Morgunblaðið - 10.02.2018, Page 45

Morgunblaðið - 10.02.2018, Page 45
DÆGRADVÖL 45 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 10. FEBRÚAR 2018 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga kl. 10-18 og laugardaga kl. 11-15 ÚTSALA 20-70% afsláttur Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ígrundaðu á hvern hátt þú getur bætt samskipti þín við ættingja og fjöl- skyldu. Hvernig væri að taka frí í vinnunni og lyfta sér upp? Vingastu við náungann og hlæðu dátt. 20. apríl - 20. maí  Naut Leggðu þig fram um að tjá þig með svo ótvíræðum hætti að aðrir þurfi ekki að fara í grafgötur með hvað þú meinar. Láttu ekki ýta þér út í neitt. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Stundum hjálpar að fara eftir regl- unum þegar maður vill ná að sökkva sér ofan í vinnuna. Leggðu þig fram um að bæta sam- skipti því maður er manns gaman. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Notaðu daginn í dag til þess að hitta vini og skemmta þér. Kannski er kominn tími til að sýna leiðtogahæfileikana og taka við taumunum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Gerðu áætlanir varðandi starfsframa þinn. Þú gætir fundið til efasemda um eigið ágæti í dag og löngunar til að fela þig fyrir umheiminum. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Fróðleiksfýsnin hefur náð tökum á þér svo láttu einskis ófreistað til að svala henni. Leggðu drög að því að komast í gott ferða- lag. 23. sept. - 22. okt.  Vog Í einörðum samræðum kunna að koma upp mál sem ekki er þægilegt að ræða en verður samt að leysa. Láttu það ganga fyrir öllu öðru. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er gott og blessað að hafa áhrif á fólk með framkomu sinni. Hættu að gera lítið úr sjálfum þér; þú ert ekki verri en hver annar. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það er ekkert rangt við það að hugsa fyrst og fremst um eigið skinn. Nú er komið að því að þú hrindir hlutunum í fram- kvæmd og fylgir þeim í höfn. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þrátt fyrir að þú hafir þörf fyrir að taka til í kringum þig hentar dagurinn best til hvíldar og skemmtunar. Hóf er best á hverj- um hlut. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Nú er ekki verri tími en hver ann- ar til þess að fara í gegnum fjármálin frá a til ö. Einhver gæti gefið þér gjöf eða gert þér greiða. 19. feb. - 20. mars Fiskar Vertu viss um að þú njótir þess sem þú upplifir jafnóðum, í stað þess að vera með hugann við framtíðina. Gamalt mál úr fortíðinni lifnar við og kemur þér á óvart. Gátan er sem endranær eftirGuðmund Arnfinnsson: Fullur af lofti’ er sá með sann. Svaladrykk þér miðla kann. Gikk þann sumir óttast æ. Óvinsæll í Mosfellsbæ. Helgi R. Einarsson svarar: Glórunni nú gutlar á sem gára á sænum marga hana má víst sjá í Mosfellsbænum. Harpa á Hjarðarfelli á þessa lausn: Vindhani það vera kann. Vatnshani þér svalar. Byssuhani beyg mér vann. Býsn þar haninn galar. Knútur H. Óskarsson segir að víst sé hann líka vindhani hinn mesti og fullur af lofti, svo hann sendir ráðninguna: Lofthaninn sér vanda vann, vatnshaninn mér svala kann. Hræðast byssuhanann menn? Haninn í Mosó galar víst enn. Þannig skýrir Guðmundur gát- una: Hani montinn maður er. Miðlað drykk fær hani þér. Gikkur hani heita má. Hani í Mosfellsbæ er sá. Þá er metoo-byltingar-limra: Með andfælum bóndinn