Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Skeifunni 8 | Sími 588 0640 | casa.is MOVIE STAR hvíldarstóll Verð frá 398.000,- Hversu mikið sem maður veltir fyrir sér hvernig réttlætanlegt sé að byggja við úrelt og skemmd hús Land- spítalans við Hring- braut er ekki hægt að sjá skynsemina í því. Þetta hefur verið mín skoðun og eftir að hafa farið á opinn fund Samtaka um betri spítala á betri stað í Norræna húsinu þann 19. október 2017 varð sannfæringin enn meiri Að mínu mati og margra annarra, bæði sérfræðinga og meirihluta starfsfólks spítalans, er gríðarlega mikilvægt að hætta við þessi áform. Niðurstöður skýrslna sem styðja ákvörðun um stækkun LSH við Hringbraut byggja á löngu brostn- um forsendum og jafnvel forstjór- inn sjálfur sgði í ræðu sinni á fund- inum að framkvæmdin yrði úrelt innan fárra ára vegna hraðrar framþróunar í hjúkrunar- og læknavísindum. Að tengja saman um 20 byggingar á ýmsum aldri, úreltar, myglaðar með tuga metra löngum glerbygg- ingum og jarðgöngum – ekki þarf sér- fræðiþekkingu til að sjá hversu mikið glap- ræði það er. Hilmar Þór Björns- son arkitekt fór yfir samgöngulegan for- sendubrest. Í hans máli kom eftirfarandi fram Þegar ákveðið var árið 2001 að byggja við gamla Landspítalann var gerð samgöngu- áætlun sem yrði að gera samhliða og yrði þeim framkvæmdum lokið þegar nýr spítali hefði starfsemi.  Fjöldi mislægra gatnamóta víðsvegar um borgina.  Miklabraut komin í stokk.  Sundabraut komin.  Jarðgöng fyrir bílaumferð komin undir Öskjuhlíð.  Ný samgöngumiðstöð risin á þeim stað sem BSÍ stendur. Hvað af þessu er komið? Ekkert! Stækkun LSH hangir alfarið saman við Borgarlínuna. Borgarlínan verð- ur eins og Harpa, svo dýr í fram- kvæmd og rekstri að hún verður ætíð mikil byrði á skattgreiðendum. Allt umhverfi er mjög mikið breytt í Reykjavík með þeim ferðamanna- straumi og aukna íbúafjölda borg- arginnar sem engan veginn var gert ráð fyrir árið 2001. Gatnakerf- ið í miðbænum er löngu sprungið eins og allir vita. Starfsfólki LSH við Hringbraut mun fjölga um 1500 manns en bílastæðum mun fækka um 60%. Á sama fundi sýndi Guðjón Sig- urbjörnsson viðskiptafræðingur fram á gríðarlegan sparnað af því að reisa nýjan spítala á betri stað, bæði minni byggingakostnaður og svo mun minni rekstrarkostnaður. Hann benti einnig á að skemmri tíma tekur að reisa nýjan spítala á betri stað en stækkun LSH við Hringbraut. Læknar og hjúkrunarfólk sem starfa á LSH eru svo til alfarið fylgjandi nýjum spítala á nýjum stað. Vilhjálmur Ari Arason læknir á bráðamóttöku Landspítala sagðist á fundinum tala fyrir hönd margra kollega sinna og samstarfsfólks á LSH, að beitt hefði verið þöggun í sambandi við þetta mál í mörg ár og mikilvægum spurningum aldrei verið svarað. Undir þetta tók það starfsfólk spítalans sem statt var á þessum fundi og því var augljóslega nokkuð heitt í hamsi. Stöðvum þessa vitleysu, tökum Sigmund á þetta og byggjum nýjan spítala á betri stað. Keldnaholt er ákjósanlegur staður fyrir nýjan spítala og tryggir að þessi stærsti vinnustaður landsins verði áfram innan borgarmarkanna. Betri spítali á nýjum stað – það er ekki of seint Eftir Lindu Jónsdóttur »Ekki þarf sérfræði- þekkingu til að sjá hversu mikið glapræði það er að tengja saman um 20 byggingar á ýms- um aldri, úreltar og