Morgunblaðið - 10.02.2018, Side 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018
Falleg en varhugaverð Grýlukerti eru viðsjárverð, eins og óvætturin sem þau eru kennd við, því þau eiga það til að vera mannýg, ráðast á fólk og stanga í höfuðið. Þessi kerti eru í Breiðholti.
Ómar
Það er hljómgrunnur í
samfélaginu fyrir auðveld-
um patentlausnum. Dæmi
er mikil umræða um stytt-
ingu vinnuvikunnar. Allir
græða – enginn borgar! Í
þeirri orðræðu láist að
nefna að dagvinnuvikan á
Íslandi er sú næststysta í
Evrópu. Því miður er
byrjað á röngum enda.
Heildarvinnutími er bæði
dagvinna og yfirvinna.
Heppilegast er að byrja á því að
draga úr yfirvinnu – án þess að
stytta næst stystu virku vinnuviku
í Evrópu. Yfirvinna og álags-
greiðslur eru séreinkenni íslensks
vinnumarkaðar. Í orðræðunni eru
borin saman epli og appelsínur en
staðreyndir liggja á milli hluta.
Umsaminn dagvinnutími á Íslandi
er hvergi styttri í Evrópu, að
Frakklandi undanskildu, og hann
er styttri á Íslandi en í Danmörku,
Noregi, Svíþjóð og Þýskalandi.
Val um ráðstöfun svigrúms til
hækkunar launakostnaðar
Rauði þráðurinn í umræðunni er
að með skemmri vinnutíma megi
bæta samfélagið og stuðla að betra
jafnvægi á milli vinnu og einkalífs.
En ákvörðun og útfærsla á vinnu-
tíma á heima í kjarasamningum
milli atvinnurekanda og samtaka
starfsmanna. Viðræður um breyt-
ingar á kjarasamningum byggjast á
því hvort eða hve mikið svigrúm er
til að auka launakostnað. Ef niður-
staðan er sú að svigrúm sé til að
auka launakostnað, og samkomulag
er um að gera kjarasamning sem
auki kostnaðinn, geta samningsað-
ilar staðið frammi fyrir tveimur
valkostum. Sá fyrri er sá, sem jafn-
an er valinn, að einfaldlega að
hækka launin. Sá síðari er að
fækka umsömdum vikulegum
vinnustundum á dagvinnukaupi og
hækka tímakaupið þannig að viku-
kaupið verði óbreytt. Valið snýst
með öðrum orðum um hvort svig-
rúmi til hækkunar launakostnaðar
er varið til aukins kaupmáttar eða
aukins frítíma.
Staðreyndir um
vinnutíma
Á myndinni sést
að árlegar vinnu-
stundir í dagvinnu
eru 1.632 og er þá
miðað við 37
stundir á viku, 28
daga meðalorlof
og 11,4 sérstaka
frídaga.
Fullt starf sam-
kvæmt flestum
kjarasamningum
miðast við 37 klst.
á viku, þ.e. vinna án kaffihléa. Hjá
skrifstofufólki er virkur vinnutími
36 klst. og 15 mín. á viku. Annars
staðar á Norðurlöndum er virkur
vinnutími 37 klst. á viku. Lengri
vinnudagur á Íslandi skýrist því
ekki af fjölda dagvinnustunda sam-
kvæmt kjarasamningum.
Svigrúmi ráðstafað í hærri
laun eða aukinn frítíma
Ísland sker sig frá öðrum lönd-
um vegna þess að um 15% launa
eru greiðsla fyrir yfirvinnu en að-
eins 1% í Danmörku. Ástæða mik-
illa yfirvinnugreiðslna Íslandi er að
skipulag vinnutíma ræðst af
ósveigjanlegum kjarasamningum.
Samtök atvinnulífsins lögðu fram
tillögur í síðustu kjarasamningslotu
um að vinnutími yrði sveigjanlegri
en það hlaut ekki hljómgrunn hjá
stéttarfélögum landsins. Í kjara-
samningum er tekist á um skipt-
ingu verðmæta. Hingað til hafa fé-
lög starfsmanna lagt áherslu á
hækkun launa. Spurningin nú er
hvort launafólk vilji breyta um
áherslur í kjarasamningum. En það
verður ekki bæði haldið og sleppt.
Sama svigrúmið verður ekki nýtt
tvisvar. Að halda öðru fram er lýð-
skrum.
Sveigjanleiki er allra hagur
Það er auðveldast að stytta
vinnutíma á vinnustöðum þar sem
atvinnurekandi getur einfaldlega
skert þjónustu við viðskiptavini án
þess að það hafi áhrif á tekjur
hans. Því verður varla komið við
hjá fyrirtækjum á almennum mark-
aði. Hjá hinu opinbera leiðir stytt-
ing vinnuvikunnar til lakari þjón-
ustu. Bætt skipulag og agi, styttri
hlé og minni fjarvera vegna einka-
erinda getur þó leitt til styttingar
vinnudags þar sem því verður kom-
ið við. En það er ekki algilt. Fyrir
hagkerfið í heild þá eykst fram-
leiðni ekki með styttingu vinnuvik-
unnar. Framleiðni eykst hægum
skrefum á löngum tíma þegar
störfin verða skilvirkari vegna auk-
innar færni fólks og tækniframfara.
