Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 11

Morgunblaðið - 10.02.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Undirritaðir hafa verið samningar um nýtt húsnæði Hafrannsókna- stofnunar, sem mun rísa í Fornubúð- um 5 í Hafnarfirði. Samkvæmt samningnum verður húsið afhent stofnuninni 15 mánuðum frá und- irritun, að því er segir á heimasíðu stofnunarinnar. Áður hefur komið fram í Morgunblaðinu að Fornubúð- ir eignarhaldsfélag byggir húsið og leigir Hafrannsóknastofnun til 25 ára. Sigurður Guðjónsson, forstjóri Hafrannsóknastofnunar, Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, og Jón Rúnar Halldórsson, eignarhaldsfélaginu Fornubúðum ehf., undirrituðu samninginn á fimmtudag. Með nýju húsi mun starfsemi Haf- rannsóknastofnunar á höfuðborgar- svæðinu færast á einn stað en nú eru höfuðstöðvarnar á Skúlagötu 4 en geymslur og skemmur við Granda- garð. Þá munu rannsóknaskip stofn- unarinnar fá lægi við nýjan hafnar- garð sem Hafnarfjarðarhöfn mun reisa fyrir framan húsið og undirrit- uðu Sigurður og Lúðvík Geirsson, hafnarstjóri, samning þess efnis við sama tækifæri. aij@mbl.is Samningar um byggingu fyrir Hafró í Fornubúðum Í fyrra voru 56.272 flutningar inn- anlands tilkynntir til Þjóðskrár Ís- lands, sem er fækkun um 3,18% eða 1.847 tilkynningar frá árinu 2016. Flestar tilkynningar bárust Þjóð- skrá um flutninga árið 2007 eða 60.391. Í efnahagshruninu árið 2008 fækkaði flutningstilkynn- ingum niður í 51.160, sem gerir 15,3% fækkun milli áranna 2007 og 2008, segir á vef Þjóðskrár. Flutningstilkynningum fækkaði einnig árin 2009 og 2012 en síðustu ár hefur flutningstilkynningum fjölgað innanlands þar til á síðasta ári. Færri tilkynntu flutning innanlands Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is ÞRJÁR ÚLPUR Í EINNI VERÐ 59.980 gisting.dk 499 20 40 (Íslenskur sími) 32 55 20 44 (Danskur sími) Herbergi frá Dkk 300 Íbúðir frá Dkk 900 Kaupmannahöfn Mánudaginn 12. febrúar mun ég bjóða upp á kvöldnámskeið um Landið helga og átökin um það. Sérstök áhersla verður lögð á nútímann, 20. öldina og til dagsins í dag. Sagan verður rakin frá lokum Fyrri heimsstyrjaldar, dregin verður upp mynd af átakalínum, deiluaðilum og afskiptum stórveldanna og þróun alþjóðamála sem hafa haft áhrif á þessa sögu. Við munum skoða styrjaldirnar milli Ísraelsmanna og nágranna þeirra, hverjir börðust og hvernig og hvaða áhrif þær hafa haft. Umfram allt verður leitast við að skýra stöðuna eins og hún er á eins hlutlausan máta og hægt er. Í lok kvöldsins fá þátttakenndur með heim nýtt handrit um Landið helga og átök 20. aldarinnar sem ég hef tekið saman. Sjálfur hef ég ferðast með íslenska hópa um Landið helga og þekki vel til. Auk þessa þekki ég vel sögu þeirra trúarbragða sem skipta Landinu helga á milli sín, gyðingdóms, kristni og íslam og hef rannsakað hernaðarsöguna alveg sérstaklega. Upplýsingar og skráning á thorhallur33@gmail.com og í síma 891 7562. Verð 5.000 kr. Tími: 19.00 Átökin um Landið helga Sr. Þórhallur Heimisson Skoðið laxdal.is/yfirhafnir Skipholti 29b • S. 551 4422 BUXUR Mörg snið margar stærðir margir litir sem passar sérhverri konu ÚTSÖLUVÖRUR 60-70% AFSLÁTTUR Talsvert líf er í veðurkortunum um helgina. Á Suður- og Suðausturlandi verður afar hvasst í dag og fram á nóttina. Jafnvel er búist við ofsaveðri á þeim slóðum en norð- vestanstrengur mun liggja yfir land- ið. Búist er við mikilli ofankomu á Vestfjörðum og norðvestanverðu landinu með hættu á snjóflóðum. Færð mun spillast Einnig er búist við mikilli snjó- komu í Gilsfirði og í Dölunum. Hvass norðlægur hríðarbylur verður víðast hvar, sérstaklega vest- an til og seinnipart dagsins verður veður mjög slæmt á suðvesturhorn- inu þar sem færð mun líklega spillast með snjókomu og kófi en mögulega verður slydda við ströndina austan- lands. Víðast hvar verður vægt og minnkandi frost, nema mögulega við ströndina austan- og norðaustan- lands þar sem gæti verið ögn hlýrra. Annað kvöld mun koma vestanhvell- ur upp að landinu, fyrst sunnan- og suðaustanlands. Það verður hvöss vestanátt sem færist síðan austur á landið. Seint á sunnudag, jafnvel ekki fyrr en aðfaranótt mánudagsins má fyrst búast við því að veðrið byrji að ganga niður, sérstaklega austan til á landinu. Vestan og norðan til er búist við mestum snjó og skafrenn- ingi. Veðurstofan segir erfitt að spá ná- kvæmlega um veðrið á hverjum stað og vill hvetja fólk til að fylgjast grannt með veðurfréttum og veður- spám fyrir nágrenni sitt ásamt því að fylgjast með upplýsingum um færð hjá Vegagerðinni. Rétt er að minna fólk á að huga að gluggum og lausa- munum. ernayr@mbl.is Afar slæmt vetrarveður á öllu landinu um helgina  Hvass vindur, snjókoma og möguleg snjóflóðahætta Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Kafaldsbylur Veður og færð verður með versta móti um helgina. Heilbrigðisráðherra hefur skipað Birgi Jakobsson, fyrrverandi land- lækni og núverandi aðstoðarmann sinn sem formann nefndar sem gera á tillögur um aðgerðir til að sporna við mis- og ofnotkun geð- og verkjalyfja. Hópnum er ætlað að skila tillögum sínum fyrir 1. maí næstkomandi. Ásamt Birgi í hópn- um eru þau Aðalsteinn Jens Lofts- son, Áslaug Einarsdóttir, Einar Magnússon, Rúna Hauksdóttir Hvannberg, Valgerður Rúnars- dóttir, Þröstur Emilsson og Þór- gunnur Ársælsdóttir. Gegn misnotkun geð- og verkjalyfja

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.