Morgunblaðið - 12.02.2018, Síða 25
DÆGRADVÖL 25
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú hefur ríka löngun til þess að að-
stoða aðra og þeir sem til þín þekkja virða
einlægan ásetning þinn. Reyndu að halda
þínu striki.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er í góðu lagi að lyfta sér upp að
loknu vel unnu dagsverki. Einhver ágrein-
ingur gæti komið upp varðandi heim-
ilisþrifin.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú finnur þig knúinn til þess að
bæta sjálfan þig, láttu endilega verða af því.
Haltu þig við efnið, það verður þess virði
þegar upp er staðið.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú stendur frammi fyrir kröfum um
aukna ábyrgð en ert eitthvað tvístígandi. Þú
átt einstaklega auðvelt með að koma auga á
málsatriði sem öðrum virðast hulin.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Samfélagið á heimtingu á því að þú
látir einhvern tímann til þín taka. Vertu op-
inn fyrir nýju fólki því ókunnugir eru í raun
vinir sem þú hefur ekki enn kynnst.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Eitthvað það liggur í loftinu sem gerir
þig óöruggan. Yfirbragð þitt sýnist kannski
teprulegt eða fjarlægt, en þú ert bara að
vanda þig.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú átt auðvelt með að leysa úr hvers
kyns vandamálum í dag. Stærðin á verkinu
skiptir ekki máli heldur natnin sem þú setur
í það.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Brjóttu odd af oflæti þínu og
þiggðu aðstoð samstarfsmanna þinna. Not-
aðu tímann þess í stað til að ganga frá laus-
um endum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Skipulag jafnt heima fyrir sem í
vinnunni er þér ofarlega í huga og ekkert at-
hugavert við það. Þig langar til þess að eiga
mikilvægt samtal við einhvern nákominn.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Notaðu daginn til þess að ganga í
félag eða samtök sem hjálpa þeim sem
minna mega sín. Gerðu það án þess að
hugsa of mikið.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú veist ekki einu sinni hver
stendur með þér þar til þú hendir þér út í
verkefnið. Haltu þínu striki og hlustaðu ekki
á raddir þeirra sem eru á annarri bylgju-
lengd en þú.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Mundu að það er hægt að lyfta sér
upp án þess að kosta miklu til. Einhver gæti
komið með áhugaverða uppástungu.
Mér varð á í messunni á þriðju-daginn þegar ég sagði að
þessi limra væri eftir Gísla Kol-
beinsson en á að sjálfsögðu að vera
Guðna Kolbeinsson og biðst ég vel-
virðingar á því:
Fraukan á Facebook var tæk;
já, fín var hún Dóra og spræk;
og einnegin Stína
og Ása og Lína
og María litla fékk like.
En Guðni brást vel við og sendi
mér „Gíslasköpun“:
Hrekkvís og baldinn er Blöndal
og býsna margt virðist hann sýsla.
Skáldmennið skýrara en Gröndal
skapaði spánnýjan Gísla.
Hér yrkir Helgi R. Einarsson um
Gunnu:
Gunna í sinni sveit
var saklaus og undirleit,
en kynntist þá Hansa,
Högna og Mansa
og Herði í einni beit.
Jón Gissurarson skrifaði á Boðn-
armjöð á miðvikudag: „Nú er
klukkan rétt að verða níu miðviku-
daginn 7.2. 2018. Daginn er mikið
farið að lengja og morgunbirtan því
farin að láta á sér kræla. Skamm-
degið verður brátt að baki.“
Gæfu prísa geng úr rúmi
gatan lýsast óðum fer.
Dagur rís úr dimmu húmi
draumavísa fæddist hér.
Hallmundur Kristinsson yrkir:
Oft mig hefur andann skort,
og mín beðið krísur.
Gott mér þætti að geta ort
gáfulegri vísur.
Og birtir síðan leiðréttingu:
Aldrei hefur andann skort,
engar beðið krísur.
Gott finnst mér að geta ort
gáfulegar vísur.
Ingólfur Ómar Ármannsson finn-
ur til smæðar sinnar!
Allt er hjal mitt einskisvert
oft hef beðið krísur.
Verst að aldrei get ég gert
gáfulegar vísur.
