshanskarnir hans Alberts Camus Umsjónarmaður: Guðmundur Björn Þor- björnsson Íslenskir miðlar hafa hægt og rólega verið að smokra sér inn í heim hlaðvarpanna en sem stendur ber RÚV þó höfuð og herðar yfir aðra, sérstaklega hvað varðar frásagnardrifin hlað- vörp. Lengi má elska Veru sína Illugadóttur sem varpar ljósi á söguna og svo á Viktoría Hermanns einnig hrós skilið fyrir vandaða þætti um ástandsbörnin. Besta íslenska hlað- varp þessa árs var hinsvegar án efa Mark- mannshanskarnir hans Alberts Camus. Í þáttaröðinni fjallar Guðmundur Björn Þorbjörnsson um íþróttir á heimspekilegu nót- unum, um öflin sem móta íþróttafólk og sýn okkar á það. Sniðmengið milli áhugafólks um heimspeki og áhugafólks um fótbolta er eflaust vildi einfaldlega láta sig hverfa? Hafa aðdáendur hans rétt á að vita hvað býr að baki? Taberski glímir sjálfur við þessar spurningar og fleiri í þættinum sem er vel þess virði að smella í eyrun, hvort sem hlustandinn þekkir til Simmons eða ekki. Ear Hustle Umsjónarmenn: Earlonne Woods, Nigel Poor Hljóðhönnun: Antwan Williams Fangelsis-hlaðvarpið Ear Hustle er einstakt afrek á sviði hlaðvarps- og heimildaþáttagerð- ar en það er framleitt við sérlega erfiðar að- stæður í San Quentin-fangelsinu í Norður- Kaliforníu. Tveir af þáttagerðarmönnunum þremur eru fangar og hafa lítið sem ekkert að- gengi að veraldarvefnum og ráða ekki yfir eig- in tíma. Í ofanálag er fangelsinu reglulega lok- að fyrir utanaðkomandi aðilum, dögum og jafnvel vikum saman, og leggst þá framleiðsla þáttanna niður. Þá má bæta við að hver einasti þáttur sem framleiddur er þarf að hljóta sam- þykki upplýsingafulltrúa fangelsisins. „Ear hustle“ er fangelsisslangur fyrir að hlera og það er það sem þau Poor, Woods og Williams leyfa okkur að gera; á stað sem allir hafa áhuga á en enginn vill vera á. Woods og Williams eru fangar í San Quentin en Poor hef- ur kennt ljósmyndun þar í áraraðir. Þau Woods og Poor eru kynnar þáttarins en auk þess að ræða sín á milli um lífið í fangelsinu taka þau fræðandi og persónuleg viðtöl við samfanga Woods tengd þema hvers þáttar. Farið er í saumana á því hversu flókið það getur verið að finna sambýlismann þegar klef- inn manns rétt rúmar koju, hvernig það er að sitja í einangrun og í hinum óviðjafnanlega þætti „The Boom Boom Room“ er jafnvel fjallað um býflugurnar og blómin. Hljóðhönnun Willi- ams flytur hlustendur beint í húðlitsskiptan fangelsisgarðinn en að auki hefur tónlist sam- fanga hans, sem gjarnan er tekin upp fyrir til- viljun í téðum garði, vakið mikla athygli. Eftir alla þessa gullhamra í garð Ear Hustle þarf eitt að viðurkennast: und- irrituð er ekki með öllu hlutlaus. Þegar ég er ekki að skrifa topplista eða al- mennt að bora í nefið sinni ég sjálfboðavinnu á fréttastofu San Quentin News, en sú er einmitt í sama rými og Ear Hustle er framleitt. Hlaðvarp- H laðvörp, eða „podköst“ eins og slettu- vargar vilja kalla þau, eru hljóð- þættir sem aðgengilegir eru á ver- aldarvefnum eða í hlaðvarpsforritum snjallsímanna. Mikil gróska hefur verið í hlaðvarpsbransanum síðast- liðin misseri og nánast ekkert áhuga- mál eða hugðarefni er svo jaðarkennt að ekki hafi verið gerð hlaðvarps- þáttaröð um það. Þegar úrvalið er eins mikið og raun ber vitni getur verið erfitt að átta sig á hvað er þess virði að ljá því eyra, svona meðan á uppvaskinu eða strætóferð- inni stendur. Þar getur eftirfylgjandi listi yfir bestu nýju hlaðvörp ársins 2017 vonandi hjálp- að til. Missing Richard Simmons Umsjónarmaður: Dan Taberski Líkamsræktarfrömuðurinn Richard Sim- mons var sérlega skrautleg og áberandi per- sóna í dægurmálum Bandaríkjanna. Hann gaf út brjálæðislega hress eróbikk-myndbönd, kastaðist um á sófum spjallþáttastjórnenda, kenndi klikkaða spinning-tíma og veifaði með öllum líkamanum þegar túristarúturnar keyrðu framhjá húsinu hans í Hollywood. En svo einn daginn, 15. febrúar 2014, hvarf hann. Það eru kannski smá ýkjur. Þó brotthvarf hans sé dularfullt virðist ljóst að hann er alla- vega ekki á hafsbotni. Hvarfið er líkara því þegar strákurinn sem þú ert að deita hættir skyndilega að svara skilaboðunum þínum, hættir jafnvel að opna þau. Í slíkum aðstæðum má einfaldlega gefa skít í viðkomandi, sætta sig við að þú munir aldrei sjá eyrnalokkana sem gleymdust á náttborðinu hans aftur, og halda áfram með lífið. En eins og einnar nætur Tinder-vinur frá helvíti er Dan Taberski ekki tilbúinn að sleppa takinu. Þáttaröð Taberski um leitina að Richard Simmons er allt í senn fyndin og tregafull. Hún er einstaklega vel unnin og skrifuð auk þess sem greinilegt er hversu persónu- leg ráðgátan um brotthvarf Simmons er fyrir þáttastjórnandanum. Taberski gekk ansi langt í leit sinni að sannleikanum og vöktu þættirnir tals- verðar umræður um eðli frægðarinnar og réttinn til einkalífs. Hvað ef Simmons MENNING 20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018 AFP Brotthvarf Simmons hefur valdið mörgum hugarangri. Bestu nýju hlaðvörpin Hlaðvörp eru tilvalin afþreying fyrir nútíma fólk á ferðinni enda er hægt að nálgast þau nánast hvar og hvenær sem er og hlusta á þau á meðan heimilisstörfum eða annarri handavinnu er sinnt. En svo má líka alltaf slaka á, hlusta og njóta. Anna Marsibil Clausen anna_clausen@berkeley.edu

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.