Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 18
18 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
✝ Hanna Ásgeirs-dóttir fæddist á
Sólbakka við Ön-
undarfjörð 13.
október 1923. Hún
lést á Grund, dval-
ar- og hjúkr-
unarheimili, 3.
febrúar 2018.
Foreldrar henn-
ar voru Ásgeir
Torfason, skipstjóri
og verksmiðju-
stjóri, f. 13.12. 1877, d. 1.5. 1955,
og Ragnheiður Eiríksdóttir
húsfrú, f. 22.5. 1891, d. 13.8.
1991, sem bjuggu á Sólbakka.
Systkini Hönnu, sem öll eru
látin, voru: Torfi, f. 10.8. 1910,
Ragnar, f. 14.12. 1911, Eiríkur
Þórir, f. 9.1. 1913, María, f. 30.1.
1916, Haraldur, f. 4.5. 1918, Ön-
undur, f. 14.8. 1920, og Ásgeir, f.
17.2. 1927.
Eftir barna-
skólanám á Flat-
eyri stundaði
Hanna nám á Núps-
skóla í Dýrafirði og
Menntaskólanum á
Akureyri. Á Flat-
eyri starfaði hún
hjá Landsímanum,
Kaupfélagi Önfirð-
inga og við verslun
þeirra hjóna.
Hanna giftist 24.4. 1948
Magnúsi Konráðssyni rafvirkja-
meistara, f. 23.3. 1921, d. 18.5.
1983. Þau stofnuðu heimili á
Flateyri og þar fæddust börnin
þeirra sex á átta árum.
Börn þeirra eru: 1) Ragnheið-
ur Ásta, f. 8.2. 1949, líffræð-
ingur, gift Konráð A. Lúðvíks-
syni, þau eiga þrjú börn. 2)
Ásgeir, f. 3.3. 1950, tæknifræð-
ingur, kvæntur Ásthildi Lár-
usdóttur, þau eiga þrjú börn. 3)
Björn Konráð, f. 9.6. 1951, tölvu-
fræðingur, kvæntur Guðrúnu
Jónsdóttur, þau eiga fjóra syni.
4) Jens, f. 18.11. 1952, læknir,
kvæntur Gerði Kristjánsdóttur,
þau eiga tvö börn. 5) Torfi, f.
6.6. 1955, íþróttakennari,
kvæntur Lilju Þórisdóttur, þau
eiga tvær dætur. 6) Þorbjörg, f.
20.1. 1957, bankastarfsmaður,
gift Gylfa G. Guðjónssyni, þau
eiga þrjú börn. Barnabörnin eru
38 talsins.
Hanna annaðist börn og bú en
Magnús stundaði iðn sína og rak
rafmagnsverkstæði og verslun.
Þau fluttu síðan til Reykjavíkur
1963 þegar verkefnum fækkaði
fyrir vestan og börnin voru að
komast á framhaldsskólaaldur.
Eftir að börnin komust á legg
starfaði Hanna hjá Landsbank-
anum, þar til hún lét sjötug af
störfum.
Útför Hönnu fer fram frá
Grafarvogskirkju í dag, 12.
febrúar 2018, klukkan 13.
Guðdómleg er sú reynsla sem
mönnunum hlotnast, er þeir heyra
rödd kærleikans, vináttu og virð-
ingar þegar neyðin sverfur að. Þá
getur jafnvel sláttumaðurinn mikli
tekið á sig mynd velgjörðarmanns,
er hann mætir sem aufúsugestur.
Sá sem lifað hefur lífinu, sáð til
sinna verka, uppskorið eftir því og
fengið að njóta afraksturs má vera
sæll, þá kallið kemur. Lífið er eilíft
þeim manni sem vel lifir af því að
hann hefur bætt sína meðbræður.
Þannig kveður ritari sína ástkæru
tengdamóður hinsta kossi í líknar-
höndum velgjörðarfólksins á
hjúkrunarheimilinu Grund, þar
sem mannúð er meitluð í veggi.
