Morgunblaðið - 12.02.2018, Side 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
)553 1620
Laugarásvegi 1, 104 Reykjavík
laugaas@laugaas.is • laugaas.is
Veisluþjónusta
Lauga-ás
Afmæli
Árshátíð
Gifting
Ferming
Hvataferðir
Kvikmyndir
Íþróttafélög
Við tökum að okkur að skipuleggja
smáar sem stórar veislur.
Lauga-ás rekur farandeldhús í hæsta
gæðaflokki og getur komið hvert sem
er á landinu og sett upp gæða veislu.
Er veisla framundan hjá þér?
Hafðu samband við okkur og við
gerum þér tilboð.
Horft er til framtíðar í hönnun á fullkomnu
uppsjávarveiðiskipi Lie-útgerðarinnar í Noregi.
Ýmsar nýjungar verða í skipinu og mikið lagt
upp úr umhverfisþáttum. Nýr Libas verður
ekki keyrður á olíu heldur fljótandi náttúru-
gasi (LNG - Liquefied Natural Gas) og á raf-
magni úr stórum rafgeymum, sem mun vera
nýjung í fiskiskipi.
Skipið verður 86 metra langt og 17,80 metr-
ar á breidd og verður smíðað á næstu tveimur
árum í Cemre-skipasmíðastöðinni í Tyrklandi.
Stöðin lauk í fyrra smíði á fjórum íslenskum ís-
fisktogurum; Kaldbaki, Drangey, Björgu og
Björgúlfi.
Fyrirtækið Salt Ship Design AS hefur síð-
ustu 18 mánuði unnið að hönnun skipsins og
var niðurstaðan kynnt í síðustu viku (sjá
mynd). Fram kemur í Fiskaren í Noregi að
smíðaverðið sé um 300 milljónir norskra króna
eða hátt í fjórir milljarðar íslenkra króna.
Rifjað er upp í blaðinu að eldra skip með
sama nafni, smíðað 2004, hafi verið selt til
Eskju á Eskifirði í október 2016 fyrir 139 millj-
ónir norskra eða um 1.800 milljónir íslenskra
króna. Það skip er 94 metra langt og 17,6
metrar á breidd og var á sínum stærsta fiski-
skipið í norska flotanum. aij@mbl.is
Tölvumynd/Salt ShipDesign/Lie Gruppen
Keyrt á náttúrugasi og rafmagni
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég er mjög þakklátur fyrir þann
stuðning sem ég fékk,“ segir Har-
aldur Sverrisson, bæjarstjóri í Mos-
fellsbæ, sem varð efstur í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins í bænum á laug-
ardag.
Í öðru sæti hafnaði Ásgeir Sveins-
son, Kolbrún Þorsteinsdóttir varð í
þriðja sæti og Rúnar Bragi Guð-
laugsson í fjórða sæti. Í fimmta sæti
hafnaði Arna Hagalínsdóttir, Haf-
steinn Pálsson í því sjötta, Helga Jó-
hannesdóttir í sjöunda sæti og Krist-
ín Ýr Pálmarsdóttir í áttunda sæti.
Haraldur
kveðst ánægður
með niðurstöðu
prófkjörsins og
væntanlegan
lista.
„Það kom út úr
þessu listi sem
endurspeglar
fjölbreytileika,
bæði eftir kyni,
aldri og reynslu,“
segir bæjarstjórinn en fjórar konur
og fjórir karlar eru í átta efstu sæt-
unum.
Nokkur endurnýjun varð á listan-
um frá síðustu kosningum, en tveir
bæjarfulltrúar gáfu ekki kost á sér
áfram. Haraldi líst vel á listann.
Allir vegir færir í vor
„Ég hef tröllatrú á þessu fólki. Það
mun leggja sig allt fram fyrir sam-
félagið í Mosfellsbæ og gera góðan
bæ enn betri.“
Tæplega 700 manns tóku þátt í
prófkjörinu. Niðurstöður þess verða
nú bornar undir kjörnefnd sem stillir
upp lista, að sögn Haraldar.
