Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Page 44
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7.1. 2018
LESBÓK
MÁLMUR Scott Ian, gítarleikari og forsprakki þrass-
bandsins gamalreynda Anthrax, greinir frá því í nýrri
bók sinni, Access All Areas: Stories From A Hard Rock
Life, að hann hafi einu sinni brotist inn á heimili kollega
síns, Kirk Hammett í Metallica, í San Francisco í skjóli
nætur. Og hvers vegna? Jú, Ian var á djamminu ásamt
nokkrum félögum sínum og fékk á þriðja tímanum um
nóttina þessa óseðjandi löngun til að grípa í hljóðfæri og
músisera. Hann er sjálfur frá New York en vissi að sinn
gamli vinur, Hammett, byggi í borginni. Þangað var
skónum stefnt, brotist inn og spilað af öllum lífs og sálar
kröftum í stúdíói Hammetts. Þetta mun vera í eina skipti
sem Ian hefur séð Kirk Hammett skipta skapi. Honum
var hreint ekki skemmt.
Braust inn hjá Hammett
Kirk
Hammett
hress í
Egilshöllinni.
Morgunblaðið/ÞÖK
TÓNLIST Eftir að hafa tekið því rólega á
árinu 2017 með litlu tvíburunum sínum, Rumi
og Sir, snýr poppdrottningin Beyoncé senn
aftur. Fyrstu tónleikar hennar verða á Coac-
hella-hátíðinni vinsælu í Kaliforníu en hún
verður aðalnúmerið þar 14. og 21. apríl. Orð-
rómur um að Beyoncé vinni nú að nýju efni
hefur verið á kreiki og ekki var tilkynning
Coachella-manna til þess fallin að kveða hann
niður. Af öðrum aðalnúmerum á hátíðinni í
vor má nefna rapparana Eminem og The
Weeknd en einnig verða á svæðinu David
Byrne, Cardi B, Migos, Post Alone, Odesza,
Kygo, Jamiroquai og margir fleiri.
Beyoncé klár í slaginn á Coachella
Beyoncé hefur haft hægt um sig að undanförnu.
AFP
Hátíðarhöld á Vellinum árið 1960.
Varnarliðið
RÚV Varnarliðið nefnist heimild-
arþáttaröð í fjórum hlutum um
sögu Bandaríkjahers á Íslandi á ár-
unum 1951-2006, sem hefur göngu
sína í kvöld, sunnudagskvöld. Í
þáttunum getur að líta mikið af
myndefni sem ekki hefur sést áður
og er m.a. rætt við fyrrverandi her-
menn og íslenska starfsmenn varn-
arliðsins, sem segja sögur af starfi
sínu og samskiptum við herinn.
Leikstjórar eru Konráð Gylfason
og Guðbergur Davíðsson.
SJÓNVARP
SÍMANS Tvær af
skærustu kvik-
myndastjörnum
seinni tíma, Harr-
ison Ford og Den-
zel Washington,
halda áhorfendum
við efnið í kvöld,
laugardagskvöld.
Fyrst bregður Ford sér í gervi forn-
leifafræðingsins úrræðagóða In-
diana Jones í Leitinni að týndu örk-
inni frá árinu 1981 og síðan er
komið að Washington að hleypa
upp spennunni í Crimson Tide frá
árinu 1995. Washington nýtur full-
tingis ekki síðri kappa, skapgerð-
arleikarans Genes Hackmans, sem
á ófáa leiksigrana á ferilskránni
enda að detta í nírætt.
Stórstjörnur
Washington
STÖÐ 2 Aðalmynd laugardags-
kvöldsins er Keeping Up With the
Joneses. Um er að ræða gaman-
mynd með spennuívafi frá 2016
með Gal Gadot, Jon Hamm, Isla Fis-
her og Zack Galifianakis. Hjón í út-
hverfi flækjast inn í alþjóðlegt
njósnamál, þegar þau uppgötva að
ofurvenjulegir nágrannar þeirra
eru í raun njósnarar. Leikstjóri er
Greg Mottola.
Gal Gadot leikur í myndinni.
Njósngrannar
Gaggó Vest, lag GunnarsÞórðarsonar við texta ÓlafsHauks Símonarsonar, sló
rækilega í gegn þegar það kom út á
sólóskífu gítarleikarans og tón-
skáldsins, Borgarbragur, árið 1985.
Lagið söng ungur rokkari sem á
þeim tíma var tiltölulega lítt þekkt-
ur, Eiríkur Hauksson. Til að gera
langa sögu stutta vann hann hug og
hjörtu landsmanna með flutningi
sínum og átti ári síðar aðild að fyrsta
framlagi Íslendinga til Söngva-
keppni evrópskra sjónvarpsstöðva,
Eurovision, Gleðibankanum. Allar
götur síðan hefur Eiríkur fyllt flokk
ástsælustu söngvara þjóðarinnar.
Enda þótt ótrúlegt megi virðast
hafa Gunnar og Eiríkur aldrei flutt
Gaggó Vest saman á sviði en það
breytist í kvöld, laugardagskvöld,
þegar Eiríkur treður upp með
hljómsveit Gunnars, Gullkistunni, á
Þrettándagleði Kringlukrárinnar í
Reykjavík.
„Það er rétt, við höfum aldrei náð
að flytja þetta lag saman á sviði,“
segir Gunnar Þórðarson. „Það er lík-
lega kominn tími til. Þetta verður
bara gaman.“
Þeir hafa áður staðið saman á
sviði, meðal annars í Queen-sýningu
á skemmtistaðnum Broadway um
árið en eðli málsins samkvæmt var
Gaggó Vest ekki á efnisskránni þar.