myglaðar. Linda Jónsdóttir Höfundur er í Miðflokknum í Reykjavík. Fyrirsögn þessi er fengin frá fólki fyrir margt löngu sem hafði það að orðtæki ef því blöskraði eitt- hvað. Ja, nú dámar mér ekki. Ef mig misminnir ekki þeim mun meira þá fór ég að hlusta á útvarp fimm ára gamall, enda var út- varpshlustun foreldra minna mikil eins og alls staðar í minni sveit. Ríkisútvarpið var þeim eins og þúsundum annarra einstakur upp- lýsingagjafi og oft góður gleðigjafi líka. Ríkisútvarpið gegnir enn sínu hlutverki með sóma og hvergi er að finna jafnmargþætta dagskrá og þar, hvað sem hver segir. Mér er ljóst að útvarpshlustun unga fólksins er önnur og því mið- ur miklu einhæfari, allt niður í einhverja afþreyingardagskrá sem því miður einkennist af léttmetinu einu saman. Máske segir einhver að þetta séu gamaldags viðhorf gamals manns og vel má vera að svo sé. En ástæða þess að ég hripa þessar línur eru þær furðu- fregnir að einhver nefnd eða meirihluti hennar, eflaust stór- huga í frjálslyndi sínu, leggur til að Ríkisútvarpið hverfi af auglýs- ingamarkaði. Hvað sem hver segir um okkur sem erum býsna háð Ríkisútvarpinu þá hljótum við að eiga okkar rétt til að hlusta á al- mennar tilkynningar og auglýs- ingar þó margt megi svo sem mis- jafnt um þær segja. Svo ræður þessu hver og einn hversu hlustað er. Ég vil einfaldlega að Ríkis- útvarpið okkar allra hafi sama rétt til tekjuöflunar og það hefur haft. Útvarpsgjaldið hefi ég greitt með glöðu geði hverju sinni vitandi um hið margþætta og mikilvæga hlut- verk sem við höfum falið því að inna af hendi og við viljum halda í þetta góða menningarlega hald- reipi í ólgusjó alls konar strauma og stefna. En til að fyrirbyggja allan mis- skilning þá hefi ég ekkert á móti því nema síður sé að hlynnt sé að fjöl- miðlum almennt og það má gjöra með ýmsu móti og mér lízt vel á virðisaukaskatt- sleiðina sem nú er í athugun. En svo er auðvitað rúsína í pylsuenda nefndarálitsins þar sem meiri hluti þess- arar blessuðu nefndar leggur til að leyfa bæði tóbaks- og áfengisauglýs- ingar, nokkuð sem allar stofnanir heilsuverndar víðs vegar í heim- inum eru algjörlega á móti, alveg sér í lagi vegna ungra og ómót- aðra einstaklinga. Finnst mönnum virkilega að það þurfi að bæta um betur í neyzlu áfengis og tóbaks bara af því að einhverjir ábyrgð- arlausir fjölmiðlamenn vilja ná til sín fjármunum í krafti slíkra aug- lýsinga? Og ég endurtek: Nú dámar mér ekki. Neyzla áfengis sem er oftast byrjun á annarri neyzlu er svo mikið alvörumál að einhverjir sem hafa gróðann að guði eiga ekki að leika sér að þeim eldi sem svo mörgum grand- ar eða eyðileggur. Neyzlunnar sér alltof víða stað með svo hörmuleg- um afleiðingum að til dæmis í Bretlandi eru afleiðingar áfengis- neyzlu taldar stærsta heilsufars- lega vandamálið þar í landi. Er það sérstakt kappsmál að við náum Bretunum eða erum við kannski á góðri leið að gera það? Og svo rétt í lokin: Á sama tíma og menn fara í herferð gegn notk- un tóbaks í vör dettur einhverjum það í hug að ráð sé að auglýsa það sem allra mest. Og enn segi ég eins og fólk sagði áður fyrr þegar því mislíkaði eitthvað: Nú dámar mér ekki. Nú dámar mér ekki Eftir Helga Seljan Helgi Seljan »Ríkisútvarpið gegnir enn sínu hlutverki með sóma og hvergi er að finna jafnmargþætta