Morgunblaðið - 12.02.2018, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 12.02.2018, Qupperneq 32
MÁNUDAGUR 12. FEBRÚAR 43. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1. Leiðinlegasta útgáfa sem gat komið 2. Fékk næstum stjórnlausan bíl á sig 3. Átta bíla árekstur í Kópavogi 4. Stormurinn nálgast hámarkið »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Strengjasveitin Íslenskir strengir heldur tónleika kl. 21 annað kvöld í Safnahúsinu við Hverfisgötu og er yf- irskrift tónleikanna Íslenskur tangó. Á efnisskránni verða strengjasveitar- verk eftir tvö finnsk tónskáld, Eino- juhani Rautavaara og Jean Sibelius, og leikur strengjasveitin einnig þrjár tangótónsmíðar eftir Hafdísi Bjarna- dóttur við ljóð Einars Más Guð- mundssonar. Sigrún Kristbjörg Jóns- dóttir, fiðluleikari og útsetjari, útsetti lög Hafdísar fyrir strengjasveit og mezzósópran og mun Jóhanna Ósk Valsdóttir syngja með sveitinni. Hljómsveitina skipa 17 hljóðfæra- leikarar og verða þetta fyrstu tón- leikar sveitarinnar. Meðlimir eru strengjaleikarar úr ýmsum áttum sem vilja kynna tónverk sem samin hafa verið fyrir strengjasveit og vera afl sem hvetur til þess að ný strengjasveitarverk verði samin. Hljómsveitarstjóri er Ólöf Sigur- sveinsdóttir. Fyrstu tónleikar Íslenskra strengja  Sópransöngkonurnar Heiðdís Hanna Sigurðardóttir og Bryndís Guðjónsdóttir og píanóleikarinn Matthildur Anna Gísladóttir bjóða gestum tónleikarað- arinnar Kúnstpásu í óperuferðalag á morgun kl. 12.15 í Norðurljósum í Hörpu. Fluttar verða valdar aríur og dú- ettar eftir Goun- od, Mozart, Donizetti og Bellini. Valdar aríur og dúettar í Kúnstpásu Á þriðjudag Allhvöss eða hvöss breytileg átt og snjókoma víða um land. Hægari sunnanátt undir kvöld og él, en léttir til á Norður- og Austurlandi. Frost 0 til 5 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Suðvestan 5-13 m/s. Él sunnan- og vestan- til, en þurrt og bjart nyrðra og eystra. Gengur í austan hvassviðri suðaustantil í kvöld með snjókomu. Frost yfirleitt 0 til 5 stig. VEÐUR Gylfi Þór Sigurðsson átti mjög góðan leik fyrir Everton þegar liðið hafði betur gegn Crystal Pal- ace, 3:1, í ensku úrvals- deildinni í knattspyrnu. Gylfi skoraði eitt mark og lagði upp annað. Gylfi hefur þar með skorað fjögur mörk í deildinni á tímabilinu og lagt upp þrjú. Hann fékk mjög góða dóma fyrir frammi- stöðu sína í leiknum. »1 Mark og stoð- sending hjá Gylfa Aðstæður í brautinni voru góðar og ekkert yfir því að kvarta. Ég bara náði mér aldrei í góðan gír í þessari göngu og undir lokin hugsaði ég um það eitt að ná að klára hana,“ sagði Snorri Einarsson sem varð í 56. sæti í 30 km skipti- göngu á Vetrar- ólympíu- leikunum í gær. »1 Ég bara náði mér aldrei í góðan gír Arna Stefanía Guðmundsdóttir úr FH tryggði sér Norðurlandameistaratit- ilinn í 400 m hlaupi innanhúss á Norð- urlandamótinu sem haldið var í Upp- sölum í Svíþjóð í gær. Þá krækti ÍR-ingurinn Hulda Þorsteinsdóttir sér í bronsverðlaun í stangarstökki. Ísland og Danmörk tefldu fram sameiginlegu liði og hafnaði það í neðsta sæti í bæði karla- og kvennaflokki. »2 Arna Stefanía Norður- landameistari ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Bach heillaði mig strax á barnsaldri. Ég hlustaði á píanósnillinga á borð við Glenn Gould og Sviat- oslav Richter leika prelúdíur og fúgur Bachs og varð fljótt gagntekinn af þessari tónlist. Strax á unglingsárum kom upp í huga mér sú hugmynd að gaman væri að geta leikið allar prelúdíurnar og fúgurnar; verk sem hafa gefið tóninn fyrir alla tónlist á Vesturlöndum síðustu árhundruð,“ segir Ólafur Elíasson píanóleikari. Á hverju þriðjudagskvöldi, nú á þriðja árinu, eru í Dómkirkjunni tónleikar þar sem Ólafur leik- ur fúgur og prelúdíur eftir Johann Sebastian Bach. Verkin eru tekin