Morgunblaðið - Sunnudagur - 28.01.2018, Side 36
36 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28.1. 2018
LESBÓK
KVIKMYNDIR Leikarinn James Franco var einn þeirra leikara
sem áttu að vera á forsíðu sérstakrar Hollywood-útgáfu banda-
ríska tímaritsins Vanity Fair. Franco fór í viðtal og í mynda-
töku hjá ljósmyndaranum Annie Leibovitz en var tekinn
burt af forsíðunni með stafrænni myndvinnslu.
„Við ákváðum að hafa James Franco ekki á
Hollywood-forsíðunni í kjölfar ásakananna gegn
honum,“ sagði talsmaður Vanity Fair í samtali við
Hollywood Reporter. Í kjölfar þess að Franco fékk
Golden Globe-verðlaun stigu fimm konur fram í
Los Angeles Times og ásökuðu leikarann um óvið-
eigandi kynferðislega hegðun. Franco neitar ásök-
ununum.
Franco ekki á forsíðu
AFP
Franco fékk Golden
Globe-verðlaun fyrir
The Disaster Artist.
TÓNLIST 50 Cent var að komast að því að
hann er bitcoin-milljónamæringur. Hann var
fyrsti tónlistarmaðurinn til að taka á móti
greiðslu í bitcoin þegar hann sendi frá sér
plötuna Animal Ambition árið 2014. Hann
fékk a.m.k. 700 bitcoin samkvæmt samning-
inum en steingleymdi þeim þangað til nú. Í
vikunni var eign hans í rafmynt metin á milli
sjö og átta milljónir dala eða um 750 milljónir
króna. „Ekki svo slæmt fyrir strák frá South
Side, ég er mjög stoltur af mér,“ skrifaði 50
Cent, eða Curtis Jackson á Instagram um
„peningafundinn“.
50 Cent græðir á rafmynt
50 Cent átti bitcoin sem hann vissi ekki um.
AFP
ara en núna er grínið mitt miklu
meira byggt á eigin lífsreynslu og
tengist fjölskyldunni. Ég tala um
hjónabandið og börnin. Ég held að
þessi lífsreynsla sé sammannleg.
Allir eiga mömmur og pabba og
sumir eiga börn. Öllum hefur ein-
hvern tímann liðið illa og einhvern
tímann verið hamingjusamir. Við
upplifum öll sömu há- og lágpunkt-
ana í lífinu.“
Hún segir tískubylgjur í uppi-
standi eins og öðru. „Einu sinni
byggðist það á tengdamömmu-
bröndurum og öðru í þeim dúr en
það þykir mjög gamaldags í dag.
Uppistand er núna persónulegra og
byggist oftar á lífsreynslu grínist-
ans. Þeta snýst um að segja sögur og
greina frá einhverju sem hefur
gerst.“
Scotch on Ice er í samstarfi við
Hugarafl en það að nota grín til að
komast yfir erfiðleika er eitthvað
sem er Sutherland hugleikið. „Það
getur virkilega hjálpað fólki til að
komast yfir erfiða hluti í lífi sínu
með því að nota grín. Harmur + tími
= húmor. Á endanum verður hægt
að hlæja að áföllunum,“ segir
Sutherland, sem hefur haldið nám-
skeið á vegum Universal Comedy
sem byggjast á því að hjálpa fólki
sem glímir við andleg veikindi í
gegnum grín.
Hlær að erfiðleikum
„Ég nota húmor til að hjálpa fólki að
kljást við erfiðleika. Þetta er til
dæmis fólk sem hefur þjáðst af
þunglyndi eða geðhvörfum. Þarna
einblínir fólk á erfiðasta tímabil ævi
sinnar og hlutir sem eru ekki ræddir
venjulega, eins og að hafa verið í of-
beldissambandi eða fíkill, koma upp
á yfirborðið. Fólki finnst oft erfitt að
viðurkenna að það sé viðkvæmt.
Þetta snýst um að hlæja með en ekki
að. Því meira sem þú getur hlegið að
einhverju, því minna gerirðu úr því.
Um leið og þú gerir grín þá verða
hlutirnir ekki eins yfirþyrmandi og
þú getur náð betri stjórn á tilfinn-
ingum þínum. Maður áttar sig á að
enginn er fullkominn og allir hafa
Skoski grínistinn Jojo Suther-land er á leið hingað til landstil að skemmta Íslendingum á
skosk-íslensku uppistandshátíðinni
Scotch on Ice.
„Ég er mjög spennt fyrir því að
koma til Íslands, ég hef aldrei komið
þangað áður. Það er alltaf yndislegt
að vinna með öðru fólki og ekki síst
með fólki frá löndum sem maður
hefur ekki unnið með áður. Mér
skilst að við deilum húmor. Báðar
þjóðirnar þekkja vel frost, kulda,
myrkur og vind. Ég held að við skilj-
um hvert annað,“ segir Sutherland.
„Hvað uppistand varðar hugsar
maður helst um Bretland og kannski
Bandaríkin en raunin er sú að það er
vaxandi uppistandshefð í mörgum
Evrópulöndum og líka í Mið-
Austurlöndum. Ég hlakka til að hitta
íslenska félaga mína,“ segir hún en
uppistand nýtur vaxandi vinsælda.