á Bala: í bólinu hrökk upp af dvala, þegar hænurnar geltu og hanann eltu, og húsfreyjan þar fór að gala. Síðan er ný gáta eftir Guðmund: Vakað hef ég nú í nótt næðisvana, meðan rótt aðrir sváfu, allt var hljótt, að mér gáta hefur sótt: Kalla má það krakkaskinn. Kannski er það sauðurinn. Sama öll við erum kyn. Ærin sú er næsta lin. Í huga Ármanns Þorgrímssonar vakna ýmsar spurningar: Mörg er raunin mannfólksins mun því fátt til varna ef allir verða hvorugkyns hver er réttur barna? Þá er það gömul vísa: Margt vill ama í sérhvert sinn, svo hefur enn til gengið; Hrútafjarðar hreppstjórinn hefur geitur fengið. Og húsgangur í lokin: Dropinn holar bergið blátt, ber svo til hann fellur þrátt, get ég lært þó gangi bágt, Guð minn styrki veikan mátt. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Allir hanar hafa kambinn Í klípu „MÁ ÞETTA BÍÐA TIL MORGUNS? ÞETTA GÆTI ORÐIÐ KÚNSTUGT OG ÉG ER EKKI Í VINNUBUXUNUM MÍNUM.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „KALLI, GETURÐU GERT VIÐ FJÖGUR SPRUNGIN DEKK?“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... þegar þú elskar og uppskerð ást til baka. GRRRRRR… VOFF! SÁSTU HVERNIG ÉG BYGGÐI UPP SPENNU MEÐ URRINU? ÉG ÞURFTI AÐ HALDA MÉR FAST HVAÐ EF VIÐ SEGJUM AÐ VIÐ VILJUM EKKI VINNA ÞEIM MEIN? Vetrarfrí í grunnskólum í Reykja-vík eru í næstu viku, á fimmtu- dag og föstudag. Það er mjög gott fyrir börnin að fá smá hlé frá dag- legri rútínu til að eyða gæðastund með fjölskyldunni. Margir foreldrar eiga kost á því að gera eitthvað með börnunum í fríinu en þetta vetrarfrí er samt einhvern veginn ekki búið að stimpla almennilega inn í samfélags- vitund þjóðarinnar. Til dæmis er árshátíð í vinnu Víkverja þessa helgi. Líka er leikur í Reykjavík- urmótinu í fótbolta í 5. flokki á sunnudeginum. Þar keppa bara lið úr Reykjavík, þannig að allir strák- arnir í liðunum eru í vetrarfríi þessa helgi. Þetta er óheppilegt því margir hafa hugsað sér til hreyfings þessa helgina, kannski búnir að panta sumarbústað eða jafnvel ferð til út- landa. x x x Vetrarfríið liggur fyrir meðmargra mánaða fyrirvara og því er alveg ástæðulaust að svona hlutir þurfi að skarast. Til dæmis getur Víkverji upplýst lesendur um það að á næsta skólaári verða vetrarfrí í grunnskólum Reykjavíkur 18.-22. október 2018 og 23.-26. febrúar 2019. Það er alveg hægt að merkja þetta strax inn í dagbókina. Fjöl- skyldur þurfa gæðatíma saman og það er gott fyrir fyrirtæki að starfs- menn þess njóti þess að geta haft gott jafnvægi á milli ábyrgðar í vinnu og fjölskyldu. x x x Áður en vetrarfríið skellur á erunokkrir skemmtilegir dagar í vændum. Á mánudaginn er bollu- dagur, á þriðjudaginn sprengidagur og á miðvikudaginn öskudagur. Allir þessir dagar brjóta upp hversdaginn og er um að gera að taka þátt í þeim. Barn Víkverja kom með þá athugs- emd af hverju það þurfi alltaf að vera svona vondur matur á íslensk- um hátíðisdögum. Honum hugnast til dæmis ekki þorramatur og líst ekkert á það sem fram er borið á sprengidag. Á móti kemur að hann öfundar Bandaríkjamenn af þakk- argjörðarhátíðinni og kalkúninum og meðlætinu sem borið er á borð þann daginn. Svona er óréttlætið í heiminum mikið. vikverji@mbl.is Víkverji Því að af náð eruð þið hólpin orðin fyrir trú. Þetta er ekki ykkur að þakka. Það er Guðs gjöf. (Efesusbréfið 2.8)

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.