úr tveimur bókum, Das wohltemperierte Klavier 1 & 2, sem mætti þýða sem „vel stillta píanóið“. Í hvorri þeirra eru 24 prelúdíur og fúgur í öllum 24 tóntegundunum. Tónlistarmenn tala oft um þessi verk sem gamla testamentið enda grundvallarverk í tónlistarsög- unni. Alfræðibók og allar tegundir tónlistar „Hljómborðsverk snemma á barokktímanum voru oft í einfaldari tóntegundum, en hljómborðin voru þá oft stillt þannig að C-dúrinn var alveg hreinn. Þannig hljómar hljóðfærið afar fallega sé leikið bara á hvítu nóturnar en sé leikið á þær svörtu hljóma þær falskar. Snemma á 18. öld fundu hljóðfærasmiðir hins vegar leiðir til að stilla hljómborðin þannig að hægt væri að leika í hvaða tóntegund sem er,“ segir Ólafur og heldur áfram: „Bach var afar hrifinn af þessum nýju stilling- um, sem gáfu honum mikið frelsi á hljómborðið. Hann ákvað þá að skrifa prelúdíur og fúgur í öll- um tóntegundum og setja í þessi verk nánast allt sem hann kunni um tónlist. Þannig verða prelúdí- ur og fúgur Bachs nokkurs konar alfræðibók þar sem finna má nánast allar tegundir tónlistar sem hann hafði vald á; trúarlegar hugleiðingar, dans- tónlist og allt þar á milli,“ segir Ólafur. Raddirnar syngja saman Fúgur Bachs eru þannig gerðar, að sögn Ólafs, að margar sjálfstæðar laglínur hljóma í senn. „Þegar raddirnar syngja saman hjá Bach koma oft fram nýir óþekktir hljómar og tónbil sem hljóma framandi jafnvel enn í dag. Mörgum djass- leikurum finnst t.d. fúgur Bachs vera forboði um djassinn sem kemur fram tvö hundruð árum seinna. Að minnsta kosti er það vel þekkt að þeg- ar djasstónlistarmenn fara að skoða Bach finnst þeim þeir oft vera á kunnuglegum slóðum.“ Aðsókn á tónleikana hefur jafnan verið góð, að sögn Ólafs. Á sumrin er stundum full kirkja og ferðamenn eru duglegir að mæta. Tónlist gömlu meistaranna er síst á undanhaldi og þeim sem þá kunna að meta fjölgar stöðugt. Á meðal áheyr- enda eru líka oft tónlistarmenn sem koma eftir tónleika til Ólafs, sem lýsir því svo að þá spinnist oft miklar umræður um túlkun á verkum Bachs. Sex ára verkefni „Núna er ég um það bil hálfnaður með verkin í Bachbókunum tveimur. Ég ætlaði mér að ná verkunum öllum á fjórum árum, en það hefur reynst aðeins of mikil bjartsýni. Ég þarf senni- lega fimm ef ekki sex ár til að klára að leika öll verkin,“ segir Ólafur, sem leikur sex prelúdíur og fúgur á hverjum tónleikum sem taka um það bil hálfa klukkustund. Þar velur hann verkin með það fyrir augum að efnisskráin sé sem fjölbreytt- ust. „Ég reyni líka að vera duglegur að rifja upp það sem ég hef spilað fyrr í ferlinu og halda þessu öllu við þar sem mig langar að fara með þessa dagskrá utan í framtíðinni.“ Margar laglínur hljóma í senn Morgunblaðið/Hari Píanóleikarinn Ólafur Elíasson í Dómkirkjunni. Hann dáir Bach enda margar víddir í tónverkum hans.  Ólafur leikur prelúdíur og fúgur Bachs á hverjum þriðjudegi í Dómkirkjunni Ólafur Elíasson var mjög virkur á sínum tíma í Indefence-hópnum, sem barðist gegn því að íslenska ríkið tæki yfir skuldbind- ingar vegna Icesave í Bretlandi og Hollandi, þegar Landsbankinn féll. „Ég var búinn á því eftir Icesave og kúpl- aði mig út úr þjóðmálunum. Ég sneri mér aftur og alfarið að tónlistinni. Við í Inde- fence vorum með aðstöðu í húsakynnum Al- þingis um tíma og í nokkur ár snerist allt mitt líf í kringum þetta svæði hér við Austurvöll. Í þessu ati varð mér oft litið til Dómkirkjunnar og fannst eins og andlegur friður væri yfir henni þegar allt var að verða vitlaust hér í kring. Nú finnst mér afar gott að vera á sama svæðinu í hinu magnaða andrúmslofti Dómkirkjunnar og eiga viku- legan fund með fólki sem nýtur þess að hitta Bach með mér.“ Magnað andrúmsloft BARÁTTUMAÐUR ÚR INDEFENCE

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.