Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Enginn myndlistarmaður hefur í jafn ríkum mæli sótt í þjóðsögur okkar og náttúru og Ásgrímur Jóns- son. Þegar hann hélt sýningu í Reykjavík árið 1905, var því fagnað að fram væri kominn listamaður sem túlkaði landið og þjóðsögurnar. Strax varð sátt meðal þjóðarinnar um útlitið; það er hvernig Ásgrímur teiknaði álfa, tröll og drauga, enda hafa þau ekki breyst mikið í með- förum seinni tíma listamanna,“ segir Rakel Pétursdóttir, deildarstjóri rannsókna og Safns Ásgríms Jóns- sonar, hjá Listasafni Íslands. Myndskreytingar við 33 þjóðsögur Á morgun, sunnudag, klukkan 14 fylgir Rakel gestum um sýninguna Korriró og Dillidó þar sem eru þjóð- sagnamyndir Ásgríms Jónssonar. Sýningin er í safnhúsinu við Frí- kirkjuveg þar sem uppi eru 59 verk sem öll eru úr safnkosti Listasafns Íslands, Safni Ásgríms Jónssonar. Auk þess er varpað á vegg um 50 ljósmyndum af öðrum verkum, með- al annars teikningum úr skissubók- um við sögurnar af Nátttröllinu, Bú- kollu og Mjaðveigu Mánadóttur. Samtals eru myndskreytingar við 33 þjóðsögur á sýningunni auk álfa- mynda sem eru ekki tengdar við ákveðnar sögur. Verkin spanna allan feril Ásgríms og er elsta verkið mál- að rétt eftir aldamótin 1900 og það yngsta vann Ásgrímur rétt fyrir andlát sitt árið 1958. Álfakirkja og baðstofa Til að brjóta upp sýningarrýmið hefur verið útbúin sérstök leikmynd í sal; álfakirkja sem skírskotar til þeirrar myndar sem blasir við þegar gengið er inn á sýninguna. Og bak- sviðs hefur verið útbúin baðstofa, hvar hlusta má á upplestur íslenskra þjóðsagna um leið og horft er á ljós- myndir af teikningum sem varpað er á skjá. Á veggjunum eru myndir úr sögunni af Nátttröllinu. „Við viljum kynna þjóðsagna- myndir, þennan einstaka menning- ararf sem um margt getur varpað ljósi á drauma og þrár genginna kynslóða og ótta sem skapast við sambúð óvæginnar náttúru og myrkurs,“ segir Rakel um sýn- inguna sem er fylgt eftir með fræðsludagskrá sem sjá má á heima- síðu safnsins. Ástríðufull túlkun Í safni Ásgríms, sem hann ánafnaði íslenska ríkinu, eru skráð 2.182 verk og þar á meðal eru um , og það eru mest teikningar. Ástríðu- fulla túlkun Ásgríms á íslenskum þjóðsögum má, að mati Rakelar, tengja við aukna þjóðernisvitund og sjálfstæðisvakningu Íslendinga sem rekja má til rómantísku stefnu nítjándu aldar. Sögurnar sem Ásgrímur sótti í voru margar; ævintýrið um Mjað- veigu Mánadóttir er sú saga sem kemur fyrir á flestum verkum Ás- gríms og af þeim eru nokkrar á sýn- ingunni. Úr sögunni Djákninn á Myrká eru átta verk, fjögur um Trunt, trunt og tröllin í fjöllunum með fjögur verk og um Skessuna á steinnökkvanum eru þrjú verk. Einnig eru uppi myndir úr sögunum frægu um Gissur í Lækjarbotnum og Nátttröllið sem fyrr er nefnt. Mætti þá margar fleiri tilgreina. Tröllin mannleg í grófleikanum „Íslendingar eru viðkvæmir fyrir myndum af íslenskum álfum og tröllum. Við samþykkjum ekki litla Nissa, eins og til eru í sagnamenn- ingu til dæmis Dana og Svía. Í huga landans eru álfar með sama útlit og menn; tröllin í öllum grófleika sínum einnig mjög mannleg,“ segir Rakel sem vekur athygli á því að oft hafi Ásgrímur gert myndir við sögur af erlendum uppruna svo sem ævintýr- ið um Mjaðveigu sem fyrr er nefnt. „Sögur sem gerast í útlöndum staðfærði Ásgrímur; kóngar, drottn- ingar, fjöll, klettar og