Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 10.02.2018, Qupperneq 37
25 ára þegar hún veiktist alvar- lega og var flutt á Landspít- alann. Heima beið Addi mað- urinn hennar með dóttur á þriðja ári. Í ljós kom að Ragna var með snert af lömunarveiki, en sem betur fór náði hún sér að mestu. Á sama tíma var Sig- urður afi, pabbi hennar, fluttur veikur á Landspítalann og þar dó hann. Þá var í „tísku“ að „hlífa“ sjúklingum varðandi upp- lýsingar, en þegar Ragna komst loks að því að hann var dáinn, fékk hún taugaáfall sem hún náði sér aldrei af. Árin liðu. Ragna og Addi byggðu sér nýbýli á Brunnhól og hófu þar kúabúskap og voru komin með stærsta og vélvædd- asta búið í sýslunni á þeim tíma. Þá dundi næsta áfall yfir. Addi veiktist af krabbameini og lést eftir níu mánaða erfið veikindi aðeins 53 ára gamall. Þá var jörðin seld og Ragna flutti á Höfn í íbúð á Silfurbraut 10. Hún vann m.a. í mötuneyti KASK með Huldu tvíburasystur sinni. Nokkru seinna lenti hún í alvarlegu slysi þegar hún var á hjóli og keyrt var á hana svo hún slasaðist illa og náði sér aldrei. Síðar flutti hún í þjónustuíbúð við Víkurbraut á Höfn og bjó á móti Huldu tvíburasystur sinni, en þær voru mjög samrýmdar og ef til vill voru þetta bestu ár þeirra beggja. Hulda lést í byrj- un árs 2013 og var það mikill missir fyrir alla. Fyrir nokkrum árum fékk Ragna alvarlegt áfall og síðar annað. Hún var þá flutt á hjúkr- unarheimilið Skjólgarð þar sem hún lá lömuð, gat ekki tjáð sig og leið óbærilegar kvalir. Ragna var mjög vinnusöm og hreinleg og afskaplega mynd- arleg í öllum verkum. Í minning- unni var alltaf veisla á Brunn- hól. Ég naut þess að fá að fara til þeirra að heimsækja dæturn- ar þrjár. Nú er komið að kveðjustund. Hún Ragna frænka kvelst ekki lengur. Við Guðbjartur sendum Þorbjörgu, Siggerði, Svövu og fjölskyldum innilegar samúðar- kveðjur og biðjum þeim bless- unar. Kveðju mína krota ég á blað, kærar þakkir fyrir liðna daga. Í hjarta mínu átt þú ætíð stað, yljar margar stundir liðin saga. Bjartar myndir blika löngum frá bernskuára minna liðnu dögum. Löngum var þér ljúft að dvelja hjá og leika sér í grænum sumarhögum. Leiðir okkar skilja nú um skeið, skjól er fundið, lokið öllum þrautum. Sólin skín á björtum himni heið og heilsa vinir þér á nýjum brautum. (GÖ) Agnes Ingvarsdóttir. Við stóðum við afgreiðslu- borðið í mötuneyti frystihússins og spjölluðum saman, tignarleg kona og rengluleg unglings- stúlka, merktar KASK. Þegar ég gekk í burtu heyrði ég sam- starfskonu í eldhúsinu spyrja hana, eins og hálfhissa, hvort við þekktumst og hún hélt nú það. Með hlýju í röddinni staðfesti hún að við værum vinkonur. Ragna og Arnór á Brunnhól urðu vinir foreldra minna, fljót- lega eftir að þau fluttu kornung, eftir mikla erfiðleika, í fjarlægt bæjarfélag. Á Brunnhól fundum við öll okkar stað, mamma á skrafi við Rögnu í eldhúsinu, pabbi með Adda að gantast við verkin og við systkinin á harðahlaupum á eftir systrunum, sem fundu allt- af upp á einhverju skemmtilegu. Ragna var því vinkona mín frá því ég fyrst man eftir mér. Seinna flutti hún á Höfn, orðin ekkja sem þurfti að finna sig í nýju lífi, og ég sérlundaður ung- lingur. Samskiptin voru því ekki jafn sjálfsögð og áður en vin- áttan var sönn og sterk og haggaðist ekki þótt áratugir liðu. Það fann ég í hvert sinn sem ég heimsótti hana, á stop- ulum ferðum mínum austur á land, og ekki síst þegar við sát- um saman í þögn, eftir að veik- indin sviptu hana máli. Þá stóðu vináttan og væntumþykjan eftir og fylltu tómið. Ég þakka yndislegri vinkonu samfylgdina og þeim gæðahjón- um á Brunnhól allt sem þau voru mér og mínum. Dætrunum þremur og fjölskyldum þeirra sendi ég innilegustu samúðar- kveðjur. Sigrún