„Sífellt fleiri þjóðir eru að upp-
götva kraft grínsins. Það er sterk
hefð hér fyrir uppistandi en það var
miklu grófara fyrir nokkrum áratug-
um. Núna er litið á uppistand meira
eins og sitt eigið listform. Í Skot-
landi er mikil uppistandssena og hér
eru margir sérstakir klúbbar fyrir
uppistand og síðan er Edinborgar-
hátíðin auðvitað mekka fyrir uppi-
standara,“ segir hún og bendir á að
uppistand sé sett upp á jafn ólíkum
stöðum og kjöllurum veitingahúsa
og stórum leikvöngum.
„Það er svo ódýrt að setja upp
uppistandssýningar, ein manneskja
með hljóðnema, sem er ekki neitt ef
þú berð það saman við hljómsveit
með allar sínar græjur.“
Atriðið þitt, skilst það alveg á milli
landa, eða þarftu að breyta því eitt-
hvað eins og fyrir Íslandsferðina?
„Við eigum eftir að komast að því!“
segir Sutherland og útskýrir að
grínisti velti óneitanlega fyrir sér
hvort brandararnir hans muni virka
á nýjum stað.
„Ég hef komið fram í Mið-
Austurlöndum og á stöðum eins og
Kýpur og í Berlín en það var í Berlín
sem ég þurfti að breyta aðeins því
efnið sem ég var með þá var sértæk-
veikleika,“ segir Sutherland sem
finnst þetta mjög spennandi svið.
Hún heldur líka námskeið fyrir
fyrirtæki. „Við búum í öðruvísi þjóð-
félagi en áður. Fólk af minni kynslóð
fékk starf fyrir lífstíð og vann 9-5 og
allt var í nokkuð föstum skorðum.
Núna er þetta ekki svona og fólk býr
ekki við sama starfsöryggi. Það er
mikið óöryggi í gangi og samfélags-
miðlar hjálpa ekki því þeir sýna bara
bestu útgáfuna af öllum og láta hin-
um líða illa með sjálfa sig og finnast
að þeir ættu að geta gert betur,“ seg-
ir Sutherland sem notar í nám-
skeiðum sínum grín til að hjálpa fólki
að takast á við nýjar aðstæður.
„Þegar þú hættir að reyna að vera
fullkominn og áttar þig á veikleikum
þínum og getur hlegið að þeim, þá líð-
ur þér miklu betur með sjálfan þig,“
segir hún. „Þú heyrir aldrei grínista
uppi á sviði segja frá því hversu ham-
ingjusamlega giftur hann sé með
fjögur börn og að lífið sé stórkostlegt.
Það er ekkert fyndið við það,“ segir
hún og hlær. „Þú vilt heldur heyra
hvernig þeir klúðruðu málunum.
Grín snýst um að fagna göllunum.“
Trump gull fyrir grínista
Gamanmál geta líka verið góð leið til
að ræða samfélagsmál. „Grín er gott
til að láta fólk horfa út á við frekar
en inn á við. Fólki getur stundum
fundist hlutirnir bara koma fyrir sig
en grín gerir fólk víðsýnna,“ segir
Sutherland sem til dæmis tók þátt í
gamanleik um atkvæðagreiðsluna í
Skotlandi. Hún segist sjálf hafa ver-
ið „ástríðufull já manneskja“ og ósk-
að þess að Skotar yrðu sjálfstæð
þjóð.
„Leikritið var frábært. Við skoð-
uðum báðar hliðar málsins. Það var
engin niðurstaða en í lífinu er ekki
alltaf skýr niðurstaða. Það var gam-
an að taka þátt í þessu leikriti. Grín
getur látið þig skipta um skoðun og
hjálpað þér til að sjá fleiri hliðar
málsins. Maður er oftast umkringd-
ur fólki með svipaðar skoðanir, ekki
síst á samfélagsmiðlum, og þess
vegna getur verið svo gaman að fara
á uppistandskvöld og heyra mis-
munandi skoðanir og vera ekki endi-
lega sammála þeim öllum.“
Hún bætir við að það sé sígilt að
gera grín að stjórnmálamönnum.
„Augljóslega er Trump gull fyrir
grínista. Hann er í raun of góður.
Það er varla hægt að hæðast að hon-
um því hann er svo fáránlegur til að
byrja með.“
Hún segir uppistandara hafa mik-
ið frelsi í atriðum sínum. „Þetta er
listform þar sem þú hefur frelsi til að
segja það sem þú vilt og þú verður
að hafa þetta frelsi á sviði. Grín er
góð leið til að koma skoðunum þín-
um til skila eða til að ögra viðteknum
viðhorfum.“
Kaldasti kastali í Skotlandi
Það er ekki hægt að sleppa takinu af
Sutherland án þess að spyrja hana
út í lífshlaupið en hún á forvitnilega
ævi að baki.
„Hvað hefurðu langan tíma? Ég
byrjaði á toppnum og hef smám
saman unnið mig niður,“ segir
Sutherland og hlær. „Þetta byrjaði
vel. Ég ólst upp í kastala en ég held
að þetta hafi verið kaldasti kastali í
Skotlandi því við eyddum mestum
okkar tíma saman í einu herbergi
sem var það eina sem við höfðum
efni á að hita upp,“ segir hún og
Jojo Sutherland
segir að án uppi-
standsins væri hún
á þunglyndislyfjum.
Grín gerir
fólk víðsýnna
Jojo Sutherland er einn þeirra skosku grínista sem
eru á leið hingað til lands og taka þátt í skosk-
íslenskri uppistandshátíð í febrúar. Hún ólst upp í
kastala og lagði uppistand fyrir sig eftir að hún
varð alvarlega veik og endurskoðaði líf sitt.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is