Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018 Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Að vera í takt við sína innri klukku og vakna í dagsbirtu hef- ur jákvæð áhrif á flesta. Almennt erum við orkumeiri og líður bet- ur þegar ástandið er þannig,“ segir Erla Björnsdóttir sálfræð- ingur. Hún er meðal fólks í starfshópi heilbrigðisráðherra sem leggur til leiðréttingu klukku til samræmis við gang sólar. Frá árinu 1968 hefur á Ís- landi gilt svonefndur miðtími þannig að klukkan er ekki í sam- ræmi við gang sólar, sem rís og sest klukkustund síðar en ef mið- að er við rétt tímabelti. Vill starfshópurinn því færa tímann fram um eina klukkustund og mun ráðherra kynna minnisblað þar að lútandi fyrir ríkisstjórn á næstunni. Tímans hjól í rugli Rannsóknir benda til að nú- verandi tímakerfi hafi neikvæð áhrif á heilsufar; klukkan í kroppnum þurfi birtuboð til að halda réttum takti og þar ráði sólarupprás miklu. Sé tímans hjól í rugli aukast líkur á ýmsum sjúkdómum, svo sem offitu, syk- ursýki og hjarta- og æða- sjúkdómum. Sömuleiðis getur þetta haft áhrif á framleiðni í at- vinnulífinu og skólastarf. „Íslenskir unglingar fara seinna að sofa en jafnaldrar er- lendis en byrja daginn á sama tíma og þeir. Af því leiðir minni svefn en ella. Of lítill svefn hefur síðan margvísleg neikvæð áhrif á líkamlega og andlega heilsu sem og félags- og fjölskyldulíf. Al- mennt er það svo að Íslendingar eru lengur í gang á morgnana en aðrir og upplifa gjarnan slen og orkuleysi,“ segir Erla. Starfsemi mannslíkamans sveiflast eftir 24 stunda dægur- takti. Líkamsklukkan stillir sig eftir ýmsum merkjum og þar er dagsbirtan mikilvægust. Sé fólk lengi í myrkri fer líkamsklukkan smám saman úr takti; seinkar sér, því hún hefur ekki birtu til að stilla sig eftir. „Það er dægursveifla í allri starfsemi líkamans. Hjá flestum er einbeiting til dæmis mest fyrir hádegi en viðbragðsflýtir upp úr hádegi og vöðvastyrkur mestur síðdegis. Unglingar eru með seinkaða dægursveiflu frá nátt- úrunnar hendi og svo bætist ís- lenska tímaskekkjan við. Krakk- ar sofa lítið á virkum dögum en bæta sér það upp um helgar. Því myndi leiðrétting gagnast þess- um hópi vel og A-týpur aðlagast fljótt,“ segir Erla og bendir á að sé klukkan færð fram um klukkutima geti krakkar farið í skólann í björtu nær allt skóla- árið. Í minnisblaði starfshópsins segir að Íslendingar fari seinna að sofa en aðrar þjóðir almennt gera. Þar segir Erla að ráði rangur tími að nokkru; við séum óbeint að nýta okkur birtuna meðan hennar nýtur við. Aðrir þættir sem hafa áhrif á svefn- og vökutíma séu skjánotkun, hreyf- ing, mataræði og lífsstíll fólks al- mennt. Þessir þættir eru líka fyr- ir hendi í löndunum í kringum okkur en það sem eftir stendur hér er rangur tími. „Leiðrétting klukkunnar leysir ekki allan vanda tengdan svefni þjóð- arinnar en er mikilvægt skref í að bæta lýðheilsu,“ segir Erla, sem er bjartsýn á að tillögur starfshópsins fái brautargengi. Slá met í því að sofa vel „Þessi umræða hefur verið tekin oft áður og þeir sem vilja breytta klukku hafa lýðheilsu- sjónarmið að leiðarljósi. Þeir sem eru