Eftir snarpa, sársaukafulla sjúk-
dómslegu hvílir nú sátt og friður yf-
ir þessu andliti sem hefur verið
meðal okkar svo lengi. Umhyggju-
söm eiginkona, móðir, tengdamóð-
ir, amma og langamma, sem ætíð
var tilbúin að deila með sér af ástúð
sinni og visku. Skarpgreind var
hún með ofurminni, brunnur fróð-
leiks og frétta allt fram á síðustu
stund. Sjálfstæð í eðli sínu en ekki
sjálflæg. Hún gaf ríkulega en þáði
líka ef að henni var rétt. Sem ekkja,
eftir í hljóði syrgðan eiginmann
sinn Magnús Konráðsson, bjó hún í
35 ár umvafin umhyggju og virð-
ingu afkomenda sinna og þeirra
venslamanna sem telja 85 einstak-
linga. Það heimili sem birtist manni
í tilhugalífinu markar kannski
dýpstu spor minninganna þá horft
er til baka. Póstmannablokkin á
Grettisgötu var mótsstaður okkar
hjóna á þeim árum, íbúðin á þriðju
hæð ekki risastór á nútíma mæli-
kvarða, en virtist ætíð rúma vel
þessa níu manna fjölskyldu sem
flust hafði í bæinn frá Flateyri við
Önundarfjörð til hefja þar nýtt líf.
Amma Ragnheiður í sérstöku virð-
ingarsæti í forstofuherberginu, lét
sér aldrei verk úr hendi falla á með-
an hún iðkaði innri íhugun með
frelsara sínum. Ætíð lagði hún gott
orð til annarra. Miðsvæði íbúðar-
innar var nokkurs konar íþróttasal-
ur þar sem tápmiklir fjórir bræður
spiluðu gjarnan körfubolta að af-
loknum skóladegi. Skotmörkin
gjarnan hurðakarmar, hurðarnar
ofanverðar, húnar eða annað sem
verðugt þótti að hitta. Stofur lágu
utan valla, nema á tyllidögum þá
fáir voru heima. Einn og einn bolti
gat ratað í súpupottinn ef skot
geigaði. Stöðugur straumur gesta
sem sóttu ömmu Ragnheiði heim
og aðra á þessu margmenna heim-
ili. Störf voru unnin í hljóði og af
fyrirhyggju, aldrei í ósátt né með
hurðaskellum. Kökur bökuðust af
sjálfu sér, þvottar hengdu sig sjálf-
ir á snúrur og aldrei heyrðist í ryk-
sugu, þótt allt væri fágað og hreint.
Margir voru þeir munnar sem
þáðu þar velgjörðir og fóru mettir
heim að kveldi. Íbúðin stækkaði ef-
ir því sem fjölmenni varð meira. Í
forsvari voru þær mæðgur,
tengdamamma og amma Ragn-
heiður, nátengdar, og þurftu ekki
mörg orð í návist hvor annarrar.
Við sem sóttum okkur maka í
þennan rann höfum öll haldið hóp-
inn, þakklát fyrir það sem fyrir
okkur var haft og þann arf sem við
fengum. Móðir ritara sagði gjarnan
að sá sem veldi sér vestfirskan
sálufélaga færi aldrei einn. Þykir
það sannreynt.
Ég kveð þig með þakklæti og
virðingu, kæra tengdamóðir, megi
þú vel hvíla við hlið þíns maka.
Konráð Lúðvíksson.
Einhvern veginn er það þannig
að dauðinn kemur manni alltaf í
opna skjöldu, jafnvel þó að í nokk-
urn tíma hafi verið séð að hverju
stefndi. Hún var orðin löng ævi-
gangan hennar Hönnu og við meg-
um þakka fyrir að hafa notið henn-
ar ástríkis og nærveru svo lengi
sem raun ber vitni, en hún var á 95.
aldursári þegar hún lést. Í huga
mínum er þakklæti, mikið þakklæti
í garð tengdamömmu minnar sem
tók mér opnum örmum fyrir um 50
árum þegar ég hóf komu mína inn
á heimili þeirra öndvegishjóna
Magnúsar og Hönnu.
Tengdamamma var lengst af
hraust og gat að mestu séð um sig
sjálf fram undir það síðasta, en
veiktist illa í nóvember og eftir það
voru dagarnir henni erfiðir og hún
var því hvíldinni fegin þegar kallið
kom.
