Morgunblaðið - 10.02.2018, Side 46
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Sunnudaginn 11. febrúar kl. 14:
Leiðsögn með Katrínu Jakobsdóttur, forsætisráðherra
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Tekið á móti umsóknum um sumartónleika LSÓ
til og með 13. febrúar. Sjá www.lso.is
Sunnudagsleiðsögn um sýninguna Korriró og Dillidó
- þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar 11. febrúar kl. 14
KORRIRÓ OG DILLIDÓ 2.2. - 29.4.2018 - Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019 - Valin verk úr safneign
ORKA 14.9. - 29.4.2018
Sýning á vídeóinnsetningunni Orka eftir Steinu í Vasulka-stofu
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
TVEIR SAMHERJAR - ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 13.5.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 1.3.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Ég hata ekki Söngvakeppnina. Ég
elska hana. Sem tónlistaraðdáandi
fæ ég bara tækifæri einu sinni á ári
til að hnotabítast um viðlög og vers
við Jóa á bolnum, ömmu mína og
pitsusendilinn. Allir hafa skoðun, öll-
um finnst þetta hræðilegt í upphafi
en svo eru allir komnir saman í eina
sæng undir rest, hvetjandi sitt fólk
áfram, sem er pottþétt með besta
lag í sögu keppninnar til þessa. Við
erum auk þess að fara að mala
keppnina úti, annað eru svik Aust-
antjaldsmafíunnar. Samfélagsleg
virkni keppninnar sem allir hata að
elska og elska að hata er dásamleg.
Hér er mín sýn á lögin sex sem
verða flutt í kvöld.
Ég mun skína
Höfundar lags: Þórunn Antonía
Magnúsdóttir og Agnar Friðberts-
son
Höfundur texta: Þórunn Antonía
Magnúsdóttir
Flytjandi: Þórunn Antonía
Magnúsdóttir
Þórunn er hæfileikakona en ég er
ekki að tengja við þetta lag. Eins
einfalt og það gerist; Þórunn leggur
boðskapinn upp í versinu og svo er
farið í orkuviðlag þar sem hún „skín
og ekkert stöðvar hana“. Hún syng-
ur þetta vel og röddin er t.a.m. ríf-
andi tilfinningarík í öðru versi. Lag-
ið sem slíkt er fremur dauflegt, helst
að fínasta trommuforritun gefi því
kraft. Og það er það sem vantar
hérna, meiri kraft einhvern veginn,
meiri bombur. Lagið er nefnilega í
nákvæmlega þannig sniði en það er
eins og eitthvað hafi gloprast í út-
setningunni.
Ég og þú
Höfundar lags: Sólborg Guðbrands-
dóttir, Tómas Helgi Wehmeier og
Rob Price
Höfundur texta: Davíð Guðbrands-
son
Flytjendur: Sólborg Guðbrandsdóttir
og Tómas Helgi Wehmeier
Þekkilegasta smíð sosum, lág-
stemmd ballaða sem hækkar lítið
eitt undir restina. Maður heyrir í
lágværum kassagítarstrokum,
strengjum og píanói í fjarska. Glúrin
brú undir restina (eftir mínútu tvö)
brýtur ágætlega upp annars eintóna
flæði – sem er furðu líflaust þegar
allt er saman tekið. Það er eitthvað
bogið við þetta allt saman, það er
eins og það sé búið að stilla sæmi-
lega upp en úrvinnslan er afskaplega
máttlaus. Verst er að það heyrist
nánast ekkert í Sólborgu út lagið og
dúetta-konseptið því engan veginn
að gera sig. Sjáum til hvað gerist í
salnum, það er hægt að bjarga ýmsu
með innblásnum flutningi.
Heim
Höfundur lags og texta: Þórunn
Erna Clausen
Flytjandi: Ari Ólafsson
Ég er að fletta því upp á internet-
inu hvort Ari sé mögulega fjar-
skyldur ættingi meistara Josh Grob-
an? Skyldi þó aldrei vera. Uppleggið
er a.m.k. þannig; hvort heldur í
söng, lagasmíðum eða texta. Þetta
er klassískt söngvakeppnisform
hérna, róleg og hvíslandi byrjun, þar
sem stuðst er við píanó og svo endar
þetta þremur mínútum síðar í al-
gerri flugeldasprengingu. Líkt og
með Groban eru menn ekkert feimn-
ir við uppskrúfaða væmni (það fylgir
þessu svæði) og eftir miðbikið flýgur
Ari upp í eina almögnuðustu falsettu
sem heyrst hefur í keppni þessari.
Það er eitthvað við þetta, eldri
söngvakeppnisáhorfendur eru líkast
til fallnir fyrir drengnum, sjáum til
með snapp-kynslóðina.
Kúst og fæjó
Höfundar lags og texta: Heimilis-
tónar (Elva Ósk Ólafsdóttir, Katla
Söngvabálið
er svo bjart
Hér verður fyrri skammtur þeirra laga sem
keppa um sæti í Söngvakeppni evrópskra sjón-
varpsstöðva settur undir smásjána.
