Morgunblaðið - 10.02.2018, Side 2

Morgunblaðið - 10.02.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. TANGARHÖFÐA 13 VÉLAVERKSTÆÐIÐ kistufell.com Það er um 80% ódýrara að skipta um tímareim miðað við þann kostnað og óþægindi sem verða ef hún slitnar Hver er staðan á tíma- reiminni í bílnum þínum? Hringdu og pantaðu tíma í síma 577 1313 Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Ákvörðunum undirstofnana sem teknar eru samkvæmt lögum um rétt- indi og skyldur opinberra starfs- manna verður almennt ekki skotið til ráðuneyta. Þetta o.fl. kemur fram í svari ráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins til ráðuneytisins vegna greinarinnar „Hingað og ekki lengra“ sem fyrrverandi starfsmaður Þjóðskjalasafns, Elín S. Kristinsdótt- ir, birti í Morgunblaðinu 18. janúar sl. Í kjölfar greinarinnar lét mennta- málaráðuneytið kanna erindi og máls- meðferð vegna athugasemda sem fram komu í greininni. Erindi hafði borist ráðuneytinu, dags. 15. desember 2014, þar sem El- ín óskaði eftir að það skoðaði máls- meðferð þjóðskjalavarðar í aðdrag- anda tilraunar hans til að áminna hana og að rannsakað yrði meint að- gerðarleysi hans vegna eineltiskvört- unar hennar á hendur yfirmanni hjá stofnuninni. Erindinu var fyrst svarað af ráðu- neytinu í bréfi dags. 7. janúar 2015 og bent á meginreglu laganna. Í kjölfarið fékk ráðuneytið munn- legar og skriflegar fyrirspurnir frá Elínu og voru af hálfu ráðuneytisins ítrekaðar munnlega niðurstöður svar- bréfsins frá því í janúar 2015. Hinn 30. desember 2015 sendi ráðu- neytið Elínu annað bréf með frekari útskýringum en sömu niðurstöðu. Í bréfinu var vísað til athugasemdar hennar við framgöngu þjóðskjala- varðar vegna eineltisrannsóknar. Í bréfi ráðuneytisins var rakið að eins og atvik lægju fyrir samkvæmt gögn- um málsins hefði Elín samþykkt þátt- töku í umræddri eineltisrannsókn, sem sálfræðistofan Líf og sál gerði og mat að ekki hefði verið um einelti að ræða. Málsmeðferðarreglum hefði verið fylgt til hlítar í málum sem ráðu- neytið hefði fengið og tengdust Þjóð- skjalasafni Íslands. Þjóðskjalavörður ritar grein í blaðið í dag á bls. 32 þar sem hann svarar fyrrnefndri blaða- grein frá 18. janúar síðastliðnum. Almennt ekki hægt að skjóta máli til ráðuneytisins  Meðferð erindis vegna meints eineltis á Þjóðskjalasafni Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Fimm voru handteknir í umfangsmiklum að- gerðum lögreglu og sérsveitar Ríkislög- reglustjóra á Akureyri í gær. Þeir eru grun- aðir um alvarlega líkamsárás og frelsissviptingu á rúmlega þrítugum karl- manni á fimmtudag. Flestir hinna handteknu hafa komið við sögu hjá lögreglu áður vegna ofbeldismála eða fíkniefnamála. Þeir voru vistaðir í fangageymslum í gær en yfirheyrslur stóðu yfir fram á kvöld. Ekki fengust upplýsingar um gang rannsóknarinnar þegar Morgun- blaðið falaðist eftir því á tíunda tímanum í gærkvöld. Stefnt var að því að yfirheyrslum yrði fram haldið nú í morgunsárið. Í kjölfar- ið verður tekin ákvörðun um hvort krafist verður gæsluvarðhalds yfir einhverjum hinna handteknu. Þekktur staður fyrir fíkniefnaneyslu Lögreglumenn brutu sér leið inn í hús við Strandgötu eftir hádegið í gær og handtóku mennina þar. Húsnæðið er í eigu bæjaryfir- valda á Akureyri og er leigt út, að því er Ríkisútvarpið greindi frá. Vandræði hafa verið vegna fíkniefnaneyslu þar undanfarið. Samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á Norðurlandi eystra tóku lögreglumenn frá Akureyri, Húsavík og Dalvík þátt í aðgerð- inni auk sérsveitar Ríkislögreglustjóra. Gerðar voru húsleitir á nokkrum stöðum og tók liðsauki frá tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þátt í þeirri vinnu. Fimm handteknir vegna líkamsárásar  Lögregluaðgerðir um miðjan dag á Akureyri  Grunaðir um frelsissviptingu á rúmlega þrítug- um karlmanni  Húsleitir á nokkrum stöðum Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Handtökur Lögregla réðst inn í þetta hús við Strandgötu á Akureyri í aðgerðunum í gær. Tveggja tíma rakarastofuráðstefna var haldin á Alþingi í gær og voru þingmenn beðnir um að „taka fast á málum“ af Ásdísi Ólafsdóttur al- þjóðastjórnmálafræðingi í samantekt hennar eftir ráðstefnuna. Hún skoraði á þingmenn að lýsa skoðunum sínum og reynslu og vera óhræddir við að treysta hver öðrum óháð flokk- um. Í framhaldinu yrði hægt að vinna út frá þeim hugmyndum sem þeir deildu saman. Tveggja tíma rakarastofuráðstefna á Alþingi í gær vegna #metoo Morgunblaðið/Eggert Skoraði á þingmenn að deila reynslu og skoðunum Grímur Atlason, framkvæmda- stjóri tónlist- arhátíðarinnar Iceland Airwa- ves, hefur gert samkomulag um starfslok hjá há- tíðinni. Frá þessu greindi hann á facebook- síðu sinni síðdegis í gær. Fréttir höfðu þá borist af því að Sena ætti í viðræðum um kaup á hátíðinni af Icelandair. Fram kom á mbl.is í gær að ekkert hefði enn verið fastvákveðið þó að viðræður stæðu nú yfir. „Langbesta tónlistarhátíðin“ Grímur hefur gegnt starfinu í átta ár og kveðst hann bæði stolt- ur og þakklátur fyrir að hafa fengið að stýra svo stórkostlegri og að eigin sögn „langbestu tón- listarhátíð á Íslandi og þó að víðar væri leitað“. Hann segir þetta hafa verið magnaðan tíma og að það séu forréttindi að hafa fengið að starfa við tónlist og þakkar tónlistar- og samstarfsfólki fyrir samfylgdina. Í viðræðum um sölu á Airwaves  Grímur Atlason hættir eftir átta ár Grímur Atlason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.