Hanna var um margt einstök
kona sem hafði til að bera flesta
kosti sem eina manneskju geta
prýtt, dugnað, kærleika og góðar
gáfur og ekki síst var hún sérlega
flink í höndunum og eftir hana ligg-
ur margt fallegt handverkið. Það
var henni því þungbært þegar
sjónin var orðin svo léleg að hún
gat ekki unnið við handavinnuna
sína. Hún hafði þá útvarp og sjón-
varp, fylgdist vel með öllu bæði inn-
anlands og utan og hafði ákveðnar
skoðanir á hlutunum. Hún gaf aldr-
ei upp hvaða stjórnmálaflokki hún
fylgdi, enda voru það örugglega
málefni frekar en einhverjar kenni-
setningar sem skiptu hana mestu.
Hanna bar mikla umhyggju fyr-
ir fjölskyldu sinni og barnabörnin
og síðar barnabarnabörnin voru
henni sérstaklega kær og þau nutu
þess að heimsækja langömmu
Hönnu, þar var alltaf eitthvað gott í
kaffitímanum. Þau eiga öll góðar
minningar um ástríki og umhyggju
ömmu sinnar og langömmu.
Fyrst sigur sá er fenginn,
fyrst sorgar þraut er genginn,
hvað getur grætt oss þá?
Oss þykir þungt að skilja,
en það er Guðs að vilja
og gott er allt, sem Guði er frá.
(V. Briem)
Ég kveð tengdamömmu mína
Hönnu Ásgeirsdóttur. Blessuð sé
minningin um góða konu, móður,
ömmu.
Ásthildur Lárusdóttir.
Elsku amma Hanna okkar hefur
kvatt okkur í síðasta skipti.
Þegar við hugsum um ömmu
Hönnu koma ótal minningar upp í
kollinn á okkur og margar hverjar
tengjast mat. Amma okkar var
besti kokkur í heimi. Amma gerði
besta lambahrygg sem við höfum
smakkað – og munum nokkurn
tímann smakka. Þó að maður kæmi
einn í heimsókn var alltaf kaffitími
fyrir tíu manns og lagt á borð með
servíettum og öllu tilheyrandi.
Amma gat ekki einu sinni borið
fram ís án þess að hafa eitthvað
einstakt með honum og heitar per-
ur með After Eight-súkkulaði eru
okkur sérstaklega minnisstæðar í
því samhengi. Henni var mikið í
mun að við barnabörnin fengjum
alltaf nóg að borða í heimsóknum
og leyfði okkur til dæmis að velja
bestu molana úr Mackintosh-
dunknum í skál til þess að borða
með kaffinu.
Amma Hanna var alltaf tilbúin
að hlusta og hún dæmdi mann aldr-
ei. Hún gat alveg slúðrað og
hneykslast á öðrum en fyrir henni
gerðum við, barnabörnin hennar,
lítið sem ekkert rangt. Enda stóð
amma alltaf með sínum, sama
hvað. En það þurfti ekki alltaf að
tala hjá ömmu. Það var oft alveg
nóg að liggja í sófanum og njóta
þess að borða súkkulaði með kaffi-
bolla, en sá staður sem færir manni
jafn mikla ró og íbúðin hennar
ömmu er vandfundinn.
Eftir að við systkinin eignuð-
umst okkar eigin börn voru þau
ekki síður dekruð af langömmu
Hönnu og spennt fyrir því að fara í
heimsókn á Grandaveginn og fá að
leika með gamla dótið í tunnunni.
Ömmu Hönnu fannst stundum erf-
itt að vera orðin gömul, að geta
ekki lengur eldað ofan í okkur öll
og dekrað við okkur eins og hana
langaði, en eins og við sögðum
henni oft hafði hún dekrað nóg við
okkur fyrir lífstíð. Það er skrýtið að
hugsa til þess að koma ekki aftur á
Grandaveginn og fá faðmlag og
koss frá ömmu. Að geta ekki legið í
sófanum og hlustað á klukkuna
hringja með kaffibolla. Að fá ekki
að segja ömmu hvað er að frétta, af
okkur og börnunum okkar.
Elsku amma Hanna, takk fyrir
allt sem þú hefur gert fyrir okkur,
bæði sem börn og sem fullorðna
einstaklinga. Minning þín lifir
áfram í okkur öllum.
