Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 28
Á bryggjunni má finna veitingastað, klifurveggi og aparólu.
Árið 1841 gaf læknirinn og rit-höfundurinn Augustus BozziGranville út bókina The spas
of England, and principal sea-bathing
places, en í henni fór Granville fögr-
um orðum um undurfagrar strandir
og hlýja veðráttu tiltölulega óþekkts
smábæjar í Dorset-héraði á suður-
strönd Englands, og í kjölfar útgáfu
bókarinnar jókst ferðamanna-
straumur til bæjarins gríðarlega og
aðeins nokkrum áratugum síðar var
fiskimannabærinn Bournemouth orð-
inn einn helsti sumardvalarstaður
Breta. Í dag hefur Bournemouth
gengið í endurnýjun lífdaga sem
heillandi háskólabær, þungamiðja
fjármála á suðurströnd Bretlands og
notalegur ferðamannastaður, en
veðrið og ströndin hafa lítið breyst
frá því að Granville skrifaði um bæinn
fyrir tæplega 180 árum.
Suðurströnd Englands er einn af
fallegustu stöðum Bretlandseyja, auk
þess að vera einn sá veðursælasti.
Hvort sem buslað er í sjónum eða
gengið meðfram strandlengjunni í
kvöldsólinni mun ströndin standa fyr-
ir sínu.
Margt er að sjá og skoða í Bourne-
mouth.
Bournemouth Square er menn-
ingarlegur miðpunktur bæjarins, þar
er iðulega mikið að gerast, allt frá
götulistamönnum til hátíðarmarkaða.
Kaffihúsið Obscura, sem stendur á
torginu miðju, er kjörinn byrj-
unarreitur fyrir verslunarleiðangra
en þaðan er bein gönguleið niður á
strönd, í gegnum lystigarðinn.
Lower Gardens er lystigarður í
miðbæ Bournemouth, en suðurströnd
Bretlands og nærliggjandi svæði eru
þekkt fyrir fallega og líflega garða. Í
Lower Gardens má gjarnan finna
listasýningar milli trjánna, setjast
Morgunblaðið/Pétur Magnússon
The Arcade er yfirbyggð verslunargata í miðbænum.
Hlýlegur strandbær
Bournemouth komst á kortið sem sumardvalarstaður á 19. öld eftir að
læknir rómaði strendur staðarins. Enn í dag hefur strandlengjan mikið
aðdráttarafl en bærinn sjálfur hefur einnig upp á margt að bjóða.
Pétur Magnússon petur@mbl.is
Espresso Kitchen er notalegt kaffihús í hjarta bæjarins.
Áin Bourne rennur í
gegnum garða Bourne-
mouth, en bærinn dreg-
ur nafn sitt af ánni.
FERÐALÖG Til að komast til Bournemouth er einfaldast að fljúgatil London og taka svo lest. Ef lent er á Heathrow-
flugvelli eða Gatwick tekur lestarferðin um tvo tíma.
Flug og lest
28 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018
REYKJAVÍK | SUÐURNES | SELFOSS | AKUREYRI | j akkafata joga . i s
Heildarlausnir fyrir
vellíðan á vinnustað
Jakkafatajóga tímar
Happy Hips tímar
Nudd á vinnutíma
Sjúkraþjálfari sem
aðstoðar við að stilla
borð og stóla