Sem leiðir hugann að því að gaman
hefði verið að heyra Freddie heitinn
Mercury spreyta sig á perlunni.
Hefði hann gert það betur en Eirík-
ur? Því verður aldrei svarað.
Aðeins verður um þessa einu tón-
leika að ræða en Eiríkur flýgur til
Noregs, þar sem hann hefur búið um
langt árabil, strax á sunnudaginn.
„Þetta verður ekki endurtekið, alla
vega ekki í bráð,“ segir Gunnar.
Eiríkur mun taka tíu lög með
Gullkistunni, lög sem allir ættu að
kannast við, innlend og erlend.
Spurður um hitt lagið sem Eiríkur
söng á Borgarbrag, Gull, segir
Gunnar það ekki á efnisskrá kvölds-
ins. „Það er svolítið flóknara í flutn-
ingi en hafandi sagt það þá er Gaggó
Vest býsna flókið líka.“
Það var Óttar Felix Hauksson,
tónleikahaldari á Kringlukránni,
sem fékk Eirík til að koma til lands-
ins. Hann gerði sér þó ekki grein
fyrir því þá að Gunnar og Eiríkur
hefðu aldrei tekið lagið saman á
sviði. „Það var óvæntur glaðningur
þegar ég gerði honum grein fyrir
því,“ segir Gunnar.
Höfundurinn kveðst alls ekki hafa
gert ráð fyrir vinsældum Gaggó
Vest þegar hann samdi lagið. „Mað-
ur veit aldrei hvaða lag hittir og
hvað ekki. Ég veit svo sem ekki hvað
olli því en textinn er góður og svo
negldi Eiríkur lagið auðvitað alveg.
Það er frábærlega sungið.“
Gunnar lofar lífi og fjöri í kvöld og
dansgólfið verður að sjálfsögðu ný-
bónað. „Það er alltaf dansað mikið á
Þrettándagleðinni, fólk á öllum aldri.
Það eru ekki margir staðir eftir á Ís-
landi þar sem hægt er að dansa.“
Á Gunna mikið að þakka
Tónleikarnir leggjast einnig vel í Ei-
rík. „Þegar Gunni hélt upp á sjö-
tugsafmæli sitt í Hörpu fyrir tveim-
ur árum komst ég ekki til landsins
vegna annarra skuldbindinga og
þess vegna tók ég þessu tilboði feg-
inshendi, þrátt fyrir nauman tíma.
Ég er með verkefni hérna í Noregi á
föstudagskvöldið [í gærkvöldi] og
flýg því heim til Íslands á laugardag-
inn og aftur út á sunnudaginn.“
Hann hlakkar til að taka Gaggó
Vest með höfundinum. „Það er alveg
ótrúlegt að það hafi ekki gerst fyrr.
Þetta verður virkilega gaman. Ég á
Gunna mikið að þakka; segja má að
ég hafi fundið fimmta gírinn eftir að
ég söng þessi lög hans á Borgar-
brag.“
Eiríkur hefur sungið Gaggó Vest
annað veifið gegnum tíðina og þykir
alltaf jafnvænt um lagið. „Gaggó
Vest hefur alltaf fylgt mér. Ég hef
sungið það með hinum og þessum og
líka einn með gítarinn. Það er ekki
auðvelt að flytja lagið þannig en ég
læt mig hafa það fyrir Íslendinga á
þorrablótum hérna í Noregi,“ segir
hann hlæjandi.
Fleiri standardar verða á efnis-
skránni, ekki síst frá sjöunda
áratugnum. Við erum að
tala um Bítlana, Stones,
Kinks og þessháttar.
„Talað var um tíu lög en
mig grunar að þau
verði fleiri; úr því
ég verð kominn á
svæðið. Ég
þekki pró-
gramm
Gull-
kist-
unnar
ágætlega.“
Þrjátíu ár
verða liðin á þessu ári frá því Eirík-
ur settist að í Noregi en hann segir
alltaf jafn gaman að koma heim og
syngja fyrir landann. „Meðan ein-
hver man eftir mér og biður mig að
koma heim að syngja þá mun ég
örugglega gera það.“
Eiríkur er sjálfstætt starfandi
tónlistarmaður, auk þess að kenna
við sérskóla í Noregi, þar sem hann
notar tónlistina mikið í vinnu með
börnum sem átt hafa erfitt upp-
dráttar. Meðal verkefna má nefna
proggrokkbandið Magic Pie sem á
dyggan hóp aðdáenda og bítlasýn-
inguna „It Was 50 Years Ago
Today“ sem gengið hefur í fimm ár
í Noregi. Svo er það gamla málm-
bandið
Artch.
„Við er-
um
ennþá í
ágætu sambandi
og tökum annað
slagið að okkur
verkefni þegar
áhugaverð tilboð
berast.“
Lengi býr að
fyrstu gerð.
Eiríkur Hauksson
fann fimmta gírinn
eftir að hafa sungið
Gaggó Vest inn á plötu.
Loks saman í Gaggó Vest
Gunnar Þórðarson og Eiríkur Hauksson munu í fyrsta skipti flytja hið sívinsæla lag þess fyrrnefnda,
Gaggó Vest, saman á sviði á Þrettándagleði Kringlukrárinnar í kvöld, laugardagskvöld.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Gunnar
Þórðarson