Annað er tálsýn.
Samtök atvinnulífsins eru fylgj-
andi því að atvinnurekendur leiti
leiða til að bjóða upp á fjöl-
skylduvænan vinnutíma. Kjara-
samningar hamla þó breytingum á
vinnustöðum þar sem of kostn-
aðarsamt er að auka sveigjanleika
starfsmanna til að skila vinnu sinni
utan við skilgreindan dagvinnutíma
í kjarasamningum. Greiðslur fyrir
vinnu utan dagvinnutíma eru mjög
háar á Íslandi samanborið við önn-
ur lönd. Einnig er í samningum
gert ráð fyrir hádegishléi til við-
bótar greiddum kaffihléum. Það
lengir vinnudaginn óhjákvæmilega.
SA vilja gjarnan endurskoða
ákvæði kjarasamninga um vinnu-
tíma og álagsgreiðslur með það að
markmiði að draga úr heildarvinnu-
tíma starfsfólks, þ.e. samtölu dag-
vinnu og yfirvinnu.
Rokk í Reykjavík
Bætt skipulag og styttri hlé kalla
á aga og verkstjórn og gerir aukn-
ar kröfur til stjórnenda. Í sömu
viku og borgarstjórn Reykjavíkur
ákveður að setja 2.200 starfsmenn
til viðbótar í tilraunaverkefni um
styttingu vinnuvikunnar, ákveður
sama borgarstjórn að kaupa þurfi
meiri yfirvinnu af borgarstarfs-
mönnum vegna manneklu. Þetta er
í sömu viku! Aðferðin felst í því að
vinnuveitandinn, Reykjavíkurborg,
setur 15 m.kr. í pott til að kaupa
yfirvinnutíma af starfsfólki sínu.
Getur verið að kaupa eigi aukna yf-
irvinnu af sömu starfsmönnum og
vinna nú minni dagvinnu í þessu
tilraunaverkefni?
Það er nú verkefni stjórnenda
Reykjavíkurborgar að gæta þess að
nýju verklagi sé haldið og hlé frá
vinnu falli ekki í sama horf og áð-
ur. Það er efni í sérstaka rannsókn
hvernig Reykjavíkurborg hefur
hugsað sér að uppfylla löggjöf um
jafnlaunavottun þegar þau hafa
stytt vinnutíma 25% starfsmanna
sinna – án þess að gera neinar
breytingar hjá hinum 75%. Þeir
sem styttri vinnutímann hafa fá
greitt hærra tímakaup fyrir jafn-
verðmæt störf. Áhugamenn fylgjast
spenntir með.
Gömul sannindi
Það eyðist sem af er tekið og
ekkert verður til úr engu. Stétt-
arfélög hafa hingað til lagt meg-
ináherslu á hækkun launa fremur
en styttingu vinnutíma. Markmið
með styttingu vinnutíma í Evrópu
hefur, oftar en ekki, verið að draga
úr atvinnuleysi – koma fleirum á
vinnumarkað. Sú staða er ekki uppi
á Íslandi heldur þvert á móti. Hér
er skortur á starfsfólki. Atvinnu-
leysi mælist um 2% og síðasta sum-
ar voru 25 þúsund erlendir starfs-
menn á vinnumarkaðnum. Hér
vantar vinnandi hendur og fleiri
vinnustundir til að sinna þeim arð-
bæru störfum sem atvinnulífið
skapar.
Á almennum vinnumarkaði væri
því eðlilegt að byrja á aðgerðum til
að fækka unnum yfirvinnustundum
og með því stytta heildarviðveru-
tíma starfsmanna á vinnustað.
Þannig yrði íslenskur vinnumark-
aður í fararbroddi við að styðja
fjölskylduvænt samfélag og fjölga
gæðastundum fólks í faðmi fjöl-
skyldunnar. Þegar því marki er
náð getur stytting vinnuvikunnar
úr 37 klst og fimm mínútum komist
á dagskrá. En ekki fyrr.
Eftir Halldór Benjamín
Þorbergsson
»Á almennum vinnu-
markaði væri því
eðlilegt að byrja á að-
gerðum til að fækka unn-
um yfirvinnustundum og
með því stytta heildar-
viðverutíma starfs-
manna á vinnustað.
Halldór Benjamín
Þorbergsson
Höfundur er framkvæmdastjóri Sam-
taka atvinnulífsins.
Að stytta sér leið en enda úti í skurði
Ársvinnutími samkvæmt Iögum eða
kjara samningum í Evrópu árið 2014
Fjöldi unninna dagvinnutíma á ári
Heimild: Eurofond, nema Ísland sem er áætlað af SA