Birna Birnisdóttir. Í dag kveðjum við hana Rögnu á Brunnhól eins og við vorum vön að kalla hana. Ragna ólst upp í stórum systkinahópi sem við kynntumst í mörgum ferðum okkar til Hafnar frá barnæsku með for- eldrum okkar. Þá fórum við gjarnan í heimsókn út á Brunn- hól til Rögnu og Adda og stelpn- anna þeirra og verða vöfflurnar góðu hennar Rögnu lengi í minnum hafðar. Kynnin urðu heldur skarpari og meiri þegar Ragna og Addi tóku Ásgeir bróður að sér í sveitavinnu, ákaflega góður tími þegar hann naut sömu umhyggju og dæt- urnar á heimilinu í faðmi fag- urra fjalla með Fláajökul nánast í túnfætinum. Vináttan varaði alla tíð, en þegar Ásgeir var að læra flug og leiðin lá austur stóð ekki á þeim Rögnu og Adda að gefa sér tíma frá heyskap i brakandi þurrki og skjótast út á flugvöll til að hitta vinnumann- inn. „Skreppa í flugtúr og sjá það sem fuglinn einn sér hátt inn við jökulrönd í sínum heima- högum“ eins og Addi orðaði það. Eftir að Addi féll frá fluttist Ragna til Hafnar, fyrst á Silf- urbrautina og síðar á Víkur- brautina, en þar bjuggu hún og Hulda tvíburasystir hennar lengst af í samtengdum íbúðum og nutu samverunnar. Við syst- kinin og mamma vorum tíðir gestir á Höfn og heimsóknirnar til þeirra systra voru fastur punktur í þeirri tilveru, ekki síst hafði Ingvar Þór gaman af að labba til þeirra enda ávallt vel- kominn. Þeir voru ófáir kaffi- bollarnir sem drukkið var úr og spáð í eða að þær komu til okk- ar í grillmat. Ragna var alltaf vel með á nótunum og fylgdist vel með sínu fólki, hafði þægilega nær- veru. Við þökkum henni allar þær ljúfu gleðistundir frá þess- um tíma sem munu ætíð lifa með okkur og gott að ylja sér við. Okkar innilegustu samúðar- kveðjur sendum við ykkur Þor- björg, Sigga, Svava og fjölskyld- um ykkar. Sesselja (Sella), Guðrún, Ásgeir, Magnús, Ingunn, Helga og fjölskyldur. MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 ✝ Einar JóhannJónsson fædd- ist 15. ágúst 1931 í Vestmannaeyjum. Hann lést á Dval- arheimilinu Hraun- búðum í Vestmannaeyjum 28. janúar 2018. Foreldrar hans voru Jón Jónasson, f. 8. ágúst 1895, d. 23. apríl 1970, og Anna Einarsdóttir, f. 9. febrúar 1895, d. 7. október 1953. Bræður Einars voru Jónas Jónsson, f. 1924, d. 2003, Jóhannes Karl Jónsson, f. 1929, d. 1930, og Karl Gunnar Jónsson, f. 1937. Einar var vörubílstjóri í Vestmanna- eyjum allan sinn starfsferil. Einar kvæntist 1956 Ragn- heiði Þorvarðardóttur, Stellu, f. 14. apríl 1930, d. 9. mars 2013. Þau eiga þrjú börn, Gunnar Rafn, Jón Garðar og Önnu. Fyr- ir átti Ragnheiður Reyni Elíe- serson. Gunnar Rafn, f. 1955, er kvæntur Laufeyju Sigurðar- dóttur, f. 1955. Þau eiga þrjú börn, Sigurð Björn, Hjörvar og Ástu Lilju, unnusti hennar er Anton Örn Björnsson. Jón Garðar, f. 1959, er kvænt- ur Hrefnu Valdísi Guðmunds- dóttur, f. 1968. Þau eiga þrjú börn og eitt barnabarn, Einar Jóhann, unn- usta hans er Heba Rún Þórðardóttir, þeirra dóttir er Ey- rún Stella, Magnús Þór og Önnu Mar- gréti. Anna, f. 1962, á fjögur börn og eitt barnabarn, Einar Örn, Andra Má, Arnar Frey, unnusta hans er Bjartey Ósk Stefánsdóttir, þeirra sonur er Ragnar Kári, Rakel Ýr, unnusti hennar er Birkir Jónasson. Reynir, f. 1950, er kvæntur El- ísabetu Halldóru Einarsdóttur, f. 1951. Þau eiga þrjú börn og sjö barnabörn, Brynjar, unnusta hans er Jónína Margrét Sveins- dóttir, þeirra synir eru Alexand- er Leó og Viktor Daði. Fyrir átti Brynjar Tryggva Rúnar. Ívar Örn, kvæntur Sigrúnu Elías- dóttur, þeirra synir eru Ernir og Orri. Ragnheiður, gift Hiroki Igarashi. Þeirra synir eru Einar og Hugo. Útför Einars fer fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum í dag, 10. febrúar 2018, og hefst athöfnin kl. 14. Fallinn