Morgunblaðið - 12.02.2018, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 12.02.2018, Qupperneq 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2018 Forever and a Day nefnist önnur skáldsagan sem breski rithöfund- urinn Anthony Horowitz skrifar með leyfi dánarbús Ians Fleming um James Bond upp úr þeim gögn- um sem Fleming skildi eftir sig. Frá þessu greinir The Guardian. Bókin, sem kemur út 31. maí, verður for- saga að Casino Royale, sem er fyrsta bókin sem Fleming skrifaði um njósnara hennar hátignar og út kom árið 1953. Fyrri Bond-bók Horowitz nefnist Trigger Mortis og kom út 2015. „Ég gæti ekki verið hamingju- samari yfir því að stjórnendur dán- arbús Flemming hafi boðið mér að skrifa aðra Bond-skáldsögu. Ég naut þess að skrifa Forever and a Day, þar sem ég skoða fyrsta verk- efni Bond og reyni að ímynda mér hvaða þættir hafi mótað hann og gert að því íkoni sem öll heims- byggðin þekkir í dag. Ég vona að Ian Flemming hefði verið sáttur,“ hefur The Guardian eftir Horowitz. Bók væntanleg um upphaf James Bond Sáttur Horowitz vonar að Flemming hefði verið ánægður með útkomuna. Fyrstu fjóra mánuðina eftir að leik- arinn Robin Williams svipti sig lífi 11. ágúst 2011 hækkaði sjálfsmorðs- tíðni Bandaríkjamanna um 10%. Þetta er niðurstaða rannsóknar vís- indateymis við Columbia University sem fjallað er um í PloS One. „Tíðni sjálfsmorða hækkaði bratt í Bandaríkjunum í ágúst 2014 og áberandi var hversu mörg sjálfs- morð voru framin með hengingu líkt og var tilfellið hjá Robin Williams,“ skrifar rannsóknarteymið sem David Fink leiddi. „Tíðni sjálfs- morða með hengingu jókst um 32% fyrstu fjóra mánuðina eftir andlát Williams. Til samanburðar jókst tíðni annarra sjálfsmorðsaðferða um 3%,“ segir í niðurstöðunum. Þar er bent á að sjálfsmorð þekktra einstaklinga hafi ekki endi- lega bein áhrif á sjálfsmorðstíðnina. Rifjað er upp að þegar Kurt Cobain svipti sig lífi 1994 hafði það ekki áhrif á sjálfsmorðstíðni Bandaríkja- manna. Vísindahópurinn að baki rannsókninni telur skýringuna helst liggja í þeim mun sem var á fjöl- miðlaumfjöllun um andlát þessara tveggja manna. Þegar Cobain lést var nær ekkert skrifað um hvernig andlátið bar að. En þegar Williams lést var sjónvarpað frá blaðamanna- fundi þar sem upplýst var hvernig Williams hefði notað belti sitt til að hengja sig í svefnherberginu ásamt því að skera sig á púls. Vísindateymið hefur ekki óyggj- andi sönnun fyrir því að fjölmiðla- umfjöllun um andlát Williams hafi orðið öðrum hvatning, en fréttin af andláti hans snerti við mörgum og sérstaklega „örvæntingarfullum miðaldra karlmönnum“, eins og vís- indateymið orðar það. Greining eftir kyni og aldri þeirra sem sviptu sig lífi á tímabilinu frá ágúst til desem- ber 2011 leiðir í ljós að aukning sjálfsmorða var mest meðal karl- manna á aldrinum 30-44 ára. Fjölmiðlaumfjöllun gæti skýrt aukningu Ljósmynd/Eva Rinaldi Ástsæll Robin Williams árið 2011. Smáratorgi 1, 201 Kópavogi, sími 588 6090, vl@simnet.is Verkfæralage inn Mán.-fim. kl. 9-18, fös. kl. 9-18:30, lau. kl. 10-18, sun. kl. 12-17 Miklu meira, en bara ódýrt Hálkubroddar ensínbrúsar last/Blikk , 10, 20L asaljós og lugtir, 0 gerðirÍseyðir-spray á hélaðar rúður frá 1.495 r V Bílrúðusköfur frábært úrval Snjóskóflur margar gerðir frá 1.999 Startkaplar 985 Snjósköfur margar gerðir frá 1.495 frá 495 Strekkibönd ICQC 2018-20 Miðasala og nánari upplýsingar 5% NÝ VIÐMIÐ Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR DOLBY ATMOS LUXURY · LASER Sýnd kl. 10.30 Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 10.40Sýnd kl. 8 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30 Sýnd kl. 8, 10.15 Sveinn Einarsson leikstjórihefur skrifað 224 bls. bókundir hógværa heitinu Mittlitla leiksvið. Hann leyfir lesendum að kynnast brotum úr eigin ævi og formæðra sinna og -feðra. Vettvangur hans er þó síður en svo bundinn við Ísland því að Sveinn sótti menntun sína til Stokk- hólms og Parísar