á móti vísa flestir til við- skiptalegra hagsmuna, sem er at- hyglisvert,“ segir Erla. „Ég tel að breytt klukka sé fyrsta skref- ið í átt að góðum svefni Íslend- inga. Næsta skref er svo að stór- auka fræðslu um mikilvægi svefns, sem ræður svo miklu um heilsu okkar. Því miður held ég að skjánotkun Íslendinga sé of mikil, koffínneysla oft óhófleg og streita gríðarleg og allt þetta hefur áhrif á svefn. Því miður tökum við of lítið á þessum þátt- um og bregðumst of oft við með því að gefa fólki svefnlyf. Því verður að breyta og mig dreymir um að efla forvarnir, breiða út boðskap um góðan nætursvefn og sjá Íslendinga slá met í því að sofa vel.“ Klukkan verði leiðrétt og færð fram fyrir lýðheilsu þjóðarinnar Morgunblaðið/Ófeigur Blundur Ég tel að breytt klukka sé fyrsta skrefið í átt að góðum svefni Íslendinga, segir Erla Björnsdóttir. Dagsbirta er nauðsyn  Erla Björnsdóttir fæddist 1982. Lauk BA-prófi í sálfræði frá HÍ 2007 og kandídatsprófi frá Háskólanum í Árósum 2009. Er doktor í líf- og lækna- vísindum.  Með öðrum stendur Erla að sálfræðiráðgjöfinni, hún hefur haldið fjölda fyrlestra og nám- skeiða en sem sálfræðingur býður hún ráðgjöf við svefn- leysi, þunglyndi, kvíða, lélegu sjálfsmati og öðru. Hver er hún? Erna Ýr Öldudóttir ernayr@mbl.is Eikarbáturinn Saga SU 606 sökk við bryggju á Breiðdalsvík um þrjú- leytið í fyrrinótt. Talið er að bát- urinn hafi verið mannlaus en hann er gerður út á sumrin í ferðaþjón- ustu. Saga er 21 brúttótonn og var smíðuð árið 1979 á Fáskrúðsfirði sem fiskibátur. Hún hefur verið í eigu Hótels Bláfells á Breiðdalsvík frá árinu 2013. „Við vitum ekkert hvað gerðist. Vinnan í dag fór í að bjarga lausa- munum sem flutu upp í höfninni. Þetta er tuga milljóna tjón, við erum búin að bóka ferðir næstu fimm ár, en við gerum Sögu út í skemmti- ferðir í tengslum við hótelreksturinn frá maí til september,“ að sögn eig- anda hótelsins, Friðriks Árnasonar. Búið sé að tilkynna tjónið til tryggingafélagsins og frekari vinna við næstu skref byrji í dag þegar vinnuvikan hefst, en það muni m.a. þurfa að ná bátnum á flot til að rannsaka hvers vegna hann sökk. Lögreglan á Austurlandi fer með rannsókn málsins. Sökk í höfninni  Eikarbáturinn Saga SU 606 sökk við bryggju á Breiðdalsvík í fyrrinótt Ljósmynd/Hrafnkell Hannesson Sokkin Tómlegt við bryggjuna. Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Áætlaður kostnaður við fram- kvæmdir á vegum Landsvirkjunar á árinu 2018 er í heild sinni um 8,6 milljarðar króna. Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar, segir að stærstu verkefnin séu vegna nýjustu virkjananna, Þeista- reykjavirkjunar og stækkunar Búr- fells. Seinni 45 MW vél Þeista- reykjastöðvar mun fara í rekstur í vor og í framhaldi af því verður unn- ið að frágangi á svæðinu. Áætlað er að gangsetja Búrfells- stöð II í sumar og verður einnig unn- ið að frágangi þar síðar á árinu. Uppsett afl Búrfellsstöðvar II verð- ur 100 MW. Við hönnun og byggingu er gert ráð fyrir að síðar verði hægt að stækka stöðina um allt að 40 MW. Á verkstað eru núna um 190 manns við vinnu. Samanlagt er áætlað að fari um sex milljarðar