Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Síða 26

Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Síða 26
Þegar byrjað er á veganisma í eldhúsinu heima verður þú að áætla rýmri tíma til matargerðar. Fyrir marga getur verið erfitt að elda ein- göngu úr grænmeti og það krefst oft lengri undirbúnings í fyrstu. Ráð fyrir veganista Getty Images/iStockphoto Vegan í janúar Veganismi nýtur vaxandi vinsælda. Fyrir marga er dýravernd aðalástæðan, aðra langar einfaldlega til að líða betur og hafa jákvæð áhrif á jörðina. Margir hafa ákveðið að prófa veganisma í janúar; taka svokallaðan veganúar. Fyrir hina sem ekki ganga svo langt að gerast veganistar um skemmri eða lengri tíma má samt alveg prófa einn og einn veganrétt! Réttirnir eru hollir og stútfullir af næringu; nákvæmlega það sem fólk þarf eftir hátíðirnar. Nokkrir íslenskir matgæðingar deila hér frábærum veganuppskriftum. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is MATUR 26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018 Sigrún Þorsteinsdóttir hef- ur í áraraðir eldað mikið úr grænmeti og er uppfinn- ingasöm þegar kemur að matargerð. „Eigi maður gott grænt eða rautt karrí- mauk í skápnum, grænmet- isteninga og svolítið græn- meti í kæliskápnum má galdra fram merkilega fínar súpur. Það er einmitt til- valið að taka til í kæliskápn- um og nota eggaldin, kúr- bít, paprikur í öllum litum, spínat, kartöflur, blaðlauk, maískorn og fleira. Í þessa súpu er upplagt að nota frosna afganga af kók- osmjólk ef þið eigið slíka. Ef þið notið hrísgrjónanúðlur, sobanúðlur (úr bókhveiti) eða hrísgrjón er súpan hentug fyrir þá sem hafa glútenofnæmi eða -óþol.“ soðin hýðishrísgrjón eða glú- tenlausar núðlur eftir smekk 15 g þurrkaðir sveppir 60 g gulrætur 50 g ferskir sveppir ¼ rauð paprika 2-3 vorlaukar eða ¼ blaðlaukur 1 msk. kókosolía 3-5 msk. grænt karrímauk, milt 700 ml - 1 lítri vatn 2 gerlausir grænmetisteningar 50 ml kókosmjólk 2 dropar stevía án bragðefna eða 1 msk. agavesíróp Sjóðið hýðishrísgrjón eða núðlur samkvæmt leiðbein- ingum á umbúðum. Ef þið notið núðlur skuluð þið setja þær í sigti strax eftir suðuna og láta kalt vatn renna á þær í nokkrar sek- úndur. Klippið þurrkuðu sveppina í nokkra búta og leggið í sjóð- andi heitt vatn í um 15 mín- útur. Hellið svo vatninu frá. Flysjið gulræturnar og sneiðið þunnt. Skerið fersku sveppina og paprikuna í þunnar sneiðar. Skerið vor- laukana í þunnar sneiðar (allt nema um 1 cm af hvorum enda). Hitið kókosolíuna í meðal- stórum potti. Steikið gulræt- urnar, paprikuna, vorlaukinn og fersku sveppina í olíunni í um 10 mínútur. Setjið karrí- maukið út í og léttsteikið í nokkrar mínútur. Bætið vatni og grænmet- isteningum út í ásamt þurrkuðu sveppunum og látið súpuna malla í um 15 mínútur við vægan hita. Bætið núðlunum eða hrísgrjónunum út í. Bætið svo kókosmjólkinni og stevíudropunum út í og hit- ið í nokkrar mínútur án þess að sjóði. Úr bókinni: CafeSigrun – Hollustan hefst heima. Austurlensk naglasúpa „Kúskúsréttir eru bæði góðir sem aðalréttir og sem meðlæti og sóma sér vel á hlaðborði. Við borðum réttinn með spínati og sólskins- sósu. Uppskriftin er úr einni af uppáhalds bókunum mínum The Kind Diet eftir Aliciu Silverstone,“ segir Dóra Matthíasdóttir sem birtir uppskriftir á vegandora.com. 2 bollar (4-5 dl) skrælt barbapabbagrasker, skorið í 2 cm kubba 2 laukar, skornir í 2 cm kubba 3 gulrætur, skornar í 2 cm sneiðar 1½ bolli (3,5 dl) kúrbítur, skorinn í 3 cm kubba 2 msk ólífuolía sjávarsalt 1½ tsk svartur pipar 1½ bolli (3,5 dl) grænmetiskraftur 2 msk vegan smjör (til dæmis Prima smjör frá Rapunzel) ¼ tsk cummin krydd (ekki kúmen) ½ tsk saffran þræðir (má sleppa) 1½ bollar (3,5 dl) kúskús 2 saxaðir vorlaukar (bæði hvíti og græni hlutinn) Hitið ofninn í 190°C. Setjið saxað grænmetið á bökunarpappír í ofnskúffu. Bætið við 2 msk ólífuolíu, 1 tsk salti og 1 tsk pipar. Grillið í 25-30 mínútur og snúið græn- metinu með spaða þegar tíminn er hálfn- aður. Á meðan grænmetið grillast, setjið græn- metiskraftinn í pott og sjóðið. Takið grænmetiskraftinn af hellunni og bætið við 2 msk smjöri, 1/2 tsk pipar, 1/4 tsk cummin kryddi, saffrani og salti eftir smekk. Lokið pottinum og látið bíða í 15 mínútur. Skafið grænmetið af bökunarpappírnum og ofan í stóra skál. Bætið við öllu kúskúsinu og blandið var- lega saman. Hitið grænmetiskraftinn að suðu og hellið honum síðan yfir grænmetið og kúskúsið í skálina. Lokið skálinni vel með diski og látið standa í 15 mínútur. Bætið við vorlauknum og hrærið varlega í kúskúsinu með gaffli. Berið fram td. með spínati og sólskins- sósu. Frá vegandora.com. Marokkóskt kúskús

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.