Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 8
Í PRÓFÍL
8 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018
ÁSTIN Bruno hefur verið í tygjum við Jessicu Caban,
fyrirsætu og leikkonu, frá árinu 2011. Sumarið 2012
flutti hún til hans til Los Angeles þar sem hann býr í
þriggja milljóna dollara höll. Parið lætur mjög sjaldan
sjá sig saman, en þau hafa komið saman á Grammy-
verðlaunahátíðirnar árið 2014, 2016 og núna 2018. Í
viðtali við Rolling Stone árið 2013 sagðist hann hafa
samið lagið „When I Was Your Man“ um kærustuna,
á tíma sem hann hélt að sambandið væri á enda.
Caban er fædd árið 1982 í New York-borg, alin upp
í spænska hluta Harlem. Foreldrar hennar eru frá
Púertó Ríkó. Hún á eitt eldra systkini.
Hún hóf feril sinn árið 2002 þegar hún var valin til
þess að sitja fyrir í fatalínu Jennifer Lopez. Í kjölfarið
kom hún fram í ótal sjónvarpsauglýsingum og í tíma-
ritum, auk tónlistarmyndbands.
Árið 2008 tók hún þátt í raunveruleikaþætti sem
heitir Model Latina þar sem fyrirsætur keppa til úr-
slita. Caban bar sigur úr býtum og var krýnd fyrsta
Model Latina.
Parið lét sjá sig saman á Grammy-verðlaunahátíðinni
síðastliðinn sunnudag. Þau hafa verið saman frá 2011.
Sjást afar
sjaldan saman
PETER GENE HERNANDEZ, betur þekktur undir nafninu BRUNO
MARS, fæddist 8. október 1985 á Havaí og ólst þar upp í mikilli tónlistar-
fjölskyldu. Mars er nú á hátindi ferils síns en hann hefur verið mikið í sviðs-
ljósinu síðustu ár. Hann er fjölhæfur tónlistarmaður en hann syngur og sem-
ur, spilar á fjölmörg hljóðfæri, er plötuframleiðandi og danshöfundur.
Mars hóf snemma að spila og semja tónlist og spilaði víða sem barn og
unglingur í sínum heimabæ. Eftir útskrift úr grunnskóla flutti hann frá
Havaí til Los Angeles til þess að eltast við drauma sína um tónlistarferil.
Þegar Motown Records hafnaði því að gera samning við hann, skrifaði
hann undir hjá Atlantic Records árið 2009. Það sama ár stofnaði hann í sam-
starfi við aðra útgáfufélagið The Smeezingtons og gaf félagið út nokkur lög
sem urðu feikivinsæl.
Fyrsta plata hans sem sólólistamaður er Doo-Wops & Hooligans (2010) en
á henni má finna lög sem fóru á toppinn bæði í Bandaríkjunum
og víðar um heim; eins og „Just the Way You Are“ og
„Grenade“. Næsta plata hans, Unorthodox Jukebox (2012), fór
í fyrsta sæti í Bandaríkjunum. Vinsældir Mars jukust við
hverja plötu og hefur hann átt fjölmörg topplög. Hann hefur
selt yfir 200 milljónir platna, sem setur hann í hóp söluhæstu
tónlistarmanna heims frá upphafi. Sjö sinnum síðan hann hóf
sinn feril árið 2010 hefur hann átt lög í fyrsta sæti bandaríska
Billboard Hot 100 listans. Hann er sá karlkyns tónlistarmaður
sem hefur náð fimm lögum á toppinn á næstskemmstum tíma,
aðeins sjálfur Elvis Presley var sneggri að ná þeim áfanga.
Á tónleikum spilar hann með hljómsveit sinni The Hooligans,
en í henni er gítarleikari, bassaleikari, trommari, hljómborðs-
leikari og hornleikarar. Meðlimir hljómsveitarinnar eru líka
dansarar og bakraddasöngvarar.