Þín barnabörn,
Hanna María Gylfadóttir
Sunna Gylfadóttir
Ívar Gylfason.
Elsku hjartans amma Hanna er
búin að fá hvíldina sína.
Við sem höfum fengið að njóta
ástar og alúðar hennar kveðjum
hana full þakklætis fyrir allar þær
góðu minningar sem eftir standa.
Amma var trú og traust, fastur
punktur í tilverunni, og í amstri
dagsins var það endurnærandi og
hvíld fyrir sálina að koma til henn-
ar, finna hugarró og njóta snilldar
hennar við matargerð. Í návist
ömmu ríkti einlægni og friður.
Heimili ömmu var opið öllum þeim
er koma vildu, fullt af ást og kær-
leika.
Amma var fyrirmynd okkar í
mörgu og hefur haft jákvæð og
djúpstæð áhrif á mótun okkar sem
einstaklingar. Amma var hrein-
skiptin og skýr í hugsun og hafði
gott innsæi sem alltaf mátti treysta
í erfiðum málefnum. Hún tókst á
við lífið af einskæru æðruleysi og
sá alltaf björtu hliðarnar á tilver-
unni. Hennar lífssýn var okkur
hollt veganesti út í lífið.
Amma lagði ríka áherslu á mikil-
vægi þess að styrkja fjölskyldu-
böndin, sem að hennar mati voru
það mikilvægasta í lífinu. Hún
fylgdist ákaflega vel með öllum
barnabörnunum sínum, var virkur
þátttakandi í lífi okkar allra og tók
fagnandi á móti vinum okkar og
ástvinum. Hún var stolt af fólkinu
sínu og hennar heitasta ósk var að
við værum hamingjusöm og að fást
við það sem okkur fyndist
skemmtilegt og gefandi. Sú hvatn-
ing sem hún veitti okkur með
áhuga sínum og tiltrú var ómetan-
leg. Amma var áhugasöm um lífið
og tilveruna og fylgdist vel með því
sem var að gerast í samfélaginu.
Hún var afburðagreind kona og
fróðleiksfús og þrátt fyrir að hafa
notið lítillar skólagöngu var hún
einstaklega vel lesin á mörgum
sviðum. Hún hafði mikinn áhuga á
íþróttum og fylgdist vel með –
hvort sem það voru barnabörn að
keppa á sínum fyrstu innanfélags-
mótum eða íslensk þátttaka á stór-
mótum.
Amma var dugnaðarforkur og
hörkutól sem sjaldan lét sér falla
verk úr hendi. Heimilið hennar var
alltaf fallegt og hún hugsaði af ein-
skærri natni um umhverfi sitt.
Handavinnan var helsta afþreying
hennar og prjónaði hún iðulega og
heklaði eitthvað fallegt fyrir börn
og barnabörn. Það reyndist henni
því ekki auðvelt að tapa sjóninni en
hún tók því eins og öllu öðru með
einstöku æðruleysi. Við sem vorum
nýbúin að koma með fleiri fjöl-
skyldumeðlimi fengum iðulega að
heyra hve ömmu fannst sárt að
geta ekki fært nýburunum hand-
gerðar sængurgjafir.
Mörg barnabarnabörn eiga líka
ljúfar minningar um hana lang-
ömmu. Amma fagnaði komu þeirra
og naut þess af öllu hjarta að kynn-
ast nýjum fjölskyldumeðlimum og
hafði einlægan áhuga á öllu sem
þeim viðkom. Hún hafði óendan-
lega þolinmæði til að spila löngu
vitleysu og spjalla og svo var alltaf
eitthvað góðgæti til hjá henni. Í
hjörð afkomenda sinna naut hún
sín og minningar okkar um ömmu
Hönnu umkringda langömmu-
börnunum sínum munu alltaf
fylgja okkur.
Elsku amma Hanna, það er sárt
að kveðja þig en þú verður ávallt til
staðar í því sem við erum og ger-
um.
Þín
Eydís, Hanna Björg
og Magnús.
Við kveðjum nú elsku ömmu
okkar og langömmu og minnumst
hennar með þakklæti og hlýju.