er frá hetjan okkar, í orðsins fyllstu merkingu var þessi maður hetja og átti me- dalíu skilið fyrir dugnað, að gefast upp var ekki til í hans orðabók. „Ég geri þetta nú bara sjálf- ur,“ þó svo að það gæti tekið smá tíma. Hann hafði tvisvar fengið heilablóðfall og var hálf lamaður hægra megin og átti erfitt með gang. En það mátti nú ekki liggja eða sitja of lengi, það þurfti sko að hreyfa sig til að stirðna ekki upp. Var hann duglegur að fara í göngu og fór í sjúkraþjálfun tvisvar í viku frá árinu 1994 til Elíasar Friðrikssonar sjúkra- þjálfara, sem er þakkaður hans frábæri stuðningur og um- hyggja öll þessi ár. Einar hafði mikinn áhuga á fótbolta, var mikill aðdáandi ÍBV og mætti á alla leiki hjá bæði karla- og kvennaliði fé- lagsins, átti sitt stæði við völl- inn fyrir bílinn sinn sem hann sat í og horfði á leikina og var mættur klukkutíma fyrir leik til að vera búinn að koma sér fyrir áður en flautað var til leiks. Það skipti nefnilega engu máli hvar var setið, heima í stofunni eða í bílnum að bíða eftir að leikur hæfist. Einar missti konu sína árið 2013 og bjó einn þangað til hann komst inn á Hraunbúðir, Dvalarheimili aldraðra í Vest- mannaeyjum, fyrir einu og hálfu ári. Var hann mjög sáttur við vistina þar og fannst vel hugsað um sig og allir svo góðir, enda ekki annað hægt að vera við þennan öðling sem við áttum, alltaf svo þakklátur fyrir hvaða lítilræði sem gert var fyrir hann. Við fjölskyldan á Fögru- brekku erum þakklát fyrir að hafa getað eytt jólum og ára- mótum með Einari. Kæri pabbi, tengdapabbi og afi, hafðu þökk fyrir allt. Gunnar Einarsson, Laufey Sigurðardóttir, Sigurður Björn Oddgeirsson, Hjörv- ar Gunnarsson og Ásta Lilja Gunnarsdóttir. Einar Jóhann Jónsson HJARTAVERND Minningarkort 535 1800 www.hjarta.is Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, JÓHANNA KRISTÍN BJÖRNSDÓTTIR, Meistaravöllum 19, Reykjavík, lést á Borgarspítalanum í Reykjavík þriðjudaginn 30. janúar. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 12. febrúar klukkan 13. Gestur Snorrason Gísli Snorrason Kanda Kohyangphuak Jónína K. Snorradóttir Guðjón Guðmundsson Birna Rós Snorradóttir barnabörn og langömmubarn Elsku eiginmaður minn, pabbi, tengdapabbi og afi, FRANK GEORG CURTIS, Efstasundi, Reykjavík, lést þriðjudaginn 6. febrúar á Land- spítalanum við Hringbraut. Útför hans fer fram frá Laugarneskirkju föstudaginn 16. febrúar klukkan 15. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim sem vilja minnast hans er bent á Ljósið. Svala Jóhannsdóttir Þór Arnar Curtis Lára Björk Curtis Rut Eiríksdóttir Gissur Þorvaldsson Alexander, Leó, Natalía og Matthías Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærs sonar míns, stjúpsonar, bróður og stjúpbróður, ODDS ÞÓRS ÞÓRISSONAR, Hrafntóftum 2. Þökkum af öllu hjarta fyrir aðstoð og stuðning sem við höfum fengið á erfiðum tíma. Þórir Ófeigsson Sigurbjörg Björgúlfsdóttir Sindri Dagur Þórisson Sara Þórisdóttir Úlfhéðinn Þórisson Álfheiður Fanney Ásmundardóttir Ásrún Ásta Ásmundardóttir Stefán Smári Ásmundarson Kær frænka okkar, MARGRÉT SIGURJÓNSDÓTTIR, andaðist á dvalar- og hjúkrunarheimilinu Grund 8. febrúar. Útförin mun fara fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu. Aðstandendur Okkar elskaði, ÞORSTEINN JÓNSSON frá Hamri, andaðist á heimili sínu 28. janúar. Hann verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík þriðjudaginn 13. febrúar klukkan 15. Laufey Sigurðardóttir Dagný, Þórir Jökull, Böðvar Bjarki, Kolbeinn, Ása, Egill og Guðrún Þorsteinsbörn JÓHANNA SIGURBJÖRNSDÓTTIR lést 2. febrúar. Útförin fer fram frá Akraneskirkju þriðjudaginn 13. febrúar klukkan 13. Aðstandendur

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.