hallir færast inn í íslenskt umhverfi. Ásgrímur hafði sterka tilfinningu fyrir lífinu í nátttúrunni segir Rakel og vísar í vatnslitamyndina af álfakirkjunni þar sem er engu líkara en auga í landinu horfi á móti. Sveigt er fram hjá álfasteinum Uppeldisgildi þjóðsagna og æv- intýra er ótvírætt og minna má á að í Flóanum, heimasveit Ásgríms, voru Mórar í lækjum og dælum sögum samkvæmt. „Það er athyglivert að sjá hvernig Ásgrímur vinnur út frá ákveðnum augnablikum í sögunum og nálgast þannig kjarna þeirra. Boðskapur í íslenskum þjóðsögum – svo sem af huldufólki – er líka gjarnan sá að bera eigi virðingu fyrir náttúrunni og þekkt er að sveigt er fram hjá þekktum álfasteinum við vegagerð og bændur slá ekki álagabletti. Slíkt segir okkur meðal annars að við þurfum að hugsa tilveru okkar og veröldina víðar en gjarnan er gert. Lífið er meira en mannlegt því til er margt sem ekki er af þessum heimi,“ segir Rakel um sýninguna sem stendur út aprílmánuð. Ríkjandi sátt um útlit tröllanna  Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar á sýningu í Listasafni Íslands  Ævintýri Mjaðveigar  Boðskapur að bera virðingu fyrir náttúrunni  Kóngar, drottningar, fjöll, klettar og hallir sjást í íslensku umhverfi Morgunblaðið/Sigurður Bogi Sagnaarfur Rakel Pétursdóttir og að baki henni er Nátttröllið, fræg per- sóna úr myndum Ásgríms sem bregður víða fyrir á yfistandandi sýningu. Ljósm/Listasafni Íslands Menning Myndskreyting Ásgríms á þjóðsögunni um Gissur í Lækjarbotnum og Skessuna í Bjólfelli, er sérstaklega lifandi, litrík og eftirtektarverð. Teikningar Í Ásgrímssafni eru um 1.500 myndir sem tengjast þjóðsögum. Ásgrímur Jónsson (1876-1958) var einn af frumherjum myndlistar á Ís- landi. Myndlist- arnám sitt hóf hann í Kaupmanna- höfn 1897 og hélt fyrstu sýningu sína hér heima þegar þrjú ár voru liðin af 20. öld. Allt frá fyrstu tíð byggð hann myndir mikið á íslenskum sög- um; svo sem af huldufólki og draugum, úti- legumönnum og fleiru. Í kynningartexta á sýningunni er tiltekið að þetta efnisval hafi sennilega – með öðru – mótast bæði af uppruna Ásgríms í íslenskri al- þýðumenningu í Flóanum í Árnessýslu á síðari hluta 19. aldar. Snemma á ferli Ásgríms birtust nokkrar þjóðsagnamyndir eftir hann í lesbókum handa börnum og unglingum og vöktu þær eftirtekt. Í safni Ásgríms Jónssonar, sem er sérstök eining innan Listasafns Ís- lands, eru um 1.500 þjóðsagna- og ævintýramyndir auk fjölda teiknibóka með þessu sama efni. Huldufólkið hélt velli Í ævibók Ásgríms Myndir og minningar sem Tómas Guðmundsson skráði segir listmálarinn frá því að lágsveitir Flóans hafi ekki verið jafn fámenn- ar og seinna hafi orðið. „Allt fram á mína daga hélt huldufólkið velli og átti sér hvarvetna bústaði í hólum og klettum. Þetta fólk komst ekki í manntal en tilvist þess var í augum fjölda manna engu að síður raunveru- leg … Ég sá reyndar aldrei til huldufólksins og hef ég þó sjálfsagt oft gert mér far um að skyggnast eftir því, en í huga mínum lifði það glöðu og lit- ríku lífi.“ Uppruni í alþýðumenningu HULDUFÓLKIÐ LIFÐI GÓÐU OG LITRÍKU LÍFI, SEGIR ÁSGRÍMUR Ásgrímssafn Brjóstmynd og fallegt Húsafellsverk. Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775 Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar tryggja betri fundarhlé. Fundarfriður áHótelÖrk ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.