Amma Hanna var yndisleg
manneskja, hún átti alltaf hlýjan
faðm, góðgæti og þolinmæði fyrir
öllu því sem börnum fylgir, bæði
forvitni og gleði.
Amma kenndi okkur að meta
litlu hlutina, hún hugsaði um fólkið
sitt og hlúði að því. Hún ræktaði
garðinn sinn og kunni að taka á
móti gestum.
Elsku amma, takk fyrir að passa
okkur, takk fyrir hlýjuna, ástina og
umhyggjuna. Minning þín mun lifa
með okkur og börnum okkar.
Magnús Þór, Hanna Lára,
Lárus og fjölskyldur.
Hanna
Ásgeirsdóttir
Fleiri minningargreinar
um Hönnu Ásgeirsdóttur bíða
birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
Elskuleg móðir okkar,
SVANHVÍT BJARNADÓTTIR,
Patreksfirði,
lést miðvikudaginn 10. janúar.
Útför hennar var gerð frá Patreksfjarðar-
kirkju laugardaginn 27. janúar.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu samúð og hlýhug við
fráfall hennar.
Bjarni Heiðar Sigurjónsson
Einar Árni Sigurjónsson
Sigfríður Guðbjörg Sigurjónsdóttir
Sigurður Valgeir Sigurjónsson
og fjölskyldur
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
CHEG WUSHUENG YWRÉE,
lést á Droplaugarstöðum þriðjudaginn
6. febrúar. Útförin fer fram frá Grafarvogs-
kirkju miðvikudaginn 14. febrúar klukkan
11. Sérstakar þakkir eru til starfsfólks
Droplaugarstaða fyrir einstaka umönnun.
Óli Lin Kam Yu Anna Yung Yueh Lin
Wing Wa Yu Wing Kit Yu
Áki Kim Feng Yu Dísa Chau Buu Truong
Ása Mei Ling Yu Árni Rong Hao Yu Ásgeir Rong Hui Yu Ari
Rong Liang Yu
Xiuyun Yu Chuantong Wu
Deyi Wu Anni Li
Kelly Wu
Yanping Wu
Linda Rós Wu
Yanzhen Wu Bingshun Chen
Yuwei Chen og Shiru Chen
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
GUÐNÝ ARADÓTTIR,
lést 9. febrúar sl. á Landspítalanum.
Karl Jónasson
Karl M. Karlsson Rósa P. Sigtryggsdóttir
Björg Karlsdóttir Örn Guðnason
Ari Karlsson Dóra Camilla Kristjánsdóttir
Kristjana Jónsdóttir
Björn Karlsson Svanhildur Rún Þórarinsdóttir
Gísli S. Karlsson Sigurbjörg Karlsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi, langafi, sonur og bróðir,
SIGURJÓN ÞÓRMUNDSSON
húsasmíðameistari,
er lést 8. febrúar sl., verður jarðsunginn frá
Digraneskirkju fimmtudaginn 15. febrúar
klukkan 13.
Blóm og kransar er vinsamlega afþakkað, en þeim sem vilja
minnast hans er bent á deild 11G á LSH.
Ragnheiður Lilja Georgsdóttir
Ingibjörg Brynja Hlynur Hjaltason
Þórmundur Haukur Ragna Pálsdóttir
Dagbjört Hlín Steinar Magnússon
Hólmfríður Arndal Jónsdóttir
afabörn, langafabörn og systkini
Elskulega eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
INGIGERÐUR KRISTÍN JÓNSDÓTTIR,
Ökrum í Reykjadal,
lést fimmtudaginn 8. febrúar.
Útförin fer fram í Einarsstaðakirkju
laugardaginn 17. febrúar klukkan 14.
Aðstandendur þakka starfsfólki Skógarbrekku á
Heilbrigðisstofnun Norðurlands umhyggju og hlýhug.
Þormóður Ásvaldsson
Þórveig K. Þormóðsdóttir
Ásvaldur Ævar Þormóðsson Laufey Skúladóttir
Jón S. Þormóðsson
Sigríður S. Þormóðsdóttir
Svala Guðrún Þormóðsdóttir Baldur Þorgilsson
Jörgen Heiðar Þormóðsson Gerður Ólafsdóttir
Sigurveig D. Þormóðsdóttir Jóhann Sigmarsson
barnabörn og barnabarnabörn