Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 2
Hvað er að frétta?
„Það er bara allt gott. Fjölskyldan dafnar og lífið er ljúft. Ég
er ekki frá því að ég sé jafnvel farinn að þroskast aðeins.“
Hvernig leggst árið 2018 í þig? Hvaða plön
ertu með?
„Árið leggst mjög vel í mig. Þetta verður gott ár. Ég mun
líklega eyða mesta frítímanum mínum með fólkinu mínu.
Svo mun ég líka dytta að húsinu og spila þess á milli, einn
eða með öðrum. Allt er þetta komið í svo gott jafnvægi
eftir að ég lenti flugfreyjunni heilu og höldnu og fór að
vinna með snillingunum í Arion banka. Þá er komið svo-
lítið meira skipulag á allt saman.“
Hvað er það sem heldur hljómsveitinni
svona þétt saman?
„Við strákarnir erum bara búnir að standa svo lengi í
þessari sígandi lukku og mótast með henni. Það
heldur okkur svo þétt saman. Við þekkjumst svo vel
og vitum hvað við þurfum að gera til að verða betri
útgáfa af okkur með hverju skiptinu sem við kom-
um fram. Og það er varla til betri tilfinning í tón-
listarstarfi en að koma af sviðinu í sæluvímu yfir
góðri vinnu og góðum viðbrögðum.“
Hvaða lag/lög með hljómsveitinni
heldurðu að fólk muni enn vera að
syngja árið 2068?
„Ég veit það ekki. Okkar ballgestir syngja með flestum
okkar lögum í dag. Við fáum hins vegar sjaldnast ósk um að
spila sama lagið þegar gestirnir okkar nálgast og koma með
óskir. Við erum líklega með fjölbreyttari hlustendagrunn en
okkur grunar. Og svo er smekkur fólks svo misjafn. Ég held ég
endi þetta svar á sömu setningu og ég byrjaði á: Veit það ekki.“
Eru aðdáendur ykkar ákveðinn kjarni sem
mætir á alla tónleika eða er mikið af nýjum
andlitum í hvert sinn?
„Við sjáum alltaf kunnugleg andlit inn á milli nýrra. Við höfum
eignast marga góða vini gegnum tíðina sem nota tækifærið og
klappa okkur aðeins á bak gegnum faðmlagið á böllunum okkar.
En við erum þvert á væntingar okkar að sjá mikið af nýjum gest-
um sem vilja frekar mæta á tónleika og böll með lifandi hljóð-
færaleik og söng. Mér finnst sjálfum ekkert jafnast á við það.“
Heldurðu með einhverju sérstöku
Eurovision-lagi í ár?
„Ég hef ekkert kynnt mér lögin. Mér finnst mest gaman að
sjá bara keppnirnar með mínu fólki og meta stöðuna þá.
Allt annað finnst mér bara skekkja heildarmyndina.“
JÓN JÓSEP SNÆBJÖRNSSON
SITUR FYRIR SVÖRUM
Farinn að
þroskast aðeins
Í FÓKUS
2 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018
Ritstjórn
Árni Matthíasson arnim@mbl.is Ásdís Ásgeirsdóttir asdis@mbl.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is Orri Páll Ormarsson
orri@mbl.is Sigurborg Selma Karlsdóttir sigurborg@mbl.is Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Það fylgir víst upphafi hvers árs að huga að nýju upphafi í eldhúsinu.Mikið fer í það minnsta fyrir umræðu um mataræði í þjóðfélaginu.Alls konar mataræði og matarvenjur sem við eigum víst að hafa til-
einkað okkur ef við viljum vera með.