dagskrá. Höfundur er fyrrverandi alþingismaður. Ég byrja á að þakka fyrir jólabón- usinn, heilar 20.000 krónur. Stoltur stjórnmálamaður fór mikinn með að eldri borgarar fengju nú yfir 50.000 krónur fyr- ir jólin, vá, tók ríkið þá 30.000 krónur í skatt? Eins og svo oft áður, lítið að marka töluð orð. Að öðru, ennþá má gagn- rýna og tjá skoðanir sínar, svo hér kemur: Ég er í þjóðkirkjunni og ætla að vera þar áfram. Kirkjan býður upp á fallega tónlist og hina ýmsu siði, en það eru prestar og biskupar, sem valda mér vonbrigðum. Of mik- ið er lesið upp úr Biblíunni og svo endalaust tal þeirra um ójöfnuð, fá- tækt og kærleika, en eru síðan ekki fyrirmyndir orða sinna. Já, „Sælir eru fátækir því þeirra er himna- ríki.“ Á meðan stór hluti þjóð- arinnar er að fá 300.000 krónur í brúttólaun, þá dugar biskupi vorum ekki rúm milljón á mánuði. Henti Jesús Kristur ekki öllum sölubásum um koll í musterinu? Frú biskup, því bauðst þú ekki fólkinu sem hírist í kuldanum í Laugardalnum til friðarstundar og í mat hjá þér á aðfangadag ? Hefði það ekki verið kærleikur, sem þú brýnir aðra til að sýna, – „þú skalt gæta bróður þíns“. Já, einmitt það prestar. Það var kannski ekki rúm í hjarta þínu né í stóra húsinu. Og ekki koma með þann þvætting að biskup sé lagður í einelti af því að hún er kona. Er það þá þannig að í framtíðinni megi ekki gagnrýna konur? Miðað við framgöngu presta og biskups þá held ég að þeir hafi sleppt því að lesa kaflann í Nýja testamentinu, sem greinir frá þeim eiginleikum er kirkjunnar þjónum ber að hafa. Ríkislaun – græðgi Þeir sem ekki hafa komið sér á ríkis-, ævi- og listamannalaun hjá okkur hinum, sífellda styrki og verðlaunaaf- hendingar, – þeirra laun eru lág og jafnvel undir viðmiðum spek- inganna um lífsvið- urværi. Sé svo að helmingur tekna þjóð- arinnar fari í ríkislaun og launatengda liði, er þá báknið ekki orðið of stórt ? Tökum dómara, hvað með þá stétt? Er þeim kannski kennt með lögfræðinni að ríkið sé peningavél fyrir þá? Og fái þeir ekki óskastörfin þá skal þjóðin borga þeim skaðabætur, sumum þeirra dettur jafnvel í hug að fara fram á 30 milljónir, það eru 10 ára laun verkamanns. Hverslags frekja er þetta, er ekki allt í lagi með þetta fólk? Jú, menntun er góð sé hún ekki misnotuð og agalaus. Hvorir ætla svo að stýra þessu landi, dómarar eða Alþingi og rík- isstjórn? Að vísu dalar virðing Al- þingis því að verið er að breyta því í rannsóknarrétt, þar fer fram rannsókn á og hrært í öllu í stað þess að vinna að málefnum þjóð- arinnar. Ég stórlega efa að yngri þingmennirnir geti unnið sín störf, því þau djöflast bara í fortíðinni. Þið sem talið mest um ójöfnuð, og þar sem það er pólitískt val að halda öryrkjum og öldruðum á skammarlega lágum launum, þið gætuð samt bætt lítillega úr ójöfn- uðinum með því að lækka ykkar laun, en þið eruð á fleygiferð með græðginni. Ég get ekki borið virð- ingu fyrir ráðandi stéttum landsins, sem telja að ríkið, það er þjóðin eigi endalausa peninga og góðar stöður handa þeim. Alla tíð hefur fé þjóð- arinnar verið misnotað og ekki skánar það – enda hvar erum við stödd? Græðgi Eftir Stefaníu Jónasdóttur Stefanía Jónasdóttir »Henti Jesús Kristur ekki öllum sölubásum um koll í musterinu? Höfundur býr á Sauðárkróki. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.