fyrir utan að hafa skapað sér sess í evrópsku og al- þjóðlegu leiklistar- og menningar- starfi. Sveinn var á sínum tíma fram- bjóðandi Íslands og þar með einnig Norðurlandanna í stjórn UNESCO, Menningarmálastofnunar Samein- uðu þjóðanna. Hann hafði lýst efa- semdum um að Íslendingar sæktust eftir þessu sæti en tók áskoruninni um framboð þegar á reyndi. Þótt UNESCO-framboð sé ekki eins stórt í sniðum og að sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóð- anna verður að standa skipulega að því og afla fylgis meðal allra aðild- arþjóðanna. Auk frambjóðandans reyndi þar mest á Sigríði Snævarr sem þá var sendiherra Íslands í París, meðal annars gagnvart UNESCO. Sveinn náði kjöri, átti farsæla setu í stjórninni frá 2001 til 2005 og fékk ýmsu áorkað. Við alþjóðlega stjórnsýslu á menningarsviðinu verður varla lengra komist en í stjórn UNESCO. Bar það vott um fjölhæfni Sveins og hve víða hann hafði áunnið sér virðingu meðal stjórnenda menningarmála að Ís- land náði þessum árangri með hann sem frambjóðanda. Sveinn segir að sig hafi dreymt um að verða rithöfundur en heillast af leiklistinni og helgað henni list- ræna krafta sína. Hann hefur skrif- að mikið um ís- lenska leiklist. Má þar nefna bækurnar Leik- húsið við Tjörn- ina (1972), Níu ár í neðra (1984), Ís- lensk leiklist I, II og III (1985,1996 og 2016), Ellefu ár í efra, Þjóðleikhúsárin (2000), A People’s Theatre Comes of Age (doktorsrit 2006) Af sjónarhóli leik- stjóra (2013) og Kamban (2013) auk þess sem hann hefur samið barna- sögur, skáldsögur og fjölda leikrita. Öllu þessu hefur hann áorkað samhliða störfum leikhússtjóra, leikstjóra, stjórnanda innlendrar dagskrár ríkissjónvarpsins og menningarráðgjafa í menntamála- ráðuneytinu. Þá hafa þau Sveinn og Þóra Kristjánsdóttir, fréttamaður og listfræðingur, kona hans verið einstaklega virkir þátttakendur í ís- lensku og alþjóðlegu menningarlífi. Telur Sveinn sig hafa séð um 3.000 leiksýningar um ævina, þar að auki eru svo málverkasýningar, tón- leikar, bókmenntakynningar og aðr- ir menningarviðburðir. Sá sem kynnst hefur sögumann- inum Sveini finnst eins og hann sitji með honum á kaffi- húsi. Hann heldur óskertri athygli – kannski einmitt vegna þess að sögu- maðurinn kemur á óvart þegar hann fer óhikað úr einu í ann- að. Hann er stund- um á Íslandi en er fyrr en varir kominn á fjarlæga staði, meira að segja á fíl í Nepal eða á skugga- leik á Balí. Fjallað er af jafnnæmri til- finningu um það þegar höfundurinn heyrði Birgit Nils- son syngja í fyrsta sinn í óperunni í Stokkhólmi og samskipti hans við eigin heimilisketti og annarra. Í samtali við blaðamann Morgun- blaðsins um bókina sagði Sveinn: „Þetta er hvorki ævisaga né endur- minningar í hefðbundnum stíl. Þetta eru minningaleiftur. Eigin- lega er þetta samsafn af örsögum eða dæmisögum sem margar hverj- ar eru líka skemmtisögur.“ Snert er við lesandanum af því að orðin koma beint frá hjartanu, um- búðalaust og ætíð af velvild og um- hyggju, ekki síst þegar Sveinn skrifar um Þóru, Ástu Kristjönu, dóttur þeirra, og Þóru Djunu, dótt- urdóttur. Stundum sækir á hugann að bókin sé skrifuð fyrir þær en okkur hinum sé boðið að hlusta á sögumanninn góða. Bókin er snotur í litlu broti, text- inn er lifandi og auðlesinn á hvítum pappír. Prófarkalestur hefði mátt vera betri. Sveinn skrifar texta sinn ekki til að gera upp við menn og málefni heldur til að miðla og skemmta. Hvergi er vegið að neinum heldur litið til þess sem samtímamenn heima og erlendis gefa. Virðing Sveins fyrir menningararfinum og ræktun hans leynir sér hvergi. Morgunblaðið/Golli Höfundurinn „Snert er við lesandanum af því að orð- in koma beint frá hjartanu, umbúðalaust og ætíð af velvild og umhyggju,“ segir um minningar Sveins. Minningaleiftur menningarmanns Endurminningar Mitt litla leikhús bbbmn Eftir Svein Einarsson Mál og menning, 2017. Innb., 224 bls. BJÖRN BJARNASON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.