Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - Sunnudagur - 04.02.2018, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 4.2. 2018 VETTVANGUR Jón Gunnarsson, samgöngu-ráðherra í síðustu ríkisstjórn,var næmur á vilja verktaka og fjárfesta í vegamálum. Þeir vilja sem kunnugt er allt í einka- framkvæmd. Ekki svo að skilja að vegaframkvæmdir séu ekki nánast allar boðnar út. Þessir aðilar vilja hins vegar meira, bæði sitja að uppbyggingarstarfinu og einnig fá í hendur skattlagningarvald yfir mér og þér. Með öðrum orðum, þeim er ekki nóg að hagnast á vegaframkvæmdunum. Þeir vilja líka geta grætt á því sem fram fer ofan á vegunum fullkláruðum, okk- ur sem ökum um þá. Og inni í þessum pakka vilja þeir helst líka hafa flugvellina og hafnirnar. Ég heyri ekki betur en Sigurður Ingi Jóhannsson, nýr samgöngu- ráðherra, sé kominn í þennan gír líka. Hann sé nú Jón Gunnarsson endurborinn. Enda þótt tekjur ríkissjóðs af um- ferð hafi aldrei verið meiri með almennri skatt- heimtu skal enn seilst í pyngjur okkar sam- kvæmt boðskap samgöngu- ráðherrans í byrjun vikunnar. Þar fór ekki á milli mála að hann daðraði við einkaframkvæmd. Nú skal tekið fram að ekki er ég því andvígur að greiða skatta. Ég er hins vegar mjög mótfallinn því að borga skatta til þess að fjár- festar fái að hagnast á mér. Og ég er þar staddur í stjórnmálum að vilja að stjórnvöldin gæti almanna- hags en ekki hagsmuna fjárfesta. Í þessari nýuppvöktu umræðu um einkaframkvæmd og vegatolla er að sjálfsögðu vísað í lífeyrissjóð- ina eins og fyrri daginn. Það er gert til að sefa fólk. Við erum minnt á að lífeyrissjóðirnir séu af samfélagslegum toga. Það hljóti því að vera í lagi að leyfa þeim að reka vegakerfi. Arður af samfélagsverkefnum til lífeyrissjóða er vissulega illskárri en arðgreiðslur til ýmissa annarra. En gleymum ekki að lífeyrissjóð- irnir leita með fjárfestingum sínum jafnan að hámarksarðsemi. Það eiga þeir sammerkt með öðrum fjárfestum. Og ef sú leit fer fram í okkar vösum er allt gleymt sem heitir samfélagslegt. Þeir eru því ekki áreiðanlegri fjárfestar en hver annar, þangað hlaupnir þar sem best býðst. Ef ríkissjóð skortir fé, sem ekki er raunin á, þá getur hann vissu- lega slegið lán hjá lífeyrissjóðum, sem þá hagnast sem lánveitendur. En eignarhald og rekstrarleg ábyrgð á eftir sem áður að hvíla hjá ríki og sveitarfélögum. Hagnaður þeirra fyrir okk- ar hönd á að skila sér í sam- göngukerfi sem er okkur öllum opið og án gjaldtöku. Síðan er það hitt, á hverja ráðherra hlustar þegar kemur að framkvæmdum. Mín reynsla sem forvera þessara tveggja fyrrnefndu ráðherra í embætti, er sú að sérfræðingar Vegagerðarinnar legðu jafnan höfuðáherslu á viðhald vega og jafnframt að auka öryggiskröfur jafnt og þétt, til dæmis með örugg- ari aflíðandi vegköntum, breikkun vega þar sem afleggjarar liggja að höfuðvegi og síðan að færa hring- veginn smám saman í það sem kallað er tveir plús einn en ekki tvisvar sinnum tveir. Með öðrum orðum, leita að hagkvæmasta kosti. Það er að segja fyrir okkur, notendurna, sem jafnframt erum greiðendur. Tvöföldun vega sem aftur er að komast í tísku, einkaframkvæmd og vegtollar eru hins vegar góður kostur fyrir einhverja allt aðra. Heitir Jón Gunnarsson nú Sigurður Ingi? ’Í þessari nýuppvöktuumræðu um einka-framkvæmd og vegatollaer að sjálfsögðu vísað í lífeyrissjóðina eins og fyrri daginn. Það er gert til að sefa fólk. Við erum minnt á að lífeyrissjóð- irnir séu af samfélags- legum toga. Það hljóti því að vera í lagi að leyfa þeim að reka vegakerfi. Morgunblaðið/Eggert Úr ólíkum áttum Ögmundur Jónasson ogmundur@althingi.is Poppfræðingurinn Arnar Eggert Thoroddsen skrifaði á Face- book: „Hundruð menntaskólanema komu til okkar í Odda og reyndu sig við prakískar úrlausnir með tólum félags- og mannvísindanna. Verkefnið var að skoða hugsanlega tónlistarhátíð í Viðey í krók og kima en þar kæmu fram OMAM, Kaleo, Lorde, Drake og Kings of Leon. Pælingarnar voru ferskar, frum- legar og skemmtilegar. Framtíðin er björt!“ Eiríkur Rögnvaldsson íslenskuprófessor: „er alinn upp við að borða kjöt 14 sinnum í viku - eða næstum því. Auðvitað er það manninum eðlilegt að borða kjöt. Þess vegna erum við menn en ekki apar - aparnir eru lúser- ar sem héldu áfram í grænmet- inu.“ Bryndís Ísfold Hlöðvers- dóttir stjórn- málafræðingur með meiru: „er til í að kjósa þann sem kemur því í framkvæmd að ég megi áfram beygja til hægri á rauðu - bara löglega.“ Pétur Jónsson tónlistar- maður tísti á @senordonpedro: „Það sem gleym- ist oft í öllum þessum veislu- höldum og bruðli er að einfaldleik- inn er alltaf bestur. Það sem hittir alltaf í mark hjá mér er Dijon-aspas samlokan á Aktu taktu. Grænn aspas í niðursuðu- dós og nóg af honum, mmmmmm.“ AF NETINU Íslensk hönnun - Íslenskt handverk Arndís Jóhannsdóttir ásta créative clothes Sunna Sigfríðardóttir Vesturgötu 4, 101 Reykjavík, s. 562 8990 www.kirs.is, Kirsuberjatréð Íslensk Hönnun Opið: Mán.-fös. 10-18, lau. 10-17, sun 10-17 Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum Svansvottuð betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig Almött veggjamálning Dýpri litir - dásamleg áferð ColourFutures2018 Silver Shores Steel Symphony Faded Indigo

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.