Alltaf skal vera eitthvað til að minna á að við eigum að borða öðruvísi en
við gerum, borða helst eitthvað annað en við erum vön að borða, borða á öðr-
um tímum en okkur er tamt, borða sjaldnar en vanalega (eða borða oftar,
segja sumir), tyggja lengur, sleppa að borða á kvöldin, borða alltaf morgun-
mat, borða aldrei morgunmat, borða
engar dýraafurðir, borða bara dýra-
afurðir, sleppa sykri, sleppa líka
gervisykri (því hann er kannski
verri), forðast brenndan mat, borða
bara sykur í stuttan tíma í einu og
bursta svo tennur, borða litríkan
mat, borða ekkert sem er hvítt, ekk-
ert sem er svart en helst allt sem er
grænt – nema það sé ekki nógu vel
hreinsað, þá eigum við að sleppa því,
við eigum að vakna um miðja nótt til
að taka omega á fastandi maga,
drekka bara te en ekki kaffi – samt
ekki svart te eða grænt te því það er
með koffíni, drekka ekki ávaxtasafa
því hann er fullur af sykri, passa að
maturinn sé stútfullur af hollri fitu
en innihaldi alls enga harða, óholla fitu, borða nóg af grænmeti og ávöxtum,
borða samt alls ekki of mikið af ávöxtum því þeir eru svo sykraðir, telja hvað
við förum oft á klósettið til að gera númer tvö (fylgjast þannig með melting-
unni), biðja alls ekki um plastpoka í búðinni, setja afgangana alltaf í glerílát,
drekka mikið af vatni – samt ekki svo mikið að við skolum vítamínunum burt,
taka vítamín (en samt helst sleppa þeim, því við eigum að borða nægilega
hollan mat til að þurfa þess ekki) en mitt í öllum þessum reglum eigum við
auðvitað alltaf að vera að „njóta“.
Vitanlega á það að borða frekar að vera gleðileg athöfn en þjáning. Og
máltíðin má gjarnan gagnast líkamsstarfseminni frekar en að hindra hana.
En þetta er stundum orðið of mikið af reglum. Hvað varð um bara hafragraut
með slátri? Má það?
Það getur verið flókið að
setja saman máltíð eftir
kúnstarinnar reglum.
Thinkstock
Hafragrautur
með slátri
Pistill
Eyrún
Magnúsdóttir
eyrun@mbl.is
’Alltaf skal vera eitt-hvað til að minna áað við eigum að borðaöðruvísi en við gerum,
borða helst eitthvað ann-
að en við erum vön að
borða, borða á öðrum
tímum en okkur er tamt...
Arnar Jónsson
Fara á skíði ef það er hægt og vera
með fjölskyldunni.
SPURNING
DAGSINS
Hvað
ætlarðu að
gera um
helgina?
Jóhanna Haele
Ég er að fara að keppa í handbolta
og út að borða.
Morgunblaðið/Ásdís
Pálmi Theódórsson
Ég verð bara heima að horfa á
sjónvarpið og heimsæki líka fjöl-
skylduna.
Ingunn Káradóttir
Ég er að fara á framhaldsnámskeið
í fyrstu hjálp fyrir björgunar-
sveitarstarfið.
Ritstjóri Davíð Oddsson
Ritstjóri og framkvæmdastjóri Haraldur Johannessen
Aðstoðarritstjóri Karl Blöndal
Umsjón
Eyrún Magnúsdóttir,
eyrun@mbl.is
Prentun
Landsprent ehf.
Hádegismóum 2,
110 Reykjavík.
Sími 5691100
Útgáfufélag
Árvakur hf.,
Reykjavík.
Forsíðumyndina tók
Hari
15 ár eru síðan metsölubreiðskífa hljómsveitarinnar Í svörtum fötum, samnefnd sveitinni, kom út. Af
því tilefni mun Jón Jósep Snæbjörnsson, Jónsi í Svörtum fötum, og félagar hans spila á tónleikum í
Reykjavík í fyrsta skipti í langan tíma, 15. febrúar á Hard Rock Café þar sem strákarnir fara yfir feril
hljómsveitarinnar og leika þekktustu lög hennar. Þeir spila svo á Græna hattinum á Akureyri 17. febrúar.
Morgunblaðið/Eggert