Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 12.02.2018, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018 Verumgáfuð ogborðum fisk Plokkfiskur - Hollur kostur tilbúinn á 5mín. Kveðja Grímur kokkur • www.grimurkokkur.is Hollt og fljótlegt[ ] ÁNMSG P R E N T U N .IS Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Ísraelsk herflugvél var skotin niður á flugi nærri sýrlensku landamærunum á laugardaginn eftir að hafa gert loft- árásir á írönsk skotmörk í Sýrlandi. Frá þessu er sagt á fréttavefum AFP og BBC. Ísraelsk yfirvöld segjast hafa sent herflugvélar yfir Sýrland eftir að hafa skotið niður íranskan dróna sem flaug inn í lofthelgi Ísraels yfir sýrlensku landamærin. Tilgangur flugárásanna á Sýrland sé að koma í veg fyrir að ír- anskt herlið festi sig í sessi í Sýrlandi. Íran hefur veitt stjórnarher Bashars al-Assads Sýrlandsforseta margvís- lega hernaðaraðstoð gegn uppreisn- armönnum í borgarastyrjöldinni sem hefur geisað þar í landi frá árinu 2011. Meðal annars hafa Íranar útvegað fjölda vopna og mörg þúsund tonn skotfæra til að hjálpa Assad og skæruliðasamtökunum Hizbollah sem berjast með Assad í styrjöldinni. Stjórnvöld Írans hafa verið sökuð um að vilja ekki einungis skapa sér áhrifasvæði í Sýrlandi heldur einnig auðvelda sér að koma vopnum og birgðum til vígasveita Hizbollah í Líb- anon. „Tímabil nýrrar hernaðarstöðu“ „Ísrael telur Írana og sýrlenska gestgjafa þeirra ábyrga fyrir átökun- um í dag,“ sagði Benjamin Net- anyahu, forsætisráðherra Ísraels. „Við munum halda áfram að gera allt sem þarf til að vernda fullveldi okkar og öryggi.“ Yfirvöld í Íran þvertaka fyrir að hafa sent drónann inn í lofthelgi Ísr- aels og segja Sýrlendinga hafa haft rétt til að verja sig gegn loftárásum Ísraela. Sýrlenskar loftvarnabyssur skutu niður F16-orrustuflugvél Ísr- aela eftir loftárás þeirra og mun þetta vera fyrsta herflugvél sem Ísraelar hafa misst í átökum frá árinu 1982. Flugvélin brotlenti í norðurhluta Ísr- aels en báðir flugmennirnir innan- borðs skutu sér út úr vélinni í skot- sætum sínum og voru lagðir inn á sjúkrahús. Meðlimir Hizbollah fögn- uðu eyðileggingu herþotunnar og sögðu hana marka upphaf „tímabils nýrrar hernaðarstöðu“. Eftir að flugvélin var skotin niður gerðu Ísraelar aðra loftárás inn í Sýr- land. Netanyahu forsætisráðherra sagði á ríkisstjórnarfundi að Ísraelar hefðu greitt írönskum og sýrlenskum hersveitum „þungt högg“ með árás- inni. „Við höfum gert öllum það ljóst að reglur okkar um valdbeitingu munu ekki breytast á neinn hátt. Við höldum áfram að skaða alla sem reyna að skaða okkur. Þetta var og verður áfram stefna okkar.“ Sam- kvæmt ísraelska hernum var seinni árásin sú mesta sem þeir hafa gert gegn Sýrlandi síðan í Líbanonstríðinu árið 1982. Varað við auknum átökum António Guterres, framkvæmda- stjóri Sameinuðu þjóðanna, kallaði eftir því að Ísraelar og Íranar héldu átökunum í skefjum og virtu alþjóða- lög. Bandaríkjamenn lýstu yfir stuðn- ingi við Ísrael og sökuðu Írana um að ýta undir enn frekari átök í stríðs- hrjáðu landinu. Rússar, sem eru bandamenn bæði Ísraels og Írans, hvöttu báða aðila til að forðast allar aðgerðir sem gætu leitt til stigmögn- unar á átökunum. Netanyahu ræddi