Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Hágæða umhverfisvænar hreinsivörur fyrir bílinn þinn Glansandi flottur Fást í betri byggingavöruverslunum, matvöruverslunum og bensínstöðvum. Framtíð skólans skoðuð  Flutningur Tækniskólans skoðaður á næstu misserum  Starfsemin er nú á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu  Fasteignamat bygginganna um 4,5 milljarðar króna Aron Þórður Albertsson aronthordur@mbl.is „Skólinn þarf ekki að vera á einum stað en það er auðvitað æskilegra,“ segir Jón B. Stefánsson, fráfarandi skólameistari Tækniskólans, um hugsanlega flutninga skólans í nýtt húsnæði á næstu árum. Í dag er starfsemi skólans á átta stöðum á höfuðborgarsvæðinu, m.a. á verð- mætu byggingarlandi við Háteigsveg og Frakkastíg, en heildarstærð bygginga skólans er um 25.000 fm. Samkvæmt fasteignaskrá eru lóðir skólans við Frakkastíg tæpir 10.000 fermetrar og fasteignamat bygging- anna um tveir milljarðar króna. Þá er lóð Sjómannaskólans, sem er á veg- um Tækniskólans, við Háteigsveg u.þ.b. 7.000 fermetrar að stærð og fasteignamat bygginganna tæpur milljarður króna. Þar að auki er skól- inn með byggingar í Árleyni, Flata- hrauni, Grjóthrauni, Reykjavíkur- flugvelli, Barónsstíg og Skeljanesi, en fermetrafjöldi lóðanna er talinn vera í kringum 8.500 og fasteignamat bygginganna samtals um 1.500 millj- ónir króna. Jón segir að þrátt fyrir góðar stað- setningar hafi enginn þrýstingur ver- ið settur á af hálfu ríkisins, sem á lóð- irnar, um flutning úr núverandi húsakynnum. „Það var ákvörðun stjórnar skólans að skoða ýmiss kon- ar mál, m.a. húsnæðismál. Það er ekkert sem ríkið kemur að sem stendur en auðvitað gæti það gerst á seinni stigum,“ segir Jón. Formleg vinna hefst í sumar Jón mun láta af störfum sem skóla- meistari 1. júní nk. og einbeita sér al- farið að sérverkefnum sem lúta að húsnæðismálum og skólaþróun, auk annarra verkefna er snúa að framtíð skólans. „Ég er ennþá í fullu starfi sem skólameistari og þessi verkefni eru hugsuð í beinu framhaldi af því. Þetta eru margskonar verkefni sem snúa ekki eingöngu að húsnæðismál- um skólans heldur ýmsu sem viðkem- ur því hvernig best er að hátta hlut- unum til framtíðar,“ segir Jón. Spurður hvers vegna ákveðið hafi verið að hefja skoðun á þessum mál- um nú segir Jón að sú ákvörðun hafi verið tekin af stjórn skólans. „Það var tekin innanbúðarákvörðun um að skoða málin í heild. Við erum auðvit- að með byggingar og starfsemi á mjög mörgum stöðum og það er verið að skoða hvað sé best að gera í þeim málum,“ segir Jón og bætir við að frekari fregna gæti verið að vænta síðar á þessu ári. „Við ætlum að velta þessum málum fyrir okkur en það gæti orðið eitthvað meira að frétta seinna á árinu. Það verður hins vegar ekki fyrr en á nýju ári sem það fer eitthvað í gang af fullum krafti,“ seg- ir Jón. Morgunblaðið/Ómar Tækniskólinn Flutningur skólans er meðal þess sem skoðað verður nú í sumar þegar formleg vinna hefst. Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Verja á rúmum tveimur milljörðum króna til uppbyggingar innviða á ferðamannastöðum næstu þrjú árin. Þetta kemur fram í nýrri landsáætl- un sem unnið er að um það hvernig byggja eigi upp helstu innviði til verndar náttúru og menningarsögu- legum minjum hér landi. Landsáætl- un þessi er stefnumarkandi til tólf ára um gerð innviða á ferðamanna- stöðum og verður á endanum lögð fram sem þingsályktunartillaga til samþykktar á Alþingi. Drög að þessari landsáætlun hafa verið sett fram til umsagnar á ný- stofnaðri samráðsgátt stjórnvalda. Þar geta allir kynnt sér drögin nánar og skrifað umsögn. Þetta ferli er op- ið fram til 26. febrúar næstkomandi. Í verkefnaáætlun sem fylgir þess- ari landsáætlun eru settar fram til- lögur að verkefnum á ferðamanna- stöðum, sem lagt er til að njóti stuðnings 2018-2020, auk tillagna um eflda landvörslu. Samhliða lands- áætluninni eru kynnt drög að um- hverfisskýrslu. 