Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 13
Morgunblaðið/Eggert
Stjórnarformaður Margeir segir að starfsandi innan fyrirtækisins hafi batnað mikið með styttri vinnudögum.
Aukin lífsgæði markmiðið
Margeir segir að aðalmark-
miðið með verkefninu hafi verið að
auka lífsgæði starfsfólks og í raun
hafi þjónusta aukist samhliða.
„Við gerðum þetta með það að
aðalmarkmiði að auka lífsgæði
starfsfólks og fjölskyldu þess en í
leiðinni vorum við að auka gæði
þjónustu okkar og þeirra vara sem
við setjum á mark-
að. Við trúum því
að ánægt starfsfólk
sé hamingjusamara
fólk og ánægt
starfsfólk gerir við-
skiptavini okkar
ánægða, sem leiðir
af sér að fyrirtækið
verði betra. Þetta
er pínulítið öfug
forgangsröðun við
fyrirtæki sem eru á
markaði sem hafa
það aðalmarkmið
að hámarka arð-
semi, en endaniður-
staðan er sú að arð-
semi okkar verður
meiri og það er það
magnaða við
þetta.“
Spurður um
hvernig gekk að
innleiða verkefnið
og hvort starfsfólki hefði þurft tíma
til að aðlaga verkefni sín að styttri
vinnudegi segir Margeir að slíkt hafi
verið ekkert mál. „Í raun og veru
gekk þetta bara furðuvel. Það er
kannski mikilvægt að taka fram að
það kemur fyrir að við vinnum leng-
ur og við notum þá bara almenna
skynsemi þegar við tökum afstöðu til
þess en yfirvinna og þvíumlíkt á ekki
að vera eftirsóknarvert.“
Allir mælar benda í rétta átt
Margeir bendir á að niðurstöður
úr þessu tveggja ára tilraunaverkefni
séu mögulega óvísindalegar en það
sé hins vegar jákvætt að allir mælar
benda í rétta átta. Það sé einnig alls
ekki þannig að aldrei sé unnið lengur
en þegar það þarf að vinna lengur
eru jákvæðari við-
horf til þess en áður.
„Málið er að þegar
við þurfum að leggja
hart að okkur, og
það eru kannski skil
á verkefnum, þá eig-
um við inneign fyrir
þeirri yfirvinnu og
það eru allir tilbúnir
í það. Þegar upp er
staðið verðum við
auðvitað að standa
okkur með okkar
þjónustu en við vor-
um mjög fljót að sjá
á mælingum að
þetta bar árangur,“
segir Margeir og
bætir við að nauð-
synlegt hafi verið að
hafa tilraunaverk-
efnið til lengri tíma
svo árangurinn væri
mælanlegur. „Við
vildum ná smá tíma, ekki bara nokkr-
um mánuðum eða einu ári, við vildum
ná a.m.k. tveimur árum áður en við
færum út með þetta. Það má kannski
segja að þetta séu ekki vísindalegar
mælingar, því við erum bara 25
manna fyrirtæki, en vísbendingar
eru á þann veg að allir mælar benda í
rétta átt.“
„Ég hafði miklar
efasemdir um að við
gætum sinnt við-
skiptavinum okkar
jafn vel og áður ef
starfsfólkið ynni
færri stundir á hverj-
um degi. En það kom
mér ánægjulega á
óvart hvað fram-
leiðnin jókst. Ótrú-
legt en satt þá erum
við að veita enn betri
þjónustu en áður.“
Ragnheiður Þorleifsdóttir,
framkv.stj. Hugsmiðjunnar.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
Spilavinir heimsækja Bókasafn
Reykjanesbæjar í dag, laugardaginn
10. febrúar, kl. 12. Spilavinir eru fyr-
irtæki sem sérhæfir sig í spilum af
öllum gerðum. Starfsfólk Spilavina
kemur í Bókasafn Reykjanesbæjar og
kennir nokkur vel valin spil sem þau
hafa í fórum sínum. Í viðburðarkynn-
ingunni kemur fram að börn sem
spila eru líklegri til að bæta sjón-
minni, fín- og grófhreyfingar, sam-
hæfingu augna og handa, örva og
þjálfa heilann svo dæmi séu nefnd.
Skemmtileg spil sameina alla fjöl-
skylduna og flest eru þannig að þau
henta breiðum aldurshópi. Stendur
viðburðurinn til kl. 15 og hvetur
starfsfólk Bókasafns Reykjanes-
bæjar alla til að koma og kynnast nýj-
um spilum í notalegu umhverfi.
Spilað á Bókasafni Reykjanesbæjar
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Spilavinir Íbúar í Reykjanesbæ geta lært ný borðspil á bókasafninu í dag.
Spilavinir í Reykjanesbæ
Sími 555 2992 og 698 7999
• Við hárlosi
• Mýkir liðina
• Betri næringar-
upptaka
Náttúruolía sem hundar elska
Við höfum notað Dog Nikita hundaolíu fyrir hundana
okkar í 3 ár og við erum ekkert á því að hætta.
Feldurinn á þeim er mjúkur, fallegur og hárlosið á
þeim gengur fyrr yfir. Þófarnir eru mjúkir og sléttir
en ekki harðir og grófir eins og þeir verða oft.Við
mælum með Dog Nikita hundaolíu.
Páll Ingi Haraldsson
EldurÍs hundar
Við mælum með Dog NIKITA hundaolíu
NIKITA hundaolía - Selaolía fyrir hunda
• Gott við exemi
• Betri og sterkari
fætur