Mars hefur hlotið fjöldann allan af verðlaunum og viður-
kenningum. Þriðja plata hans, 24 K Magic, sló heldur betur í
gegn. Á Grammy-verðlaunahátíðinni sem haldin var fyrir
skömmu var hann ótvíræður sigurvegari kvöldsins, en hann
sópaði til sín sjö verðlaunum, m.a. fyrir plötu ársins og bestu
R&B plötuna (24 K Magic), lag ársins og besta R&B lag (That’s
What I Like). Hann hafði áður unnið til Grammy-verðlauna,
þrennra Brit-verðlauna og var sagður einn af 100 áhrifamestu
manneskjum í heiminum árið 2011. Í desember árið 2013 var
hann í fyrsta sæti á Forbes-listanum undir 30 ára. asdis@mbl.is
FJÖLSKYLDA Foreldrar Mars heita Peter
Hernandez og Bernadette San Pedro
Bayot. Faðir hans, sem er tónlistarmaður
frá Brooklyn, er Púertóríkani í aðra ættina
en Ashkenazi-gyðingur í hina. Móðir hans
flutti barnung til Bandaríkjanna frá Filipps-
eyjum, en hún var söngkona og dansari.
Þau kynntust í sýningu þar sem faðir hans
lék á slagverk en móðirin dansaði húla-
dans. Hún lést árið 2013.
Mars á fimm tónelsk systkini. Í uppeld-
inu hlustaði hann á ýmsar tegundir tónlist-
ar, eins og reggae, rokk, hipphopp og R&B.
Þegar hann stóð á sviði að taka á móti
Grammy-verðlaunum síðasta sunnudag
sagði hann: „Sjáðu mig, pabbi, sjáðu mig!
Ég er á Grammy-verðlaunahátíðinni!“
Sjáðu mig,
pabbi!
Mars er alinn upp í
tónelskri fjölskyldu.
ÆSKAN Frændi Mars var Elvis-
eftirherma og hvatti hinn þriggja
ára gamla Mars til þess að koma
fram á sviði. Mars söng þá lög eftir
Michael Jackson, The Isley Broth-
ers og The Temptations. Fjögurra
ára gamall byrjaði hann að koma
fram fimm sinnum í viku með fjöl-
skylduhljómsveitinni The Love
Notes, og varð hann vel þekktur
fyrir að herma eftir Elvis. Birtist
hann sem litli Elvis í blöðum og
sjónvarpi og lék smáhlutverk í
Honeymoon in Vegas (1992). „Að
vaxa úr grasi á Havaí hefur gert
mig að þeim manni sem ég er í
dag. Ég kom fram á ótal sýningum
með bandinu hans pabba. Allir í
fjölskyldunni syngja og spila á
hljóðfæri. Ég hef alltaf verið um-
kringdur tónlist.“
Bruno Mars hefur staðið á sviði frá
þriggja ára aldri en fjögurra ára var
hann farinn að stæla Elvis.
Litli Elvis
Sópar til sín
verðlaunum
Vinsældir Mars aukast
með hverju árinu en í
dag er hann einn
frægasti tónlistar-
maður heims.
’Sjö sinnum síðan hann hóf sinnferil árið 2010 hefur hann átt lögí fyrsta sæti bandaríska Billboard-listans. Hann er sá karlkyns tónlist-
armaður sem hefur náð fimm lögum
á toppinn á næstskemmstum tíma,
aðeins Elvis Presley var sneggri.
Mars hefur sungið og samið frá blautu
barnsbeini og er flottur á sviði.
Nánari upplýsingar áwww.geosilica.is
Fæst í apótekum, heilsubúðum, Hagkaupum, Nettó, Fjarðarkaupum og geoSilica.is
Unnið úr 100% náttúrulegum jarðhitakísil og
mangan í hreinu íslensku vatni.
Repair er sérstaklega hannað og þróað fyrir
uppbyggingu beina og styrkingu bandvefjar þ.m.t.
liðbönd, liðþófar og krossbönd.