100 milljónir aukalega í ár Eins og áður segir skal rúmum tveimur milljörðum varið á árunum 2018-2020, 660 milljónum ár hvert, en ferðamálaráðherra hefur eyrna- merkt 100 milljónir aukalega í ár til uppbyggingar við Dynjanda og Geysi. Lagt er til að langstærsti hluti fjárveitingarinnar, um 1,5 milljarðar króna, fari til uppbyggingar ýmis- konar efnislegra innviða á skil- greindum ferðamannastöðum og ferðamannaleiðum. Sérstök áhersla er lögð á að efla landvörslu. Rúmar 300 milljónir króna eru eyrnamerkt- ar í það og er sú upphæð viðbót við þá landvörslu sem fyrir er á vegum stofnana ríkisins. „Með markvissri landvörslu er hægt að bæta stýringu umferðar ferðamanna innan svæða, auka ör- yggi ferðamanna og bæta upplýs- ingagjöf til þeirra,“ segir í drögum að verkefnaáætlun. „Auk þess er landvarsla heppilegur „óefnislegur innviður“ á stöðum þar sem ekki rík- ir einhugur um uppbyggingu efnis- legra innviða eða þar sem deilur standa um ábyrgð eða eignarhald,“ segir þar ennfremur. Tveir milljarðar í inn- viði ferðmannastaða  Drög að landsáætlun um uppbyggingu til tólf ára kynnt Morgunblaðið/Ómar Örtröð Það er jafnan margt um manninn við Geysi og bregðast þarf við. Opið ferli » Opinn kynningarfundur um landsáætlunina verður haldinn á fimmtudaginn klukkan 13.30 í atvinnuvega- og nýsköpunar- ráðuneytinu, Skúlagötu 4. » Hægt er að kynna sér efnið á samráðsgátt stjórnvalda sem opnuð var í síðustu viku. Markmið hennar er að auka gagnsæi. Þar geta allir sent inn umsögn eða ábendingar. Slóðin er samradsgatt.is- land.is. Samningar náðust milli Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflug- manna í fyrrakvöld, en samningur- inn sem var undirritaður gildir til 31. desember 2019. Hann fer nú í kynningu og atkvæðagreiðslu hjá FÍA. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair, segir að jákvæð skref hafi verið stigin með samningnum og ekki sé síður mikilvægt að samn- ingsaðilar séu sammála um að halda áfram vinnu á sömu nótum í fram- haldi af undirritun samninga. Þá er haft eftir Örnólfi Jónssyni, formanni FÍA, að með samningnum sé unnið að sameiginlegum hagsmunum Ice- landair og FÍA sem sé afar ánægju- legt. „Þannig má segja að kveðið hafi við nýjan tón sem markar nýtt upphaf í sameiginlegri vegferð FÍA og Icelandair,“ sagði Örnólfur. Nýr samningur við WOW air Nýr kjarasamningur Flugfreyju- félags Íslands og WOW air hefur einnig verið undirritaður. Samn- ingar hafa verið lausir síðan 1. októ- ber 2016, en nýr samningur mun gilda til 30. september 2020. Ráð- gert er að atkvæðagreiðsla um hann fari fram á næstu dögum. Þetta er annar kjarasamning- urinn sem gerður hefur verið við WOW air, en félagið felldi fyrri samninginn í desember. Orri Þrast- arson, varaformaður Flugfreyju- félagsins, segist þó bjartsýnn á að samningurinn verði staðfestur. Samningar náðust um helgina  Flugfélögin sömdu Atkvæðagreiðsla um mögulega úr- sögn VR úr Landssambandi versl- unarmanna og ASÍ mun að öllum lík- indum fara fram í haust. Þetta segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður fé- lagsins, í samtali við Morgunblaðið. Ragnar ráðgerir að trúnaðarráð VR muni koma saman tvívegis á næstunni og fara yfir stöðuna. „Trúnaðarráð mun halda tvo fundi. Annar fundurinn verður nýttur í að kynna kosti og galla þess að vera innan eða utan ASÍ og sá seinni til að taka endanlega ákvörðun um fram- haldið,“ segir Ragnar og bætir við að hann telji félagsmenn skiptast í þrjá hópa; fólk sem sé óánægt með for- ystu ASÍ og flokksmenn sem telji VR geta ver- ið sterkt sjálf- stætt. „Þá er þriðji hópurinn sem finnst okkur vera best borgið við núverandi skipulag, en ég tel að það sé afar þröngur hópur,“ segir Ragnar. Að sögn Ragnars verða næstu skref í málinu unnin á faglegan hátt í baklandi félagsins áð- ur en þau verða kynnt félagsmönn- um í haust. aronthordur@mbl.is Greiða atkvæði um úrsögn úr ASÍ í haust Ragnar Þór Ingólfsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.