Morgunblaðið - Sunnudagur - 07.01.2018, Side 45
7.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
KVIKMYNDIR Von er á fjörugu kvikmyndaári vestur í
Hollywood, sem endranær. Meðal mynda sem frum-
sýndar verða á árinu er söngvamyndin Mary Poppins
Returns. Ekki er um að ræða endurgerð á hinni vinsælu
mynd Mary Poppins frá 1964 heldur framhald og gerist
sagan 25 árum síðar. Að þessu sinni er það bresk/
bandaríska leikkonan Emily Blunt sem fer með hlutverk
vinsælustu barnfóstru allra tíma og fetar þar með í fót-
spor Julie Andrews. Það er stórveldið Disney sem fram-
leiðir myndina en leikstjóri er Rob Marshall. Af öðrum
leikendum má nefna Lin-Manuel Miranda, Meryl Streep,
Colin Firth og hina 92 ára síungu Angelu Lansbury.
Fyrirhugað er að frumsýna Mary Poppins Returns á
jóladag, þannig að við þurfum að vera þolinmóð.
Poppins snýr aftur
Emily Blunt í
hlutverki Mary
Poppins.
Disney
SJÓNVARP Ný heimildarmynd um lokaárið
í ævi poppstjörnunnar Prince, Prince: Last
Year of a Legend, fær ekki góða dóma í
bresku pressunni. Þannig þykir gagnrýn-
anda The Telegraph vanta alla dýpt í mynd-
ina og segir hana sundurlausa. Myndin bygg-
ist að miklu leyti á samtölum við fólk sem
stóð nærri Prince en ekkert þeirra geti að
neinu gagni varpað ljósi á það sem átti sér
stað síðustu mánuðina sem goðsögnin lifði en
Prince sálaðist í apríl 2016 langt fyrir aldur
fram, aðeins 57 ára. Þá þykir gagnrýnand-
anum hæpið að fullyrða að Prince hafi náð
sínum listrænu hæðum á lokasprettinum.
Litlu nær um lokamánuðina í lífi Prince
Prince var aðdáendum sínum harmdauði.
Reuters
Fyrir rúmum áratug fór ég aðveita ungu málmbandi frá Or-lando í Flórída athygli. Trivi-
um kallast bandið og var á þessum
tíma áhugaverður bræðingur af
klassískum málmi, þrassi og banda-
rískum nýbylgjumálmi. Einkum féllu
önnur og fjórða breiðskífa bandsins
að mínum smekk; Ascendancy, sem
hið gamalgróna málmrit Kerrang!
valdi plötu ársins 2005, og Shogun
sem kom þremur árum síðar.
Þarna fór saman haganlega smíð-
uð lög, sprækur flutningur og flinkur
söngvari, hinn japanskættaði Matt
Heafy, sem fléttaði saman hreinum
og óhreinum söng, eins og það kall-
ast. Til að gera langa sögu stutta
kom ferskur andblær með Trivium
inn í málmheima og bandið átti er-
indi.
En síðan hallaði undan fæti. Í stað
þess að Trivium fengi frekari útrás
fyrir óbeislaða hæfileika sína fundu
óprúttnir markaðsmenn gróðalykt af
bandinu og tókst að þynna það út. In
Waves, sem kom 2011, var reyndar
allt í lagi en á Vengeance Falls (2013)
hafði dregið verulega af Trivium.
Þykkt skyrið var orðið að undan-
rennu.
Dauðhreinsuð
Með góðum vilja mátti þó hlusta á
Vengeance Falls enda þótt Heafy og
félagar hafi hleypt David Draiman úr
Disturbed, af öllum mönnum, í
takkaborðið. Sömu sögu má ekki
segja af sjöundu breiðskífunni, Si-
lence in the Snow, sem kom út 2015.
Það var engu líkara en sálin hefði
verið slitin úr Trivium. Platan var í
einu orði sagt dauðhreinsuð; lögin
streymdu fram eins og færiband í
verksmiðju og Heafy var hættur að
rymja. Flatari málmplata er vand-
fundin. Og er þó af ýmsu að taka.
Þetta var rothöggið og ég afskrif-
aði Trivium í eitt skipti fyrir öll. Það
sem í eina tíð lofaði svo góðu hafði
skolast burt með baðvatninu. Punkt-
ur. Basta.