króna í þessi tvö verk- efni á árinu, eða sem nemur tæpum 70% af áætluðum heildar-fram- kvæmdakostnaði ársins. Önnur verkefni snúa meðal ann- ars að endurnýjun á vél- og rafbún- aði gömlu gufuaflsstöðvarinnar í Bjarnarflagi, sem komin er til ára sinna, segir Magnús Þór. Líkt og á hverju ári verður einnig farið í fjölmörg viðhalds- og end- urbótaverkefni í orkuvirkjum í rekstri. Ráðgert er að heildarfjöldi endurbótaverkefna verði rúmlega 70 talsins, á öllum starfssvæðum fyr- irtækisins. Flest endurbótaverkefn- anna fara fram á Þjórsársvæðinu þar sem Landsvirkjun rekur sex afl- stöðvar, sem verða sjö eftir gang- setningu Búrfellsstöðvar II. Á svæð- inu er að jafnaði unninn tæplega helmingur af árlegri orkuvinnslu fyrirtækisins, sem nam rúmum 14 TWst. (teravattstundum) á árinu 2017. Landsvirkjun hefur ætíð sett sér að vera í fremstu röð orkufyrirtækja varðandi skipulag og framkvæmd viðhalds og endurnýjunar, segir Einar Mathiesen, framkvæmda- stjóri orkusviðs fyrirtækisins. Á árinu 2017 voru á dagskrá 84 endurbótaverkefni í orkuvirkjum í rekstri og er samanlagður kostnaður við þau liðlega 1.800 milljónir króna. Öflugt viðhaldskerfi Í gegnum tíðina hefur verið komið upp margvíslegum stuðningskerfum til að gera starfsemina bæði árang- ursríkari og skilvirkari. Nefnir Ein- ar í því sambandi að fyrsta tölvu- stýrða viðhaldskerfið var tekið upp fyrir um 30 árum, aðeins nokkrum árum eftir að PC-tölvur komu fyrst á markað. Í viðhaldskerfinu eru 17 afl- stöðvar með 43 vélasamstæðum sem skiptast í ótal kerfi og tæki. Alls eru 29.000 eignir skráðar í kerfinu og ár- lega gefnar út um 5.000 verkbeiðnir fyrir skoðanir og viðhald. Auk þess eru unnir margir tugir end- urbótaverkefna á ári hverju. Kostn- aður við gæslu, eftirlit, skoðanir, við- hald og endurbætur nemur um 5,5 milljörðum króna á ári, að sögn Ein- ars. Búrfellsstöð II verður gangsett næsta sumar  Landsvirkjun framkvæmir fyrir 8,6 milljarða í ár  70 viðhaldsverkefni Ljósmynd/Landsvirkjun Búrfellsstöð að vetri Uppsett afl er nú 270 MW en eykst brátt um 100 MW. lækka upphitunarkostnað Rafstjórn tekur út og þjónustar kæli- og loftræstikerfi Varmadælur Stangarhyl 1A • 110 Reykjavík • Sími 587 8890 • rafstjorn.is Verð frá kr. 181.890 m/vsk Aldrei hafa fleiri fasteignasalar út- skrifast en á föstudaginn, en 77 kandídatar úr námi til löggildingar fasteigna- og skipasala útskrifuðust frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Úr leiðsögunámi á háskólastigi út- skrifuðust 33 kandídatar. Kristín Jónsdóttir Njarðvík endurmennt- unarstjóri hélt ávarp og þakkaði að- standendum námsins fyrir ánægju- legt og mikilvægt samstarf. Hátíðarræðumaður var Kjartan Hallgeirsson, formaður Félags fast- eignasala. Hann talaði um mikilvægi nýrra laga sem krefjast löggildingar allra sem sjá um sölu fasteigna enda væru fasteignakaup stærstu kaup flestra á lífsleiðinni. Bæði Kjartan og Jón Sigfús Sig- urjónsson, kandídat úr leiðsögu- námi, sem hélt ávarp f.h. nemenda, töluðu um mikilvægi fagmennsku í báðum greinunum. ernayr@mbl.is Metfjöldi nýrra fast- eignasala

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.