„Að því loknu förum við í málefna-
vinnu og ræðum við bæjarbúa um
hvað er brýnast að gera. Með góða
málefnaskrá og flottan lista eru okk-
ur allir vegir færir í kosningunum.“
Haraldur sigraði í Mosó
Tæplega 700 kusu í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mos-
fellsbæ Bæjarstjórinn ánægður með fjölbreyttan lista
Haraldur
Sverrisson
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Heiða Björg Hilmisdóttir hafði betur
gegn Kristínu Soffíu Jónsdóttur í
baráttu um annað sætið á lista Sam-
fylkingar fyrir borgarstjórnarkosn-
ingarnar í vor. Flokksvali Samfylk-
ingarinnar lauk á laugardagskvöld.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
hlaut 87% atkvæða í fyrsta sæti
listans. Heiða Björg hlaut 1.126 at-
kvæði í fyrsta og annað sæti og Skúli
Helgason 708 atkvæði í fyrsta til
þriðja sæti. Kristín Soffía Jónsdóttir
hafnaði í fjórða sæti með 732 atkvæði
en Hjálmar Sveinsson í því fimmta
með 779 atkvæði. Þeir Skúli og
Hjálmar sóttust báðir eftir þriðja
sætinu og hafði Skúli öruggan sigur.
Þessi fimm efstu hlutu bindandi
kosningu.
Magnús Már Guðmundsson borg-
arfulltrúi er á útleið úr borgarstjórn
miðað við niðurstöður flokksvalsins.
Hann hafnaði í áttunda sæti þess.
Sabine Leskopf varaborgarfulltrúi
hafnaði í sjötta sæti og Guðrún Ög-
mundsdóttir, fyrrverandi þingkona, í
því sjöunda.
Í níunda sæti hafnaði Dóra Magn-
úsdóttir, Ellen Calmon, fyrrverandi
formaður Öryrkjabandalags Íslands,
hafnaði í tíunda sæti, Aron Leví
Beck í ellefta sæti, Sigríður Arndís
Jóhannsdóttir í því tólfta, Teitur
Atlason í þrettánda sæti og Þorkell
Heiðarsson rak lestina í fjórtánda
sæti.
Betri kjörsókn en 2014
Kjörsókn var 33,55% en alls tóku
1.852 félagsmenn Samfylkingar þátt
í flokksvalinu. Mun þetta vera betri
kjörsókn en fyrir fjórum árum. Kos-
ið var með rafrænum hætti á heima-
síðu flokksins og utan kjörfundar á
skrifstofu hans.
Sveitarstjórnarkosningarnar fara
fram hinn 26. maí næstkomandi.
Heiða Björg
náði öðru sæti
Fimm hlutu bindandi kosningu
Morgunblaðið/Hari
Sigurvegarar Hjálmar Sveinsson, Kristín Soffía Jónsdóttir, Dagur B. Eggerts-
son, Heiða Björg Hilmisdóttir og Skúli Helgason eru í fimm efstu sætunum.
Varðberg, samtök um vestræna samvinnu og öryggismál, stendur fyrir fundi
á fimmtudaginn næsta þar sem Þórunn J. Hafstein, ritari þjóðaröryggisráðs
með starfsaðstöðu í forsætisráðuneytinu, flytur erindi og svarar spurningum
um starfsemi þjóðaröryggisráðs, sem tók til starfa árið 2017. Fundurinn er
haldinn í fyrirlestrarsal Þjóðminjasafnsins á Suðurgötu.
Í stefnuyfirlýsingu hefur ríkisstjórn Íslands lagt áherslu á að öryggismál
þjóðarinnar séu í föstum skorðum. Þjóðaröryggisstefna Íslands, sem sam-
þykkt var af Alþingi, er leiðarstef í þeim efnum. Þjóðaröryggisráð er hluti af
þeirri stefnu og hefur starfsemi þess verið mótuð á undanförnum mánuðum.
Þjóðaröryggismál í brennidepli
Tekist hefur að safna þeirri upphæð
sem duga á til að flytja Sunnu Elvíru
Þorkelsdóttur, sem lamaðist eftir
fall á Spáni, heim til Íslands. Þetta
staðfestir Jón Kristinn Snæhólm í
samtali við Morgunblaðið.
Spurður hversu há upphæð hefur
safnast segir Jón Kristinn að upp-
hæðin sé yfir sex milljónir króna, en
kostnaður við að flytja Sunnu nemur
um fimm og hálfri milljón. „Söfnunin
hefur gengið mjög vel og okkur hef-
ur tekist að safna því sem safna
þurfti. Nú erum við líkt og áður að
vonast til að hún komist heim til Ís-
lands sem fyrst,“ segir Jón Kristinn
og bætir við að þegar tekist hefur að
flytja Sunnu heim verði söfnunin
gerð upp.
Jón Kristinn segir að staða Sunnu
sé enn óbreytt en hann vonist til að
einhver hreyfing verði á hennar mál-
um í vikunni. „Vinnubrögðin og allt í
kringum þetta mál hefur verið mjög
lélegt og ég ætla rétt að vona að það
gerist eitthvað núna í vikunni,“ segir
Jón Kristinn. aronthordur@mbl.is
Söfnunin
gengur vel
Um sex milljónir
safnast fyrir Sunnu