Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
Margir hafa rekið sig á aðborgarkerfið er afar erfitt
viðureignar þegar kemur að skipu-
lagsmálum, ekki síst vegna gamalla
húsa og gróinna
hverfa. Þetta er með
miklum ólíkindum í
ljósi einstefnu
borgar-
stjórnarmeirihlut-
ans um þéttingu
byggðar, en kemur
svo sem ekki á óvart.
Framkomaborgar-
yfirvalda við eig-
endur Veghúsastígs
1 kemur þó á óvart.
Þeir hafa verið
dregnir yfir nagla-
bretti borgarkerf-
isins árum saman, gefið til kynna að
þeir megi framkvæma eins og þeir
höfðu hug á, það svo dregið til baka
og þeir neyddir til að sækja rétt sinn
í gegnum kæruleið hjá úrskurðar-
nefnd umhverfis- og auðlindamála.
Þar kom í ljós að borgin hafðibrotið á þeim og í framhaldi af
því vildu þeir fá að hitta Dag B. Egg-
ertsson borgarstjóra og leysa málið.
En þeir fengu ekki frekar en aðr-ir sem þurfa svör úr borgar-
kerfinu að hitta borgarstjóra. Þeim
var þess í stað bent á að þeir ættu að
tala við Hjálmar Sveinsson, formann
skipulagsráðs, sem hafði orðið upp-
vís að ósannindum, eins og fram
kom í niðurstöðu úrskurðarnefnd-
arinnar, og hafði í framhaldi af því
sagt sig frá málinu.
Lóðareigendur tóku þessu eðlimáls samkvæmt illa, en hvern-
ig má það vera að borgarstjóri neiti
ekki aðeins að hitta fólk sem borgin
hefur árum saman beitt órétti, held-
ur vísi því á mann sem hefur orðið
að segja sig frá málinu vegna ósann-
inda?
Dagur B.
Eggertsson
Að bæta gráu
ofan á svart
STAKSTEINAR
Hjálmar
Sveinsson
Veður víða um heim 11.2., kl. 18.00
Reykjavík -2 alskýjað
Bolungarvík -2 skafrenningur
Akureyri -5 léttskýjað
Nuuk -15 snjókoma
Þórshöfn 0 léttskýjað
Ósló -1 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 rigning
Stokkhólmur -1 snjókoma
Helsinki -3 skýjað
Lúxemborg 2 skýjað
Brussel 5 léttskýjað
Dublin 3 skúrir
Glasgow 1 rigning
London 4 skúrir
París 3 súld
Amsterdam 4 rigning
Hamborg 3 skýjað
Berlín 2 skýjað
Vín 2 léttskýjað
Moskva -5 snjóél
Algarve 14 skýjað
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 14 heiðskírt
Mallorca 14 léttskýjað
Róm 9 heiðskírt
Aþena 13 léttskýjað
Winnipeg -17 léttskýjað
Montreal -6 alskýjað
New York 7 rigning
Chicago -6 snjókoma
Orlando 24 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:33 17:52
ÍSAFJÖRÐUR 9:49 17:45
SIGLUFJÖRÐUR 9:33 17:28
DJÚPIVOGUR 9:05 17:18
Ákveðið hefur verið að hefja samstarf milli
menntamálaráðuneyta Íslands og S-Kóreu til að
efla menntun, rannsóknir og þróun. Var það gert á
fundi Kim Sang-Kon, menntamála- og varaforsæt-
isráðherra Suður-Kóreu, og Lilju Daggar Alfreðs-
dóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, í
Seúl í S-Kóreu nú fyrir helgi.
Ráðherrarnir ræddu áskoranir og framþróun
sem bæði ríkin standa frammi fyrir, en suðurkór-
eska menntakerfið hefur komið vel út í alþjóð-
legum samanburði. Kim sagði m.a. að velgengni
menntakerfisins væri góð umgjörð í kringum
kennarastarfið og S-Kórea legði mikla áherslu á
samkeppnishæft starfsumhverfi og símenntun í
breytilegu starfsumhverfi kennara.
„Þetta var mjög gagnlegur fundur sem markar
nýtt upphaf í samskiptum þjóðanna á sviði
menntamála. Suður-Kórea hefur getið sér gott orð
fyrir þróttmikið og öflugt menntakerfi,“ segir
Lilja. Fundurinn er hluti af dagskrá ráðherra, sem
undanfarna daga hefur kynnt sér suðurkóreskar
menntastofnanir. Þetta kom fram í tilkynningu frá
menntamálaráðuneytinu.
Samstarf Íslands og S-Kóreu
Menntamálaráðherrar
landanna hittust í Seúl
Ljósmynd/Menntamálaráðuneyti
Samstarf Menntamálaráðherrar á fundinum.
Bilun varð í aðalvél frystitogarans
Örfiriseyjar RE á laugardagskvöld
er skipið var að veiðum í norsku
lögsögunni í Barentshafi. Vegna
bilunarinnar er skipið vélarvana.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá HB Granda, sem gerir skipið
út. Segir í henni að samið hafi ver-
ið við norsku strandgæsluna um að
draga skipið til hafnar í Tromsø.
Að sögn Guðmundar Herberts
Bjarnasonar hjá skipaeftirliti HB
Granda varð bilunin um 60 sjómíl-
ur norður af Honningsvaag og
tengist knastás aðalvélarinnar.
Gott veður er sagt vera á svæðinu
og engin hætta á ferðum.
Sagði Guðmundur að skipin
væru væntanleg til hafnar nú í
morgunsárið. Þá bætti hann við að
tjónið tengdist ekki á neinn hátt
fyrri bilun sem varð í skrúfubún-
aði skipsins í lok október á síðasta
ári.
Vélarvana í
Barentshafi
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðar
Togari Örfirisey var smíðuð í Nor-
egi árið 1988 og er 64,55 m á lengd.
Loftpressur - stórar sem smáar