Þrúður Jónsdóttir í Miðhúsum
orti:
Bændur svína brúka sið,
belgja vínið sinn í kvið,
skynsemd týna og skerða frið,
skæla trýnið út á hlið
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Gíslasköpun og skamm-
degið brátt að baki
„ÞEIR BUÐU MÉR GRUNSAMLEGAN
STARFSLOKAPAKKA, SVO ÉG HRINGDI Í
LÖGGUNA OG LÉT HANDTAKA YFIRMANNINN.“
„ÉG HELD EKKI AÐ ÞÚ EIGIR AÐ BORÐA
LITLU REGNHLÍFINA.“
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... Að dreyma um sitt
eigið pláss.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
ÉG ER KÖNGULÓ NÚNA,
EN EINN DAGINN VERÐ ÉG
FALLEGT FIÐRILDI!
NEI, ÞÚ VERÐUR
ALLTAF KÖNGULÓ
Í ALVÖRUNNI?
Í ALVÖRU
NANA
NANA
NAAA
NA!
ÆI,
ÞEGIÐU!
HELGA, EF ÉG DEY Í ORRUSTU GETURÐU LIFAÐ
AF ÖLLUM PENINGUNUM SEM ÉG HEF ÞÉNAÐ Í
GEGNUM TÍÐINA!
HELDURÐU Í ALVÖRUNNI AÐ KRÁAREIGANDINN
MUNI SKILA ÞEIM?
Fyrir dyrum stendur formannskjörí Eflingu – stéttarfélagi og stend-
ur valið þar á milli tveggja kandídata.
Umræðan í tengslum við kosning-
arnar mun efalítið skerpast á næstu
dögum og þá kemur í ljós hvað Ingv-
ar Vigur Halldórsson og Sólveig
Anna Jónsdóttir hafa fram að færa.
Annars finnst Víkverja nokkuð á það
skorta innan verkalýðshreyfingar-
innar að í forsvari hennar sé fólk sem
talar beint frá hjartanu og hefur
tungutak umbjóðenda sinna. Verka-
lýðsfélögin gera margt alveg prýði-
lega og eru mikilvægar stofnanir í
samfélaginu, en þau þurfa að standa
nær fólkinu, sem aftur þarf að vera
tilbúið í baráttuna og að blanda sér í
leikinn. Að því leyti er gott mál að
Eflingarfólk eigi þess nú kost að
velja um formann, því kosningar,
hvort heldur er til sveitarstjórna, al-
þingis eða í félagssamtökum, leysa úr
læðingi ýmsa krafta svo fram koma
ný sjónarmið um breytingar til bóta.
x x x
Í fréttatímum og á félagsmiðlum síð-ustu daga hefur komið fram mas í
ferðaþjónustufólki og íbúum fyrir
austan fjall sem eru ókátir með lokun
Hellisheiðar þegar gerir vitlaust veð-
ur. Satt að segja finnst Víkverja
ósköp lítið fyrir þessa gagnrýni gef-
andi. Veðurspár í dag eru orðnar
mjög áreiðanlegar og nákvæmar, svo
lokanir vega eiga sér yfirleitt nokk-
urn aðdraganda. Að puðast yfir fjall-
vegi í hríðarbyl er aldrei nein
skemmtiferð og er þá ekki bara
ágætt mál að bíða meðan élið gengur
yfir? Fá sér kaffi rétt á meðan, líta í
blöðin og fleira þægilegt.
x x x
Víða, svo sem hjá Reykjavíkur-borg, eru nú gerðar tilraunir
með styttingu vinnutíma úr átta
klukkustundum í sex. Útkoman virð-
ist vera góð og afköst starfsmanna
ekki lakari en var. Sjálfgefið er því að
haldið verði áfram á sömu braut.
Eðlilegt er þá að skoða í leiðinni að
fella sumardaginn fyrsta, uppstign-
ingardag og aðra rauða daga á vorin
að næstu helgi sem yrði þrír dagar
þar sem fjölskyldur hefðu tækifæri
til þess að gera eitthvað skemmtilegt
saman. Alveg rakið dæmi.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann
er góður, því að miskunn hans varir
að eilífu.
(Sálmarnir 106.1)
ROYAL JARÐABERJABÚÐINGUR
... OG FÆST Í ÖLLUM BETRI
MATVÖRUVERZLUNUM LANDSINS
A�taf góður!