Morgunblaðið - Sunnudagur

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Qupperneq 18
Í fallegu hvítu steinhúsi í Þingholtunum fær blaðamaður góðan latte hjá lista- manninum og teiknimyndateiknaranum Gunnari Karlssyni. Enda erum við í lattelepjandi 101, eins og hann bendir á. Gunnar stendur á tímamótum; hann er kominn á leiðarenda eftir langa og stranga sex ára törn en að baki einni teiknimynd liggur ómæld vinna. Gunnar hefur unnið að gerð myndarinar öll sex árin, dag og nótt, eins og hann orðar það. Á föstudaginn kemur, 2. febr- úar, verður Lói - þú flýgur aldrei einn frum- sýnd á Íslandi og svo síðar út um allan heim. Þór frægur í Suður-Kóreu „Venjulega tekur sjö ár að gera teiknimynd, þannig að við vorum frekar fljótir. Þetta er ansi langt ferli á ævi manns,“ segir Gunnar en hann er enginn nýgræðingur á sviði teiknimynda. „Við höfum gert nokkrar teiknimyndir áður og auglýsingar en fyrsta stóra verkefnið var Litla lirfan ljóta, sem er hálftíma mynd. Síðan gerðum við aðra hálftíma mynd, Önnu og skapsveiflurnar. Næst gerðum við Þór, sem er bíómynd í fullri lengd og það er í raun allt annað dæmi en að gera stuttmynd,“ segir Gunnar en það eru hann og Hilmar Sigurðs- son sem eiga saman GunHil, fyrirtæki innan Sagafilm, sem framleiðir myndina um Lóa. „Við vorum áður með Caoz og höfum unnið saman í yfir þrjátíu ár. Það lendir á honum að finna peningana,“ segir Gunnar en hann sér um listrænu hliðina, enda er hann listamaður- inn, lærður listmálari frá Myndlista- og hand- íðaskólanum og síðar við Sænsku listaakadem- íuna í Stokkhólmi. „Ég ætlaði bara að vera málari, en ég hafði nú alltaf svolítinn áhuga á teiknimyndum. Svo eignaðist ég börn. Mér blöskraði það barna- efni sem boðið var upp á og að það skyldi ekki vera neitt sem minnti á Ísland í barnaefninu. Sonur minn kunni allt um gríska goðafræði en vissi ekkert um Þór og norrænu goðafræðina. Svo auðvitað þegar Þór var tilbúinn, þá var hann orðinn tvítugur,“ segir Gunnar og hlær. Spurður um gengi Þórs í heiminum, segist hann halda að hún hafi gengið nokkuð vel. „Við vitum að hún sló í gegn í Suður-Kóreu, hún varð mjög vinsæl þar. Átta hundruð þús- und manns sáu hana þar í bíó. Það var gaman að því, Þór er því mjög þekktur í Suður- Kóreu.“ Fjaðrirnar tæknilega erfiðar Það þróaðist þannig að Gunnar fór að fikta við teiknimyndir. „Ég fór svolítið að myndskreyta bækur og fór þaðan í að prófa að gera teikni- myndir í tölvu. Þá var enginn mannskapur á Íslandi til að gera teiknimyndir,“ segir Gunn- ar en hann er sjálfmenntaður á því sviðinu. „Við erum nú komnir með töluverða reynslu af þessu. Friðrik Erlingsson skrifaði Þór, og reyndar Litlu lirfuna líka, og hann var með þetta handrit tilbúið,“ segir hann. „Mér leist ekkert á þetta verkefni í byrjun, tæknilega séð. Af því að þetta eru fjaðrir og fiður sem er mjög erfitt að gera í þrívídd,“ segir hann og brosir. Sagan um Lóa litla er nefnilega um litla ís- lenska lóu sem nær ekki að læra að fljúga og neyðist til að eiga hér vetursetu á meðan aðrar lóur halda á brott til Afríku. Lói litli lendir því í ýmsum ævintýrum um hávetur á Íslandi og kemst í kynni við önnur dýr, en ekkert mann- fólk er að finna í myndinni. Sextíu manns hreyfa fugla Myndin er öll teiknuð í tölvu. „Ég mála það í raun í tölvunni. En ég nota þrívíddarforrit og móta persónurnar eins og þær væru úr leir. Ég er þá fljótur að sjá hvort það virkar á alla kanta,“ segir Gunnar. „Það tekur líka langan tíma að þróa söguna þannig að það passi og allir séu ánægðir. Og þróa karakterana þannig að það gangi allt upp. Við Friðrik þurftum mikið að kasta á milli okkar myndum. Svo er líka leikstjóri sem kemur inn í ferlið,“ segir Gunnar og útskýrir hvernig teiknimynd er leikstýrt en ásamt hon- um var Árni Ólafur Ásgeirsson leikstjóri. „Það er að mörgu leyti svipað og að leik- stýra lifandi fólki. Þegar sagan er komin og búið að teikna karakterana þá eru búnir til rammar, svokallaður myndþráður, og við teiknum alla myndina eftir handritinu, hvert einasta skot. Svo setjum við það í tölvuna og klippum það eins og bíómynd. Síðan vinnum við nákvæmara og skiptum alltaf út teikning- Sex ár eru liðin frá því að lítill lóuungi tók yfir líf Gunnars Karlssonar, listamanns og leikstjóra. Nú er unginn loks fleygur því þann 2. febrúar verður kvikmyndin Lói – þú flýgur aldrei einn frumsýnd hér á landi og svo síðar í 55 löndum víða um heim. Lói er næstdýrasta mynd íslenskrar kvikmyndasögu Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Gunnar Karlsson hefur unnið dag og nótt í sex ár að gerð teiknimyndarinnar sem kostaði rúman milljarð. Morgunblaðið/Ásdís Lói litli lendir í ótal ævintýrum á Íslandi og kynnist öðrum dýrum. ’Sá sem býr til hreyfingarfyrir fuglinn er í rauninnileikarinn. Það voru sextíumanns í Belgíu og á Íslandi að hreyfa fugla, síðasta eitt og hálfa ár, ef ekki lengur. Heimsfrægð bíður lóunnar KVIKMYNDIR 18 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.