900 9902 Sólborg og Tómas Helgi
flytja dúettinn sinn Ég og þú.
900 9901 Þórunn Antonía Magnús-
dóttir flytur lag sitt Ég mun skína.
Söngvakeppnin 2018
Sjónvarpsþáttaröðin Fangar hlýtur
flestar tilnefningar til Edduverð-
launanna í ár, samtals 14. Röðin er
tilnefnd sem sjónvarpsefni ársins,
leikið sjónvarpsefni, fyrir leikstjórn,
handrit, leik kvenna í auka-
hlutverki, kvikmyndatöku, klipp-
ingu, hljóð, leikmynd, búninga,
gervi og tónlist.
Fast á hæla Föngum fylgir kvik-
myndin Undir trénu með 12 tilnefn-
ingar. Myndin er ásamt Svaninum
og Vetrarbræðrum tilnefnd sem
mynd ársins og síðan tilnefnd fyrir
leikstjórn, handrit, leik í aðal- og
aukahlutverki, klippingu, hljóð,
brellur, leikmynd og tónlist.
Þetta kom fram í gær þegar Ís-
lenska kvikmynda- og sjónvarps-
akademían (ÍKSA) kynnti tilnefn-
ingar ársins. Alls verða veitt
verðlaun í 26 flokkum auk heið-
ursverðlauna á Edduverðlauna-
hátíðinni sem fram fer 25. þessa
mánaðar á Hótel Hilton Reykjavík
Nordica og sýnd er beint á RÚV.
Bætt hefur verið við einum flokki
milli ára, þ.e. upptöku- eða útsend-
ingastjórn. Líkt og á síðasta ári
gefst almenningi kostur á að kjósa
um sjónvarpsefni ársins.
Alls sendu framleiðendur yfir
hundrað verk í keppnina í ár, en
gjaldgeng voru verk sem frumsýnd
voru opinberlega á tímabilinu 1. jan-
úar til 31. desember 2017.
Kvikmynd
Svanurinn
Undir trénu
Vetrarbræður
Leikstjórn
Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir
Svaninn
Hafsteinn Gunnar Sigurðsson fyrir
Undir trénu
Ragnar Bragason fyrir Fanga
Leikari í aðalhlutverki
Elliott Crosset Hove fyrir Vetrar-
bræður
Jóhannes Haukur Jóhannesson fyrir
Ég man þig
Steinþór Hróar Steinþórsson fyrir
Undir trénu
Leikkona í aðalhlutverki
Edda Björgvinsdóttir fyrir Undir
trénu
Gríma Valsdóttir fyrir Svaninn
Heiða Rún Sigurðardóttir fyrir
Stellu Blómkvist
Leikari í aukahlutverki
Lars Mikkelsen fyrir Vetrarbræður
Sigurður Sigurjónsson fyrir Undir
trénu
Þorsteinn Bachmann fyrir Undir
trénu
Leikkona í aukahlutverki
Nína Dögg Filippusdóttir fyrir
Fanga
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir fyrir
Fanga
Unnur Ösp Stefánsdóttir fyrir
Fanga
Handrit
Ása Helga Hjörleifsdóttir fyrir
Svaninn
Huldar Breiðfjörð og Hafsteinn
Gunnar Sigurðsson fyrir Undir
trénu
Margrét Örnólfsdóttir og Ragnar
Bragason fyrir Fanga
Kvikmyndataka
Jakob Ingimundarson fyrir Ég man
þig
Martin Neumeyer fyrir Svaninn
Árni Filippusson fyrir Fanga
Klipping
Guðni Hilmar Halldórsson fyrir
Stellu Blómkvist
Kristján Loðmfjörð fyrir Undir
trénu
Valdís Óskarsdóttir, Sigurður
Eyþórsson og Sverrir Kristjánsson
fyrir Fanga
Hljóð
Björn Viktorsson, Frank Mølgaard
Knudsen og Sylvester Holm fyrir
Undir trénu
Huldar Freyr Arnarson, Pétur
Einarsson og Daði Georgson fyrir
Fanga
Tina Andreas fyrir Svaninn
Tónlist
Daníel Bjarnason fyrir Undir trénu
Gunnar Örn Tynes og Örvar Smára-
son fyrir Svaninn
Pétur Ben fyrir Fanga
Brellur
Kontrast, Davíð Jón Ögmundsson,
Sigurgeir Arinbjarnarson og Arnar
Jónsson fyrir Stellu Blómkvist
Pétur Karlsson fyrir Svaninn
The Gentlemen Broncos, Alexander
Stjarna Edda Björgvinsdóttir er tilnefnd fyrir leik sinn
í Undir trénu, en myndin hlýtur alls 12 tilnefningar.
Sería Heiða Rún er tilnefnd fyrir túlkun sína á Stellu
Blómkvist, en serían hlýtur samtals átta tilnefningar.
Fangar með
14 tilnefningar
til Eddunnar
Undir trénu með 12 tilnefningar
Svanurinn með níu og Stella átta