Eðli málsins samkvæmt lét ég mér
því fátt um finnast þegar áttunda
breiðskífa Trivium, The Sin and the
Sentence, kom út í október síðast-
liðnum. Maður eyðir ekki púðri á
dauða fugla!
Glimrandi dómar
Þá rakst ég fyrir tilviljun á umsögn
um plötuna í erlendu blaði og fór að
skoða málið betur; allt bar að sama
brunni: The Sin and the Sentence
var alls staðar að fá glimrandi dóma.
Það varð til þess að ég festi kaup á
gripnum (já, ég er ennþá að kaupa
plötur!) og þrusaði honum í spil-
arann. Og hvur andskotinn (afsakið
orðbragðið), hér kveður svo sannar-
lega við annan tón. Trivium er ekki
bara þyngri, graðari og áleitnari en á
síðustu plötum, heldur er Heafy
byrjaður að rymja á ný, í bland eins
og forðum daga. The Sin and the
Sentence er klárlega besta plata
sveitarinnar í áratug.
Batnandi mönnum er best að lifa
og því ber að fagna með þrútnu
málmöskri að Trivium hafi endur-
heimt sálina.
Trivium endurfædd. Alex Bent, flunkunýr trymbill, Matt Heafy, söngvari og gít-
arleikari, Corey Beaulieu gítarleikari og Paolo Gregoletto bassaleikari.
TRIVIUM RÍS UPP ÚR ÖSKUSTÓNNI
Að endur-
heimta sálina
Á fóninum
Orri Páll
Ormarsson
orri@mbl.is
Fáum sögum fer af úrræðabetra
fólki í sjónvarpi en Gallagher-
fjölskyldunni, sem hermt er af í
bandarísku útgáfunni af spédram-
anu Shameless.
Í nýjustu þáttunum lendir hin
sextán ára gamla Debbie Gallag-
her undir voðum með manni
nokkrum á kenderíi og láta þau
vel hvort að öðru án þess að setja
öryggið á oddinn. Aumingja Deb-
bie verður nokkuð um þetta þeg-
ar hún vaknar enda á hún eitt barn
fyrir og bráðliggur ekki á öðru.
Þá er ekki um annað að ræða en
strauja út í apótek og kaupa
morguninn eftir-pilluna. Þar sem
Debbie er undir lögaldri má hún
ekki kaupa pilluna sjálf og fær því
ókunnuga konu, sem hún hittir á bílaplaninu fyrir ut-
an apótekið, til að gera það fyrir sig. Afhendir henni
reiðufé. Konan tekur við fénu en reynir í framhaldinu
að stinga af án þess að kaupa pilluna.
Debbie bregst að vonum illa við þeim gjörningi og
lemur ókunnugu konuna eins og harðfisk. Verður
það til þess að þær eru báðar teknar höndum og vist-
aðar í fangageymslu lögreglunnar.
Debbie hefur takmarkaðan
tíma til að innbyrða morguninn
eftir-pilluna og þegar vinir hennar
leysa hana úr haldi er naumur
tími til stefnu; innan við mínúta
samkvæmt skeiðklukku sem
gengur í skjáhorninu. Og auðvit-
að er apótekið fullt út úr dyrum.
„Hafið ekki áhyggjur, krakkar.
Ég redda þessu!“ segir þá vinur
hennar sem er af arabísku bergi
brotinn. Vippar sér með það
sama upp á borð og hrópar há-
stöfum: „Allahu akbar!“
Ekki þarf að taka fram að apó-
tekið tæmdist á nóinu – og Deb-
bie Gallagher fékk pilluna sína.
Nokkurt basl hefur raunar ver-
ið á Debbie undanfarið enda hefur hún ekki lengur að-
gang að örorkubótum lamaðs sambýlismanns síns,
þar sem hann er tekinn saman við aðra konu. Með
barnauppeldinu hefur hún því unnið sem bílastæða-
vörður í þar til gerðu húsi. Í því ágæta starfi gengur á
ýmsu.
Ekki er logið upp á Shameless!
KUNNA EKKI AÐ SKAMMAST SÍN
Morguninn eftir-pilla
á elleftu stundu
Showtime
Debbie Gallagher
deyr ekki ráðalaus.
Eirvík flytur heimilistæki inn
eftir þínum séróskum
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is