Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 16

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 16
Þ að er enginn uppgjafartónn í rödd Eddu Bjarkar Gunnarsdóttur sem berst nú í fjórða sinn við krabba- mein. Þessi fallega 35 ára gamla kona féllst á að segja sögu sína, sem er bæði löng og ströng. Hún vill leggja sitt af mörkum í baráttunni við krabbamein, enda segir hún alla þekkja einhvern sem tengist þeim sjúkdómi. Það er nefnilega staðreynd að krabbamein er ekki einungis einkamál þeirra sem greinast, heldur snertir hann fjölmarga aðra; fjölskyldu og vini. Kraftur, stuðningsfélag ungs fólks með krabbamein og aðstandendur, er með vitund- arvakningu undir yfirskriftinni „Krabbamein kemur öllum við“. Félagið styður við yngra fólkið, en ár hvert greinast 70 einstaklingar á aldrinum 18-40 ára með krabbamein. Kraftur fékk til liðs við sig 22 einstaklinga sem voru reiðubúnir að stíga fram sem andlit herferðarinnar, en í þeim hópi eru bæði krabbameinsgreindir og aðstandendur. Edda Björk er ein af þeim. Sköllótta stelpan í skólanum Edda Björk er að jafna sig eftir lungnabólgu og er stödd á Landspítalanum við Hringbraut, sem hún kallar í gríni Hótel 101. Við leitum að rólegum stað til þess að spjalla og endum á kaffistofu á fyrstu hæð, umkringd gos- og sæl- gætisvélum og fólki að gæða sér á sjoppufæði. Edda Björk lítur vel út og ef ekki væri fyrir broddana sem byrjaðir eru að vaxa á höfði hennar myndi engann gruna að hér væri á ferð kona með krabbamein. Edda Björk er ófeimin þegar hún byrjar á sögu sinni og rifjar upp upphafið. „Þegar ég var átján ára gömul og var í Menntaskólanum við Sund greindist ég með Hodgkins eitlakrabba- mein sem var staðsett við viðbeinið og hóstar- kirtilinn. Ég fór í lyfjameðferð og var í henni í tæpa níu mánuði. Var ég þá útskrifuð og lækn- arnir héldu að allt væri farið, en eftir hálft ár sást smá skuggi á myndinni sem þeir héldu að væri vefjaþykkildi. En það kom í ljós að það var mein þannig að ljóst var að það hafði tekið sig upp aftur. Þannig að ég fór aftur í lyfja- og geislameðferð. Ég var rúmlega tvítug þegar ég útskrifaðist úr þeirri meðferð. Ég var enn í lyfjameðferð þegar ég var í stúdentsprófunum,“ segir Edda Björk og segist ekki hafa fengið að upplifa áhyggjulaus og góð menntaskólaár. „Menntaskólaárin voru ekki skemmtileg- ustu ár lífsins, alveg langt því frá. Ég upplifði ekki öll böllin og skíðaferðirnar,“ segir hún en Edda Björk var á þessum veikindatíma í lyfja- meðferð í hverri viku. „Ég var orðin 45 kíló þegar ég var sem léttust og var alltaf rosalega veik. Sum stúdentsprófin tók ég heima hjá mér, önnur á spítalanum með kennara. Ég var þekkt fyrir að vera sköllótta stelpan í skól- anum. Ég á nokkra vini í dag sem þekktu mig ekki þá, en þeir muna eftir sköllóttu stelpunni. Félagslega var þetta mjög erfitt,“ útskýrir hún en bætir við að hún hafi átt tvær góðar vinkon- ur á þessum tíma. „Við vorum mjög skemmti- legt tríó; ég var með krabbamein, önnur var með anorexíu og sú þriðja var ólétt,“ segir hún og hlær. „Við studdum hver aðra og komumst í gegnum þetta.“ Gekk út með greiningu Eftir útskrift fór Edda Björk beint í Kennara- háskólann og lífið gekk sinn vanagang. „Svo tók lífið við og í þrettán ár er ég laus við allt saman,“ segir hún en eftir útskrift 23 ára fór hún að kenna í grunnskólum og vann við kennslu í átta ár. En þá átti allt eftir að breyt- ast. „Ég greinist fyrst með brjóstakrabbamein 2014. Þá er ég 31 árs. Og til að toppa þetta allt saman var ég áður búin að fara niður í Krabba- Að njóta en ekki þjóta Krabbamein kemur öllum við, slagorð herferðar hjá Krafti, eru sannarlega orð að sönnu. Flest okkar þekkja til einhvers sem glímt hefur við þann vágest. Edda Björk Gunnarsdóttir hefur þurft að reyna það á eigin skinni; hún berst nú við krabbamein í fjórða sinn en er langt frá því að leggja árar í bát. Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is „Það er alveg vitað að ég er með ólæknandi krabbamein. Ég mun aldrei læknast af því en þetta er spurning um að læra að lifa með því og leyfa sér að lifa með því,“ segir Edda Björk sem tekst á við hlutskipti sitt með jákvæðni. Ljósmynd/Sigurður Ólafur Sigurðsson VIÐTAL 16 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.