Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 1 2. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  36. tölublað  106. árgangur  RÓMANTÍSK OG DAPURLEG EFNISTÖK ÖMURLEGASTI DAGURINN? BREYTT KLUKKA SKREF Í ÁTT AÐ BETRI SVEFNI ÞRIÐJI MÁNUDAGUR ÁRSINS 12 KLUKKAN LEIÐRÉTT? 6SÓLVEIG MATTHILDUR 26 Aftakaveður var á landinu um helgina. Margir sátu fastir vegna ófærðar, lokana, slysa og seink- aðra eða aflýstra ferða. Hjá Icelandair og WOW air er talið að um ellefu þúsund farþegar hafi orðið fyrir truflunum vegna röskunar á flugi. Tveir átta bíla árekstrar urðu í gær á suðvestur- horninu og ýmis minni óhöpp um landið en engin alvarleg slys á fólki. Víða voru vegir lokaðir og hætta er á snjóflóðum á Vestur- og Norðurlandi. Lögregla, Vegagerðin og björgunarsveitir stóðu í ströngu við að sinna útköllum, leiðbeiningum og lokunum. Rauði krossinn opnaði fjölda- hjálparstöðvar á Kjalarnesi og Selfossi. Morgunblaðið/Hari Snertir ellefu þúsund flugfarþega Mikið óveður gekk yfir landið um helgina og olli slysum og miklum töfum á umferð M Kafaldsbylur og slæmt skyggni »4 Stefán E. Stefánsson ses@mbl.is Stærstu lífeyrissjóðir landsins munu ekki kaupa hlut í Arion banka á grundvelli tilboðs sem Kaupskil, stærsti eigandi hans, gerðu þeim fyrir skemmstu. Þannig mun ekki verða af kaupum þeirra í bankanum í aðdraganda skráningar hans á markað. Stærstu lífeyrissjóðir lands- ins eru Lífeyrissjóður verslunar- manna, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins, Gildi lífeyrissjóður og Birta. Þetta herma áreiðanlegar heimildir Morgunblaðsins. Í Morgunblaðinu síðastliðinn mið- vikudag var greint frá því að áhugi sjóðanna á aðkomu að bankanum á þessu stigi hefði reynst minni en vænst var. Enn sem fyrr munu sjóð- irnir skoða alvarlega þann mögu- leika að eignast hlut í bankanum ef honum verður fleytt á markað. Tilboð Kaupskila til lífeyrissjóð- anna byggðist á þeirri forsendu að þeir myndu kaupa að minnsta kosti 5% hlut í bankanum á um níu millj- arða króna. Nú þegar ljóst er orðið að stærstu sjóðir landsins munu ekki ganga að tilboði Kaupskila er talið útséð með þátttöku annarra lífeyris- sjóða enda er talið ósennilegt að þeir hafi bolmagn til þess að fjárfesta í stórum stíl í bankanum. Þar ráða fjárhæðir ekki aðeins för heldur einnig sú áhætta sem talin er fylgja þeirri staðreynd að skráning bank- ans er ekki í höfn. Enn á eftir að hnýta lausa enda sem tryggja munu skráninguna. Kaupskil munu, með milligöngu Kviku banka, enn standa í viðræðum við tryggingafélög og aðra fagfjár- festa um kaup í bankanum. Stefnt er að því að ljúka þeim viðræðum fyrir lok dags á morgun. Á miðvikudag birtir bankinn ársuppgjör sitt fyrir 2017. Í dag tekur hluthafafundur Ar- ion banka til afgreiðslu tillögu um skilyrta arðgreiðslu og kaup á eigin bréfum í bankanum að fjárhæð 25 milljarðar króna. Sú aðgerð er bund- in því skilyrði að Kaupskil nái að selja að minnsta kosti 2% hlut í bankanum. Kaupa ekki í bankanum  Stærstu lífeyrissjóðir landsins koma ekki að kaupum í Arion banka að sinni  Kaupskil reyna til þrautar að fá fagfjárfesta að eignarhaldinu fyrir útboð Morgunblaðið/Eggert Eignarhald Kaupskil vinna nú að því að losa um 57% hlut sinn í Arion banka. Haustið 2015 lét dómnefnd reynslu af lögmannsstörfum ráða dómara- vali í Hæstarétt. Þrír sóttu um lausa dómarastöðu og taldi nefndin Karl Axelsson hæfastan. Það var rökstutt með reynslu Karls af lögmannsstörfum, m.a. fyr- ir óbyggðanefnd. Gunnlaugur Claessen var formað- ur dómnefndar. Hann fór líka fyrir dómnefnd vegna umsókna um dóm- arastöður við Landsrétt. Sigríður Á. Andersen dómsmála- ráðherra gerði athugasemd við til- lögu nefndarinnar. Taldi hún dóm- arareynslu eiga að vega þyngra við skipan dómara í Landsrétt. Fór svo að Karl varð hæstaréttar- dómari að tillögu nefndarinnar. Hæstiréttur taldi hins vegar Sigríði hafa farið gegn stjórnsýslulögum þegar hún tilnefndi dómara við Landsrétt. Stefán Már Stefánsson, lagapró- fessor við Háskóla Íslands, var með- al dómara sem dæmdu í máli Sigríð- ar við Hæstarétt. Hann sat í réttar- farsnefnd þegar nefndin mælti gegn valdi ráðherra við dómaraval. baldura@mbl.is »9 Morgunblaðið/Golli Skipun Nokkur styr hefur staðið um skipanir dómara að undanförnu. Mælti gegn valdi ráðherra  Dæmdi einnig í máli gegn honum  Í nýrri lands- áætlun er gert ráð fyrir að um tveimur millj- örðum króna verði varið til uppbyggingar á innviðum á ferðamannastöð- um næstu þrjú árin. 660 millj- ónum yrði því varið ár hvert til ársins 2020 en auk þess hafa 100 milljónir verið eyrna- merktar uppbyggingu við Dynj- anda og Geysi. Sérstök áhersla er lögð á að efla landvörslu en um 300 milljónir króna eru eyrnamerktar í það til viðbótar við landvörslu á vegum stofnana ríkisins. Ætlunin samkvæmt verkefnaáætlun er að „bæta stýringu umferðar ferða- manna innan svæða, auka öryggi ferðamanna og bæta upplýs- ingagjöf til þeirra“. »2 Innviðir ferða- mannastaða bættir Frí Auka á öryggi ferðamanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.