við Rex Tillerson, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, og Vladimír Pútín Rússlandsforseta á laugardag. „Við sköðum alla sem reyna að skaða okkur“  Ísraelar gera loftárás á Sýrland eftir að ísraelsk herflugvél var skotin niður AFP Flug Ísraelsk herþota í flugsýningu í Hatzerim-flugstöðinni fyrir nýútskrifaða herflugmenn í desember 2017. Bandaríkin styðja Ísrael » Sýrlenskar loftvarnabyssur hafa skotið á ísraelskar her- þotur a.m.k. þrisvar sinnum síðustu mánuðina en þetta er í fyrsta sinn sem þær hafa hæft. » „Ísrael er náinn bandamað- ur Bandaríkjanna og við styðj- um rétt þeirra til að verja sig gegn vígamönnum á mála hjá Írönum í suðurhluta Sýrlands,“ sagði Sarah Sanders, fjöl- miðlafulltrúi Hvíta hússins. » Íranar segjast ekki vera með neitt herlið í Sýrlandi. Þorgrímur Kári Snævarr thorgrimur@mbl.is Rússnesk farþegaflugvél með 71 mann innanborðs brotlenti fyrir ut- an Moskvu í gær. Talið er að allir innanborðs hafi látið lífið. Vélin var sjö ára gömul, af gerðinni Antonov An-148 og smíðuð í Rússlandi. Hún tilheyrði flugfélaginu Saratov-flug- leiðum og var förinni heitið frá Do- modedovo-flugvelli í Moskvu til borgarinnar Orsk í Úralfjöllum. Flugvélin hvarf af ratsjá flug- vallarins aðeins tveimur mínútum eftir að hún hóf sig til flugs. Skyggnið var með versta móti enda hefur snjókoma verið metmikil í Rússlandi síðustu daga. Vélin brot- lenti í Ramenskíj-hverfi í útjaðri Moskvu. Vegna ófærðar hafa rúss- neskar björgunarsveitir ekki getað komist að flaki vélarinnar á bílum en 150 björgunarliðar hafa verið sendir fótgangandi á staðinn. Vla- dimír Pútín Rússlandsforseti vott- aði ættingjum þeirra sem voru í vélinni samúð sína í orðsendingu frá talsmanni sínum, Dmitrí Pes- kov. AFP Ófært Björgunarbílar fyrir framan Domodedovo-flugvöllinn í Moskvu. Flugslys í Moskvu  Flugvél brotlenti í útjaðri rússnesku höfuðborgarinnar  71 talinn af Japanskir lyfjafræðingar segjast hafa fundið upp lyf sem drepi inflú- ensuveiruna á einum degi. Frá þessu er sagt á fréttavef Wall Street Journal. Um er að ræða lyf frá lyfjafyrirtækinu Shionogi & Co sem á að drepa flensuveiru eftir einn skammt á innan við 24 klst. Til samanburðar má nefna að flensu- lyfið Tamiflu nær sama árangri á þremur dögum og þarf að innbyrða það tvisvar á dag. Martin Howell Friede, sem leiðir bólusetningar- ráðgjöf Alþjóðaheilbrigðismála- stofnunarinnar, segir að lyfið gæti umbylt meðferð á inflúensu. Shion- ogi vinnur nú að því að fá leyfi fyrir sölu lyfsins í Japan. JAPAN Flensa læknuð á einum sólarhring Kvef Lyfið gæti umbylt allri meðferð á flensu um heim allan. Angela Merkel, kanslari Þýska- lands, sór þess eið á sunnudag- inn að sitja sem kanslari til ársins 2021, út yfir- standandi kjör- tímabil. Flokkur Merkel vann þýsku þingkosn- ingarnar í sept- ember í fyrra en tapaði þónokkru fylgi og hefur því gengið hægt að mynda ríkisstjórn. Flokkur hennar gerði nýlega stjórnarsáttmála við þýska jafnaðarmannaflokkinn en Merkel hefur verið gagnrýnd fyrir að gefa of mikið eftir í samn- ingnum. Jafnaðarmenn hafa enn ekki staðfest hann. ÞÝSKALAND Merkel hyggst sitja út kjörtímabilið Kanslari Angela Merkel

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.